Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 Fólk í fréttum Finnur Ingólfsson Finnur Ingólfsson, iðnaöar- og viðskiptaráðherra, Jöklafold 15, Reykjavík, var kjörinn varaformað- ur Framsóknarflokksins á flokks- þingi flokksins á Hótel Sögu sl. sunnudag. Starfsferill Finnur fæddist í Vík í Mýrdal 8.8. 1954 og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum á Bif- röst 1975, stúdentsprófi frá fram- haldsdeild Samvinnuskólans í Reykjavík 1978 og prófi í viðskipta- fræði, þjóðhagfræðisviði, frá HÍ 1984. Finnur var framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Kötlu í Vik í Mýr- dal 1975-77, framkvæmdastjóri Prjónastofunnar Dyngju á Egilsstöð- um 1978-79, aðstoðarmaður sjávar- útvegsráðherra 1983-87, aðstoðar- maður heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra 1987-91. Hann hefur verið alþm. fyrir Reykjaneskjör- dæmi frá 1991 og er iðnaðar- og við- skiptaráðherra frá 1995. Finnur var formaður Stúdenta- ráðs HÍ 1980-81 og formaður stjóm- ar Félagsstofnunar stúdenta 1983-85. Hann var formaður Sambands ungra framsóknarmanna 1982-86, hefur setið i miðstjóm Framsóknar- flokksins frá 1982, í framkvæmda- stjóm flokksins frá 1982, í lands- stjórn Framsóknarflokks- ins frá 1990, gjaldkeri flokksins 1986-94, formað- ur fulltrúaráðs framsókn- arfélaganna í Reykjavík 1986- 91, formaður þing- flokks framsóknarmanna 1994-95, sat í blaðstjórn Tímans frá 1986, í stjórn Prentsmiðjunnar Eddu 1987- 89, formaður nefndar um endurskoðun al- mannatrygginga 1988, for- maður nefndar um sam- starf sjúkrahúsanna í Reykjavík 1989, í samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins við lækna 1987-91, formaður stjómar Heilsugæsluumdæmis Austurbæjar nyrðra 1991-94 og formaður sam- starfsráðs heilsugæslustöðva í Reykjavik 1991-94. Finnur var varafuUtrúi þing- mannasamkomu NATO 1991-93 og varaformaður þingmannanefndar íslands hjá RÖSE 1992-95. Fjölskylda Kona Finns er Kristín Vigfúsdótt- ir, f. 30.12. 1955, hjúkrunarfræðing- ur. Foreldrar hennar: Vigfús Magn- ússon, f. 3.6. 1933, geðlæknir og tryggingalæknir hjá Trygginga- stofnun ríkisins, og k.h., Fanney Reykdal, f. 20.12. 1933, d. 21.1. 1995, húsmóðir. Böm Finns og Kristínar: Fanney, f. 30.7. 1980, nemi við MS; Ingi Þór, f. 24.5. 1982, nemi við Borg- arholtsskóla; Hulda, f. 7.11. 1989, grunnskóla- nemi við Foldaskóla. Bróðir Finns: Magnús, f. 14.2. 1948, húsasmíða- meistari í Reykjavík, kvæntur Björgu Jóns- dóttur, móttökuritara við Heilsugæslustöðina í Grafarvogi en dóttir þeirra er Svala. Foreldrar Finns: Ingólfur Sæ- mundsson, f. 3.12. 1916, fyrrv. skrif- stofumaður hjá Kaupfélagi Skaftfell- inga, og k.h„ Svala Magnúsdóttir, f. 20.3. 1920, d. 7.3. 