Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1999, Blaðsíða 4
22
FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 1999
Iþróttir
45
50
55
60
65
70
75
80
85
90
ísland á heimslista FIFA
* Á FÍFA-listanum er 201 þjóö
* ísland er í 27. sæti af 50 evrópuþjóðum
* Brasilía, Frakkland og Þýskaland eru í
þremur efstu sætunum
Guöjón Þóröarson hefur lyft
landsliöinu um 40 sæti á
20 mánuðum og það er
ósigraö í níu leikjum { röö.
ísland-írland 2-4
Rúmenía-Ísland 4-0
Andorra-lsland 0-2
Úkraína-Ísland 1-1
Island-Frakkland 1-
Armenía-lsland 0-0
Ísland-Rússland 1-0
J
Júní Júií Ágúst Sept Okt Nóv Des Feb Mars Apríl Maí Júlí Ágúst Sept Okt Nóv Des Jan Feb Mars Apríl
97 97 97 97 97 97 97 98 98 98 98 98 98 98 98 98 98 99 99 99 99
ES22
Upp um
40 sæti
íslenska landsliðið í knattspymu
hefur hækkað sig um 40 sæti á heims-
lista Alþjóða knattspyrnusambands-
ins siðan Guðjón Þórðarson tók við
stjórn þess á miðju sumri 1997.
Nýjasti listinn var gefinn út á mið-
vikudagsmorguninn og eins og þá
kom fram á visir.is, fyrstum íslenskra
fjölmiðla, er ísland nú í 48. sæti eftir
að hafa verið í 55. sætinu fyrir mán-
uði. Jafnteflið í Úkraínu vegur
þyngst, auk þess sem árangur undan-
farinna mánuða hjálpar til við að
lyfta fslandi á listanum.
Hér til vinstri má sjá hvemig ís-
land hefur færst til á listanum síðan
Guðjón tók við um mánaðamótin
júní/júlí 1997. Liðið var í 83. sæti þeg-
ar hann tók við og datt niður í 88.
sæti til að byrja með. Síðan hefur leið-
in legið upp á við. Niðursveiflan í lok
síðasta árs er aðeins til komin vegna
hreyfinga annarra þjóða upp listann á
því tímabili. -VS
- titlinum eftir sigur á FH í þriðja úrslitaleiknum
Afturelding er skrefi
nær sínum fyrsta íslands-
meistaratitli í handknatt-
leik eftir sigur á FH, 26-23,
í þriðja úrslitaleik liðanna
að Varmá í gærkvöldi.
Mosfellingar geta tryggt
sér langþráðan titil í
Kaplakrika á sunnudags-
kvöldið en þá fer fjórði
leikur liðanna fram.
Það má segja að úrslitin
hafi ráðist í fyrri hálfleikn-
um að Varmá í gær. Aftur-
elding hafði þá mikla yfir-
burði og leiddi með 6
mörkum þegar liðin gengu
til búningsherbergja. FH-
ingar léku fyrri hálfleikinn
ákaflega illa, bæði sóknar-
og vamarlega. Þeir vora
mjög sofandi í varnarleikn-
um og gerðu sig seka um
mjög mörg sóknarmistök
sem heimamenn refsuðu
þeim grimmt fyrir með
hraðaupplaupum. Bjarki
og Gintas léku FH vömina
grátt og skoruðu nánast að
vild og Bergsveinn var að
vanda mjög traustur í
markinu. Það var því ekk-
ert í spilunum sem benti
til annars en að Mosfelling-
ar ætluðu að landa mjög
ömggum sigri.
* Og ekki minnkaði trú
manna á sigri Afturelding-
ar í upphafi seinni hálf-
leiks þegar þeir voru kom-
ir 9 mörkum yfir, 21-12. En
FH-ingamir voru ekki á
því að láta niðurlægja sig.
Með ótrúlegri seiglu og
vilja tókst þeim að snúa
gjörtöpuðum leik upp í
spennuleik á lokamínútun-
um. FH-ingar tóku Bjarka
og Gintas úr umferð og við
það riðlaðist mjög sóknar-
leikur Aftureldingar. Þeg-
ar fjórar og hálf mínúta
var eftir minnkaði Gunnar
Beinteinsson muninn i 2
mörk, 24-22, og óvænt var
komin mikil spenna í leik-
inn. Sú spenna hefði hæg-
lega getað magnast ef Guð-
jón Ámason hefði minnk-
að muninn í eitt mark en
ílskot hans lenti í mark-
slánni. Þar með fór síðasta
tækifæri Hafnfirðinga því
heimamenn skoruðu 2
næstu mörk og náðu þar
með að gera út um leikinn.
Bergsveinn Bergsveins-
son sýndi enn og aftur að
hann er fremsti markvörð-
ur landsins um þessar
mundir. Hann varði 20
skot í leiknum, þar af 3
vítaköst og var sú hindran
sem FH-ingamir áttu lengi
vel erfitt með að komast
yfir. Bjarki var mjög
sprækur á meðan hann
fékk að leika lausum hala
og Gintas var öflugur í
fyrri hálfleik. 6:0 vörn
heimamanna var lengst af
mjög sterk með Alex Trúf-
an í broddi fylkingar. Mos-
fellingar sýndu ákveðið
veikleikamerki með því að
missa öragga forystu niður
og það sýnir að smáein-
beitingarleysi í svona
rimmu getur komið mönn-
um í koll.
