Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 23 íþróttir íþróttir ffí) ENGLAND Sagan endalausa um Alan Shearer heldur áfram. Breskir fjölmiðlar full- yrða aö Shearer hafi verið boðið að koma til Blackburn Rovers sem leik- andi framkvæmdastjóri. Sagt er að Shearer sé upp með sér yfir þessum vangaveltum á Ewood Park en ætli ekki einu sinni að hugsa málið. Komiö hefur fram að Barcelona hef- ur boðið Newcastle 16 miiljónir punda fyrir Shearer og Miguel Angel Nadal í kaupbæti en hann er metinn á 2 milljónir punda. Vinir Shearers segja að hann vilji fara til stórliös utan Englands ef hann á annað borð skipti um félag. Robbie Fowler hefur neitað tilboði frá stjórnendum Liverpool um nýjan samning og launakjör. Fowler voru boðnar 4 milljónir króna og 25 þús- undum betur í vikulaun en það nægði Fowler ekki. Forráóamenn Manchester United eru enn aö leita að arftaka Peters Schmeichels í marki liðsins. Efstur á blaði í dag er Edwin van der Star, markvörður Ajax. Hann sagði í gær að ef forráðamenn United hefðu áhuga ættu þeir að setja sig i sam- band við Ajax. David Batty fer til Leeds United ef hann á annað borð fer frá Newcastle. Þetta hefur hann tilkynnt forráða- mönnum Leeds. Þetta hefur Batty sagt þrátt fyrir þá staðreynd að hann tapi mikium peningum á félagaskipt- unum. Michael Owen sagði i gær að það kæmi vonandi að því einhvern tima að hann léki meö erlendu félagsliði. Owen nefndi Italíu og Spán sem freistandi kosti og bætti þýsku deild- inni við. Sagðist reyndar alltaf fylgj- ast með leikjum i þýska boltanum i sjónvarpinu. -SK Norðurlandamót A-landsliða á laggirnar Á fundi formanna- og framkvæmdastjóra knattspyrnusambanda á Norðurlöndum sem haldinn var í Kaupmannahöfn í gær var ákveðið að Norðurlandamót A-landsliða yrði haldið í fyrsta sinn árin 2000 til 2001. Leikjaplanið var jafnframt sett upp á fundin- um. Þrjár fyrstu umferðirnar verð leiknar á La Manga á Spáni í febrúar árið 2000. Þar leikur ís- land viðNoreg, Finnland og Færeyjar. í ágúst 2000 verður síðan spilað við Svía á Laugarda- svellinum og í lokaumfeðinni, í janúar 2001, verður spilað við Dani. Sá leikur fer fram í knattspymuhöll í Danmörku og verður fyrsti landsleikur íslands í knattspyrnu sem háður verður innanhús. Unnið er að því að leikir móts- ins verður sýndir beint í sjónvarpi. „Stór áfangi fyrir okkur“ „Það er mjög stór áfangi fyrir okkur en þetta má skuli vera í höfn og fimm landsleikir orðnir klárir. Það sem eftir er að ganga frá er leyfi frá spænska knattspymusamhandinu um að lands- leikir fari fram í þeirra landi. Það er hins vegar aðeins formsatriði," sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ í samtli við DV í gærkvöld. -VS Einar til Orebro Einar Brekkan knattspymumaður, sem leikið hefur með Vesterás í sænsku B-deild- inni í knattspyrnu, er genginn í raðir Örebro sem leikur í A-deildinni. Einar er framherji sem skoraði 12 mörk fyrir Vesterás á nýaf- stöðnu tímabili. -EH/GH Rfkharður Daðason og Arnar Gunnlaugsson og samherjar þeirra í íslenska landsliðinu fá aukin verkefni með tilkomu Norðurlandsmótsins. Jason Ólafsson handknattleiksmaður með Dessau í Þýskalandi: Missti sjón á auga - eftir harkalegt olnbogaskot - Er á leið til íslands Jason Ólafsson, handknattleiksmaður hjá þýska liðinu Dessau, slasaðist alvarlega á vinstra auga með félaginu sínu fyrir tæpum mánuði. Jason fékk harkalegt olnbogaskot í vinstra augað með þeim afleiðingum að hann missti sjón á þvi. Jason var fluttur á sjúkrahús og töldu læknar eftir skoðun að hann myndi jafnvel fá sjónina með tímanum. Það hefur ekki gerst en Jason hefur gengist undir tvær aðgerð- ir. „Læknamir höfðu verið að bíða