Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 23 dv__________________íþróttir Stefán byrjar vel með Strömsgodset - ljósi punkturinn í leik liösins Stefán Gíslason, knattspymumað- urinn efnilegi frá Eski- firði, stóð sig vel í fyrsta leiknum með norska A- deildar liðinu Ströms- godset um síðustu helgi. Stefán lék á miðjunni allan tímann þegar Strömsgodset gerði jafn- tefli, 4-4, gegn Tromsö á móti á yfirbyggðum knattspyrnuvelli, Tele- markhallen, um síðustu helgi. Blaðið Drammens Tidende segir að frammistaða Stef- áns hafi verið ljósi punkturinn hjá Strömsgodset í annars slökum leikj- um gegn Odd og Tromsö á mótinu. Hann hafi átt margar góðar send- ingar sem hafi splundrað vörn Tromsö og það sé ótrúlegt að hann sé aðeins 18 ára gamall, svo mikill sé líkamsstyrkur hans. Stefán samdi við Strömsgodset fyrir einu ári en félagið leigði hann síðan til KR. Þar lék hann 12 leiki í úrvalsdeildinni en Stef- án hefur leikið 37 leiki með yngri landsliðum Islands og spilaði um tíma með unglingaliði Arsenal. „Ég er ánægður. Mér fannst þetta ganga ágætlega en ég á samt ekki von á að vinna mér fast sæti i liðinu á þessu tímabili," segir Stefán í samtali við blaðið. Tryggvi skoraði tvö Tryggvi Guðmundsson var í aðal- hlutverki með Tromsö í leiknum við Strömsgodset því hann skoraði tvö af fjórum mörkum liðsins. Valur Fannar, bróðir Stefáns, lék sem miðvörður með Strömsgodset í leiknum. Eins og fram hefur komiö í DV hefur Örgryte í Svíþjóð mikinn áhuga á að fá hann til sín. -VS Úrvalsdeildin í körfubolta: Met á dag - í skoruðum þriggja stiga körfum Það er oft sem svipaðir atburðir fylgjast að og svo var um afrek tveggja leikmanna úrvalsdeildarinnar í körfúbolta fyrir helgi. Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson setti met í skoruðum þriggja stiga körfum hjá íslend- ingi á dögunum gegn Val auk þess að setja met í bestu nýtingu hjá þeim sem hafa gert 10 3ja stiga körfur í einum leik eða fleiri og svo loks í flestum skoruðum þriggja stiga körfum á útivelli. Páll Axel nýtti 80% skota sinna í leiknum eða 12 af 15. Bestu nýtingu áður átti Ólafur Ormsson KR-ingur frá 1995 en flestar 3ja stiga körfur íslendings höfðu þeir Valur Ingimundarson og Kristinn Friðriksson gert eða 11. Það leið síðan aðeins tæpur sólarhringur þar til Keflvíkingurinn Damon Johnson var búinn að slá honum við í nýtingu (82%, 14 af 17) auk þess að setja met í skoruðum þriggja stiga körfum á útivelli í deildinni. Damon bætti þannig tvö af þremur metum sem Páll Axel hafði sett kvöldið áður. Fjórða hæsta stigaskor einstaklings í leik Damon Johnson hjá Keflavík var ótrúlegur gegn KFÍ, hitti í 21 af 27 skot- um sínum, 14 af 17 3ja stiga skotum og öllum fimm vítunum sem þýðir 61 stig og 4. besta árangur frá upphafi í úrvalsdeild. Það er John Johnson sem á metið eða 71 stig sem hann skoraði fyrir Fram gegn ÍS 17. nóvember 1979. í öðru sæti er Blikinn Joe Wright sem gerði 67 stig gegn Njarðvík 29. janú- ar 1993. Næstur á undan Damon er Danny Shouse sem gerði 64 stig fyrir Njarðvík gegn ÍS 15. janúar 1981 eða nákvæmlega 18 árum á undan Damon. Metleikur hjá Val og Grindavík Ef við snúum okkur aftur að