Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Blaðsíða 4
24
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
25
íþróttir
íþróttir
Úrslit í A-deild:
Newcastle-Man. Utd.........1-2
1-0 Solano (16.), 1-1 Cole (25.), 1-2
Cole (51.)
Chelsea-West Ham...........0-1
0-1 Kitson (75.)
Coventry-Blackburn ........1-1
1-0 Aloisi (22.), 1-1 Wilcox (67).
Derby-Liverpool ...........3-2
1- 0 Burton (12.), 1-1 Fowler víti (36.),
2- 1 Wanchope (44.), 3-1 Wanchope
(49.), 3-2 Fowler (57.)
Everton-Arsenal ...........0-2
0-1 Parlour (16), 0-2 Bergkamp víti
(69.)
Leicester-Charlton.........1-1
1-0 Lennon (60.), 1-1 Mendonza (90.)
Sheöield Wednesday-Leeds . . 0-2
0-1 Hasselbaink (4.), 0-2 Hopkin (73.)
Tottenham-Aston Villa .....1-0
1-0 Sherwood (88.)
Wimbledon-Nottingham Forest 1-3
0-1 Rogers (21.), 0-2 Freedman (59.),
1-2 Gayle (79.), 1-3 Shipperley (84.)
Middlesborough-Southampton 3-0
1-0 Beck (44.), 2-0 Richard (45.), 3-0
Vickers (63.)
Staðan í A-deild
Manch.Utd
Arsenal
Chelsea
Leeds
Aston Villa
Derby
West Ham
Wimbledon
Liverpool
Tottenham
Newcastle
Middlesbro
Sheff. Wed.
Leicester
Coventry
Everton
29 17 9 3 65-30 60
28 14 11 3 37-13 53
28 14 11 3 41-23 53
29 14 9 6 45-26 51
29 12 8 9 39-34 44
29 11 11 7 31-28 44
29 12 7 10 32-39 43
29 10 10 9 33-41 40
28 11 6 11 52-37 39
29 9 12 8 34-34 39
29 10 8 11 38-39 38
28 8 12 8 37-39 36
28 10 5 13 35-29 35
28 8 10 10 28-37 34
29 8 7 14 31-40 31
29 7 10 12 22-32 31
29 6 10 13 33-40 28
Blackburn 29 6 9 14 29-íl 27
Southampt. 29 7 5 17 27-56 26
Nott. For. 29 4 8 17 26-57 20
Úrslit í B-deild:
Birmingham-WBA...............4-0
Bolton-QPR...................2-1
Bradford-Norwich.............4-1
Bury-Bamsley.................0-0
Grimsby-Sunderland...........0-2
Ipswich-Huddersíield.........3-0
Oxford-Watford...............0-0
Port Vale-Stockport..........1-1
Portsmouth-Crystal Palace .... 1-1
Swindon-Crewe................1-2
Tranmere-Sheffíeld Utd.......2-3
Staðan í B-deild:
Sunderland 37 24 10 3 71-22 82
Ipswich 37 21 7 9 53-25 70
Birmingh. 37 19 10 8 58-30 67
Bradford 36 20 7 9 63-36 67
Bolton 36 17 13 6 67-47 64
Watford 36 14 12 10 51-49 54
WBA 37 15 8 14 61-58 53
Sheff. Utd 36 14 11 11 57-54 53
Huddersf. 37 14 11 12 53-59 53
Wolves 34 14 10 10 47-35 52
Grimsby 33 14 7 12 34-36 49
Norwich 36 12 12 12 50-51 48
Cr. Palace 37 11 13 13 49-58 46
Tranmere 37 10 15 12 50-51 45
Stockport 37 10 14 13 43-47 44
Barnsley 36 9 15 12 4243 42
Portsmouth 37 10 12 15 49-57 42
QPR 36 9 10 17 37-47 37
Swindon 36 9 10 17 50-63 37
Oxford 37 8 11 18 36-59 35
Port Vale 35 10 5 20 38-64 35
Bury 36 7 13 16 29-51 34
Bristol C. 34 5 14 15 43-62 29
Crewe 34 7 8 19 40-67 29
M SK0TLAND
Dundee Utd-Hearts ........frestað
Aberdeen-Celtic...........frestaö
Dunfermline-Dundee............2-0
Rangers-Motherwell ...........2-1
St. Johnstone-Kilmarnock......o-l
Staða efstu liða:
Rangers 27 19 5 3 63-23 62
Celtic 26 14 7 5 62-24 49
Kilmarnock 27 12 9 6 32-20 45
St. Johnst. 27 11 9 7 32-34 42
tM6U>"D „Get ekki annað
en vorkennt Petit“
- sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal
Liö Arsenal varð fyrir miklu áfalli þegar einn besti leikmaður liðsins
á tímabilinu, Frakkinn Emanuel Petit, var rekinn af leikvelli gegn
Everton. Petit fer í þriggja leikja bann og missir af leik Arsenal
gegn Manchester United í undanúrslitum
bikarsins og leikjum í deildinni gegn
Southampton og Blackburn.
