Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 19. APRlL 1999
31
Frá aðalfundi Félags hrossabænda.
DV-mynd EJ
Hestar
Félagsgjöld, umferðaröryggi og innflutningstollar
Félag hrossabænda hélt aðalfund í Bændahöllinni 13. apríl
síðastliðinn. Rekstur félagsins hefur verið höfuðverkur
stjómarinnar um langt skeið og var samþykkt tillaga stjómarinnar
um að innheimt verði félagsgjald kr. 1500 af hverjum félagsmanni,
utan aðalfundarfulltrúa.
Hugsanlega fær félagið aðrar tekjuuppsprettur siðar, því
samþykkt var samhljóða að beina því til stjómarinnar að vinna að
breytingum á reglugerð um Útflutnings- og markaðssjóð, þannig að
það flármagn sem í hann kemur renni óskipt til markaðsstarfs
Félags hrossabænda. Aðalfundur fagnaði því að hreyfing skuli vera
komin á vinnu við niðurfellingu á innflutningstollum til Noregs.
Fundargestir höfðu áhyggjur af réttarstöðu hrossaeigenda í
umferðinni og beindi þeim tilmælmn til Bændasamtaka íslands að
þau mál yrðu könnuð betur. Jafhframt benti fundurinn á brýna þörf
fyrir uppbyggingu reiðleiða sem óháðar væm bilaumferð. Önnur
mál voru umflöllun um örmerkingar, skráning sláturhrossa og
könnun á nýjum mörkuðum fyrir afsetningu. Bent var á möguleika
Internetsins til kynningar og sölu á hrossum. Ársreikningar voru
samþykktir samhljóða og rekstraráætlun upp á 6.990.000 kr. tekjur
og 6.890.000 kr. gjöld var samþykkt samhljóða. -EJ
Bland í
Asgeir Svan
Herbertsson
ásamt dóttur
Elísabetu
Mettu, og
Farsæl frá
Arnarhóli.
DV-mynd EJ
rnas
Rásbásar sönnuðu gildi sitt á
veðreiðum Fáks. DV-mynd EJ
Fáks, segir að veðreiðar verði ör-
ugglega haldnar í sumar. Líklega
verði tvennar kappreiðar í maí og
júní og afgangurinn í ágúst og
september.
„Útkoman í fyrra var þannig
að við ætlum í þetta aftur,“ segir
Bragi. „Við eigum eftir að ganga
frá ýmsum endum. Við eigum í
viðræðum við báðar sjónvarps-
stöðvarnar og einnig leitum við að
samstarfsaðila í veðreiðarnar.
Helst þarf að vera möglegt að
veðja í gegnum síma eða með
annarri tækni. Við þurfum bara
að íinna út hvaða form er best.
Það er ekki endilega víst að kapp-
reiðar verði um helgar. Hugsan-
lega er hægt að keppa að kvöldi til,
en þetta er allt óráðið," segir
Bragi.
Fyrsta kynbótasýning ársins
verður í Gunnarsholti, frá
þriðjudeginum 27. apríl til
fimmtudagsins 29. apríl. Yfirlits- -
sýning verður fimmtudaginn 29.
apríl eftir hádegi og lokasýning
laugardaginn 1. maí.
Búast má við fjölmenni á
laugardagssýninguna sem fyrr.
Dómar eru
opnir öllum
stóðhestum
og jafnvel
hryssum, þó
svo að fyrst
og fremst
megi búast
við stóð-
hestum i
dóm. Lík-
lega dæma Ágúst Sigurðsson.
þeir Ágúst
Sigurösson, Jón Vilmundar-
son og Vikingur Gunnarsson
hrossin.
Þegar eru umsjónarmenn
hrossanna farnir að skrá hrossin
hjá Búnaðarfélagi Suðurlands en
skráningu lýkur í dag. Sýnendur
þurfa nú að vanda sig meira en
fyrr við sýningar, því nú þarf að
sýna fet og hægt tölt, en gefin
verður einkunn fyrir þessi atriði
þó svo að þau falli ekki inn i að-
aleinkunn, hvað sem síðar verð-
ur.
