Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
47
íþróttir
Iþróttir
Bland í poka
Einar Guójónsson, GK, sigraði á af-
mælismóti Golfklúbbsins Keiiis sem
haldið var á dögunum. Einar fékk 44
punkta. Gestur Már Sigurðsson, GK,
varö annar með 38 punka og í þriðja
sæti varð Gústaf Alfreðsson, GK, með
38 punkta.
Guðmundur Stephensen, Víkingi, er
efstur að stigum eftir punktamót
vetrarins í borðtennis. Guðmundur
er með 159 punkta. Dennis Martin,
KR, er í öðru sæti með 75 punkta og
Kjartan Briem, KR, þriðji með 47
punkta.
Lilja Rós Jó-
hannesdóttir,
Víkingi, er efst í
meistaraflokki
kvenna með 51
punkt. Ingibjörg
Ámadóttir, Vik-
ingi, er næst með
14 punkta og i
þriðja sæti er
Eva Jósteinsdóttir, Víkingi, með 4
punkta.
Norðurlandamótið i skvassi verður
haldið í Ósló um helgina en þetta er
eitt af fjórum mótum sem gefa stig til
Norðurlandameistara. Sex keppendur
munu koma frá íslandi en það eru
Kim Magnús Nielsen, Magnús Helga-
son, Sigurður Sveinsson, Hilmar
Gunnarsson, Viðar Jóhannesson og
Hafsteinn Daníelsson.
Halldór B. Jóhannsson og Jóhanna
Rósa Ágústsdóttir, íslandsmeistarar í
þolfuni, taka þátt i heimsmeistara-
mótinu í þolfimi sem fram fer á ítal-
iu 14.-16. maí.
Herrakvöld Körfuknattleiksdeildar
Njarðvíkur verður haldið í kvöld.
Fjörið verður undir öruggri stjóm
Stefáns Bjarkasonar og hefst veislan
klukkan 19.30. Miðapantanir em í
sima 421-5170 milli klukkan 13 og 17
og eftir klukkan 17 hjá Gunnari í s.
421-3073 og Viöari í s. 421-5972.
Jimmy White, sem sló Stephen
Hendry eftirminnilega út úr heims-
meistaramótinu í snóker i Sheffield,
er sjálfur úr leik. Hann tapaði fyrir
Ronnie O’Sullivan, 13-7, í átta manna
úrslitunum í gær.
Ken Doherty heimsmeistari vann
Matthew Stevens, 13-10. John Higg-
ins vann John Parrott, 13-11, og
Mark Williams vann Peter Ebdon,
13-11.
i undanúrslitum mætast þeir O’Sull-
ivan og Higgins annars vegar og
Doherty og Williams hins vegar.
-GH/VS
Helgi fékk hrós
Helgi Kolviösson átti góðan
leik í gærkvöld þegar lið hans,
Lustenau, fékk dýrmæt stig á
útivelli gegn Ried, 1-1, í austur-
rísku 1. deildinni í knattspymu.
í umfjöllun textavarps austur-
ríska sjónvarpsins í gærkvöld
var Helgi sagöur einn þriggja
bestu leikmanna Lustenau í
leiknum en hann lék allan
leikinn á miöjunni. Lustenau er
nú komið átta stigum frá fallsæti
þegar fjórum umferðum er ólok-
ið. -VS
Um helgina^i
Deildabikar karla í knattspymu:
FH-ÍR.....................L. 12.00
ÍBV-KR....................L. 12.00
Leiftur-lA................L. 12.00
Stjaman-Valur.............L. 12.00
Deildabikar kvenna:
Stjaman-Valur.......Ásv. Fi. 18.30
Breiðablik-Fjölnir . . . .Ásv. Fi. 20.30
Haukar-KR ...........Ásv. Fö. 15.00
ÍBV-ÍA ..............Ásv. Fö. 17.00
Golf:
Opið mót, Fiskimjöls- og lýsismótið,
hjá Golfklúbbi Grindavíkur verður á
laugardag.
Fyrsta LEK-mót eldri kylfmga á ár-
inu verður á sama stað á sunnudag.