„Ég get ekki annað en vor-
kennt Petit. Dómarinn var
undir miklu álagi eftir að
hann rak leikmann Ev-
erton út af. Áhorfendur
heimtuðu mann úr
mínu liði út af við
hvert brot. Ég tel að
hvorugt gulu spjald-
anna hafi átt við rök I
að styðjast en þó má
segja að Petit hafi verið
aðeins of seinn i tæk-
lingar vegna þess að
hann er ekki í 100%
leikæfíngu," sagði
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal.
-SK y m ■ht, .
V.
Andy Cole var í miklu stuði gegn sínum
gömlu félögum í Newcastle og skoraði bæði
mörk Manchester United í sigurleikn-
um gegn Newcastle. Á sama tíma lék
Arsenai á heimavelli Everton og vann mjög
þýðingarmikinn sigur. Nú má ekkert fara úrskeiðis hjá
toppliðunum og Ijóst að baráttan um Englandsmeistaratitil-
inn verður gríðarlega hörð. Ef marka má úrslit helgarinnar verða
það Manchester United og Arsenal sem enn einn ganginn berjast um tit-
ilinn. Á myndinni fagna þeir Andy Cole og Ryan Giggs marki hins fyrrnefnda á
laugardag. Símamynd
Gullit ræddi við Ferguson
- um leik Man. Utd gegn Inter Milan
Ruud Gullit, stjóri Newcastle, kom að máli við Alex Ferguson, stjóra Man. Utd,
fyrir leik liðanna og gaf honum góð ráð varðandi Evrópuleik
United og Inter Milan næsta miðvikudag. „Ég veit
að Italirnir munu reyna allt til að breyta leik
okkar og fá okkur til að leika óagaða
knattspyrnu. Það munum við
ekki gera,“ sagði Fergu-
son.
-SK
V
,>
ENGLAND
Ray Parlour er hér felldur innan vítateigs í leik Arsenal og Everton á laugardag. Bergkamp skoraði úr vítinu en Parlour skoraði
fyrra mark Arsenal. Símamynd Reuter
Enska knattspyrnan spennandi um helgina:
Dopur ’"m
byrjun hjá
Steve Stone
spil hjá Chelsea segir Vialli. Einvígi framundan hjá Man
Utd og Arsenal en bæði liðin unnu dýrmæta útisigra
Italinn Gianfranco Zola í baráttu um knöttinn við Steve
Lomas í West Ham í leik Chelsea og West Ham á
laugardag. West Ham fór með öll stigin frá Stamford
Bridge. Reuter
Manchester United heldur enn íjögurra stiga forskoti í ensku
knattspymunni eftir leiki helgarinnar. Óvæntustu úrslitin um
helgina urðu á heimavelli Chelsea þegar lærisveinar Gianluca
Vialli töpuðu fyrsta heimaleik sinum í deildinni gegn West Ham,
0-1.
Vialli var allt annað en kátur eftir leikinn og sagði að baráttan
um meistaratitilinn væri búið spil fyrir Chelsea. „Við erum nú
sjö stigum á eftir United og ég tel augljóst aö baráttan um sig-
ur í deildinni muni standa á milli United og Arsenal. Eftir
þetta tap gegn West Ham er staðan þessi og auðvitað erum
við allir griðarlega vonsviknir," sagði Vialli eftir leikinn.
Þetta var fyrsta tap Chelsea á heimavelli í deildinni og á
dögunum tapaði liðið á heimavelli fyrir Man Utd og datt
þar með úr bikarnum. Botninn virðist því dottinn úr leik
Chelsea. Of snemmt er þó að afskrifa Chelsea því enn get-
ur allt gerst.
