Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 18
18 *Mienning MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1998 i-lV Hollar sumarlistir Myndlistarmaöurinn og Akureyringurinn Öm Ingi hefur í hátt á annan áratug ferðast milli grunnskólanna á landinu aö beiðni skóla- yfirvalda, dvalið vikutíma með nemendum á hverjum stað og „sprengt upp listalífið" eins og hann segir sjálfur - með því að vinna með þeim einkum að myndlist og leiklist. Á þessum ferð- um sínum hefur hann kynnst ótrúlega mörg- um hæfileikaríkum krökkum sem höfðu ekki fengið listrænum áhuga sínum svalað, og smám saman fædd- ist sú hugmynd með honum að bjóða upp á sumarbúðir á Akur- eyri þar sem unglingar gætu iðkað listgreinar eins og listamenn í hálfan mánuð. 1992 lét hann draum sinn rætast og stofnaði Sumarlista- skólann á Akureyri. Hann er opinn ungu fólki á aldrinum 10-16 ára - og þaö þarf ekki aö vera neinum sér- stökum hæfileikum búið - „aðeins hafa í sér löngun til að fást við listir," segir hann. Fæstir vita á þessum aldri hvað þeir geta í leiklist, dansi eöa kvikmynda- gerð, svo dæmi séu tekin; helst vita krakkar hvað þau geta í myndlist af því að þau læra svolítið í teikningu í skólamnn. „Stundum hefur verið heilt landslið í mynd- list hjá mér,“ segir örn Ingi, „og það varð til þess að við tókum að okkur að myndskreyta heilt hús að utan í Hrísey, hús Útgerðarfélags KEA á eynni á kostnað félagsins. Við gerum eina mynd á ári; nemendur vinna undirbún- ingsvinnu og gera skissur, síðan förum við út í Hrísey og þar teikna þau beint á vegginn og mála síðan eins og þau geta. Ég kem bara inn á síðasta stiginu. Reitimir sem mála á eru sautján þannig að ef örendiö endist þá lýkur verkefninu árið 2010!“ Öm Ingi ræður sér tvo til þrjá kennara á sumri svo að saman eru þau þrjú eða fjögur með 15-20 krakka hóp. í sumar verður kennd myndlist og almenn leiklist, sérstakt nám- skeið verður í götuleikhúsi. Allir kennarar starfa við skólann á listrænum forsendum; kennararéttindi eru ekki skilyrði enda hefur sjálfur forsprakkinn engin slík réttindi - hann er bara kennari af guðs náð. En hvernig fer starfið fram? Er nemendum skipt í hópa? Öm ingi - vill aö allir unglingar fái aö iöka fagrar listir. „Nei, þau era öll í öllu í daglegu prógrammi," segir Öm Ingi, „En eftir fyrstu vikuna hafa þau oft hellt sér út í sérverkefni sem tekur hug þeirra allan. Þá em vinnustof- ur opnar á kvöldin svo að þau geti unniö." Honum finnst öllu máli skipta að námskeiðiö sé tvær vikur en ekki ein, því tvær vikur nýt- ist svo miklu betur. „Ég lít ekki á þetta sem afþreyingu heldur vil ég að þjálfúnin komi einstaklingunum aö gagni, og ég veit að í mörgum tilvikum hefur hún gert það.“ Fordæmishræðsla - Hver borgar brúsann? „Þátttakendur greiða námskeiðsgjald, 35.000 krónur, fyrir kennsluna, allt efni, fæði og hús- næði.“ Ekki er þaö dýrt; þó er eini verulegi styrk- urinn sem Öm Ingi hefur fengið frítt skóla- húsnæði hjá Akureyrarbæ. í ár verður Sum- arlistaskólinn í Oddeyrarskóla; þar er ný- byggður íþróttasalur sem líka er ætlaður til fjöllistanota. En af hverju styrkir bærinn ekki skólann betur? „Menningarstefna Akureyrar virðist enn vera í smíöum,“ segir Öm Ingi. „Ég finn fyrir endur- bótavilja en allt gengur afar hægt fyr- ir sig vegna þess hvað stefnan er óljós. Það er erfitt að trúa því að eitthvað mimi breytast stórlega til batnað- ar á næstu ámm. Hér hefur líka alltaf verið mikil fordæmishræðsla. Ekki má veita neinum athygli af ótta við að annar fari sömu leið og þá þurfi að gera það sama fyrir hann.