Glíma:
Islandsgliman verður háð i íþrótta-
húsi Kennaraháskólans á laugardag
og hefst kl. 13.
Lazio varð bikarmeistari
Lazio varö í gærkvöld ftalskur bikarmeistari meö 3-1 sigri á AC Milan í síöari
leik liöanna í Rómaborg. Milan haföi unniö fyrri leikinn, 1-0, og leiddi í háif-
leik meö marki frá Albertini. I sföari hálfleik skoruöu hins vegar Gottardi,
Jugovic og Nesta fyrir Lazio og á myndinni fagnar Nesta marki sínu sem réö
úrslitum í viöureigninni. Mynd Reuter
Hjónakornin í
atvinnumennsku?
<.»
- Rúnar og Heiða með tilboð frá Þýskalandi
Rúnar Sigtryggsson, handknattleiks-
maður úr Haukum, og eiginkona
hans, Heiða Erlingsdóttir úr Víkingi,
eru bæði með tilboö frá þýskum hand-
knattleiksfélögum. Rúnar æfði í síð-
ustu viku með 2. deildar liðinu Göpp-
ingen og í kjölfarið buðu forráðamenn
félagsins honum tveggja ára samning.
„Það ætti að koma í Ijós á næstu
dögum hvort ég geri samning við liö-
ið en í dag (í gær) sendi ég forráða-
mönnum félagsins nokkrar breyting-
ar á samningnum sem þeir eiga svo
eftir að skoða. Mér leist mjög vel á
liðið og aðstæðurnar. Þetta er eitt af
7-8 liðum sem ætla sér að fara upp í
1. deildina og það ætlar að styrkja
hópinn," sagði Rúnar í samtali við
DV í gær.
Þýska 2. deildin er mjög sterk og til
merkis um það komst toppliðið í 2.
deildinni, Dutenhofen, alla leið í úr-
slit í Evrópukeppninni.
Heiða, eiginkona Rúnars, var í for
með manni sínum í Þýskalandi og
hún kom ekki tómhent heim frekar
en Rúnar. Þýska 2. deildar liðið Alm-
stadt gerði henni tilboð um að leika
meö félaginu á næstu leiktíð.
„Þetta kom óvænt upp en tvö þýsk
félög settu sig í samband við hana.
Almstadt er um 100 km frá Göpp-
ingen svo það gæti orðið svolítið snú-
ið fjöldskyldulíf ef samningar takast,”
sagði Rúnar en saman eiga hann og
Heiða eitt lítið bam. -GH
Eyjólfur Sverrisson.
Jason og Aron
til Friesenheim
Handknattleiksmennirnir Ja-
son Kristinn Ólafsson úr Aftureld-
ingu og Haukamaðurinn Aron
Kristjánsson héldu í morgun til
Þýskalands en þýska 2. deildar lið-
ið Friesenheim bauð þeim að
koma út, æfa með félaginu og
kanna aðstæður.
Opinn fyrir öllu
„Ég fer út meö jákvæðu hugar-
fari og er opinn fyrir öllu. Þetta
kom snöggt upp á og mér fannst
alveg sjálfsagt aö sjá hvaö er í
boði,“ sagði Jason í samtali við
DV í gær en þeir verða hjá félag-
inu fram að helgi.
Friesenheim leikur í suður-riðli
2. deildarinnar og hefur verið að
berjast í neðri hlutanum en nú
hefur stefhan verið tekin upp á við.
Jason rifti samningi sínum
viö Aftureldingu
Jason var með samning við Aft-
ureldingu í eitt ár til viðbótar en á
dögunum rifti hann samningnum
við félagið.
„Afturelding vildi breyta samn-
ingnum og því fannst mér best að
rifta honum. Éf ég leik ekki er-
lendis á næsta tímabili er samt
líklegast að ég verði áfram í Aftur-
eldingu,” sagði Jason en hann hef-
ur leikiö með tveimur erlendum
félögum, Brixen á Ítalíu og Leuter-
hausen í Þýskalandi.
