Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 11
MANUDAGUR 19. APRIL 1999 33 Iþróttir Ferrari keppnislióió vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 árið 1951 og hefur síðan unnið 120 mót og halað inn níu ökumannstitla og átta titla sem keppnislið. Á glœsilegri sportbílasýningu í Laugardalshöll í. maí nk., .verður sýndur fjöldinn allur af sportbílum af öllum stærðum og gerðum og verða nokkrar meiriháttar frumsýn- ingar á bílum viö þetta tækifæri. Verða þeim gerð betri skil síðar. Keppnistimabiliö í Formúlu 1 er langt og strangt. Fyrsta keppnin tor fram í Ástralíu þann 7. mars og sú 16. og síðasta á keppnistímabilinu fer fram í Japan þann 31. október í haust. Á milli keppna æfa ökumenn grimmt og hvergi er gefið eftir. David Coulthard, annar öku- maður McLaren liðsins, sagði á dögunum að það hefði ekki skipt máli þó hann hefði getað komist af stað í rásmarki í síðustu keppni í Brasilíu. Gírkassinn hefði gefið sig hvort eð var. Coulthard, sem er Skoti og mjög vinsæll ökumaöur í Formúlu 1, hefur verið sérlega óheppinn það sem af er tímabilinu og ekki komist I gegnum tvær fyrstu keppnimar. um heimsmeistaratitilinn til síðasta móts, gegn núnverandi Heimsmeistara, Mika Hakkinen. Hann ók á McLaren Mercedes Benz MP4-13 sem var ekkert lamb að leika við. 800 hestöfl, 10 sýlindrar og 40 ventlar Schumacher sigraði á sex mótum á þessum bíl - og/eða bræðrum hans - því keppnislið eins og Ferrari útbýr fleiri en funm og fleiri en sex bíla af sömu tegund. Sýningarbíllinn kemur reyndar vélar- laus til landsins, en til gamans má geta þess aö vélin var yfir 800 hestöfl. 10 sýlindrar og 40 ventlar sáu um að elds- neyti, loft og afgas kæmist leiöar sinnar um sprengirýmið á yfir 18 þúsnd snúning- um á mín. Það er eins gott, því ef einhver ætlaði sér að aka tryllitækinu á „óslétt- um“ götum Reykjvíkurborgar er óvíst að lögrelglan yrði hress, eða að bensínstöðv- arnar hefðu réttu bensíndælurnar til taks ef rennt yrði í hlað. Sérkenni þessa Ferrari bíis, miðað við aðra Formúlu 1 bíla, er að pústgreinin er ofan á vélarhlifmni sem skilar afgasinu Ferrari- Michaels Schumachers: Michael Schumacher kemur ekki til íslands þetta árið, en keppnisbíll hans frá i fyrra kemur hins vegar til landsins og veröur til sýnis á stórsýningunni í Laugardalshöll. Bíllinn kemur vélar- i laus til landsins, en engu að síður verður forvitnilegt fyrir fjölmarga áhugamenn um Formúlu 1 að berja bílinn augum. Símamyndir Reuter Þessi glæsilegi sportbíll frá Ferrari kemur á sýninguna Laugardalshöll- inni. Það þýðir lítið fyrir hinn al- menna borgara að velta fyrir sér kaupum á þess- um bíl - hægt er að fá hann keyptan ef menn eiga um 17 millj- ónir króna. Lík- legast hafa fáir íslendingar efni á að eignast bíl sem þennan. Það kostar hins vegar litla pen- inga að berja hann augum. Véin í bílnum er 300 hestöfl og skilar bílnum á lög- legan hámarks- hraða á 4,6 sekúndum. bíll Oheppnin hefur elt David Coulthard á röndum. Tólf tankbílar sprautuðu Ökumennirnir og liðin í Formúlu 1 eru farnir að undirbúa sig fyrir næstu keppni, sem fram fer i San Marínó 2. maí nk. Ferrari-liðið æfði af krafti á Ítalíu um helgina. Fengnir voru tólf tank- bílar til að bleyta æfingabrautina og Michael Schumacher ók 134 hringi við erfiðar aðstæður á einum og sama deginum. Á þim bæ er ekkert gef- ið eftir, enda Þjóðverjinn kappsfulli ekki ánægður með sína stöðu í stiga- keppninni til heimsmeistaratitils. Ferrari-liðið ætlar greinilega að vera vel undirbúið í næstu keppni. -SK Trulli fer ekki til Ferrari Sögusagnir hafa verið á kreiki þess efnis að ítalski ökumaðurinn Jamo Trulli sé á förum