1992, húsmóðir. Ætt Ingólfur er sonur Sæmundar, b. í Sólheimakoti og Eyjahólum i Mýr- dcd og síðar tómthúsmanns í Vík í Mýrdal Bjarnasonar, b. í Hraunbæ Þorsteinssonar. Móðir Sæmundar var Margrét, hálfsystir Kristínar, ömmu Vilhjálms Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóra Kassagerðar Reykja- víkur, afa Elínar Hirst sjónvarps- fréttamanns. Hálfbróðir Margrétar var Gestur, langafl Þóris Páls Guð- jónssonar, kaupfélagsstjóra í Borg- amesi. Margrét var dóttir Bárðar, b. á Hemra Jónssonar, og Guðrúnar Sæmundsdóttur. Móðir Ingólfs var Oddný Runólfs- dóttir, b. á Suður-Fossi, bróður Ein- ars, föður Þorleifs jarðfræðings. Systir Runólfs var Þórunn, amma Þórs Vigfússonar, fyrrv. skólameist- ara á Selfossi, og Eggerts slökkvi- liðsstjóra. Runólfur var sonur Run- ólfs, b. í Skálmarbæ Gunnsteinsson- ar, og Guðlaugar Eiríksdóttur. Móð- ir Guðlaugar var Hildur Gísladóttir. Móðir Oddnýjar var Guðný Ólafs- dóttir. Systir Svölu er Hulda, amma Egg- erts Skúlasonar fréttamanns. Svala er dóttir Magnúsar, skósmiðs og pósts í Vík í Mýrdal Einarssonar, b. i Steig Runólfssonar. Móðir Magn- úsar var Kristín Magnúsdóttir, b. á Brekkum Jónssonar, Lafranssonar. Móðir Magnúsar var Þóra Jónsdótt- ir. Móðir Kristínar var Ólöf Bjarna- dóttir, b. á Litlu-Hólum Guðmunds- sonar, og Karitasar Ólafsdóttur. Móðir Svölu var Sigurbjörg Ein- arsdóttir, f. á Giljum Hjaltasonar, b. í Suður-Götu Einarssonar, Jóhanns- sonar. Móðir Hjalta var Ragnhildur Jónsdóttir. Móðir Einars var Tala Runólfsdóttir, b, á Skaganesi Sig- urðssonar, og Ingveldar Jónsdóttur. Móðir Sigurbjargar var Ingibjörg Siguröardóttur, b. á Giljum Áma- sonar og Önnu Gísladóttur. Andlát Þórður Guðjohnsen Þórður Guðjohnsen, verslunar- maður við verslunina Hamborg í Reykjavík, lést á Sjúkahúsi Reykja- víkur, miðvikudaginn 18.11. sl. Útfor hans fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík i dag, fimmtudag- inn 26.11. kl. 13.30. Starfsferill Þórður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Verslunarskóla íslands, lauk þaðan verslunarprófi 1956, lauk stúdentsprófi þaðan 1958, stundaði nám í verslunarrekstri í Kaup- mannahöfn um skeið og stundaði nám við lagadeild HÍ. Þórður starfaði við verslunina Hamborg um árabil. Þórður var rit- stjóri Viljans, skólablaðs Vl, og gaf út um skeið, ásamt Magna Magnús- syni og Finni Kolbeinssyni, tímritið Frímerkið. Hann var einn af stofn- endum Félags frímerkjasafnara. Fjölskylda Sonur Þórðar er Friðjón Stefán Guðjohnsen, f. 2.12.1967, kerfisfræð- ingur í Reykjavík, kvæntur Gíslínu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Marvís. Móðir Friðjóns er Herborg Margrét Friðjónsdóttir, f. 20.11. 1937, þingskrifari. Systkini Þórðar eru Kristin Guðjohnsen, f. 10.5. 1928, fyrrv. skrifstofumaður hjá Flugleiðum og á hún eina dóttur; Stefán Guðjohn- sen, f. 27.5.1931, viðskiptafræðingur og forstjóri i Garðabæ, kvæntur Guðrúnu Egilsdóttur Ragnars og eiga þau fjögur böm; Dóra Guöjohn- sen, f. 29.5. 1938, liffræðingur í Reykjavík, gift Bergþór Jóhanns- syni grasafræðingi og eiga þau fjór- ar dætur. Foreldrar Þórðar voru Jakob Guðjohnsen, f. 23.1. 1899, d. 11.10. 1968, verkfræð- ingur og rafmagnsstjóri í Reykjavík, og k.h., Elly Hedwig Nowottnick, f. 2.3. 1903, d. 12.11. 