Aron, sem á tvö ár eftir af
samningi sínum við Hauka, hefur
verið að þreifa fyrir sér í
Þýskalandi og í vetur æfði hann
með þýska 2. deildar liðinu Ros-
tock. -GH
oka
Jaap Stam, dýrasti varnarmaður
heims, sem er á leið til Manchester
United, skoraði sjálfsmark i gær-
kvöld. Það kom þó ekki að sök því lið
hans, PSV Eindhoven, vann Twente,
2-1, i undanúrslitum hollensku bikar-
keppninnar í knattspymu.
Barcelona er tvöfaldur meistari í
spænsku knattspyrnunni eftir sigrn- á
Mallorca i bikarúrslitunum í gær-
kvöld. Barcelona þurfti þó framleng-
ingu og vitaspyrnukeppni eftir 1-1
jafntefli og samt lék Mallorca með 9
menn alla framlenginguna.
Ruud Hesp, markvörður Barcelona,
tryggði liði sínu bikarinn með því að
veija síðustu spymu Mailorca sem
Xabier Eskurza tók.
Panionios varð griskur bikarmeist-
ari i gærkvöld með því að vinna Pan-
athinaikos, 1-0, í úrslitaleik.
Attilio Lombardo sagði af sér sem
þjálfari enska liðsins Crystal Palace í
gærkvöld en hann tók við liðinu til
bráðabirgða seinni part vetrar.
Ron Noades, stjórnarformaður Pal-
ace, og Ray Lewington aðstoðarþjálf-
ari velja liöið og stjóma því í þremur
siðustu leikjum þess.
-VS
Guðmundur Karlsson næsti þjálfari Hauka?
„Bendir allt til þess“
„Það bendir allt til þess að ég
verði næsti þjálfari Hauka. Ég hef
átt í samningaviðræðum en á með-
an ekki hefur verið skrifað undir er
ekki hægt að fullyrða neitt í þessu
sambandi,” sagði Guðmundur
Karlsson í samtali við DV í gær en
flest bendir til þess að hann verði
eftirmaður Sigurðar Gunnarssonar
sem þjálfari karlaliðs Hauka í hand-
knattleik á næsta tímabili.
Verði Guðmundur ráðinn þjálfari
Haukanna verður það þriðja 1.
deildar liðið sem hann stýrir en
áður hefur hann þjálfað FH og Sel-
foss. Á nýliðnu tímabili var hann
ein af hjálparhellum Sigurðar
Gunnarssonar og hann ætti því aö
þekkja vel til liðsins.
Fyrirséðar eru nokkrar breyting-
ar á Haukaliðinu fyrir næsta tíma-
bil. Gústaf Bjamason er genginn i
Athugasemd frá HSÍ:
Kvennalið Fram
lengi á toppnum
Við lestur á íþróttasíðu DV í dag
sá ég viðtal viö Svein Andra Sveins-
son, formann Fram, þar sem hann
greinir frá jákvæðum hlutum i
starfsemi félagsins.
Um leið og ég vil óska Fram til
hamingju með afmælið og alls hins
besta i framtiðinni sé ég mig til-
neiddan til að flnna að einu atriði
sem Sveinn Andri segir.
í greininni segir Sveinn Andri
„Handboltinn er að rísa aftur upp
eftir áratuga lægð og það vantaði
aðeins herslumuninn að hann skil-
aði okkur titlum.“
Sem framkvæmdastjóri HSÍ fagna
ég því að handboltinn sé á uppleið í
Fram en verð þó að benda á að
kvennalið félagsins hefur á síðustu
tuttugu árum verið eitt allra besta
handknattleikslið íslands í meist-
araflokki kvenna. Þessu til staðfest-
ingar má segja frá því að kvennalið
félagsins hefur síðan 1978 orðið ís-
landsmeistari 10 sinnum (síðast
árið 1990) og bikarmeistari 11 sinn-
um (síðast árið 1995).
Það má því segja að kvennalið
Fram hafi á síðustu 20 árum haldið
merki félagsins hátt á lofti og eiga
leikmenn félagsins heimtingu á því
að munað sé eftir þessum góða ár-
angri.