þar til ein- hver breyting yrði á honum til batnaðar. Hann fór síðan í skoðun fóstudaginn 20. nóvember og þá kom í ljós að það hafði flísast upp úr beini undir auganu sem veldur því að augnvöðvarnir virka ekki rétt. Það eina sem hægt var að gera var að skera strax,“ sagði Helena Magnúsdóttir, eiginkona Jasons, í samtali við DV í gærkvöld. Skaðinn skeður „Okkur var sagt að aðgerðin hefði tekist vel en á fóstudagsmorgun var hann skoðaður og þeir voru ekki ánægðir meö hann þar sem hann sá ekki neitt og mikill þrýstingur var á auganu. Hann var því skorinn upp í annað sinn en nið- urstaðan var þrátt fyrir allt sú að Jason sér ekki neitt meö vinstra auganu. Læknarnir hér telja að læknisfræðilega sé ekkert meira hægt að gera og að skaðinn sé skeður. Við verðum því bara að bíða og sjá og vona að þeir hafi ekki rétt fyrir sér og að einhver breyting verði til batnað- ar,“ sagði Helena Magnúsdóttir, eiginkona Jasonar, í samtali við DV í gærkvöld. Þau hjónin munu koma til íslands eins fljótt og kostur er þar sem Jason þarf núna hvild og rólegheit til þess að komast úr hættu vegna að- gerðarinnar. -JKS Jón Arnar þjálfar Hauka leikur ekki framar meö landsliðinu undir stjórn Jóns Kr. og Friðriks Inga Eins og fram kom í DV í gær var Einari Einarssyni vikið úr starfi sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Hauka í körfuknattleik um helgina. Arftaki hans hefur verið ráðinn og er það Jón Arnar Ingvarsson. Jón Arnar, sem einnig leikur með liöinu, hefur verið viðloðandi yngri- flokka þjálfun hjá Haukum í 10 ár með góðum árangri. „Þessi staða kom óvænt upp og fyrst þegar talað var við mig um að taka við þjálfun liðsins leist mér ekkert allt of vel á það en hef ákveð- ið að gefa eftir. Eftir að hafa misst sæti mitt í landsliðinu sá ég fram á það að hafa tíma og þrek sem þarf til að geta stjórnað liði í efstu deild,“ sagði Jón Amar um ráðning- una í samtali við DV í gærkvöld. Jón Amar, sem leikið hefur með landsliðinu i mörg ár, er ekki sáttur við þá ákvörðun landsliðsþjálfarans að vera settur út í kuldann en hann var ekki valinn í landsliðið sem hélt til leiksins gegn Króatíu í gær. „Það er nokkuð ljóst að ég leik ekki fleiri leiki undir stjórn Jón Kr. Gislasonar framar. Ég tel mig vera traustan leikstjórnanda sem hugsa um að gefa boltann fyrst og fremst, en ekki að skjóta sjálfur. Kannski skora ég ekki nógu mikið til að vera verðugur að spila með lands- liðinu. Þetta er i annað sinn sem ég er ekki valinn í ákveðið verkefni með landsliðinu. í bæði skiptin hef- ur Friðrik Ingi Rúnarsson verið nýráðinn aðstoðarþjálfari og einnig hefur nafm hans og félagi, Friðrik Ragnarsson, verið tekinn inn í stað- inn, í bæði skiptin. Ég virði engu síður skoðanir þessara manna en kem ekki til með að spila undir þeirra stjórn í framtíðinni," sagði Jón Amar enn fremur. Fyrsti leikur Haukanna undir hans stjórn verður á sunnudaginn þegar Haukar fá Þór í heimsókn. í þeim munu Haukar leika án erlends leikmanns en Bandaríkjmaðurinn Myron Walker er farinn til síns heima vegna veikinda móður sinn- ar og stefna Haukar á að fá nýjan Bandaríkjamann til landsins um miðjan desember. -BG/GH Gott hja Sveini og Arnari - náðu góðum árangri í badminton og tennis erlendis Badmintonmaðurinn Sveinn Sölvason náði góðum árangri á mjög sterku alþjóðlegu móti í badminton í Gvatemala um liðna helgi. Sveinn komst í átta manna úrslit á mótinu og dróst þar gegn Banda- ríkjamanninum Kevin Han. Sveinn tapaði leikn- um en Han sigraði síðan á mótinu. Sveinn sigraði Lun Diaz frá Gvatemala, 15-7 og 15-1. Síðan lék hann gegn Bernardo Montreal frá Mexíkó og vann hann 15-8 og 15-8. Loks tapaði Sveinn fyrir