Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 34
*42 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 Afmæli Atli Heimir Sveinsson Atli Heimir Sveinsson tónskáld, Holtsgötu 22, Reykjavik, er sextugur í dag. Starfsferill Atli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám í pí- anóleik við Tónlistarskólann hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni, lauk stúd- entsprófi frá MR 1958, prófi í for- spjallsvísindum við HÍ 1959, lauk lokaprófi í tónsmíðum og tónfræði frá Staatliche Hochschule fur Musik í Köln 1963, nam raftónlist við Raf- tónverið í Bilthoven í Hollandi 1964 og sótti Kölner Kurse fúr neue Musik 1965. Atli var tónlistarkennari við MR 1968-77 og hefur verið tónlistar- kennari í tónsmíðum og tónfræðum við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1977. Þá hefur hann annast tónlist- arþætti fyrir Ríkisútvarpið öðru hverju um árabil frá 1971. Atli var formaður Tónskáldafé- lags íslands 1972-83, formaðm- Nor- ræna tónskáldaráðsins 1974-76, sat í stjórn Bandalags íslenskra lista- manna um skeið, sat í stjórn lista- hátíðar, sat í dómnefnd International Society for Contemporary Music 1973, Norrænna músik- daga 1974 og Inter- national Gaudeamus Competition 1978. Atli hlaut tónlistar- verðlaun Norðurlanda 1976 og L’ordre du merite culturel frá Póllandi 1978. Atli er í hópi virtustu tónskálda hér á landi. Hann hefur samið fjölda tónverka, s.s. einleiks- konserta, hljómsveitar- verk, kammerverk og einleiksverk. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leikhús. Meðal helstu tónverka hans má nefna: Hlými, fyrir kammersveit, 1969: Tengsl, fyrir stóra hljómsveit, 1970: Könnun, fyrir lágfiðlu og hljómsveit, 1972: Flower shower, fyrir stóra hljómsveit, 1974: Trobar clus, fyrir fagott og hljómsveit, 1980, óperuna Silkitrommuna, 1980; og Sjónvarpsóperuna, óperu við Viki- vaka eftir Gunnar Gunnarsson. Fjölskylda Fyrri kona Atla var Sig- ríður Hanna Sigurbjöms- dóttir, f. 24.10. 1943, tækniteiknari. Þau skildu. Synir Atla og Sigríðar Hönnu eru Teitur, f. 23.3. 1969, og Auðunn, f. 4.2. 1971. Seinni kona Atla var Ingi- björg Bjömsdóttir, f. 26.9. 1943, stjómmálafræðing- ur og kennari. Þau skildu. Systir Atla er Ingibjörg Sveins- dóttir, f. 23.1.1944, snyrtisérfræðing- ur, gift Friedel Kötterheinrich tæknifræðingi og eiga þau tvö böm. Foreldrar Atla: Sveinn Þórðar- son, f. 22.8. 1898, d. 21.11. 1982, aðal- féhirðir Búnaðarbankans, og k.h., Kristin Guðmundsdóttir, f. 14.9. 