Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 38
50 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 Afmæli Sigurjón Jónsson Sigurjón Jónsson jámsmíða- meistari, til heimilis að Gautlandi 19, Reykjavík, er níræður í dag. Starfsferill Sigurjón fæddist í Reykjavík og ólst upp í foreldrahúsum i Stóra- Skipholti á Bráðræðisholtinu. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og lærði vélvirkjun i Vél- smiðju Kristjáns Gíslasonar 1927-31. Þá lauk hann vélskólaprófl 1933. Sigurjón starfaði við jámsmíði í Landssmiðjunni 1934-42. Hann hóf síðan störf í Vélsmiðjunni Sindra þar sem hann starfaði þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir, tæplega áttræður. Sigurjón var um skeið prófdóm- ari við verknám í járnsmíði. Hann sat í stjórn Félags járniðnaðar- manna í Reykjavík um árabil og var formaður þess í fimm ár. Sigurjón er heiðursfélagi Félags járniðnaðar- manna og hefur verið sæmdur gull- merki þess. Hann sat í miðstjóm ASÍ 1948-54. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum Sjálfstæð- isflokksins, var einn af stofnendum verkalýðsráðs flokksins, sat í stjóm þess til 1963 og var erindreki flokks- ins um skeið. Sigurjón og bræður hans era öll- um KR-ingum að góöu kunnir en hann lék með meistara- flokki KR í fjölda ára og varð sjö sinnum íslands- meistari með félaginu. Árið 1941 urðu þeir bræð- ur, Sigurjón, Óli B. og Guðbjörn, allir Islands- meistarar með KR í meistaraflokki. Þá þjálf- aði hann meistaraflokk KR i knattspymu og í handbolta. Sigurjón hefur löngum irnnið ötullega að félags- málum fyrir KR. Hann sat í stjóm félagsins og var m.a. ritari hennar. Þá sat hann í stjóm knattspymu- ráðs Reykjavíkur og var formaður þess um skeið. Hann var einn af stofhendum KSÍ og var formaður þess í tvö ár. Hann var sæmdur gullmerki og heiðursstjömu KSÍ og gullmerki KR. Fjölskylda Sigurjón kvæntist 1932 Rigmor Hanson, f. 31.5. 1913, danskennara og tungumálakennara. Þau slitu samvistum 1956. Dóttir Sigurjóns og Rigmor er Svava, f. 5.9. 1933, húsmóðir í Reykjavík, gift Sigurjóni Sigurðs- syni rafvirkja og eiga þau tvö börn. Börn Svövu og Sigurjóns Sigurðs- sonar era Hannes, f. 16.8. 1954, raf- magnstæknifræðingur og kennari, búsettur í Reykjavík, en synir hans eru Trausti, f. 7.3. 1983, og Sigurjón Davíð, f. 23.7. 1998, og Sigrún, f. 16.8. 1957, sem búsett er í Reykjavík. Sigurjón kvæntist 1963, s.k.h., Ragnheiði Magn- úsdóttur, f. 28.12. 1924, húsmóður. Hún er dótti Magnúsar Sigmundsson- ar bónda og Önnu Jó- hannesdóttur. Synir Ragnheiðar frá fyrra hjóna- bandi eru Magnús Pétursson, f. 26.5. 1947, forstjóri Ríkisspítalanna, og Pétur Óli Pétursson, f. 29.3. 1949, framkvæmdastjóri í Rússlandi. Systkini Sigurjóns: Hákon ísfeld, f. 1.11. 1912, fyrrv. málarameist- ari;Valgerður, f. 7.7. 1914, dó ung; Soffia Eygló, f. 3.11.1916, d. 3.1.1999, húsmóðir i Kópvogi; Óli Björgvin, f. 15.11. 1918, fyrrv. fulltrúi hjá Vega- gerð ríkisins og knattspymuþjálf- ari, búsettur i Reykjavík; Guðbjörn, f. 19.3. 1921, fyrrv. klæðskerameist- ari og knattspyrnuþjálfari. Foreldrar Sigurjóns voru Jón Jónsson afgreiðslumaður, f. 20.11. 1881, d. 10.4.1963, og kona hans, Þór- unn Helga Eyjólfsdóttir húsmóðir, f. 20.6. 1884, d. 12.12. 