“ Námskeiðið hjá Emi Inga byrjar sunnudaginn 21. júní og stendur til 5. júlí; enn er rúm fyrir nokkra nemendur í viðbót. Öm Ingi er líka með námskeið í myndlist fyrir fulloröna í sumar en þaö er nánast fullt. „Mér finnst aö það eigi aö skipuleggja sum- arkennslukerfi á vegum hins opinbera sem valkost fyrir alla unglinga,“ segir Öm Ingi að lokum. „Margt liti betur út ef það yrði gert. Vinnuskólamir fyrir unglinga hafa ekki tekist vel, sumir kalla þá leti- skóla. Þar fá böm fábrotin verkefni og vinna ekkert skapandi starf. Þau ættu að fá að þroska sig meö því að iðka leiklist og myndlist sem gagn- ast þeim í öðm námi. Það verður að breyta þessum málum hér á landi og ég er argrn- út af því að það skuli ekki vera gert.“ -SA Saga Mynd Gunnar Sverrisson Með tveimur hrútshornum... MÍGRENI Mcira en hcfuöverkur .N t L.YK NAVf- CKL'l.ÆKNlNt-.AK oa sjAi.nuAU' Franska listakonan Orlan er ekki aðeins listamaður, hún er listaverk sem hún sjálf hefur búið til. Það var sjón að sjá hana í Norræna húsinu þar sem hún fyrirlas á Listahátíð á vegum art.is - en það var enn athyglisverð- ara að heyra hvað hún hafði að segja. Á liðnum öldum dóu kon- ur oft fyrir aldur fram af bamsfóram og sjúkdómum. Þær ólu börn sín í þjáningu, eins og guð lagði á þær í syndafallinu, en nú er öldin önnur, segir Orlan. Við þurf- um ekki að þjást. Guð og til- skipanir hans era ekki til. Mænudeyfing og morfin standa okkur hins vegar til boöa. Við getum farið í lýta- aðgerðir. Við getum breytt okkur í hvað sem er. Tæknin er til, ef þú vilt skipta um ímynd, þá gerðu það en vertu skapandi og leitandi! Ekki láta staðlaðar feg- urðarímyndir sem mótast af smekk og kröfum einhverra tískukarla ráða ferðinni, segir femínistinn Orlan við konur. Orlan notar sinn eigin líkama eins og efni- við eða verkstæði. Samkvæmt henni á skreytilist engan rétt á sér og engin list á rétt á sér nema hún stefni að því að breyta hugs- un okkar og þar með heiminum. Listin á ekki að dúlla á yfirborðinu, hún á að skera inn úr því, vera rót-tæk. Orlan hefur farið i níu skurðaðgerðir sem hún sjónvarpar í beinni útsendingu um víða veröld og tekur upp á myndband. Skurðstofan verður svið, aðstoðarmenn og læknar í leik- búningum snúast í kringum listakonuna sem er með fullri meðvitund, les upphátt og svar- Orlan. Myndlist Dagný Kristjánsdóttir ar fyrirspumum á með veriö er að fletta and- litinu á henni sundur. Blóðið rennur, líkam- inn opnast, lifandi, glansandi vefir í öllum hugsanlegum litbrigðum hins rauða blasa við áhorfendum. Síðasta aðgerðin var sýnd þögul af mynd- bandi undir fyrirlestrinum í Norræna húsinu. Það steinleið yfir einn áhorfanda. Eftir það var slökkt á myndbandinu. En Orlan undirstrikaöi að allt þetta hefði verið þján- ingarlaust. Markmiðið væri að sýna umbreytinguna, þar sem texti og kroppur rynnu saman í hinu hold- lega orði. Orlan leggur áherslu á að list sín sé ekki „body art“ (húðflúr og nælur) heldur gangi hún lengra og búi til holdsins og orðsins list. Engin þjáning, engin tilfinning Viðbrögðin við Orlan og kenningum hennar voru yf- irleitt sterk. Sumir vora þó fullir efasemda og fannst að sjálfspyntingarlosti mið- aldra konu sem færi í lýta- aðgerðir væri ekki list. Gagnrýni af því tagi er út í hött vegna þess að Orlan er ekki að gera sig sæta. Hnúð- amir sem græddir vora á ennið á henni eru ekki fagrir og stóra nefið sem hún ætlar að láta búa til á sig innan tveggja ára er hin full- komna andstæða lítilla nefja, gervibrjósta og silíkonvara sætu stelpncmna. Aðgerðir Orlan eru áhættusamar og nefaðgerðin gæti mögu- lega rústaö fyrri aðgerðum og þar með andlit- inu. Orlan er sem sagt blóðug alvara. Verri er afneitun hennar á sársaukanum, þjáningunni og dauðanum, sem bæði virkar ótrúveröug og fátækleg. Þvi ef verið er aö gera tilraunir með það hvaö likaminn þolir hlýtur óttinn við sársaukann og afneitun á honum að tæma tilraunina bæði af merkingu og tilfinn- ingu. Eöa það hefði Kathy sáluga Acker sagt. DV-mynd ÞÖK Saga, tímarit Sögufélagsins, 36. árgangur 1998, er komin