Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 17
9. apríl - 15. apríl Lífid eftir vinnu myndlist popp 1 g i khús fyrir börn k 1 ass i k b i ó veitingahús Föstudagur 9. apríl • k 1 úbbar I hönd fer afmælishátíð Hjartsláttar á Thom- sen. Dj. Die, dj. Skitz, dj. Margeir og dj. Habit skipta með sér kvöldinu. 500 kall inn og bjór innifalinn. t/Huw og Kam, þekktir breskir snúðar, koma og hrista upp í Gauksgestum. Þeir kalia sig Beyond There og eru þétt djammband, enda spila þeir báðir í einu á 4 plötuspilara og taka jafnt eigið efni sem og þekkt hip-hop. I tengsl- um við viðburðinn verður svo skifuþeytara- keppni þar sem ungir íslenskir snúðar fá að sþreyta sig. « krár Viðar Jónsson verður í allra handa fíling á Ala- bama. Sá staður er í Dalshrauninu í Hafnar- firði og gerir ekkert sér- staklega út á kántrí, þrátt fyrir nafnið. Stórsveitin Bylting skemmtir á Café Amster- dam. Hin kristilega hljómsveit Símon Pétur og Post- ularnir heldur upþi stemningunni á flugbátnum Catalínu í Kópavogi. Messuvin og oblátur á línuna! Samsuðan Gildrumezz flytur okkur dagskrá til- einkaða Creedence Clearwater Revival á Ála- foss föt bezt. Þetta hefur notið þó nokkurra vinsælda og er kvöldið í kvöld upphaf lands- reisu með prógramið. Hljómsveitina skipa Birgir Haraldsson. Sigurgeir Sigmundsson og Karl Tómasson úr Gildrunni, en Jóhann Ás- mundsson kemur úr Mezzoforte. Hjartsláttartruflun á Thomsen Um þessa helgi er ár liðið síðan félagsskapurinn Hjartsláttur tróð fyrst upp á Thomsen. Hjartsláttur er samvinnuverkefni Bjarkar, Gus Gus og Hr. Örlygs og hefur haft það að markmiði að trana fram plötusnúðum á sunnudögum. I til- efni afmælisins hafa verið fluttir inn fjórir frægir frömuðir, þar af ein súperstjarna, DJ Die. Hinir eru Hiphopdrengurinn DJ Skitz, rapp- arinn MC Rhett og tæknigúrúinn Khan sem flytja mun lifandi tónlist. DJ Die er sprottinn upp úr drum&bassgerjun Bristolborgar í Englandi. Hann hefur verið ötull þátttakandi í Reprazenthópnum ásamt DJ Krust, Sun, Roni Size, söngkonunni Onallee og EmmSí Dynamite. Die og Roni Size eru einnig saman i lítilli grúppu sem kallar sig Breakbeat Era ásamt söngkonunni Leonie Laws. Die var á æskuárum ötull brettabrunari en hætti á tímabili þegar brettið hans lenti undir bíl og brotnaði. Hann reynir sig þó enn lítillega við íþrótt- ina en þykir orðinn of verðmætt stórstimi til að vera hleypt í hættu- legustu trikkin. „Það er óhætt að líta á DJ Die sem stórstjömu í dansheiminum og það er til marks um hversu stór þessi viðburður er,“ segir Snorri Sturluson alias DJ Habit en hann og DJ Margeir troða upp með Die og Skitz í kvöld. „Bæði hann og MC Rhett em sprottnir upp úr jarðvegi Full Cycle útgáfunnar. Hún hefur lagt grunninn að breskri dansbylgju með ötulli útgáfu," bætir Margeir við. „Meðan bandarísk danstónlist er farin að sýna merki hnignunar ólgar Bretland af frjósemi og þar þróast fleiri stefnur og afkimar en hægt er að henda reiður á.“ Hver eru framtíöarplön Hjartslátt- ar, á aö flytja inn ökt á borö viö Breakbeat Era á nœstunni? „Það er allt opið,“ segir Snorri. „Við erum með langan lista af artistum og höfum það að stefnu að ná inn öllu því kræsilegasta úr þess- um tónlistargeira." Eins og áður segir munu Die og Skitz hita upp í kvöld á Thomsen ásamt íslendingunum en á laugar- daginn verður steðjað á Ráðhús- kaffi á Akureyri. Þar verða Die og MC Rhett í eldlínunni ásamt Mar- geiri. Stóra stundin er svo á sunnudagskvöld þegar Die, Skitz, Rhett og Khan hertaka Thomsen Spennandi blanda hjá Alfred," seg- ásamt nýju tríói Alfreds More. ir Margeir að lokum. „Þetta tríó samanstendur af Hammondorgeli rappara og DJ. síöustu áramót tók við einmenningshlutskipti trúbadorsins. Það er Sveltakráin Áslákur í Mosfellsbæ sem gefur kost á Torfa í kvöld. Gestir Grand Hótels eru farnir að kannast við Gunnar Páll. Og Gunnar Páll er fyrir löngu bú- inn að kortleggja tónlistarsmekk gesta sinna. Þetta er því vinalegt kompaní. t/Rúni Júl mætir með keflvíska hreiminn á Pét- urspöbb. Flugleiðablús, fyrsti kossinn og allt hitt. Joshua Ell situr inni á Café Óperu og leikur milda popptónlist undir tilhugalifi gestanna. Léttir sprettir eru á Kringlukránni eins og tryggir kúnnar geta svo sem sagt sér sjálflr. böl 1 Stjórnin þeirra Grétars og Siggu fellur ekki frekar stjórnin hans Davíðs. Hún ver sig öllu vantrausti i Þjóðlelkhúskjallaranum í kvöld. Línudansarar