1909, húsmóðir. Ætt Sveinn var sonur Þórðar Breiö- íjörös, verkamanns og sjómanns í Reykjavík, og Ingibjargar Sveins- dóttur. Bróðir Þórðar var Pétur, afi Péturs Lútherssonar arkitekts. Ann- ar bróðir Þórðar var Gísli, b. og odd- viti á Ölkeldu í Staðarsveit. Systir Þórðar var Kristín, fóðuramma Kristins Ólafssonar tollgæslustjóra. Þórður var sonur Þórðar Gíslason- ar, b. í Ytri-Tungu í Staðarsveit. Foreldrar Kristinar voru Guð- mundur Bergsteinsson, kaupmaður og útgerðarmaður í Flatey á Breiða- firði, og Guðrún Jónína Eyjólfsdótt- ir. Guðmundur var sonur Berg- steins, söðlasmiðs á Eyrarbakka Jónssonar, b. og alþm. á Eyvindar- múla í Fljótshlíð, og Kristínar Guð- mundsdóttur, pr. á Borg á Mýram Bjamasonar. Kristín var sammæðra hálfsystir Jóns Sveinssonar, Nonna. Bróðir Guðrúnar var Ólafur, skóla- stjóri VÍ. Guðrún var dóttir Eyjólfs, b. og kaupmanns í Flatey Jóhanns- sonar, b. í Svefneyjum, Eyjólfssonar eyjajarls, alþm. og dbrm. í Svefneyj- um Einarssonar. Móðir Guðrúnar var Sigurborg Ólafsdóttir frá Bár í Grandarfirði. Móðfr Jóhanns var Guðrún Jóhannsdóttir, pr. í Garps- dal Bergsveinssonar. Atli Heimir Sveinsson. Jón Birgir Jón Birgir Pétursson blaðamað- ur, Huldulandi 9, Reykjavík, er sex- tugur í dag. Starfsferill Jón Birgir fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ 1959. , _ Jón Birgir starfaði hjá Flugfélagi íslands um fjögurra ára skeið, skrif- aði um íþróttir í Þjóðviljann til 1962 og var fréttamaður á Vísi frá 1963. Hann var fulltrúi hjá Hafskip hf. 1965-66, fréttastjóri Vísis 1966 og Dagblaðsins 1975-79, óháður blaða- maður og starfrækti Blaða- og fréttaþjónustuna að Hamraborg 1 í Kópavogi í tíu ár, var fréttastjóri Al- þýðublaðsins 1990, blaðamaður við Tímann 1994, síðan við Dag-Tím- ann og við Dag og hefur verið blaða- maður við DV frá því í september 1998. Jón Birgir hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan íþrótta- hreyfingarinnar. Fjölskylda Kona Jóns Birgis er Fjóla Arn- dórsdóttir, f. 9.7. 1945, sjúkraliði. Hún er dóttir Amdórs Jóhannesson- ar, bónda í Skálholtsvík í Bæjar- hreppi í Hrútaffrði, og Fjólu Vest- §örð, sem lést í júlí 1945. Sonur Jóns Birgirs og Fjólu er Arnar Birgi, f. 29.4. 1983. Böm Jóns Birgis og Birnu Karls- dóttur, fyrri konu hans, eru Kol- brún Anna, f. 27.10. 1963, flugfreyja en sambýlismaður hennar er Þor- kell Stefánsson, kaupmaður i Raf- tækjaverslun íslands; Hjördís Unn- ur, f. 31.7. 1965, ritari en eiginmað- ur hennar er Eiríkur Magnússon, viðskiptafræðingur hjá ORA; Karl Pétur, f. 30.8. 1969, markaðsfulltrúi hjá DV. Stjúpböm Jóns Birgis frá fyrra hjónabandi Fjólu eru Anna Kristín Hjartardóttir, f. 15.9. 1964, arkitekt; Amdór Hjartarson, f. 7.10.1965, full- trúi hjá Sjóvá-Almennum. Systkini Jóns Birgis: María, f. 25.8. 1925, skrifstofumaður; Björn, f. 30.5. 1930, nú látinn; Ásthildur, f. 11.6. 1934, nú látin, bæjarfulltrúi í Kópavogi; Stefanía Ingibjörg, f. 3.12. 1941, húsmóðir, gift Páli Braga Kristjónssyni framkvæmdastjóra. Pétursson Foreldrar Jóns Birgis vora Péfrn Jónsson, f. í Höfða i Þverárhlíð 19.9. 