út. Höfundar koma víða við í greinum sinum, fjalla meðal annars um efni af vettvangi erlendrar sagnfræði en efni úr ís- landssögu fyrri alda skipar þó stærstan sess. Af áhugaveröu má nefna ritgerð Sverris Jakobssonar sem nefhist „Friðarviðleitni kirkjunnar á 13. öld“ og íjallar um viðleitni kirkjunnar til þess að koma á friði í ófriöi Sturlungaaldar. Sverrir færir rök fyrir þvi að sú friöarviöleitni hafi mótast af alþjóðlegum hugmyndum sem verið höfðu í þróun allt frá 10. öld og leggur áherslu á þann skyldleika sem er með íslensku samfélagi 13. aldar og evrópsku miöaldasamfé- lagi. Heiti ritgerðar Páls Bjömssonar: „Hvers vegna varð Þýskaland ekki Eng- land?“ vekur óneitanlega at- hygli. Páll veltir fyrir sér hvort þróun Þýskalands frá hefðbundnu þjóðfélagi í borg- aralegt þjóðfélag kapítalisma og lýðræðis hafi verið sér- stæð og afvegur frá þeirri leið sem önnur Vesturlönd fóra eða hvort Þýskaland hafi þróast eðlilega og orðið eitt nútímalegasta land álfunnar. Ámi Daníel Júlíusson gagnrýnir i grein sinni þá dökku mynd sem stundum er dregin upp af lífsskilyröum fólks á íslandi á fyrri öldum. Hann heldur því fram að lífskjör hafi ekki verið verri en gerðist í Evrópu og mögu- leikar landbúnaðar hafi ekki verið fullnýttir. Auk þessara greina eru margar aðrar áhugaverðar og tæplega þrjátíu ritdómar þar sem fjallað er um nýútkomin sagnfræðirit. Ritstjórar Sögu era þeir Guömundur J. Guö- mundsson, Guðmundur Jónsson, Már Jóns- son og Siguröur Ragnarsson. Ekki bara hausverkur Lækninga- og sjálfshjálparbók um Migreni er komin út hjá Fjölva-Vasa. Þetta er yfirgripsmik- iö rit og fjallar um allar hliðar þessa þjáningar- fulla sjúkdóms en áætlað er að 7-10 þús. manns hér á landi eigi við verulegan mígrenvanda að stríða. Fyrst er sjúkdómnum lýst, orsökum hans og kveikju kastanna. Þá er fjallað um hefðbundnar lækningaaðferðir og þau mörgu ráð lyflæknisfræðinnar sem komið hafa á markaðinn. Svo er þrautalendingin aö leita óhefðbund- inna lækninga og um þá möguleika fjallar meirihluti bókarinnar, um sjálfshjálp, mataræði, matarofnæmi, slökun og hugleiðslu. Ýmsar náttúru- legar lækningar eins og kínversk nál- arstunga, grasalækningar, hómópatía, sálræn heilun og svokölluð beinajöfn- un hafa líka reynst mjög árangursrík- ar viö mígreni. Höfundur er Eileen Herzberg en Eva Ólafs- dóttir þýddi bókina. Menningarbörn Út er komið tímaritið Böm og menning sem félagið Böm og bækur - íslandsdeild IBBY gef- ur út. í þessu tölublaði er að finna ýmsar grein- ar sem skýra frá markvissu menningarstarfi fyrir böm. Meöal annars er Listasmiðjan Gagn og gaman í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi heimsótt og spjallað við Elisabetu B. Þórisdótt- ur, forstöðumann Gerðubergs, og Björgu VO- hjálmsdóttur sem vinnur við Gagn og gaman. Jón Kalman Stefánsson, ljóðskáld og rithöf- undur, skrifar greinina Nokkrar laustengdar vangaveltur um bernskuskynjun, Halldór Kiij- an og stórlæti. Þar teflir hann fram tveimur bemskukvæðum HaOdórs, Bráðum kemur betri tíð og Ég er brott frá þér bernska. Jón Kalman segir „albirtu skáldskapar- ins“ leika um fyrra kvæðið en hið síðara sé aftur á móti borið upp af lærdómi, ort af | þekkingu og þroska. Jón bendir í greininni á lokalínu kvæðisins Bráðum kemur betri tíð „og kýrnar leika við kvurn sinn fingur“. Skáldið og fræðimaðurinn Jón Helgason mun hafa lesið kvæðið yfir og bent hinum unga HaOdóri á, að kýr hafa klaufir, ekki fingur. „En þar liggur auðvitað snOldin og hún er af bemskunni runn- in,“ segir Jón Kalman. „Þetta er hin ferska sýn á heiminn, leikurinn og frumleikinn í einni línu. Svona getur sá einn ort sem hefur ekki yf- irgefið bernskulandið." Ritstjóri er Kristín Birgisdóttir. i 1 Jmsjón: Þórunn Hrefna „ ,,.„r[|in

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.