frá Prost-liðinu yfir til Ferrari. Muni þá Trulli leysa Eddie Irvine af hólmi hjá Ferrari, sem annar ökumaður á eftir Michael Schumacher, ef Irvine fer til annars liðs. Alain Prost segir að þessar vangaveltur eigi ekki við rök að styðjast. „Ég veit af áhuga Ferrari og skil hann mætavel. Trulli er hins vegar ekki á förum frá okkur og það skiptir ekki máli hvða peningar eru í boði. Hann fer hvergi,“ segir Prost. -SK Til í næsta mánuði verður fluttur til lands- ins Ferrari keppnisbíll Michael Schu- machers frá því á síðasta ári. Hann mun prýða glæsilega sportbílasýningu sem haldin verður i Laugardaslshöllinni 13.-16. maí og mun hann tróna efst á stalli í hópi aflmestu og fallestu sportbíla sem snerta götur þessa lands. Ferrari Formúlu 1 kappakstursbíll hef- ur aldrei áður komið hingað til lands og mun þetta verða í fyrsta skiptið sem Ferr- ari bíll er sýndur hér á landi. Er þá eins gott að byrja á toppnum og verður hann afhjúpaður með mikilli viðhöfn skömmu eftir opnun sýningarinnar - ljósagangur, reykur, léttklæddar stúlkur og allt til- heyrandi verður gert til að gera þennan atburð sem eftirminnilegastan. Bíllinn kemur frá Englandi og verður í umsjá fylgdarmanns, sem kemur til með að sjá algerlega um flutning bílsins og sér um að útlit og meðferð sé eftir þeim kröf- um sem Ferrari setur sýningarbílum sín- um. Því er fuliljóst að þaö verður enginn annars flokks umbúnaður við frumsýn- ingu F-300 bílsins, sem sjálfur Michael Schumacher ók á síðasta ári og barðist undir afturvænginn, en ekki undan gír- kassa og fjöðrum. Þetta var ein af róttæk- ustu breytingunum sem sáust á Ferrari á síðasta ári og vildu menn meina að þetta bætti aksturseiginleika bilsins. Ferrari er einnig með þetta á bil sínum á þessu ári, F399, en engin önnur lið hafa tekið þetta upp eftir Ferrari. Kostar mikið en er þess virði Aðstaðdendur að bílasýningunni, þeir Hákon Ásgeirsson og Brynjólfur Þorkels- son, hafa staðiö að undirbúiningi sýning- arinnar síðan í september á siðasta ári, þegar þeir ákváðu að endurtaka sýningu sem haldin var í Digranesi árið 1997. Vildu þeir ná að gera betur og eiga tromp á sýninguna og ákváðu að reyna að fá Formúlu 1 bíl. „Það kom ekkert til greina annað en Ferrari," sagði Hákon í samtali við DV. „Við reyndum að fá heimsmeist- arann McLaren, en hann var ekki á lausu svo við snerum okkur til Ferrari. Þetta er heilmikið umstang og kostar mikla pen- inga, en er svo sannarlega þess virði,“ sagði Hákon. Það er mikil og löng saga á bak við Ferrari-nafnið, sem er komið af stofnanda þess, Enzo Ferrari, sem lést árið 1988, þá háaldraður. Síðasti ökumannstittill sem Ferrari hampaði er orðinn tuttugu ára gamall og eru Italir og flestir kappaksturs- áhugamenn orðnir langeygir eftir nýjum bikar í hilluna í Maranello, höfuðstöðvum Ferrari keppnisliðsins á Ítalíu. Eigendur Ferrari eru Fiat verksmiðj- umar, og ef vel er að gáð má sjá FIAT merkið á hlið og nefi F300 bílsins. Þar af leiðandi er umboðsaðili Fiat á íslandi, ístraktor, með umboð fyrir Ferrari og eru þeir nú að koma með til landsins Ferrari sportbíl F355F1, sem einnig verður sýnd- ur á sportbílasýningunni í Laugardals-' höll. Eftir sýningima fer hann á söluskrá og er uppsett verð ekki lægra en 16,9 millj- ónir fyrir gripinn, sem hefur 375 hestafla vél í skottinu. Þau skila þessum eldrauöa eðalsportbíl í rétt tæplega 300 km á klst. Þess má geta að leyfmlegur hámarkshraði viö bestu aðstæður er 90 km á klst. hér á íslandi og er hann ekki nema um 4,6 sekúndur að ná þeim hraða og þá senni- lega í þann mund að skipta í annan gír. -ÓSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.