Með íþróttakveðju,
Örn H. Magnússon,
framkvæmdastjóri HSÍ
Bland í noka
GG vann Njaróvík, 2-1, í Suður-
nesjamótinu í knattspymu í gær-
kvöld og mætir nágrönnum sínum í
Grindavík í undanúrslitum mótsins.
Það verður lika nágrannaslagur í
hinum undanúrslitaleiknum því þar
eigast viö Víðir úr Garði og Reynir
úr Sandgerði.
Þóróur Guðjónsson og félagar í Genk
unnu Gent, 2-1, í belgísku 1. deildinni
í knattspymu i gærkvöld. Þórður fór
iila með eitt dauðafæri þegar hann
skaut yfir opið mark Gent.
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle og
enska landsliðs-
ins, er i vondum
málum. Hann
sparkaði i andlit
Neils Lennons
hjá Leicester í
leik liðanna i úr-
valsdeildinni í
gærkvöld. Dóm-
arinn sá ekki atvikið en sjónvarpsvél-
amar náðu því skýrt og greinilega.
-KB/VS
Eyjólfur
axlar-
brotinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, var í fyrra-
kvöld fluttur á sjúkrahús í Berlín. I
ljós kom að hann er axlarbrotinn og
það hefur væntanlega gerst í leik
Herthu Berlín við Bielefeld um síð-
ustu helgi. Eyjólfúr missir því af
tveimur síðustu umferðum þýsku 1.
deildarinnar. -VS
Emmanuel Petit, til hægri, sem hér fagnar
ásamt Nicolas Anelka, skoraði hiö dýrmæta
sigurmark Arsenai gegn Derby í gærkvöld.
Mynd Reuter
Úrslitakeppni NBA:
Chicago og SA Spurs
eru komin áfram
- Houston með forystu gegn Utah
Meistarar Chicago BuUs og San
Antonio Spurs tryggðu sér í nótt
sæti í 2. umferð úrslitakeppninnar
í NBA og Houston er óvænt komið
yfir gegn Utah Jazz. Úrslitin í nótt:
New Jersey-Chicago . 101-116 (0-3)
Douglas 19, Van Horn 18, Gatling 18 -
Jordan 38, Burell 23, Pippen 13.
SA Spurs-Phoenix...... 99-80 (3-1)
Johnson 30, Person 18, Robinson 15 -
Johnson 18, Nash 13, Kidd 12.
Houston-Utah.......... 89-85 (2-1)
Olajuwon 28, Drexler 22, Maloney 11 -
Malone 19, Russell 19, Stockton 15.
„Það er mjög mikilvægt að
vinna svona einvígi fljótt því það
gefur okkur tima til að byggja upp
liöið fyrir næstu lotu,“ sagði Phil
Jackson, þjálfari Chicago. Michael
Jordan fór á kostum eins og í leikj-
unum tveimur á undan en hann
skoraði að meðaltali 36,3 stig í
leikjunum. Dennis Rodman hirti
17 fráköst eða aðeins fjórum minna
en allt New Jersey-liöið.
Hakeem Olajuwon var maður-
inn á bak við sigur Houston á Utah
en eins og menn muna lék Utah til
úrslita um titilinn í fyrra. Ola-
juwon skoraði 28 stig, tók 12 frá-
köst og setti niður tvö vítaskot þeg-
ar hálf mínúta var eftir. Með sigri
aðra nótt á heimavelli sínum slær
Houston lið Utah úr leik og það er
eitthvað sem menn áttu ekki von
á. -GH
Magnús í Gróttu/KR?
Magnús Agnar Magnússon, sem leikið hefur á línunni með 1. deildar liði
Stjörnunnar í handknattleik undanfarin tvö ár, gæti verið á leið til
Gróttu/KR sem leikur í 1, deildinni næsta haust.
Magnús kom til Stjömunnar frá KR ásamt Hilmari Þórlindssyni og Ein-
ari Baldvini Ámasyni þegar félagið féll og samkvæmt heimildum DV e*—
Magnús mjög spenntur fyrir þvi að ganga til liðs við nýliðana svo framar-
lega sem félagið nái að styrkja lið sitt. Þá hefur Einar Baldvin verið orðað-
ur við Gróttu/KR en Hilmar Þórlindsson mun leika áfram með Stjörnu-
mönnum á næsta tímabili.
