Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 Afmæli____________________ Þorgrímur Þráinsson Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Tóbaks- varnanefndar, Tunguvegi 12, Reykjavik, er fertugur í dag. Starfsferill Þorgrímur fæddist í Reykjavik og ólst þar upp til sjö ára aldurs, í Kópa- vogi til tíu ára aldurs og i Ólafsvík til tvítugs. Þá var hann á bernsku- og ung- lingsárum í sveit á sumrin á Staðastað á Snæfellsnesi hjá afa sínum og ömmu, séra Þorgrími V. Sigurðssyni og Áslaugu Guð- mundsdóttur. Þorgrímur lauk stúdentsprófi frá MR 1980 og stundaði frönskunám við Sorbonne-háskóla í París 1983-84. Þorgrímur vann við Vöruflutn- ingamiðstöðina og hjá Flugleiðum til 1983, var bílstjóri hjá Frjálsu fram- taki, síðar Fróða, til 1985, var blaða- maður þar frá 1985, ritstjóri íþrótta- blaðsins 1986-97 og er framkvæmda- stjóri Tóbaksvarnanefndar frá 1996. Þorgrímur hefur skrifað tólf bama- og unglingabækur: Með flðr- ing í tánum; Tár, bros og takkaskór; Mitt er þitt; Bak við bláu augun; Lalli ljósastaur; Spor í myrki; Amo Amas; Sex Augnablik; Kvöldsögur; Margt býr í myrkrinu; Nóttin lifnar við, og Hjálp, Keikó. Hjálp! Þá skrif- aði hann ævisögu Jóns biskups Vídalín, Meist- ari Jón, predikari af Guðs náð. Þorgrímur hlaut verð- laun Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bestu frumsömdu barna- bókina 1990, Menningar- verðlaun Visa árið 1992, og íslensku barnabóka- verðlaunin 1997 fyrir söguna Margt býr í myrkrinu. Þorgrímur lék knatt- spyrnu með Víkingi frá Ólafsvík til 1979 og með meistaraflokki Vals til 1990 og var fyrirliði síðustu fimm ár- in. Hann á hundrað sjötíu og níu leiki að baki í efstu deild og lék sautján sinnum með íslenska lands- liðinu. Þorgrimur varð Islandsmeist- ari 1980, 1985 og 1987 og bikarmeist- ari 1988 og 1990. Þá varð hann bikar- meistari með FH í frjálsíþróttum 1988. Hann var kjörinn besti leik- maður Vals 1982 og 1989 og Valsmað- ur ársins 1990. Þorgrímur hefur setið í stjórn Reykjavíkurdeildar Barnaheilla, Samtaka íþróttafréttamanna og í Fé- lagsskiptanefnd KSÍ. Núna situr hann í stjóm meðferðarheimilisins Virkisins-Götusmiðjunnar. Fjölskylda Þorgrímur kvæntist 7.7. 1990 Ragnhildi Eiríksdóttur, f. 18.1. 1969, flugfreyju, klæðskera og fórðunar- fræðingi. Hún er dóttir Eiríks Ell- ertssonar, löggilts rafverktaka frá Meðalfelli í Kjós, og k.h., Ólafiu Lár- usdóttur, húsmóður frá Káranesi í Kjósarsýslu. Þau búa í Reykjavík. Börn Þorgríms og Ragnhildar eru Kristófer, f. 4.5. 1992; Kolfinna f. 2.9. 1996. Systkini Þorgríms eru Bryndís, f. 10.1. 1956, kennari, búsett á Sauðár- króki; Áslaug, f. 29.6.1957, sjúkraliði, búsett i Garðabæ; Þorgerður, f. 20.3. 1961, hjúkrunarfræðingur, búsett í Garðabæ; Hermann, f. 20.7.1968, hag- fræðingur, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Þorgríms eru Þráinn Þorvaldsson, f. 2.7. 1934, múrara- meistari, og Soffí Margrét Þorgríms- dóttir, f. 24.10. 