1954. Ætt Jón var sonur Jóns, b. í Hólakoti á Álftanesi, bróður Guðrúnar í Hlíð- arhúsum, langömmu Jóns Gunnars Zoéga, formanns Vals. Jón í Hóla- koti var sonur Jóns, smiðs og b. í Starkaðarhúsum í Flóa og í Hóla- koti, Ingimundarsonar, b. í Norður- koti í Grímsnesi, Jónssonar, b. og formanns á Ásgautsstöðum, Símon- arsonar. Móðir Ingimundar var Guðrún Snorradóttir, b. í Kakkar- hjáleigu, Knútssonar. Móðir Guð- rúnar var Þóra, systir Ingimundar á Hólum, langafa Magnúsar á Hrauni í Ölfusi, langafa Aldísar, móður Ell- erts B. Schram, forseta ÍSÍ. Annar bróðir Þóra var Ari í Götu, langafl Sigurðar í Ásmúla, langafa Felix- bræðra, Gunnars, Harðar og Bjama. Móðir Jóns 1 Hólakoti var Sigríður Siguröardóttir, skipasmiðs á Hjalla- landi á Álftanesi, Sigurðssonar og Guðrúnar Jónsdóttur, silfursmiðs á Bíldsfelli, Sigurðssonar. Móðir Jóns í Stóra-Skipholti var Danhildur Jónsdóttir, b. í Merkisteini í Reykja- vík, Jónssonar. Þórann Helga var dóttir Eyjólfs, b. í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, Sveinssonar, b. í Efra-Hrútafells- koti, Jónssonar, b. í Björnskoti, Ólafssonar. Móðir Þórunnar Helgu var Sigríður Helgadóttir. Sigurjón Jónsson. Stefán Þengill Jónsson Stefán Þengill Jónsson, tón- menntakennari og múrarameistari, Stóragerði 22, Reykjavík, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Stefán fæddist á Öndólfsstöðum í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Laugum 1949, stundaði nám við Iðnskóla Húsavík- ur 1950-53, lærði múrverk hjá föður sínum, lauk sveinsprófi í iðninni 1954 og öðlaðist meistarapróf í múr- smíði 1958. Stefán stundaði nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík 1954-59, stundaði nám við KÍ 1956-57 og lauk söngkennaraprófi 1957 og stundaði nám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum 1964-65. Stefán tók við stjórn á búi föður síns með stjúpu sinni og systkinum 1941. Hann stofnaði og byggði ný- býlið Öndólfsstaði II með bróður sínum, Áma Guðmundi, og stund- aði þar bústörf til 1954. Stefán var tónmenntakennari við Laugamesskólann í Reykjavík 1957, við Langholtsskóla 1957-91 og við Barnamúsíkskólann í Reykjavík 1963- 64. Jafnframt hefur Stefán unnið við múrverk, bifreiðaakstur og sveitastörf. Stefán var formaður Ungmenna- félagsins Eflingar í Suður-Þingeyj- arsýslu um árabil og var formaður Nemendafélags Tónlistarskólans í Reykjavík í nokkur ár. Hann stofn- aði ásamt Guðjóni Böövari Jóns- syni Liljukórinn 1961 og var for- maður hans til 1969. Hann tók þátt í uppfærslu og flutningi á óperanum Gerfiblóminu, Amal og næturgest- irnir, og Þrymskviöu. Þá hefur Stef- án farið margar söngferðir með ýmsum kóram til Bandaríkjanna, Bretlands og Norðurlandanna. Hann starfaði að íþróttamálum, æfði júdó í Budokwai i London 1964- 65 og fór keppnisfór í júdó til Prag í Tékkóslóvakíu 1973 með Júdófélagi Reykjavíkur. Fjölskylda Stefán kvæntist 20.9. 1958 Ást- hildi Sigurðardóttur, f. 25.5. 1936, húsmóður. Þau skildu 1969. Hún er dóttir Sigurðar Jónssonar, verslun- armanns í Reykjavík, og k.h., Vil- borgar Karelsdóttur húsmóður. Böm Stefáns og Ásthildar era Valgerður Stefánsdóttir, f. 4.5. 1959, sjúkraliði og nuddkona á Akureyri; Stefán Þorri Þengilsson, f. 6.4. 1967, framreiðslu- maður í Reykjavík. Alsystkini Stefáns Þengils eru Ingigerður Kristín Jónsdóttir, f. 21.9. 1930; Steingerður Sólveig, f. 8.5.1932; Ámi Guðmundur Jónsson, f. 10.11. 