Manchester United steig skref í átt að titlinum með úti-
sigri gegn Newcastle. „Þetta var góður sigur og næst er
það Inter Milan. Schmeichel vildi ólmur spila leikinn en
ég ákvað að skipta í leikhléi. Schmeichel verður orðinn
góður fyrir leikinn gegn lnter,“ sagði Alex Ferguson,
stjóri United eftir leikinn. Peter Schmeichel var með
flensu fyrir leikinn en hann fer með liðinu til Ítalíu. „Við
sýndum þeim of mikla virðingu og vorum ekki eins góð-
ir og þeir. Þetta hefur gerst áður hjá okkur gegn stærri
og betri liðunum," sagði Ruud Gullit, stjóri Newcastle.
Arsenal er í hörkuformi þessa dagana og liðið er
meira en líklegt til að verja meistaratitilinn. í fyrra
var lokasprettur liðsins glæsilegur og ef hann verð-
ur svipaður nú má United vara sig. Fjögurra stiga
forysta verður þá fljót að fara. Arsenal vann góðan útisigur gegn Ev-
erton en framkvæmdastjórar beggja liða voru óhressir með dóm-
gæslu Uriah Rennie eftir leikinn. Hann rak Don Hutchison og Em-
anuel-Petit af leikvelli. „Dómarinn sagði Hutchison hafa slegið
Martin Keown með olnboganum. Ekki var að sjá að brot væri
framið og Huchison hlýtur að hafa mjög mjúka olnboga," sagði
Walter Smith, stjóri Everton, eftir leikinn.
Liverpool tapaði illa á heimavelli Derby. Mikill titringur er í her-
búðum Liverpool. Steve McManaman var ekki í leikmannahópi
Liverpool.
„McManaman var hvorki meiddur né lasinn.
Hann hefði ekkert gert til að styrkja vamarleik okk-
ar í dag,“ sagði Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
eftir leikinn og var mjög óhress með frammistöðu
vamarmanna sinna. Houllier bætti við: „Þegar lið
þitt skorar tvívegis á útivelli á útkoman að vera
eitthvað annað og betra en tap.“
Jim Smith, stjóri Derby, var jarðbundinn þrátt
fyrir góðan sigur og möguleika Derby á Evrópusæti:
„Það er alltof snemmt að hugsa um Evrópusæti. Ég
held að þeir hjá UEFA viti ekki einu sinni hverjir
leika í næstu Evrópukeppni. Lið mitt lék stórkost-
lega í dag og þrátt fyrir að leikmenn mínir væra að
niðurlotum komnir í lokin náðu þeir að innbyrða
glæsilegan sigur," sagði Smith.
Hann hrósaði mjög stórleik Wanchope i liði sinu
en hann skoraði tvívegis: „Wanchope er óútreiknan-
legur leikmaður. Ég myndi ekki vilja leika gegn
honum,“ sagði Smith.
-SK Bergkamp
Steve Stone lék sinn fyrsta
leik fyrir Aston Villa á heima-
velli Tottenham á laugardag.
Aston Villa tapaði leiknum en það
var Tim Sherwood sem skoraði sigur-
markið tveimur mínútum fyrir leikslok. Á
sama tíma vora fyrram félagar Stones í Nott-
ingham Forest að vinna öruggan og óvæntan
útisigur gegn Wimbledon. -SK
Collymore einn sá besti
sem ég hef spilað með
Stan Collymore er að koma inn í lið Aston
Villa eftir sex vikna meðferð við andlegri
vanheilsu.
Steve Stone, fyrrum félagi Collymores hjá
Forest og nú hjá Villa, segir að Collymore
hafi yfir ótrúlegum hæfileikum að ráða og
hann sé með hæfileikaríkustu leikmönnum
sem hann hafi leikið með á sínum ferli. „Ég
vona að koma mín til Villa styrki Collymore
í þeirri baráttu sem fram undan er. Ég mun
gera allt til að hjálpa honum og vonandi
náum við vel saman í framtíðinni í liði
Villa,“ sagði Stone. -SK
Joe Kinnear að ná sér
og laus af sjúkrahúsinu
Joe Kinnear, framkvæmdastjóri
Wimbledon, var ekki við stjórnvölinn á
heimavelli Wimbledon á laugardag er botnlið
Nottingham Forest vann þar óvæntan sigur,
1-3.