1933, kennari. Ætt Þráinn er sonur Þorvalds, skrif- stofumanns á Blönduósi, Þórarins- sonar, b. og alþm. á Hjaltabakka, Jónssonar, b. í Geitagerði í Skaga- firði og síðar á Halldórsstöðum í Langholti, Þórarinssonar, b. í Gróf- argili, Jónssonar. Móðir Þórarins var Margrét Jóhannsdóttir, b. á Kjartansstöðum í Langholti, Guð- mundssonar. Móðir Þorvalds var Sigríður Þorvaldsdóttir, pr. á Hjalta- bakka, bróður Kristínar, langömmu Matthíasar Johannessens, skálds og ritstjóra, og Halldórs Blöndals sam- gönguráðherra. Þorvaldur var sonur Ásgeirs, dbrm. og bókbindara á Lambastöðum, Finnbogasonar, bróð- ur Jakobs, pr. í Steinnesi, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Þor- valds pr. var Sigríður, systir Þuríð- ar, langömmu Vigdísar. Sigríður var dóttir Þorvalds, pr. í Holti, Böðvars- sonar, pr. í Holtaþingum, Högnason- ar, prestafoður á Breiðabólstað, Sig- urðssonar. Móðir Sigríðar á Hjalta- bakka var Hansína Sigurbjörg Þor- grímsdóttir, pr. að Þingmúla, Arn- órssonar. Móðir Þráins var Ragnheiður, hót- elstýra og síðar handavinnukennari við Kvennaskólann á Blönduósi, Brynjólfsdóttir, b. í Ytri-Ey á Skaga- strönd, Lýðssonar og Kristínar Ind- riðadóttur. Soffia er dóttir Þorgríms, prófasts á Staðastað, bróður Önnu, fyrrum forstöðukonu Kvennasögusafnsins, og Valborgar, fyrrv. skólastýru Fóst- urskóla íslands, móður Sigurðar hagfræðings og Stefáns heim- spekings Snævarr. Þorgrímur var sonur Sigurðar, skólastjóra á Hvítár- bakka, Þórólfssonar, b. á Hvoli á Barðaströnd, Einarssonar. Móðir Þorgríms var Ásdís Margrét Þor- grímsdóttir, b. á Ytri-Kárastöðum á Vatnsnesi, Jónatanssonar. Móðir Sofiiu var Áslaug Guðmundsdóttir, kennara á Hvanneyri, Jónssonar. Þorgrímur Þráinsson. Ásta Ólafsdóttir Böm Ástu og Eiríks eru Magnús, f. 3.9. 1964, vél- virki í Svíþjóð en kona hans er Magdalena Lind- ers og eru böm þeirra Anna Elvira, f. 1987, og Eiríkur, f. 1992; Ámi, f. 8.9. 1966, vélvirki á Skúfs- læk; Ólafúr, f. 3.9. 1968, rafeindavirki og nemi við HÍ; Halla, f. 10.8. 1977, stúdent og nemi við Bændaskólann á Hólum. Fósturbörn Ástu, til dval- ar á Skúfslæk, era Einar Karl Héð- insson, f. 19.12. 1985; Stefán Elvuson, Ásta Ólafsdóttir. Ásta Ólafsdóttir, bóndi á Skúfslæk í Villingaholtshreppi, er sextug í dag. Starfsferill Ásta fæddist í Syðstu-Mörk undir Vestur-Eyjafjöllum. Hún stundaði nám við Skógaskóla og Húsmæðra- skólann að Staðarfelli. Ásta vann við bú foreldra sinna og va>' ráðskona við mötuneyti um skeið á sínum yngri árum. Hún hóf búskap á Skúfslæk með fyrri manni sínum 1963 og hefur verið þar bóndi síðan, fyrst ásamt honum og meöan hann lifði, þá með bömum þeirra hjóna til 1988 og loks með seinni eiginmanni sínum frá 1986. Ásta sat í stjóm hestamannafélags- ins Sleipnis, var gjaldkeri fyrir Murneyrarsjóð, meðhjálpari í Vill- ingaholtskirkju og safnaðarfulltrúi við sóknina um árabil, hefur starfað í Kvenfélagi Villingaholtshrepps og var var formaður kven- félagsins í þrjú ár, hefur starfar mikið fyrir Félag vistforeldra á íslandi og er nú formaður Landssam- taka Félaga vistforeldra. Ásta hefur unnið mikið með böm en fjöldi bama hefúr dvalið á Skúfslæk um lengri eða skemmri tíma undir hennar umsjón. Fjölskylda Ásta giftist 1963 Eiríki Magnús- syni, f. 22.12.1931, d. 2.11. 1982, bónda á Skúfslæk. Hann var sonur Magnús- ar Eiríkssonar og Ingibjargar Gísla- dóttur. f. 23.10. 1991. Seinni maður Ástu frá 1986 er Sig- urður Einarsson, f. 4.6. 