Ólafur Lárusson verður áfram þjálfari KR/Gróttu-liðsins sem vinnur að
því þessa dagana að styrkja leikmannahóp sinn. Mikill hugur er í forráða-
mönnum félagsins sem segjast vera komnir í 1. deildina til að vera.
-GH
„Þetta er búið“
- Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir sigur Arsenal í höfn
raðir þýska liðsins Willstadt, Bjarni
Frostason markvörður þarf líklega
að hætta vegna starfa sinna í flug-
inu og Þorvarður Tjörvi Ólafsson
heldur í nám í Danmörku. Þá eru
Rúnar Sigtryggsson og Aron Krist-
jánsson að þreifa fyrir sér í Þýska-
landi eins og kemur fram annars
staðar hér á opnunni.
-GH
Enski meistaratitillinn í knattspymu
blasir við Arsenal eftir 1-0 sigur á Der-
by á Highbury i gærkvöld. Arsenal þarf
aðeins einn sigur enn í síðustu þremur
leikjum sínum og mætir Everton á
heimavelli á sunnudaginn.
Emmanuel Petit skoraði sigurmarkið
á 35. minútu með góðu skoti rétt utan
vítateigs. Dennis Bergkamp hafði þá
látið Mart Poom, markvörð Derby,
verja frá sér vítaspymu á 13. mínútu.
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, viðurkenndi í sjón-
varpsviðtali i gærkvöld að keppnin um
titilinn væri liði hans töpuð. „Þetta er
búiö. Arsenal hefur átt frábæran enda-
sprett og það er ekki hægt annaö en að
dást að liðinu og viðurkenna orðinn
hlut,“ sagði Ferguson.
Bergkamp úr leik
Arsenal varð fyrir því áfalli að missa
Bergkamp meiddan af velli á 30. mín-
útu. Hann missir nær ömgglega af
þeim þremur leikjum sem liðið á eftir í
deildinni og jafnvel af bikarúrslita-
leiknum gegn Newcastle þann 16. maí.
Chelsea tapaði heima fyrir Black-
bum, 0-1, og skoraði Kevin Gallacher
markið á 48. mínútu. Leicester og New-
castle gerðu 0-0 jafntefli og sömu úrslit
urðu hjá Coventry og Wimbledon.
Middlesbrough gerði 1-1 jafntefli við
Wolves í 1. deild og kemst í úrvalsdeild-
ina takist því að sigra Oxford á heima-
velli á sunnudaginn. -VS
Eyjuni?
/ b°»-1
-Vs ,
Þýski handboltinn:
Atkvæðamiklir
í tapleikjum
Ungar hetjur á ferðinni
- í 16-liða úrslitum deildabikarsins í knattspyrnu í gærkvöld
Ungir leikmenn voru í sviðsljósinu
í 16-liða úrslitum deildabikarsins í
knattspymu í gærkvöld og það er
kannski vísbending um hvað koma
skal á íslandsmótinu í sumar.
Jón Þór Hauksson, ungur nýliði
hjá Skagamönnum, tryggði þeim 0-1
sigur á Keflvikingum á grasvellinum
við Garðskagavita. Jón Þór kom inn á
sem varamaður í síðari hálfleik og
skoraði sigurmarkið í fyrri hluta
framlengingar.
Ólafur Gunnarsson, hinn efnilegi
markvörður ÍR-inga, varði tvær víta-
spymur þegar ÍR vann Breiðablik í
vitaspymukeppni. Liðin skildu jöfn,
2-2, og ekkert var skorað í framleng-
ingu. Úrslit réðust ekki fyrr en eftir 7
spymur á hvort liði í vítakeppninni.
Sigurður Grétarsson og Jón Þórir
Jónsson skomðu fyrir Blika í leiknum
en Sævar Gíslason og Amljótur Dav-
íðsson fyrir ÍR.