leik Vals og Grindavíkur á fimmtudags- kvöldið þá komst hann ekki einungis í sögubækumar fyrir afrek Páls Ax- els. Það voru nefnilega sett að auki tvö met í þriggja stiga körfum í þessum leik. Grindvíkingar gerðu alls 24 þriggja stig körfúr í leiknum og bættu þar með met Valsmanna frá 1994 og Keflvíkinga frá 1997. Þá skoruðu Valsmenn niu þriggja stiga körfur og það voru því gerðar alls 33 3ja stiga körfur í leiknum sem er nýtt met en það var 29 körfur í einum leik. Það met áttu einmitt Valsarar og Grindvíkingar áður, Valsmenn í leik gegn Tindastóli 1994 og Grindvíkingar í leik gegn ÍA 1995. Nýtingin var ótrúleg í þessum leik. Grindavík nýttu sín 3ja stiga skot 65% (24/37) og Valsmenn 64% (9/14). Alls var því ótrúleg 65% 3ja stiga nýting (33/51) í þessum leik á Hlíðarenda þetta metkvöld. Guðjón vantar nú aðeins tvær Hér til hliðar má sjá lista yfir besta árangur í skoruðum 3ja stiga körfum í sögu úrvalsdeildar en 3ja stiga reglan var tekin upp haustið 1984. Auk þeirra meta sem sett voru þessi kvöld bætti Guðjón Skúlason við sitt met yfir flestar 3ja stiga körfur í sögu úrvalsdeildarinnar og vantar nú aðeins tvær slikar til að verða sá fyrsti í 700 gerðar þriggja stiga körfur. -ÓÓJ Evrópukeppnin í badminton: Landsliðið í Belfast íslenska landshðið í badminton er nú í Belfast á Norður-írlandi þar sem það tekur þátt í B-keppni Evrópuþjóða, Helvetia Cup. Keppnin hófst í morg- um Leikur Islands og írlands átti að byija klukkan 10 en síðan mætir ísland hði Slóveníu á sama tima í fyrramálið. Fjórtán hð faka þátt í keppninni og er þeim skipt í fjóra riðla. Sigurvegar- ar riðlanna komast áfram og þrjú efstu hðin fara að lokum upp í A-keppnina. Broddi Kristjánsson landsliðsþjálfari leikur sjálfur með íslenska liðinu og að auki valdi hann eftirtalda leikmenn: Árna Þór Hahgrímsson, Tryggva Nielsen, Tómas Garðarsson Viborg, Svein Sölvason, Elsu Niel- sen, Vigdisi Ásgeirsdóttur, Brynju Pétursdóttur og Drífu Harðardóttur. Tómas Garðarsson Viborg, sem er búsettur í Svíþjóð, leikur sína fyrstu landsleiki fyrir íslands hönd á mótinu. -VS www.visirJs Hver er talnalásinn? Opnaðu töskuna og þú gætir eignast Nokia 8810 síma frá Símanum GSM Uppgötvaðu talnaröðina á lásnum! Inni í töskunni hér að ofan er glæsilegur Nokia 8810 sími og GSM kort frá Símanum GSM, en Nokia símar eru einmitt notaðir óspart í myndinni. Auk þess eru í töskunni miðar á Ronin fyrir 200 heppna og einn gest. Þú getur getur orðið einn þeirra heppnu með því að smella þér inn á Vísi.is, svara tveimur léttur spurningum og uppgötva þannig talnalásinn. Taktu þátt og þú gætir unnið glæsilegasta GSM síma á markaðnum! SÍHINN-GSM SAMmi Sambíóin frumsýna á morgun nýjustu mynd Robert De Niro, Ronin. Fjallar myndin um 6 menn sem þekkja ekkert til hvors annars en eru kallaðir saman til að ræna dularfullri tösku af sömu gerð og sést hér til hliðar. Þeir vita ekki hvað er í töskunni eða hver réð þá til verksins. Myndin er hörkuspennandi og áhorfandinn giskar allt til endaloka. Leikstjóri myndarinnar erjohn Franken- heimer sem gerði French Connection myndirnar og er þetta hans 32. mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.