eru svo heiftarlegur subkúltúr að þeir hittast til að dansa í Kiwanishúsinu Eldey aö Smiðjuvegi 13a i Kópavogi. Þar munu indjánarnir aldrei finna þá. k1ass í k Klukkan 20.30 hefast í Bústaðakirkju kamm- ertónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík. Efn- isskráin hljóðar upp á Beethoven, Martinu, Sjostakovitsj, Scheldler, Dvorák og Haydn. Ókeypis inn og allir velkomnir. Isveitin Það kemur í Ijós í Sjallanum í kvöld hvaða hnáta verður valin ungfrú Norðurland. Okkar spá er sú að fljótlega eftir það muni hún flytja suður og leggj- ast þar undir einhvern lin- mæltan bíla- sala - en það er önnur saga. Þegar úrslit hafa verið kynnt mun hljómsveitin 8-villt hrekja gesti á dansgólfið. Körlum í kvennaleit skal bent á stúlkuna í fim'mta sæti. Hún hefur mikla þörf fyrir viður- kenningu vegna slælegs árangurs og er því auöunnin. Slggi BJörns og félagar verða á Hótel Öskju, Eskifirði. Skyldumæting. Við Polllnn á Akureyri verður hægt aö hlýða á sveitina SÍN. Hafrót er annað hvort eldgamalt band eða eld- gamalt nafn á nýju bandi. Hvað sem því líður verður grúppan sú á Fógetanum í kvöld. Hljómsveitin lífsseiga Hálft í hvoru er stödd á Kaffi Reykjavík í kvöld. Afskaplega séris- lenskt fyrirbrigði. Það mætti halda að Geir- mundur Valtýsson væri fluttur suður - svo tíður gestur er hann orðinn á Naustkránni. Þar verður hann í kvöld. Skagfirðingar verða því að fylgja kónginum og flytja suður ef þeir vilja njóta sveiflunnar rómuðu. Þetta er einmitt ein helsta ástæða byggðaröskunar í landinu þótt Byggðastofnun hafi ekki enn kveikt á perunni. Arna og Stefán eru bæði eitthvað svo mjúk og hlýleg að jafnvel hörðustu naglar verða eitt- hvað svo væmnir í brjóstinu að hlýða á þau á Mímlsbar. Sælusveitin er á Gullöldinni og sér til þess að gestir yfirgefi staðinn sælir klukkan þrjú. Torfi Ólafsson er gamalreyndur hundur I brans- anum. Hann var kominn á kreik 1972 en um .= (U :° ~ m rc ÖJ0 42 g ætla aö reyna að slappa af. Annars er mér boðið í mat til vina í kvöld og eftir matinn kíkir maður örugglega á K-Barinn (Kaffibarinn) eða Sólon og svo reyni ég að fara snemma heim. Það er æf- ing klukkan tíu í fyrramálið og eftir hana safna ég kröftum og slaka á. Mæti síðan aftur á pöbbaröltið um kvöldið, ef ég þekki mig rétt. Annað kvöld get ég leyft mér að vera aðeins fram eftir og sef svo vel allan sunnudaginn því ég er að fara til Lourdes í Frakklandi. Ætla að keppa í Evrópumeistaramóti í Kendo í þessari miklu kraftaverkaborg. t/. Fókus mælir með ^ 1 e i k h ú s Abel Snorko býr einn, eftir Eric Emmanuel Schmitt hinn franska, verður flutt á litla sviði Þjóðleikhússins kl. 20. En það er uppselt. Sími 551 1200. Leikfélag Reykjavíkur sýnir leikritið Fegurðar- drottnlngin frá Línakri. eftir Martin McDonagh, á litla sviði Borgarleikhússins kl. 20.30 Þetta er kolsvört kómedía og að sjálf- sögðu með harmrænum undirtóni. Það er metsöluleikstjórinn María Sigurðardóttlr sem leikstýrir, en Margrét Helga Jóhannsdóttir og Slgrún Edda Björnsdóttir leika mæögurnar. Síminn er 568 8000. Horft frá brúnni eftir Arthur Miller verður á stóra sviöi Borgarleikhússins I kvöld, kl. 20. Amerísk tuttugustu aldar klassík - eöa svo gott sem. Verkið verður kynnt í forsal kl. 19. Sími 568 8000. Hótel Hekla, Ijóöaleikrit T samantekt Llndu VII- hjálmsdóttur og Antons Helga Jónssonar, kl. 21 I Kaffileikhúsinu. Þórey Sigþórsdóttir og Hinrik Ólafsson flytja. Síminn er 5519055 fyr- ir þá sem vilja panta miða. Hádegisleikhús Iðnó: Leitum að ungri stúlku, eftir Krlstján Þórö Hrafnsson. Sýningin hefst kl. 12. Hálftíma síðar er borinn fram matur. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri leikstýrir en Llnda Ásgeirsdóttir og Gunnar Hansson leika. Sími 530 3030. i/Maöur í mlslitum sokkum eftir Arnmund Backman er á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og því er uppselt í kvöld. Enn eitt gangstykkið með »gömlu leikurunum" - að þessu sinni Þóru Friðriksdóttur, Bessa Bjarnasyni og Guð- rúnu Þ. Stephensen. Siminn er 5511200 fyr- ir þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern tíma í framtíðinni. Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar í e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 Lamhbanki úlandt Allra sídustu sýningar ii. og 18. aprít DIVINGruih flat space my\ ,Gaoá dean fun The Tfm#s * * ♦ 9. apríl 1999 f ÓkUS 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.