1895, d. 23.9. 1973, bifreið- arstjóri, og k.h., Jórann Bjömsdóttir, f. 14.12. 1904, d. í febrúar 1966, húsmóðir frá Brekku í Skagaffrði. Ætt Systir Jórunnar er Sig- urlína, móðir Pálma í Hagkaupi, fóður Sigurðar Gísla, stjórnarformanns Hofs ehf. Systir Pálma er Sólveig, móðir Jóns, forstjóra Út- flutningsráðs íslands. Bróðir Jór- unnar er Andrés, fyrrv. útvarps- stjóri. Jórunn var dóttir Björns, b. á Brekku í Seyluhreppi Bjamasonar. Móðir Bjöms var Hallfríður Sölva- dóttir, b. á Þverá Þorlákssonar, b. á Reykjahóli Erlendssonar. Móðir Þorláks var Halldóra Þorláksdóttir. Móöir Halldóru var Guðrún Jóns- dóttir, sýslumanns á Sólheimum, bróður Áma Magnússonar hand- ritasafnara. Móðir Sigurlínu var Stefanía Ólafsdóttir, vinnumanns, síðast á Frostastöðum í Blöndu- hlíð, bróður Jóns, langafa Egils Bjarnasonar, ráðu- nautar á Sauðárkróki, föður Vilhjálms, alþm. og framkvæmdastjóra Versl- unarráðs. Ólafur var son- ur Stefáns, b. á Garðs- horni á Höfðaströnd Jónssonar. Móðir Stefan- íu var Ingibjörg Ólafs- dóttir, b. í Háagerði á Höfðaströnd, bróður Ragnheiðar, langömmu Benedikts Sveinssonar, föður Ein- ars skálds. Ragnheiður var einnig langamma Ólafar, langömmu Jó- hannesar Nordals. Ólafúr var sonur Þorkels, b. á Bakka Ólafssonar, bryta á Hólum, Jónssonar. Móðir Ólafs var Steinunn Steingrímsdótt- ir, systir Jóns, afa Jóns Steingríms- sonar „eldprests". Jón Birgir og Fjóla eiga tinbrúð- kaup í dag, tíu ára brúðkaupsaf- mæli. Þau era stödd á Hotel Citadi- nes í Barcelona. Jón Birgir Pétursson. Veiðivon Veiðitoppurinn: Tíu efstu veiðiárnar Við erum á síðustu metranum, veiðiánum verður lokað einni af annarri og klakveiöi tekur viö í mörgum veiðiám. Laxveiðin í sum- ar var næstum 40 þúsund laxar á stöng á móti rúmlega 28 þúsund í fyrra. Við skulum líta aðeins á veiðitoppinn. Rangámar eru í fyrsta sætinu með 3680 laxa, í öðru sæti er Þverá í Borgarfirði með 2189 laxa, í þriðja sætinu er Norðurá, líka ættuð úr Borgarfirðinum, með 2033 laxa, í fjóra sæti er Blanda með rétt um 2000 laxa, síðan í fimmta sætinu Laxá í Aðaldal með 1925 laxa. Mið- fiarðará kemur i sjötta sætinu með 1820 laxa, síðan Grímsá í sjöunda sætinu með 1650 laxa, i áttunda er Langá á Mýrum með 1470 laxa. 1 ní- unda og tíunda sætinu eru Laxá í Kjós og Laxá í Dölum með 1390 laxa hvor ár. Rétt þar fyrir neðan eru Vatnsdalsá, Víðidalsá, Selá í Vopna- firði og Hofsá. Haukadalsá í Dölum hefur komið skemmtilega á óvart í sumar og eru komnir yfir 900 laxar úr ánni. Það er langt síðan Hauka gaf svo vel. Þverá í Fljótshlíö: Feiknalaxveiði „Veiðiskapurinn gengur vel, núna eru komnir 160 laxar og hann er 16 pund sá stærsti. Veiðimenn sem voru hérna um síðustu helgi veiddu 13 laxa og þeir verða aftur um helgina