1939, bóndi á Skúfslæk. Hann er sonur Einars Sig- urðssonar og Önnu Ólafsdóttur. Systkini Ástu eru Sigríður, f. 26.9. 1921, húsfreyja í Bakkakoti á Rangár- völlum; Guðjón, f. 23.9.1922, oddviti í Syðstu-Mörk; Ólafur, f. 5.5. 1924, fyrrv. kaupfélagsstjóri á Hvolsvelli; Sigurveig, f. 14.6. 1925, húsmóðir í Reykjavík; Sigurjón, f. 3.7. 1927, nú látinn, bóndi á Stóru-Borg í Árnes- sýslu; Jóhanna, f. 2.8. 1928, húsfreyja á Völlum í Akraneshreppi; Ámi, f. 12.7. 1931, bamalæknir i Sviss. Foreldrar Ástu vom Ólafur Ólafs- son, f. 24.5. 1891, d. 13.7. 1973, bóndi í Syðstu-Mörk, og k.h., Halla Guðjóns- dóttir, f. 7.8. 1892, d. 7.4. 1970, hús- freyja. Sigurður verður sextugur á þessu ári. í tilefni afmælanna taka þau hjónin á móti gestum í félagsheimil- inu Þjórsárveri fóstud. 8.1. frá kl. 21.00. André Bachmann Sigurðsson André Bachmann Sigurðsson, tón- listarmaður og vagnstjóri, Hábergi 20, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill André fæddist á Steinhólum við Kleppsveg í Reykjavík og ólst upp í Reykjavík. Hann var í Laugames- skóla. André hefur m.a. unnið við geð- deild Bamaspítalans, verið aðstoðar- maður sjúkraþjálfara við Borgarspit- alann, unnið við auglýsinga- og markaðsdeild DB og Vikunnar og við auglýsingadeild Timans. Þá hefur hann verið vagnstjóri hjá SVR sl. sex ár. André hefur spilað á trommur og sungið með ýmsum danshljómsveit- um frá 1972, s.s. Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar, Aríu, Hljómsveit André Bachmann og loks hljómsveit- inni Gleðigjöfum sem enn leikur fyr- ir dansi. André gaf út diskinn Gleðigjafmn, André Bachmann, Til þín, 1995. André skipulagði dægurlaga- keppnina Landslagið, skipulagði, ásamt Kiwanisklúbbnum Viðey styrktardansleik vegna sundlaugar- byggingar fyrir fatlaða í Reykjadal, skipulagði Kántrýhátíð, ásamt Magn- úsi Kjartanssyni, á Hótel Sögu á síð- asta ári til styrktar Hallbirni í Kán- trýbæ og gaf út nú fyrir jólin ásamt Áma Scheving og Þorgeiri Ástvalds- syni diskinn Maður lifandi, til styrkt- ar Þroskaheftum í tilefni fjörutiu ára afmælis Styrktarfélags vangefinna. Fjölskylda André kvæntist 26.7. 1975 Emilíu Ásgeirsdóttur, f. 18.6.1951, verslunar- manni. Hún er dóttir Ásgeirs Þórar- inssonar, f. 4.9. 1924, d. 28.9. 1981, vörubílstjóra á Selfossi, og k.h., Mar- grétar Karlsdóttur, f. 28.7. 1931, hús- móður. Böm André og Emilíu em íris Eva Bachmann, f. 13.7. 1974, nemi í tölv- unarfræði en maður hennar er Ás- geir Sæmundsson vörubílstjóri og eiga þau eina dóttur; Ásgeir Bach- mann, f. 7.6. 1976, framkvæmdastjóri í Reykjavík en unnusta hans er Vig- dís Ásgeirsdóttir, starfsmaður leik- skóla; André Bachmann, f. 12.5. 1987, nemi. Dóttir André frá fyrra hjónabandi er Sigríður Bachmann, f. 18.11. 1969, búsett í Garði en maður hennar er Matthías Magn- ússon útgerðartæknir og eiga þau tvö böm. Systkini André em Jak- ob Bachmann, f. 31.10.1952, feldskeri í Svíþjóð; Sigurð- ur Bachmann, f. 19.5. 1954, vagnstjóri í Reykjavík; Dóra Sigurðardóttir, f. 11.5. 1956, húsmóðir í Reykja- vík; Júlíus Heiðar Sigurðs- son, f. 19.5. 1958, heildsali í Reykjavík; Sigurbjöm Bachmann, f. 5.10.1961, bú- settur í Danmörku; Jóhann- es Bachmann, f. 4.4. 