Þóróur Þorgeirsson er með
helming Stóðhestastöðvarinnar
á leigu og er þar með 25 hross,
hryssur og stóðhesta. Má búast
við því að hrossin í
Gunnarsholti verði áberandi á
Gunnarsholtssýningunni. -EJ
Tvö mikil hestamót eru framundan:
heimsmeistaramótið í Þýskalandi í ágúst
í sumar og landsmótið í Víöidalnum i
Reykjavík i júlí árið 2000.
Eigendur fremstu gæðinga landsins
eru í klemmu. Þeir geta ekki sýnt hest-
ana sína á báðum stöðum því hestur sem
fer úr landi er útlægur og kemur ekki til-
baka. Spurningin er þessi: Á að fara með
hestinn á heimsmeistaramótið, svo fram-
arlega sem hann kemst í landsliðið, eða
á landsmótið á næsta ári.
Ásgeir Svan Herbertsson eigandi Far-
sæls frá Arnarhóli hefur þegar svarað
þeirri spurningu.
„Ég ætla að bíða i eitt ár eftir
landsmótinu í Reykjavík," seg-
ir hann. Ég keypti Farsæl
árið 1994 af Bjarna Birg-
issyni kokki á Selfossi
þegar við Hafliði
Halldórsson vorum
að skoða hross fyrir
sýningu 1 Reiðhöll-
inni. Mér fannst
hann efhilegur og
árið 1995 þegar ég sá
hve góður hann var
ákvað ég að setja
stefnuna á heims-
meistaramótið árið
1999. Ég veit að
Þjóðverjar munu
halda stórglæsi-
legt mót í sumar
og erfltt verður
að toppa það,
ef það
verður
þá
reynt. En landsmótið hefur einnig sinar
hliðar. Það er haldið hér á heimavelli
okkar Fáksmanna og því hef ég ákveðið
að bíða í eitt ár í viðbót.
Ég geri mér grein fyrir að maður lend-
ir ekki á svona hesti aftur. Hann hefur
gert mig kröfuharðari á aðra hesta.
Einnig hef ég tengst honum tilfinninga-
böndum og það er erfltt að selja slíka
hesta. Farsæll er eins og hitt bamið mitt
enda hafður einn í þriggja hesta stíu. Og
þó svo að okkur hafi tekist að sigra í fjór-
gangi á síðustu flórum íslandsmótum þá
höfum viö ekki náð góðum árangri á öðr-
um stórmótum.
Á fjórðungsmótinu á Hellu
1996 var Farsæl vikið úr
_ keppni vegna helti. Hann
|.var bitinn í baki og ég
heföi ekki átt að fara
, með hann. Við náöum
okkur ekki á strik á
landsmótinu i
fyrra á Mel-
gerðis-
melum. Farsæll fékk heiftarlega hitasótt
í fyrra og stóð mjög tæpt dögum með
hann í nokkra daga. Hitinn var tæplega
42 gráður. Ég var í útlöndum og Óli bróð-
ir hjúkraði honum á meðan og varð að
vakta Farsæl í nokkra sólarhringa. Eftir
þessa veiki hefur hann náð sér fullkom-
lega en hann vantaði samt Z-i vikur upp
á sitt besta á íslandsmótinu á Æðarodda.
Eftir Islandsmótið i fyrra var honum
sleppt og tekinn í þjálfun tæpum mánuði
fyrir mótið sem Reiðsport hélt i Skauta-
höllinni nýlega. Farsæll er hálfgeröur
krakkaskitur ennþá. Hann er ekki full-
þroskaður sem keppnishestur þó hann sé
á ellefta ári. Hann á töluvert eftir og von-
andi springur hann betur út á næsta ári.
Það þarf ekki að þjálfa hann öðru vísi en
aðra hesta. Þjáifunin er vissulega mark-
viss en það sem er nauðsynlegt er að
halda honum glöðum og ferskum eins og
reyndar öðrum keppnishestum. Útgeisl-
unin hefur mikið að segja.