núna,“ sagði Hans. G Magnússon er viö spurðum um stöðuna í Þverá í Fljótshlíð. En Þverá var fyrir fiölda ára einhver besta sjóbirtingsveiðiá landsins og fyrir fáum dög- um veiddist 8 punda sjóbirtingur í henni. Hans veiddi þennan 8 punda á fluguna Snældu, sem hann segir að gefi oft vel. „Það virðist vera mikið af fiski ofarlega í ánni en neðar í henni virðist hann stoppa minna. Þar var líka engin sleppitjöm. Já, sjóbirtingsveiðin var góð í ánni hérna áður en Hekla sá fyrir þeim veiðiskap. Ég held að sjóbirtingurinn sé á hraðri uppleið, enda hefur sést mikið af seiðum í ánni síðustu tvö árin. Sjóbirtingurinn getur orðið vænn hér um slóðir," sagði Hans enn fremur. -G.Bender Hans G. Magnússon og Óskar Heiðar Hansson með góða veiöi úr Þverá fyrir fáum dög- um. Þar hafa veiðst 160 laxar. DV-mynd GPP Til hamingju með afmælið 21. september 85 ára Jenný Jónsdóttir, Lindasíöu 2, Akureyri. 80 ára Alda Jónsdóttir, Austurbrún 4, Reykjavík. Gestur Ámason, Boðahlein 13, Garðabæ. Gyða Guðmundsdóttir, Hólmgarði 9, Reykjavík. Jón J. Ólafsson, Hæðargarði 35, Reykjavík. Sigurður Einarsson, Fossheiði 62, Selfossi. 75 ára Gunnar Ólafsson, Hvassaleiti 117, Reykjavík. Helena Sigtryggsdóttir, Laugarvegi 25, Siglufirði. 70 ára Björg Jónsdóttir, Ásenda 5, Reykjavik. Hannes Ágústsson, Bölum 4, Patreksfirði. 60 ára Dýrfinna Ósk Högnadóttir, Hvammav. 2, Hvammstanga. Guðfinna Friðriksdóttir, Brekkugötu 1, Ólafsfirði. Gunnar Sigurjónsson, Jörfalind 12, Kópavogi. 50 ára Bára Guðmundsdóttir, Kveldúlfsgötu 25, Borgarnesi. Bára Þórðardóttir, Furugrand 10, Kópavogi. Birgir Jensson, Vesturbergi 54, Reykjavík. Björg Sigurbjörnsdóttir, Stórasvæði 3, Grenivík. Guðrún Björg Pétursdóttir, Brálundi 2, Akureyri. Guðrún Vigdís Sverrisdóttir, Borgarholtsbraut 58, Kópavogi. Hlíf Guðmundsdóttir, Móholti 4, ísafirði. Margrét Vallý Jóhannsdóttir, Bragagötu 36, Reykjavík. Olgeir Kristjónsson, Logalandi 7, Reykjavík. Sigrún Pálsdóttir, Logafold 178, Reykjavík. Smári Ingvarsson, Urriðakvísl 3, Reykjavík. 40 ára Bergsveinn Haralz Elíasson, Njálsgötu 104, Reykjavík. Elísabet Guðmundsdóttir, Reykjabyggð 23, Mosfellsbæ. Guðbjörg M. Sigurbjömsdóttir, Naustabúð 10, Hellissandi. Guðjón Heiðar Pálsson, Fýlshólum 3, Reykjavik. Guðjón Jóhannes Jónsson, Sundstræti 29, ísafirði. Guðrún Ólafsdóttir, Vallarbarði 16, Hafnarfirði. Hrafnkell Gunnlaugsson, Kieppsvegi 118, Reykjavík. Hörður ívarsson, Garðarsbraut 83, Húsavik. John Mortensen, Snorrabraut 63, Reykjavík. Reinilda P. Gimenez, Skálholti 9, Ólafsvík. Sigríður Bryndís Karlsdóttir, Geirmundarstöðum, Dalabyggð. Sigrún Friðgeirsdóttir, Álftamýri 58, Reykjavík. Sigurður Ægisson, Grenjaðarstað, Aðaldælahr. Tryggvi Sverrisson, Lækjai'götu 30, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.