1962, húsmóðir. Ætt Jakob var sonur Stef- áns Guðjohnsen, kaup- manns á Húsavík, bróður Þóru, móður Baldurs Möller, fyrrv. ráðuneytis- stjóra, fóður Markúsar Möller hag- fræðings. Stefán var sonur Þórðar, verslunarstjóra á Húsavík, bróður Mörtu Maríu, móður Ingibjargar Thors forsætisráðherrafrúar. Þórð- ur var sonur Péturs, organleikara við Dómkirkjuna og ættföður Guðjohnsenættarinnar. Móðir Þórð- ar verslunarstjóra var Guðrún Sig- ríður Knudsen, dóttir Lauritz Knudsen, ættfóð- ur Knudsenættarinnar, og Margrethe Andreu Hölter. Móðir Stefáns kaupmanns var Halldóra, systir Sveinbjörns Svein- björnsson tónskálds og Lárusar dómstjóra. Hall- dóra var dóttir Þórðar, háyfirdómara í Reykjavík Sveinbjörnssonar, og Kristínar Katrínar, syst- ur Guðrúnar Sigríðar Knudsen. Móðir Jakobs rafmagnsstjóra var Kristín Jakobsdóttir, kaupmanns á Vopnafirði Helgasonar og Elísabet- ar Ólafsdóttur. Elly Hedwig var dóttir Johan August Nowottnick, vélfræðings á Aldershof í Þýskalandi, og Berthu Marie Nowottnick, f. Ackermann. Þórður Guðjohnsen. FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR Til hamingju með afmælið 26. nóvember 95 ára Sigríður Sigurðardóttir, Hafnarbraut 17, Hólmavík. 90 ára Sveinbjörg Klemensdóttir, Grettisgötu 19, Reykjavík. Ársól Klara Guðmundsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík. Sigurmundur Guðnason, Hringbraut 50, Reykjavík. Anna Halldórsdóttir, Víðilundi 6 H, Akureyri. 75 ára Ingibjörg Pétursdóttir, Efstalandi 6, Reykjavík. Hjalti Sigfússon, Kambaseli 31, Reykjavík. Jón Bragi Hlíðberg, Smáraflöt 36, Garðabæ. 70 ára Valdimar Ásgeirsson, Krammahólum 6, Reykjavík. Sigurveig Kristjánsdóttir, Skarðaborg, við Húsavík. 60 ára Eggert Þorsteinsson, Hamrabergi 22, Reykjavík. Jóhanna Haraldsdóttir, Vesturbergi 163, Reykjavík. Guðný Hrönn Þorsteinsdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. Ester Bára Gústafsdóttir, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði. Helgi Ingvarsson, Sólheimum, Hvolhreppi. 50 ára Guðmundur Karl Stefánsson, Miðtúni 64, Reykjavík. Finnur Sigfús Illugason, Háaleitisbraut 34, Reykjavík. María Björg Jensen, Klyijaseli 6, Reykjavík. Gunnar Vilhelmsson, Unufelli 23, Reykjavík. Kristbjörg Guðjónsdóttir, Bjamhólastíg 9, Kópavogi. Svanhildur Leifsdóttir, Sævangi 40, Hafnarfirði. Steinxmn B. Geirdal, Eyrarkoti, Mosfellsbæ. María Ragnhildur Eyþórsdóttir, Sunnubraut 2, Búðardal. Pálmi Sveinsson, Hvannahlíð 6, Sauðárkróki. Júlíus Fossberg Arason, Aðalstræti 3, Akureyri. Marianne Ósk B. Nielsen, Stekkholti 7, Selfossi. 40 ára Einar Þór Garðarsson vélamaður.Brekkuhl íð 16, Hafnarfirði. Einar er í útlöndum á afmælisdaginn. Jóhanna Jóhannsdóttir, Þingholtsstræti 30, Reykjavík. Sólveig Jakobsdóttir, Nökkvavogi 41, Reykjavík. Ottó Ólafur Gunnarsson, Starengi 20b, Reykjavik. Einar Eyjólfsson, Smyrlahrauni 34, Hafnai-firði. Ásdís Viggósdóttir, Neðribraut 7, Mosfellsbæ. Birgitta Bragadóttir, Lágholti 9, Stykkishólmi. Karl Jóhann Jóhannsson, Borgarbraut 9, Grundarfirði. Laufey Sigurlaug Sigurðardóttir, Klettagerði 4, Akureyri. Birgit Maria Braun, frá Saar Louis í Þýskalandi, Högnastöðum I., Hrunamannahreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.