1933. Hálfsystir Stefáns, samfeðra, er Hólmfríður Valgerður, f. 19.12.1944. Foreldrar Stefáns vora Jón Stef- ánsson, f. 8.4. 1900, d. 1989, bóndi, múrara- og byggingameistari aö Öndólfsstöðum, og f.k.h., Þórveig Kristín Ámadóttir, f. 5.9. 1908, d. 23.6. 1935, húsfreyja. Ætt Jón var sonur Stefáns, b. á Önd- ólfsstöðum, bróður Jóns, alþm. í Múla í Aðaldal, afa Jóns Múla og Jónasar Ámasona. Systir Stefáns var Sigríður, langamma Sveins Skorra Höskuldssonar prófessors. Stefán var sonur Jóns, skálds á Helluvaði í Mývatnssveit, Hinrikssonar, b. í Heiðar- bót í Reykjahverfi í Aðal- dal, Hinrikssonar. Móðir Hinriks var Katrín Sig- urðardóttir. Móðir Katrínar var Þórunn Jónsdóttir, ættföður Harðabóndaættar, Jóns- sonar. Móðir Jóns í Múla var Friðrika Helgadóttir, ættföður Skútustaðaætt- ar, Ásmundssonar. Móðir Jóns á Öndólfsstöð- um var Guðfmna Sigurð- ardóttir, b. á Amarvatni, Magnús- sonar og Guðfinnu Sigurðardóttur, b. á Arnarvatni, Sigurðssonar, b. á Grímsstöðum, Jónssonar. Móðir Sigurðar var Margrét Magnúsdótt- ir, pr. á Desjarmýri, Ketilssonar. Móðir Sigurðar Sigurðssonar var Guðrún Jónsdóttir, systir Amþrúð- ar, langömmu Hólmfriðar, ömmu Gunnars Gunnarssonar skálds. Þórveig var dóttir Áma, b. á Eyri á Flateyjardal, Tómassonar, b. á Eyri, Guðmundssonar. Stefán Þengill verður að heiman. Stefán Þengill Jónsson. Til hamingju með afmælið 26. apríl 90 ára_______________ Guðríður S. Hjaltested, Hjallaseli 55, Reykjavík. 80 ára Grímur Amórsson, Tindum II, Reykhólahreppi. 75 ára Guðjón Einarsson, fyrrv. blaðaljósmyndari, Fálkagötu 21, Reykjavík. Ólafur Ásgrímur Þórðarson, fyrrv. bóndi að Rauðumýri, Hólmavík. Eiginkona hans er Elísabet Jóna Ingólfsdóttir. Ólafur hefur dvahst í Reykja- vik að undanfömu til lækninga og verður að heiman. Valdís M. Valdimarsdóttir, Álftamýri 20, Reykjavík. Guðmundur I. Björnsson, Vallargerði 31, Kópavogi. Alfreð Sveinbjömsson, Norðurvör 5, Grindavík. 70 ára Ellen M. Sveins, Blöndubakka 7, Reykjavik. Ögmundur Pétursson, Hraunbæ 166, Reykjavík. Eva Aðalsteinsdóttir, Hraungerði 6, Akureyri. 60 ára Þóra Sigurjónsdóttir, Fögrabrekku 4, Kópavogi. Hrafnhildur Sumarliðad., Heiðarholti 12 F, Keflavík. Sveinn Reynir Pálmason, Tröllagili 5, Akureyri. Gaukur Sigurjónsson, Boðaslóð 1, Vestmannaeyjum. 50 ára Halina María Bogadóttir, Grettisgötu 98, Reykjavík. Sigríður Snorradóttir, Krosshömrum 33, Reykjavík. Gunnar Haraldsson, Ægisgrund 19, Garðabæ. Jón Gröndal, Túngötu 18, Grindavík. Guðbjartur Ingi Bjamason, Feigsdal, Vesturbyggð. Guðmundur Garðarsson, Skálholtsbraut 13, Þorlákshöfn. 40 ára Birgir Andrésson stýrimaður, Fifurima 7, Reykjavík, varð fertugur, 23.4. sl. Jón Auðunn Gunnarsson, Ásgarði 13, Reykjavík. Ómar Bjami Þorsteinsson, Rjúpufelli 46, Reykjavík. Jóhann H. Jóhannesson, Holtsbúð 63, Garðabæ. Ingibjörg Jónsdóttir, Eyrarholti 10, Hafnarfírði. Óskar Stefán Gíslason, Sunnubraut 48, Keflavik. Halldór B. Hallgrímsson, Jörundarholti 182, Akranesi. Christina M. Bengtsson, Skúlagötu 6, Stykkishólmi. Trausti Bemódusson, Þjóðólfstungu, Bolungarvík. Aðalbjörg Skarphéðinsd., Suðurgötu 32, Siglufiröi. Þorfinna L. Jósafatsdóttir, Grenihlíð 5, Sauðárkróki. Birgir Gestsson, Komsá I, Áshreppi. Guðrún Gunnarsdóttir, Baughóli 23, Húsavík. Jónas Vilhjálmsson, Bergi, Aðaldælahreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.