Kinnear var fluttur á
sjúkrahús þann 3. mars,
skömmu fyrir leik
Wimbledon gegn Sheffi-
eld Wednesday, eftir að
hafa fengið hjartaáfall.
Um helgina fékk Kinnear
að fara heim en hann
verður að taka það rólega
næstu dagana.
-SK
Eiður varamaður
Eiður Smári Guðjohn-
sen var á varamannabekk
Bolton þegar liðið sigraði
QPR, 2-1, i ensku B-deild-
inni um helgina.
Það var Bob Taylor
sem skoraði bæði mörk Patrick Vieira lék ágætlega fyrir Arsenal
Bolton. Guðni Bergsson er gegn Everton og sést hér á fleygiferð.
enn að ná sér eftir meiðsli. Sfmamynd Reuter
-SK
fagnar
Sóknarparið Dwight Yorke og Andy Cole hefur verið í
miklu stuði hjá Manchester United í vetur. AIls hafa
þeir skorað 42 mörk og hefur ekkert sóknarpar und-
ir stjórn Alex Fergusons, stjóra United, skorað
fleiri mörk.
Forráóamenn franska liðsins Marseille
eru mjög spenntir fyrir Nicolas Anelka,
sóknarmanninum snjalla hjá Arsenal.
Marseille er tilbúið að greiða 11 milljón-
ir punda fyrir Anelka en engar líkur eru
á því að Frakkinn snúi heim á næstunni.
Arsene Wenger, stjóri Arseral, hefur
margoft lýst því yfir að Anelka sé alls
ekki til sölu. Sjálfur segist Anelka vera
ánægður hjá Arsenal en hann geti ekki
neitað því að hann sé upp með sér yfír
áhuga franska liðsins.
Michael Owen, Liverpool, og Dwight Yor-
ke, Manchester United, eru enn marka-
hæstir í ensku A-deildinni í knatt-
spyrnu, hafa skorað 16 mörk. Andy
Cole er nú einn í þriðja sæti og
skammt á eftir með 15 mörk.
Samningur Svíans Pontus Kaa-
mark hjá Leicester City rennur
út í vor og er hann á leið til
Svíþjóðar. Talið er fullvíst
að hann leiki með IFK
Gautaborg á næstu leik-
tíð.
Enska landslidið í
knattspyrnu, skipað
leikmönnum 18 ára
og yngri, er úr leik á
heimsmeistara-mót-
inu þrátt fyrir að
hafa sigrað ísrael,
2-1, í síðasta leik.
Dariusz Vassell,
leikmaður Aston
Villa, og Stephen
Wright, Liverpool,
skoruðu mörk enska
liðsins.
Svo virðist sem Steve
McManaman hafi
leikið sinn síðasta
leik fyrir Liverpool.
Hann er ekki lengur
inni í myndinni hjá
Liverpool og hefur
Gerard Houllier,
stjóri Liverpool,
þegar hafið mikla
leit að eftirmanni
hans. Steve
McManaman er
sem kunnugt er á
fórum til Real Ma-
drid á Spáni.
Roy Hodgson, fyrr-
verandi framkvæmda-
stjóri Blackburn Rovers,
hefur neitað tilboöi um að
gerast þjálfari ástralska
landsliðsins í knatt-
spyrnu.
Roy Hodgson átti
að fá 250 þúsund
pund í laun á ári
en hann sagði nei
takk. Talið er lík-
legt að hann
komi til greina
sem næsti þjáif-
ari enska lands-
liösins eftir að
Kevin Keegan
hættir í sumar.
Arnar Gunn-
laugsson kom inn á
sem varamaður þeg-
ar tiu mínútur voru
eftir af leik Leicester
City og Coventry. Ekki
dugði innkoma hans til sigurs
en Coventry jafnaði metin á
síöustu mínútunni.
Svíinn Henrik Larsson, sem leik-
ur með Celtic, er enn markahæsti
leikmaðurinn í skosku úrvalsdeild-
inni. Hann hefur skorað 23 mörk en
Rod Wallace hjá Rangers kemur
næstur með 18 mörk. Larsson hefur
verið að leika frábærlega með liði
Celtic í vetur.
-SK
marki sínu úr vítspyrnu gegn
i