Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 8
□ □□ GSM Hið rétta um Díönu: „Ég leigi íbúð í Hafnarfirði og bý þar ein með syni mínum, tveggja ára gullmola sem ég sé ekki sólina fyrir. Ég var að kaupa mér nýjan bíl. Ég vinn frá níu til fimm og er líka að út- skrifast úr Ferðamálaskólanum í Kópavogi í vor, þar sem ég hef verið í kvöldnámi. Ég er þrjósk og ákveðin og fólk veður ekki yfir mig, ekki lengur alla vega. Ég var mjög ósjálfstæð þegar ég var yngri en lærði það þegar ég var Au Pair í Bandaríkjunum að maður get- ur ekki alltaf verið að gera það sem aðrir ætlast til af manni, þá verður maður óhamingjusamur. Ég fer stundum út að skemmta mér og þá yfirleitt á Skugga- barinn, Glaumbar, Þjóðleikhúskjallarann eða Astró. Mér finnst samt líka voða gott að vera heima á kvöld- in, við kertaljós og horfa á sjónvarp eða lesa í bók. Einveran er stundum góð, en það er líka gott að fara út að borða með góðum vinum. Mig langar til að fara í Háskólann ef fjárhagsaðstæður leyfa, enda ætla ég mér að ná langt í lífmu.“ Bjarnadóttir dagskrárgerðarmaður á FM957 H: Halló! F: Hæ. H: Já, hæ. F: Þetta er héma á Fókusi. H: Já. Hvað segið þið gott? F: Bara. Hvar ertu? H: Ég er stödd inni á skrifstofunni minni og er að borða popp. F: Vá. Ertu með skrifstofu? H: Já. Ég deili hérna skrifstofu með Kidda Bigfoot og Arnþóri Sævars- syni. (Arnar þessi kallar fram i að hann vilji láta kalla sig Adda.) H: Hann vill láta kalla sig Adda. F: Það eru læti í kringum þig. H: Það eru framkvæmdir í gangi. Iðnaðarmenn að hamast héma frammi. F: Hvað á að gera í kvöld? H: Ætli ég byrji ekki á að fara heim og svo ætla ég að hitta Fíns miðils fólkið sem var með mér á árshátíð í London fyrir nokkrum helgum. Við ætlum að rifja upp hvaö gerðist og djamma aðeins. F: Ertu að segja að þú munir ekki neitt eftir árshátíðinni? H: Nei. Ég man allt. Er þessi leiðin- lega týpa sem rifjar upp alla skandalana fyrir hinum. F: Og þið stelpurnar takið líka alltaf myndir. Það er allavega alveg týpískt fyrir stelpur að taka myndir á árshátíðum. H: Nei. Ég tók ekki myndir og ég held að það séu ekki margar mynd- ir til frá London. F: En hvað um þessa Tvíhöfða- drengi, voru þeir á árshátíðinni? H: Jú. Þeirra innlegg er einmitt eitt af því sem við munum rifja upp. F: Höguðu glæpahundamir sér illa? H: Ég segi ekkert um það annað en að það var enginn saklaus úti í London. F: Já. Heyrðu? Ég þarf að fara að vinna. H: Ég bið að heilsa. F: Hafðu það gott um helgina. H: Ókei. Segjum það, bæ. Eða erum við eitthvað allt annað en útlitið gefur til kynna? Hver erum við þá í raun og veru? Erum við það sem aðrir sem þeir þekktu ekki neitt, og reyna að áætla út frá útliti Kiddi Bigfoot. Robbie Williams. Hvað fær menn til að ganga með gul sólgleraugu? Það fyrsta sem fólki detturí hug er meðferð. Sukkarinn vill vera svalur en er samt of stoltur af óblóöhlaupnum augunum til aö vera með svört sólgleraugu. En þótt þetta sé gáfuleg kenning þá er hún tóm steypa. Eins og flest sem hljómar gáfu- lega. Hið rétta er að gulu sólgleraugun liggja djúpt í genunum - hlekkjuð i genakeðjunni við genin sem búa