umræddum Han, 7-15 og 7-15. Eng- inn annar keppandi á mótinu náði hærra skori gegn sigurvegaranum. Arnar lék vel í Asíu Tennisleikarinn Arnar Sigurðsson, 16 ára, hefur undanfariö tekið þátt í mótaröð alþjóðatennis- sambandsins. Arnar komst í undanúrslit á tveimur mótum og sigr- aöi í því þriðja. Fyrir þennan árangur fær hann 95 stig á styrkleika- lista Alþjóða tennissam- bandsins og er þar í 140. sæti yfir bestu tennis- leikara heims. Þetta er frábær árang- ur hjá þessum unga og efnilega tennisleikara sem gaman verður að fylgjast með í framtíöinni -SK Krefst ÍÖÓ milljóna Arnór Guðjohnsen knattspyrnu- kappi er kominn í málaferli við belgíska knattspymuliðið Anderlecht og Alþjóða knattspymusambandið, FIFA. Málaferlin eru tilkomin vegna sölu Arnórs til franska liðsins Bordeaux árið 1990. Þar átti Amór að fá hluta EM í handbolta: ísland í forkeppni í dag verður dregið i for- keppni að riðlakeppni Evr- ópumóts landsliða í hand- knattleik og fer drátturinn fram í Króatíu. I forkeppn- inni taka þátt alls 26 þjóðir og í þeim hópi eru íslendingar. Forkeppnin öll verður leikin á tímabilinu 12. maí til 30. maí en aðalriðlakeppnin hefst síð- an næsta haust. Átta þjóðir sleppa við for- keppnina en þær eru Spánn, Þýskaland, Rússland, Júgóslavía, Ungverjaland, Frakkland, Danmörk, Noreg- ur og Makedónía. Eftirtaldar þjóöir taka þátt i for- keppninni næsta vor. Austurríki, Belgía, Hvita-Rússland, Búlgaría, Kýpur, Tékkland, Eistland, Finn- land, Georgía, Grikkland, ísland, ísrael, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Holland, Pólland, Por- túgal, Rúmenía, Slóvenía, Sióvakia, Tyrkland, Úkraina. íslendingum er stillt upp í sterkasta pottinum ásamt Tékklandi, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu og Slóveníu. ísland verður þvi ekki með þessum þjóðum í riðli. Forkeppnin verður leikin í sjö riðlum. Fimm riðlar verða með fiórum þjóðum og tveir með með þremur þjóðum. Sig- urvegarinn í hverjum riðli tryggir sér sæti í aðalriðla- keppnina næsta haust. Úrslitakeppnin verður háð i Króatíu í júní árið 2000. Þar hafa tvær þjóðir þegar tryggt sér sæti. Svíar, sem eru nú- verandi Evrópumeistarar frá því á Ítalíu sl. sumar, og sjálf- ir gestgjafarnir, Króatía. -JKS kaupverðsins í sinn hlut sem hann hefur aldrei fengið. Arnór hefur enn fremur stefnt FIFA en meðan hann var á mála hjá Bordeaux dæmdi FIFA hann aftur til Anderlecht gegn hans vilja og í kjölfarið sagði Bordeaux upp tveggja ára samningi við hann. Arnór fór í mál við Bordeaux. Hann vann málið í undirrétti en tapaði því i hæstarétti. Mál Amórs gegn Anderlecht og FIFA verður dómtekið fyrir belgísk- um dómstólum í dag og þá munu lög- fræðingar Arnórs, þeir sömu og unnu með belgíska knattspyrnumanninum Bosman, og lögfræðingar Anderlecht og FIFA flytja mál sin. „Ég ræddi við lögfræðing sem var með mál Bosman á sínum tíma og hann ályktaði þannig að þetta væri FIFA og Anderlcht að kenna hvernig allt fór. Málið verður kynnt fyrir rétti í Brússel á morgun (í dag) og það mun síðan taka sinn tíma að fá botn í mál- ið. Það er auðvitað mjög erfitt að spá fyrir hvemig þetta mun fara en lög- fræðingurinn sem tók málið að sér sagðist ekki taka það að sér nema vera bjartsýnn," sagði Arnór við DV í gær. -GH BlesncS i noka Ronaldo lýsti því yfir í gær að hann væri meiddur á hné og sæi ekki aðra leið i stöðunni en að fækka þeim leikjum sem hann gæti leikið með Inter í ítalska boltanum. Á nýjum afrekslista bestu kylfinga heims er Tiger Woods í efsta sæti. Mark O'Meara kemur næstur, David Duval í þriðja sæti, Davis Love III er í fjórða sæti. Allir þessir kylfingar eru frá Bandaríkjunum. f fimmta sæti er Emie Els frá