Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1998
Rafmagnsveitan og Hitaveitan sameinaðar um næstu áramót:
Nýr orkurisi
- Guðmundur Þóroddsson vatnsveitustjóri líklegur forstjóri
Nær öruggt er nú talið að Raf-
magnsveita Reykjavíkur og Hitaveita
Reykjavíkur verði sameinaðar fyrir
áramót og nýtt fyrirtæki stofnað fljót-
lega upp úr áramótum. Viðræður
standa nú yfir um að hvemig samrun-
anum verður háttað. Samkvæmt
heimildum DV kemur Guðmundur
Þóroddsson, núverandi forstjóri
Vatnsveitunnar, sterklega til greina
^ sem fyrsti forstjóri orkurisans.
Ráðgert er að málið verði tekið fyr-
ir í borgarstjóm í kringum mánaða-
mótin september-október.
“Umræður era vel á veg komnar
og flest virðist benda til að fyrirtækin
verði sameinuð og nýtt fyrirtæki
stofnað," sagði Alfreð Þorsteinsson,
formaður stjómar Veitustofnanna
þegar DV bar undir hann málið. Að
sögn Alfreðs er málið nú í sérstakri
Helgarblað DV:
Líf án handa
I helgarblaði DV á morgun er við-
tal við Guðmund Felix Grétarsson,
25 ára rafveituvirkja, sem missti
báðar hendur í vinnuslysi við
Korpu fyrr á árinu. Hann er nú í
endurhæfingu á Reykjalundi og lýs-
ir í viðtalinu hvernig er að takast á
við lífið án handa. Þetta er í fyrsta
sinn sem Guðmundur tjáir sig um
slysið opinberlega.
Knattspyrnumennirnir Rúnar
Kristinsson og Heiðar Helguson í
Lilleström i Noregi era heimsóttir
• 73 og í erlendu fréttaljósi er fjallað um
framtíð Clinton-hjónanna eftir kyn-
lífshneykslið.
midirbúnings-
nefnd undir for-
sæti Ingibjargar
Sólrúnar Gísla-
dóttur borgar-
stjóra, en auk
hennar sitja Al-
freð og Vilhjáhnur
Þ. Vilhjálmsson í
nefhdinni.
Umtalsverðir
hagræðingar-
möguleikar þykja
felast í samein-
ingu Hitaveitunn-
ar og Rafmagns-
veitunnar, sér í
lagi þar sem svið
fýrirtækjanna
verða stöðugt ná-
tengdari. Má þar
nefna að Hitaveit-
an ætlar að fara
framleiða rafmagn
þegar í október og búist er við því að
rafmagnsframleiðsla Hitaveitunnar
muni færast í vöxt á næstu árum.
„Menn sjá umtalsverða hagræðingu
fólgna í því að sameina þessar stofn-
anir og ég geri ráð fyrir að af samein-
ingunni verði," sagði Alfreð. Einnig
hefúr komið til tals að sameina Vatns-
veitu Reykjavíkur og Fráveituna en
að sögn Alfreð era viðræður um það
skammt á veg komnar og ekki fyrir-
séð að af þeirri sameiningu verði í
bráð.
Eitt stærsta fyrirtæki landsins
Fyrirtækið sem nú er i burðarliðn-
um verður eitt stærsta og öflugasta
fyrirtæki landsins. Eiginfiárstaða
þess er um 32 miiljarðar og eiginfiár-
hlutfall langt yfir 90%. Samanlögð
velta fyrirtækjanna á síðasta ári var
um 8 milljarðar og starfsmenn fyrir-
tækisins um fiögur hundrað talsins.
Til samanburðar má nefna að velta
Landsvirkjunar, eins stærsta fyrir-
tækis landsins, var 8,4 milljarðar á
síðasta ári og eiginfiárstaða fyrirtæk-
isins er um 30,4 milljarðar. Eiginfiár-
hlutfall Landsvirkjunar er hins vegar
aðeins 37,2%.
Samkvæmt heimildum DV hafa
einkum þeir Guðmundur Þóroddsson,
vatnsveitustjóri og Aðalsteinn
Guðjohnsen, rafveitustjóri í Reykja-
vík, komið til greina sem fyrsti for-
stjóri orkurisans. Alfreð vildi hvorki
staðfesta að nafh Guðmundar eða Að-
alsteins væru í umræðunni og sagði
engar ákvarðanir i nánd um það.
Samkvæmt mjög traustum heimild-
um DV er þó Guðmundur langsterk-
ari kandídatinn í dag og nýtur trausts
bæði meirhluta og minnihluta í borg-
arstjóm. -kjart
Vestfirskir framsóknarmenn:
Gunnlaug í ríkisstjórn
Framsóknarmenn á Vest-
fiörðum vilja að Gunnlaugur
M. Sigmundsson, þingmaður
þeirra, komi til álita sem nýr
ráðherra í stað Guðmundar
Bjarnasonar. Einn af forystu-
mönnum þeirra í Bolungar-
vík tjáði DV í gær að þeir
hefðu kallað Gunnlaug vest-
ur um helgina til að ræða
„breytta stöðu“ einsog hann
orðaði það. Hann kvað Vest-
Gunnlaugur M.
Sigmundsson.
firðinga ekki sætta sig við að þing-
maður þeirra væri settur „í frost“ af
forystu flokksins.
Gunnlaugur sagði við DV
að það væri rétt að hann
væri á leið vestur um helg-
ina. „Það sætir engum tiðind-
um að ég hitti mína félaga á
Vestfiörðum. Ég geri það
oft.“ Hann vildi ekki stað-
festa að ferðalagið væri í
tengslum við vaxandi
spennu í flokknum vegna
ráðherraskipta. „Ég þarf
ekki að standa fiölmiðlum skil á ferða-
lögum mínum,“ sagði Gunnlaugur.-rt
Varnarliðið eykur eftirlit
Varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli jók í morgun öryggisviðbún-
að vegna eldflaugaárása Banda-
ríkjamanna á skotmörk í Súdan
og Afganistan í gær. Hliðvarsla á
Miðnesheiði er nú orðin mun ná-
kvæmari en verið hefur.
„Þegar aukin hætta er á hryðju-
verkaviðbúnaði er eftirlit aukið í
bandarískum herstöðvum og opin-
berum stofnunum,“ sagði Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi. -ótt
Alfreð
Þorsteinsson.
Guömundur
Þóroddsson.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, opnaði tvö ný torg á
Laugaveginum í gær og heita þau Laugatorg og Barónstorg. Ekki gekk at-
höfnin alveg snuröulaust fyrir sig og þurfti borgarstjórinn smávegis aðstoð
við að afhjúpa skiltið. DV-mynd Teitur
Veðrið á morgun:
Bjart fyrir
austan
Á morgun verður hæg norð-
vestlæg eða breytileg átt. Skýjað
verður með köflum vestanlands
en víða bjartviðri austan til. Hiti
verður á bilinu 10 til 16 stig, hlýj-
ast sunnan til síðdegis.
Veörið í dag er á bls. 29.
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t