til ábúðarfull enni, þungar brýr, saman- bitna munna og svipi sem segja fólki að nokkuð þurfi til að skemmta þeim sem ber þá. Gulu sólgleraugun eiga rætur sínar í genauppbyggingu Kidda Bigfoot og Robbie Willams. Og þar má líka finna löngunina til að vera kallaður vinalegum gælunöfnum. Robbie er ekki Robert og Kiddi ekki Kristján. Það eru allt aðrir menn með allt aðra genauppbyggingu. Hvað segja sjátfar sig? Lítum við sjá eða það sem við teljum sjálf að við séum? Fókus fékk þrjá menn til að skoða myndir af fimm konum, þeirra hvaða mann þær hefðu að geyma. 9 u út fyrir að vera það „Nýútskrifuð úr Háskólanum, var þar í íslenskunámi. Er að leita sér að vinnu og horfir mest til kennarastarfsins. Hún er 26 ára, trúlofuð og á eitt barn. Þetta er mjög frek og ákveðin stelpa, sem borðar mikið af græn- meti og drekkur bara vatn, fær sér aldrei kók, en í undantekningartilvikum lætur hún freistast og fær sér dæetkók. Hún er heilsufrík og fer í Þokkabót tvisvar í viku. Hún vill ekki að aðrir stjómi sér og það veður enginn yfir hana. Hún býr í vesturbæn- um og fer oft í leikhús. Þegar hún fer út á lífið kíkir hún á Rex fyrri hluta kvölds en færir sig svo yfir á Astró þegar líður á kvöldið. Hún fílar Bon Jovi og Bryan Adams og einu sinni elskaði hún Michael Bolton. Henni finnst hann útbranninn núna. Hún er að hugsa um að fara og sjá Richard Clayderman þegar hann kemur hingað til íslands." „Þessi er 25 ára, klár stelpa sem starfar einhvers staðar á heilbrigðissviðinu. Annað- hvort sem hjúkrunarkona, lyfiafræðingur eða að læra til læknis. Hún á kærasta sem er lög- fræðingur og vinnur sem slíkur. Þau eru nýbúin að kaupa sér íbúð i Bústaða- eöa Háaleitishverfinu. Saman eiga þau líka einn bærilegan bil. Þetta er frekar venjulegt fólk sem á slæðing af vinum sem þau djamma öðru hverju með. Þau munu eign'ast tvö eða þrjú böm, en eiga ekkert enn. Hún ólst upp í ein- hverju nágrannasveitarfélagi Reykjavíkur, Hafnar- firði eða Garðabæ. Henni finnst Richard Clayderman góður og hún fer trúlega á tónleikana með honum.“ sem viö erum? Hinrik Auðunsson 29 ára verslunarstjóri í söluturninum Svarta svaninum. Svar Björn Hildir Reynisson 22 ára afgreiðslumaður í Japis | Einar Öm Ólafsson 26 ára sérfræðingur hjá FBA. Díana Hilmarsdóttir, 22 ára ritari á fasteigna- sölu. Einstæð móðir með eitt barn. „Hún gæti heitið Guðrún, þessi. Ég giska á að hún sé 27 eða 28 ára, búin með stúdentinn og vinni á skrifstofu frá níu til fimm. Þar sem hún er gift og búin að koma sér upp fiölskyldu, jafnvel tVeimur til þremur bömum á aldrinum 3ja til 6 ára, þarf hún að vinna aukavinnu á kvöldin. Hana dreymir um að verða forstjóri í fyrirtæki einn daginn. Hún býr í eigin íbúð og keyrir um á gömlum bíl. Þetta er mjög ákveðin stelpa en hún getur ekki framkvæmt allt sem hún vill, af því að hún hefur svo lítinn tima. Hún er blíð innst inni en hefur ekki tíma til að sýna það. Ég held að hún sé heima hjá sér öll kvöld að horfa á sjónvarpið og sinna börnunum. Kemst ekki oft á djammið, hefur ekki tíma og er þreytt." f ó k u s 9. apríl 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.