Þorvaldur Þorsteinsson, 19 ára
markvörður Leifturs, varði líka tví-
vegis í vítaspyrnukeppni þegar Ólafs-
flrðingar lögðu Þrótt úr Reykjavík á
LeiknisveOi. Þar þurfti 6 spymur á
lið. Logi U. Jónsson og Tómas Ingi
Tómasson komu Þrótti í 2-0 í venju-
legum leiktíma en Steinar Ingimund-
arson og Þorvaldur Guðbjörnsson
jöfnuðu fyrir Leiftur.
Salih Heimir Porca var hins vegar
fuOtrúi þeirra reyndari í gærkvöld.
Hann tryggði Val 1-0 sigur á Fram á
grasveOinum á Tungubökkum í Mos-
fellsbæ.
Besim Haxhiajdini, nýi Júgósla-
vinn hjá KR-ingum, skoraði sigur-
mark þeirra gegn 2. deOdar
liði Tindastóls, 1-0, á malarveOi KR.
Jónas Grani Garðarsson, sem FH
fékk frá Völsungi, skoraði sigurmark
Hafnarfjarðarliðsins gegn Fylki, 2-1,
þremur mínútum fyrir leikslok. Guð-
mundur Sævarsson skoraöi fyrst fyrir
FH en Stefán Guðmundsson jafnaði
fyrir Fylki.
Hörður Gíslason skoraði sigur-
mark Stjömunnar á lokasekúndunum
gegn Haukum, 2-1. Sæmundur Frið-
jónsson skoraði fyrst fyrir Stjömuna
en Birgir Rafn Birgisson jcifnaði fýrir
Hauka.
í 8-liða úrslitum á laugardag mæt-
ast FH-ÍR, Leiftur-ÍA, ÍBV-KR og
Stjaman-Valur.
-VS
Þrír íslenskir leikmenn voru at-
kvæðamiklir í næstsíðustu umferð
þýsku 1. deOdarinnar í handbolta í
gærkvöld. Það dugði þó skammt þvi
lið þeirra töpuðu öO.
Patrekur Jóhannesson skoraði 6
mörk fyrir Essen sem tapaði í Mag-
deburg, 22-19.
Héðinn GOsson skoraði 6 mörk
fyrir Dormagen og Róbert Sighvats-
son eitt en lið þefrra tapaði fyrir
WaOau Massenheim, 33-23.
Róbert Julian Duranona skoraði
6 mörk fyrir Eisenach sem tapaði
fyrir Lemgo, 33-23.
Konráð Olavsson lét sér nægja
eitt mark en hann var þó í sigurliði
því Niederwúrzbach vann Hameln,
lið Alfreðs Gíslasonar, 27-23.
Kiel er meistari
Kiel tryggði sér meistaratitOinn
með sigri á Nettelstedt, 27-24. Liðiö"
vann líka þýsku bikarkeppnina og
EHF-bikarinn.
Gummersbach og GrosswaOstadt
skOdu jöfn, 31-31, og Minden tapaði
fyrir Flensburg, 27-29.
Það ræðst í lokaumferðinni hvort
íslendingaliðanna, Dormagen eða
Hameln, feOur í 2. deOd. Liðin era
jöfn á botninum. -VS
Kaiserslautern missti stig
Kaiserslautem tapaði dýrmætum stigum i baráttunni um þýska meist-
aratitOinn í knattspymu í gærkvöld þegar liðið gerði jafntefli gegn botn-
liði Bielefeld á útiveOi, 2-2. Reyndar var Kaiserslautem heppið aö ná í
stig því Júrgen Rische jafhaði, 2-2, þremur mínútum fyrir leikslok. Olaf
MarschaO haíði komið Kaiserslautem yfir en Ali Daei frá íran svaraði
tvisvar fyrir Bielefeld.
Kaiserslautem er með 64 stig gegn 62 hjá Bayern Múnchen þegar
tveimur umferðum er ólokið. Markatalan er Bayem í hag.
Leverkusen og Dortmund skildu jöfn, 2-2, Schalke vann Köln, 1-0, með
marki frá Latal á lokasekúndunum og Bochum vann Herthu, 2-1. -VS