Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 8
30
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
r
Iþróttir unglinga
DV
Allt á netinu
Það má flnna alla tölfræði úr úr-
slitaleikjum yngri flokka um ís-
landsmeistaratitla á Intemetinu.
Þessar upplýsingar eru á vefslóð
körfuboltasambandsins á
www.toto.is/kki, undir úrslit.
2. deild 10. flokks:
Dímon vann
Um þessa helgi fór fram 2.
deildarkeppni í 10. flokki karla.
Þar stóðu Hvolsvellingar sig best
þegar Dímon varð íslandsmeist-
ari 2. deildar með því að leggja
USAH að velli, 47-39, í úrslita-
leik.
UNÞ vann Fjölni B,
i 48-43, í leiknum um 3.
sætið. Þessa sömu helgi
urðu einnig Fjölnis-
menn íslands-
meistarar í þess-
um flokki eftir
hörkuleik við KR
en unglingasíðan
mun segja meira
frá þeim leik siðar
likt og úrslit
annarra flokka.
Úrslitaleikir 11. flokks og stúlknaflokks í körfuknattleik fóru fram á dögunum:
leykjavíkursigrar
KR og ÍR unnu íslandsmeistaratitla í 11. flokki karla
og stúlknaflokki í Grafarvogi fyrir rúmri viku.
KR vann Njarðvík, 69-60, í úrslitaleik strákanna en ÍR
lagði Keflavík, 45-40, í úrslitaleik stúlknanna.
KR hafði undirtökin allan tímann gegn Njarðvík en
Njarðvíkingarnir gáfust þó aldrei upp og komu munin-
um niður fyrir 10 stig í lokin. KR vann ÍR, 75-57, í undan-
úrslitum og Njarðvík vann Keflavík, 69^46. Sverrir Gunn-
arsson skoraði flest stig fyrir KR eða 16 en Jakob Sigurð-
arson gerði 13 stig. Hjá Njarðvík gerði Ágúst Dearbom 18
stig en hann gaf einnig 6 stoðsendingar í leiknum. Þeir Sig-
urður Einarsson, Þorbergur Hreiðarsson og Arnar Smárason
gerðu allir 12 stig fyrir Njarðvík.
i'np á réttum tíma
Keflavík hafði unnið allar viðureignimar við
ÍR naumlega i vetur en ÍR-stúlkur biðu með sig-
urinn þar til á réttum tíma og unnu úrslitaleik-
inn. Eva María Grétarsdóttir skoraði mest fyrir
ÍR eða 15 stig en Ragnhildur Guðmundsdóttir
gerði 11 stig. Hjá Keflavík gerði Bára Lúðvíks-
dóttir 18 stig en þær María Anna Guðmunds-
dóttir og Hulda Jónsdóttir báðar 8 stig. Liðin
mætast síðan aftur í bikarúrslitunum. -ÓÓJ
Eva María Grétarsdóttir
skoraði 15 stig í úrslitaleik
stúlknaflokks fyrir ÍR gegn
Keflavík og lyfti síðan
íslandsbikarnum hátt á loft
í leikslok.
Þær Halla Jóhannesdóttir
(til vinstri) og Eyrún
Gunnarsdóttir tóku sam-
an 29 fráköst í úrslitaleikn-
um og stóðu sig frábær-
lega. Eyrún tók 16 fráköst
og gaf 6 stoðsendingar en
er þó enn í 8. flokki.
Fjör og gaman hjá stúlknaflokki IR eftir góðan baráttusigur á Keflavík í
úrslitaleik um titilinn. Efri röð frá vinstri: inga Ingimundardóttir, Eyrún
Gunnarsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Halla Jóhannesdóttir. Neðri
röð frá vinstri: Eva María Grétarsdóttir, Hildigunnur Helgadóttir, Marta
Karlsdóttir og Hildur Pálmadóttir.
Jón Arnór Stefánsson
íslandsmeistari með KR í
11. flokki.
Jón Arnór:
Heima í
páskafríi
Nýr leikmaður en þó liðinu
velkunnur lék með 11. flokki KR
í úrslitaleiknum gegn Njarðvik.
Jón Arnór Stefánsson, sem hefur
leikið með menntaskóla í Banda-
ríkjunum í vetur, spilaði með
liðinu meðan hann var í 2 vikna
páskafríi hér á landi.
Jón Arnór er örugglega fyrsti
íslenski körfuknattleiksmaður-
inn sem fer svo ungur út en
hann verður 17 ára á þessu ári.
Hann segir veturinn úti hafa
verið mjög skemmtilegan en æf-
ingar þar séu mun lengri en
hann væri vanur. Liðinu gekk
vel, vann sinn riðil og komst í
undanúrslit 1 fylkinu og Jón
Arnór var búinn að vinna sér
sæti í byrjunarliðinu þrátt fyrir
að vera á sínu fyrsta ári og eiga
enn þrjú ár eftir í skólanum.
Hann segist hafa verið nokkuð
ryðgaður í
þessum úr-
slitaleikjum
en hann hefur
ekki spilað í
tæpa tvo mán-
uði eða síðan
tímabilinu
ytra lauk.
Jón Arnór
er að fara aft-
ur út en kem-
ur til með að
æfa heima í
sumar og fara
síðan út aftur
i september
þar sem hann
skellir sér út í
annað ár með
skólanum sín-
um. Jón Arn-
ór sýndi ágæt-
istilþrif í
seinni hálf-
leik í úrslita-
leiknum sem
KR-ingar
unnu nokkuð sannfærandi.