Það er mikill heiður að vera valinn í
landsliöið og hugsanlega reyni ég með
aðra hesta en Farsæl. Ég tel að við ís-
lendingar eigum möguleika á að senda
mjög sterkt landslið á heimsmeistara-
mótið í sumar. Hér eru mjög sterkir al-
hliða gæðingar og einnig klárhestar
svo sem Kjarkur hjá Olil Amble og Ótti
hjá Guömundi Einarssyni," segir Ás-
geir Svan.
Farsæll er undan Hjörvari frá Glæsi-
bæ sem var seldur til útlanda g
Brúnku frá Arnarhóli í Landeyjum.
Ásgeir Svan hefur orðið íslands-
meistari 1 fjórgangi siðustu flögur árin
í röð á Farsæl, íslandsmeistari í ís-
lenskri tvíkeppni árið 1997 og Farsæll
stóð efstur i B-
flokki gæðinga hjá
Fáki árin 1996 og
1997.
Auk þess liggja í
verðlaunabikarahill-
um verðlaunagrip-
ir frá öðrum mót-
um emmg.
Fáksmenn hafa ákveðið að
framhald verði á veðreiðunum
sem þeir héldu í Víðidalnum í
fyrra. Kappreiðar Fáks í fyrrasum-
ar urðu feikivinsælar og jókst
þátttaka jafnt og þétt út sumarið
og tímar bötnuðu mjög.
Keppt var í 150 og 250 metra
skeiði og 350 og 800 metra stökki.
Sjónvarpið sýndi beint frá úrslit-
um í hverri grein.
Bragi Ásgeirsson, formaður
Fimm hross yfir átta í Herning
Þrjár kynbótasýningar verða í Dan-
mörku í sumar. Sú fyrsta í Herning er að
baki en bráðlega verða hross sýnd í
Hedeland og í júlíbyrjun verður FEIF
sýning í Hedeland. FEIF er sem kunnugt
er Félag eigenda og vina íslenska hests-
ins í Evrópu.
Á sýningunni í Heming voru ekki
■sýnd mörg hross. Einn þriggja vetra stóö-
hestur og fimm flögurra vetra stóðhestar
voru byggingadæmdir. Þriggja vetra hest-
urinn Tígull frá Enni fékk 7,98 fyrir bygg-
ingu og hæst dæmdi flögurra vetra hest-
urinn fékk 7,70.
Tveir fimm vetra hestar fengu fullnað-
ardóm og fékk Seth frá Nöddegárden
betri útkomu 7,78 í aðaleinkunn. Eldri
stóðhestamir voru fimm og stóð efstur
Léttir frá Sötofte, undan Feyki frá Sötofte
og Drottningu frá Stykkishólmi. Hann
fékk 8,10 fyrir byggingu, 8,03 fyrir hæfi-
leika og 8,06 í aðaleinkunn. Djarfgengur
frá Toksvig fékk 8,04.
Útkoma 5-6 vetra hryssnanna var ekki
góð. Sú hæst dæmda fékk 7,74 i aðalein-
kunn en alls voru tíu hryssur fulldæmd-
ar. Ellefu hryssur sjö vetra og eldri voru
fulldæmdar og gekk bara vel. Þrjár hryss-
ur fengu hærri aðaleihkunn en 8,00. Feð-
ur þeirra allra eru Islenskfæddir stóð-
hestar.
Fluga frá Strö stóð efst með 8,11 í aðal-
einkunn. Hún er undan Darra frá Kamp-
holti og Össu frá Stutteri Hanegal og fékk
7,73 fyrir byggingu og 8,37 fyrir hæflleika.
Elding frá Akureyri, undan Gassa frá
Vorsabæ og Dögg frá Akureyri fékk 8,07
og Hekla frá Miðsitju undan Anga frá
Laugarvatni og Kröflu frá Sauðárkróki
fékk 8,02. íslendingar sýndu nokkur
hrossanna. Guðmundur Björgvinsson
sýndi Létti frá Sötofte og Eldingu frá Ak-
ureyri auk annarra hrossa og Jóhann R.
Skúlason sýndi nokkur hross. -EJ
- segir Ásgeir Svan Herbertsson, fjórfaldur íslandsmeistari í fjórgangi, um hest sinn Farsæl