Ætlum að verða
meistarar á
sunnudag
„Við ætlum að verða
íslandsmeistarar í Hafnar-
firði á sunnudaginn en
titillinn er langt frá því að
vera kominn í höfn. Það er
erfitt að halda mikilli
forystu í langan tima eins
og sýndi sig í leiknum en
við náðum að halda henni
og ég er ánægður með það.
Við gáfum þeim leikinn
upp í hendumar í
Krikanum á lokakaflanum
og við ætlum ekki að
brenna okkur á því aftur.
Eftir þann leik vonun við
hundfúlir út í okkur
sjálfa,“ sagði Bergsveinn
Bergsveinsson við DV.
FH-ingar náðu að rífa
sig upp á rassgatinu í síð-
ari hálfleik en leikur liðs-
ins í fyrri hálfleik er sá lé-
legasti sem liðið hefur leik-
ið I langan tíma. Liðið virt-
ist alls ekki tilbúið í leik-
inn og menn vom að gera
sig seka um byijendamis-
tök alls staðar á vellinum.
Það hefur oft verið talað
um góðan karakter í FH-
liðinu í þessari úrslita-
keppni og hann kom ber-
lega í ljós í siðari hálfleik.
Þá sýndu FH-ingar virki-
lega hvað i þeim býr og úr
hverju þeir eru. í allan vet-
ur og einnig nú í úrslita-
keppninni hafa menn af-
skrifað FH-liðið og sjálf-
sagt eru það miklu fleiri
sem spá Mosfellingum
sigri í þessu einvigi. FH-
ingar hafa hins vegar gert
í því að kveða niður alla
spádóma og hver veit
nema þeirra stóra FH-
hjarta fleyti þeim áfram í
hreinan úrslitaleik. Magn-
ús Árnason átti góðan leik
í markinu og þeir Valur
Amarson og Guðjón Áma-
son komu sterkir upp í síð-
ari hálfleiknum. FH-vömin
var mjög götótt í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari þéttist
hún til muna. Kannski
hafa FH-ingar fundið svar
við sóknarleik Mosfellinga
með því að taka tvo
leikmenn úr umferð en
þessi leikaðferð þeirra sló
Mosfellinga út af laginu í
síðari hálfleiknum. -GH
Aftureld.
FH
(16) 26
(10) 23
1-0, 4-1, 4-3, 7-4, 11-7, 12-9, 14-9,
(16-10), 16-11, 18-11, 21-12, 22-17,
24-18, 24-22, 26-22, 26-23
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sig-
urðsson 7/1, Gintas 6, Jón Andri
Finnsson 4, Sigurður Sveinsson 3,
Alex Trúfan 2, Maxim Trúfan 2, Haf-
steinn Hafsteinsson 1, Gintaras 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 20/3.
Mörk FH: Valur Arnarson 6, Guð-
jón Ámason 5, Gunnar Beinteinsson
4, Hálfdán Þórðarson 3, Lárus Long 2,
Guðmundur Pedersen 2/1, Knútur
Sigurðsson 1.
Varin skot: Magnús Ámason 16/2.
Brottvlsanir: Aftiu-elding 8 mín.,
FH 10 mín.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Gunnar Viðarsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 700, fullt hús.
Maður leiksins: Bergsveinn
Bergsveinsson, Aftureldingu.
:
Guðjon Afnasort, fynrliði
f H, tmHif hóf aö vörn
Afiureidingíjr og Ul
varnar eru Alexei Trufan
OQ Gintás Galkctuskas.
Gaman aö ná titlinum í Krikanum
„Það var mjög mikilvægt að vinna þennan
leik enda skiptir þriðji leikur í svona einvígi
mjög miklu máli. Við slökuðum allt of mikið á
í seinni hálfleik og það sýnir að aldrei má
hætta gegn liði eins og FH. Mig langar endilega
að hampa titlinum i Hafnarfirði. Ég vann titil-
inn með FH héma um árið en þá gerðum viö
það á Selfossi svo það yrði mjög gaman að
landa titlinum í Krikanum, á mínum gamla
heimavelli. Fyrir skemmtanagildið yrði mjðg
gaman að fá hreinan úrslitaleik en auðvitað
munum við reyna að ná titlinum á sunnudag-
inn,“ sagði Sigurður Sveinsson, leikmaður Mos-
fellinga.
„Við mættum bará ekki tilbúnir 1 þennan
leik. Hugarfarið var ekki rétt og leikur okkar i
fyrri hálfleik var ekki svipur hjá sjón frá því
sem við höfum verið að gera. Síðustu 20 mínút-
umar sýndum við okkar rétta andlit. Þá kom í
Ijós að við eigum í fullu tré við þá og að þeir
eru ekki með neitt betra lið en við. Það er fyrst
og fremst hugarfarið sem við þurfum að laga.
Þaö verður að vera 100% einbeiting til staðar
hjá okkur frá fyrstu mínútu og ef svo er eigum
við góða möguleika. FH-hjartað og karakterinn
er til staðar og þessi barátta sem var hjá okkur
á lokakafla leiksins verður til staðar allan leik-
inn á sunnudaginn," sagði Guðjón Ámason,
fyrirliöi FH.
-GH
Afturelding
skrefi nær