Suður-Afríku, Colin Montgomerie frá Bretlandi í sjötta sæti, Lee Westwood, Bretlandi, í sjöunda sæti, Nick Price, Zimbabwe, í áttunda sæti, Vijay Singh, Fijieyj- um, i niunda sæti og i tíunda sæti er Phil Mickelson, Bandarikjunum. Balakov, leikmaður Stuttgart i þýsku knattspymunni, hefur verið krafinn skýringa á því er hann spark- aði i klof eins leikmanns í liði Freiburg i leik liðanna um liðna helgi. Balakov á litla vörn í málinu því i sjónvarpi sást greinilega að brotið var fólskulegt og framið af ásettu ráði. Fyrrverandi forseti rússneska knatt- spyrnufélagsins Dinamo Búkarest hefur verið leystur úr fangelsi og trygging greidd. Forsetinn var settur i svartholið á sínum tíma vegna fjársvika. Keppnistimabili bestu tennismanna heims er lokið með stórmótinu í Hannover um síðustu helgi. Pete Sampras náði ekki að sigra á mótinu en heldur samt efsta sætinu á heims- listanum, sjötta árið i röð. Pete Sampras er launahæsti tennis- leikari heims eftir timabiliö. Hann þénaði litlar 275 milljónir króna vegna þátttöku á mótum og þá era ótaldar tekjur hans af auglýsinga- samningmn. í öðru sæti er Marcelo Rios frá Chile með 240 milljónir króna. Til greina hefur komiö að flýta heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu árið 2002. Ástæðan er að á hefðbundnum tíma keppninnar eru miklar rigningar í Japan og Suður- Kóreu þar sem keppnin fer fram. Mark O’Meara sigraði á Skins game golfmótinu um siðustu helgi og fékk 30 milljónir króna fyrir. lnter Milan vék Gigi Simoni úr starfi þjálfara í gær. Simoni hefur verið valtur í sessi i allan vetur. Liklegur eftirmaður hans er talinn vera Rúmeninn Mircea Lusescu. -SK/JKS Stjarnan-Haukar Toppslagur er á dagskrá í 1. deild kvenna í handknattleik í kvöld en þá eigast við Haukar og íslands- méistarar Stjörnunnar. Leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ og hefst hann klukkan 20. Stjai-nan og Haukar hafa í gegn- um árin eldað grátt silfur saman á handboltavellinum. Haukar eru í toppsæti deildarinnar en Stjarnan er stigi á eftir. -GH Svipbrigði landsliðsmannanna Júlíusar Jónassonar og Ólafs Stefánssonar og Þorbjörns Jenssonar segja allt um stöðu landsliðsins eftir tapið gegn Ungverjum í fyrradag. Með ósigrinum er Ijóst að landsliðið stendur á krossgötum eins og vitnað er til í greininni hér að neðan. Handbolti á ísland verður ekki með í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Egyptalandi. ísland verður ekki með í handknatt- leikskeppni Ólympíuleikanna í Sydney. Tvennar þungar dyr skuilu á hæla ís- lensku leikmönnunum í fyrradag þegar þeir töpuðu fyrir Ungverjum í Nyíregy- háza. Þetta era viðbrigði því á undanföm- um 14 áram hefur ísland tekið þátt i öll- um fimm lokamótum HM og í þrennum Ólympíuleikum af flórum. Nú líður að minnsta kosti hálft þriðja ár þar til „strákarnir okkar“ komast í slíkt á ný. Næsta stórmót sem hægt er að komast á er HM i Frakklandi 2001. Jæja, reyndar er það Evrópukeppni landsliöa. Þar hefur ísland aldrei komist áfram, ekki náð að vera í 12 liða úrslita- keppninni þau tvö skipti sem hún hefur verið haldin. Undankeppnin fer fram á næsta ári, jafnvel strax í vor, og úrslita- keppnin er snemma á árinu 2000. Þetta er það næsta til að stefna á, en Evrópu- keppnin er bara í þriðja sæti í virðingar- röðinni, á eftir HM og ÓL. Nú eru tímamót. Handboltinn stendur á ákveðnum krossgötum og á næstunni þarf að taka ákvarðanir sem skipta íþróttina miklu máli til framtíðar. Forysta HSÍ þarf að ákveða hver á að þjáifa landsliðið, og viðkomandi þjálfari þarf að leggja línurnar um hvemig koma á íslandi aftur í hóp þeirra bestu. Eindreginn vilji Formaður HSÍ lýsti yfir eindregnum vilja