1963, skemmtikraftur í Reykjavík; Kristín Sigurðardóttir, f. 11.11. 1968, búsett í Kópavogi. Foreldrar André: Sigurður Bach- mann Ámason, f. 29.9. 1928, d. 2.6. 1988, umsjónarmaður Sjómannaskól- ans í Reykjavík, og k.h., Hulda Val- gerður Jakobsdóttir, f. 4.6. 1929, hús- móðir. Ætt Sigurður Bachmann var sonur Áma, múrarameistara í Reykjavík, Grimssonar, bakarameistara í Reykjavík, Ólafssonar. Móðir Áma var Þorgerð- ur Stefanía Stefánsdóttir. Móðir Sigurðar Bach- mann var Kristín, systir Meyvants, bilstjóra á Eiði á Seltjamamesi, afa Más Halldórssonar, dreif- ingarstjóra DV. Kristín var dóttir Sigurðar Frí- manns Guðmundssonar, og Sigurbjargar Sigurðar- dóttur. Valgerður er dóttir Jak- obs, innheimtumanns í Reykjavík, Stefánssonar, og Guðlaugar Kjartans- dóttur. Fósturforeldrar Valgerðar vom Hjálmar Diegó Jónsson, bakarameist- ari í Reykjavík og fulltrúi tollstjóra- embættisins í Reykjavík, og k.h., Halldóra Friðgerður Sigurðardóttir. Þau bjuggu að Steinhólum við Kleppsveg í Reykjavík. Ándré og Emilía taka á móti gest- um í Súlnasal Hótel Sögu á afmælis- daginn, föstudaginn 8.1., kl. 21.00. André Bachmann Sigurðsson. Til hamingju með afmælið 8. desember 95 ára Kristjana Magnúsdóttir, Vatnsnesvegi 32, Keflavík. 85 ára Jóna Jónsdóttir, Blikahólum 4, Reykjavík. Þórdís Gunnlaugsdóttir, Logafold 56, Reykjavik. 80 ára Finney Árnadóttir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Hún er að heiman. Guðrún Kristjánsdóttir, Vikurbraut 26, Höfn, verður áttræð á mánudaginn. Hún tekur á móti gestum á heimili sonar sins og tengda- dóttur, Austurbraut 1, Höfn, sunnud. 10.1. eftir kl. 15.00. Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Pólgötu 6, ísafirði. Stefán PáU Björnsson, Laugavegi 139, Reykjavik. Steinunn Daníelsdóttir, Smáravegi 10, Dalvík. 75 ára Ástvaldur Kristófersson, Túngötu 8, Seyðisfirði. Emil Sigurðsson, Sólvallagötu 31, Reykjavík. Finnbogi Guðmimdsson, Sólvangsvegi 7, Hafnarfirði. Margrét Kröyer, Helgamagrastr. 9, Akureyri. 70 ára Gréta Jóhannesdóttir, Grundarbraut 5, Ólafsvík. Jón Sigurður Eiríksson, Fagranesi, Sauöárkróki. 60 ára Sigurður Sigurðsson, Hlaðbæ 5, Reykjavík. 50 ára Anita L. Þórarinsdóttir, Hlíðarenda, Bárðdælahreppi. Benedikt Skarphéðinsson, Frostaskjóli 87, Reykjavík. Björn Guömundsson, Hliðarhjalla 40, Kópavogi. Ester Steindórsdóttir, Barðstúni 3, Akureyri. Geirþrúöur Sigurðardóttir, Þórunnarstræti 83, Akureyri. Indriði Kristinsson, Selvogsbraut 29, Þorlákshöfn. Kristín Jónsdóttir, Háteigi 6, Akranesi. Magnús Sigurðsson, Aragerði 13, Vogum. Marin Pétursdóttir, Kaplaskjólsvegi 50, Reykjavík. Peter Radovan Jan Vosicky, Austurbrún 4, Reykjavík. Sigurður Styrmisson, Reynilund 4, Akureyri. Stanislaw Switon, Álfhólsvegi 8 A, Kópavogi. 40 ára Bertha Richter, Álfheimum 28, Reykjavík. HaUdór Guðnason, Stórholti 25, Reykjavík. Helga Jónsdóttir, Austurey II, Laugardalshr. Helgi Erlendsson, Hraunbæ 186, Reykjavík. Júlíus Pétur Ingólfsson, Vogabraut 22, Akranesi. Olga Magnúsdóttir, Ósi III, Skilmannahreppi. Ólafur Rúnar Björnsson, Jörundarholti 44, Akranesi. Steindór Rúnar Ágústsson, Asparfelli 8, Reykjavík. Vilborg Jónsdóttir, Blöndubakka 15, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.