sínum til að ráða Þorbjörn Jensson áfram í samtali við DV strax eftir leikinn í Ungverjalandi og Þorbjörn brást vel við þegar DV flutti honum þau tíðindi. Fyrstu viðbrögð era því afgerandi á þá leið að Þorbjörn verði áfram með liðið. Þorbjörn er með samning fram á næsta sumar. Það má hins vegar ekki bíða eftir því að sá samingur kiárist og fara þá að skoða málin. Ákvörðun þarf að taka sem allra, allra fyrst. Tíminn er dýr- mætur, sérstaklega þegar um er að ræða stöðu landsliðsþjálfara þar sem öll upp- bygging og skipulagning gerist á mun lengri tíma en hjá þjáifara félagsliðs sem er með sitt lið í höndunum daglega. Nú þarf HSÍ að bregðast við á sama hátt og KSÍ gerði á miðju ári 1997. Þá var enn undankeppni HM í gangi en ljóst að tilsettum markmiðum yrði ekki náð. Ákvörðun um að ráða Guðjón Þórðarson og segja Loga Ólafssyni upp var tekin á hárréttum tíma, á þeim tíma sem starf þess þjálfara sem átti að vera með liðið í næstu keppni yrði að geta haíist. Hvort sem það væri Logi eða Guðjón. Nafn mannsins skipti ekki máli, heldur tíma- setningin og vinnubrögðin. Ef Þorbjöm Jensson á að þjálfa lands- liðið áfram, á að ganga frá því strax. Ef skipta á um þjálfara á að ganga frá því strax. Svo einfaít er málið. Þorbjörn besti kosturinn Að minu mati er Þorbjöm besti kostur- krossgötum inn í stöðunni og á margan hátt eðlilegt að hann haldi áfram, eins og ég veit að hugur hans stefnir fyllilega til. Undir hans stjórn hafa skipst á skin og skúrir. Toppárangur náðist í Kumamoto 1997, fimmta sæti á HM, en síðan hafa tvenn vonbrigði fylgt i kjölfarið. Undankeppni EM og undankeppni HM, þar sem ísland var í báðum tilfellum með í baráttunni en komU ekki alla leið. Hvoragt fl.okkast þó undir „stóra skandala", því í bæði skiptin vora það hærra skrifaðar þjóðir, Júgóslavía og Ung- verjaland, sem reynd- ust of erfiðir þröskuld- ar. Vinnubrögð Þorbjörns hafa verið fagleg og hann hef- ur haft gott vald á verkefninu. Hann hefur gert sín mistök eins og aðrir, og þarf að laga hjá sér ákveðna þætti. En Þorbjörn er búinn með mikla grunn- vinnu. Hann er búinn að ná upp alvöru varnarleik, sem oft hefur verið vandamál hjá íslenskum handboltalandsliðum. Næsta mál hlýtur að vera að laga sóknar- leikinn. Á þessu stigi er óþarfi að fara að finna upp hjólið á nýjan leik með því að skipta um þjálfara. Lykilmenn á besta aldri Landsliðið í dag skipar góður kjami leik- manna. Stærstur hluti þess getur haldið áfram, spurning er með þessa elstu sém munu heltast smám saman úr lestinni á 1-3 árum. Þeir eiga íins vegar að vera í iandsliðinu á meöan þeir eru nógu góðir til þess, óháð aldri. En lykilmenn era á besta aldri. Patrekur, Dagur og Ólafur, mennimir sem eiga að bera uppi sóknarleikinn, era ailir 25 ára og komnir með gífurlega reynslu miðað við aldur. Þeir eiga miklu meira inni, hafa allir burði til að verða heimsklassamenn, og þó þeir hafi verið mistækir til þessa á hiklaust aö keyra á þeim áfram. Aldurinn háir heldur ekki Gústafi og Róberti Sighvatssyni, sem eiga eftir bæta sig enn frekar í atvinnu- mennskunni. Bjarki Sigurðsson getur enn um sinn skilað hægra horninu með sóma. Guðmundur Hrafnkelsson er enn að bæta sig í markinu og virðist geta haldið talsvert áfram enn. Þar er reyndar mesta áhyggjuefnið, skorturinn á efnileg- um markvörðum er atriði sem HSÍ þarf að taka til rækilegrar athugunar. En þessi kjarni á að geta borið liðið uppi næstu árin, ásamt því að yngri leikmenn koma smám saman inn. Tvennum dyrum hefur verið skellt, eins og ég sagði í upphafi. En hafi menn ekki læst lykilinn inni er alltaf hægt að opna og halda áfram. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.