Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 Fréttir DV Geysilegur kostnaöur viö snjómokstur á Norðurlandi: Gríðarlegt áfall - segir bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð Mikiil snjór á Norðurlandi f vetur er nú að sliga fjárhag sveitarfélaga. DV, Akureyri: Geysilegur kostnaður hefur verið við snjómokstur víða á landinu í vetur en sennilega þó hvergi meiri en á Norðurlandi þar sem hefur ver- ið óvenju snjóþungt alveg síðan í október í haust reyndar. Mestum snjónum hefur kyngt niður við ut- anverðan Eyjafjörð og t.d. á Dalvík, Ólafsfirði og Siglufiröi hefur verið mjög snjóþungt og kostnaður sveit- arfélaganna við moksturinn gríðar- legur. „Mér reiknast til að við séum búnir að eyða yfir 10 milljónum króna í snjómokstur frá áramót- um,“ segir Rögnvaldur Skíði Frið- bjömsson, bæjarstjóri í Dalvíkur- byggð, en þar máttu menn hefjast handa við snjóruðning strax í byrj- un október. Rögnvaldur segir að mjög mikill kostnaður hafi verið við mokstur frá þeim tíma til áramóta sem hafi gert það að verkum að moksturinn á síðasta ári hafi þá far- ið um þrjár milljónir króna fram úr áætlun. Ástandið núna er ekki betra held- ur þvert á móti. „Þetta er gríðarlegt áfall. Við áætluöum 6,5 milljónir króna til mokstursins fyrir allt árið 1999 en eram þegar komnir um 4 milljónir fram úr þeirri tölu og allt haustið eftir,“ segir Rögnvaldur Skíði bæjarstjóri. „Við erum enn innan þeirrar tölu sem við áætluðum en þær eru jafhan hafðar í hærri kantinum. Það er þó alveg greinilegt að við verðum að fá gott haust ef þær áætlanir eiga að standast. Við erum búnir með rúm- lega 3 milljónir af þeim 6 milljónum sem áætlaðar voru til snjómoksturs á árinu öllu," segir Guðmundur Guð- laugsson, bæjarstjóri á Siglufirði. „Það má eigin- lega líkja þessu við náttúruham- farir. Þetta skall á okkur strax í október en þetta er hlutur sem við ráðum ekki við,“ segir Ás- geir Lngi Ás- geirsson, bæjar- Rögnvaldur Skíði a DV-mynd gk bæjlryflrTOUi s Ólafsfirði eytt 13,2 milljónum króna í snjómokstur. Þar af hefur verið mokað fyrir 5,9 milljónir síðan um áramót sem lætur nærri að vera sú upphæð sem áætlað var að snjó- mokstur myndi kosta allt yfirstand- andi ár. Eins og sjá má af framansögðu hefur snjó verið mokaö fyrir um 20 milljónir króna í Siglufirði, Dalvík- m-byggð og Ólafsfirði frá áramótum. Menn lifa í voninni um að síðari hluti ársins verði snjóléttur svo ekki verði um frekari „framúrkeyrslu“ í snjómokstri að ræða. -gk scmdkorn Kona í vesturbænum Sverrir Hermannsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann ætlaði að tilkynna hverjir hefðu lagt 3000 krón- ur og meira í kosn- ingasjóði flokksins. Menn biðu náttúr- lega spenntir eftir þessum upplýsing- um og fiölmenntu til Sverris. Von- brigðin urðu hins vegar nokkur þegar foringinn tók til máls og ætlaði að leggja spilin á borðið. í ljós kom að eini aðilinn sem lagt hafði 3000 þúsund krónur eða meira í kosningasjóð- inn var „kona í vesturbænum". Afmælispirringur Eins og margir tóku eflaust eftir átti farsímafyrirtækið Tal eins árs afmæli í gær og seldi í tilefni þess GSM-síma á krónu. Auk þess voru ýmis önnur tilboð. Eitthvað fór tilboðið í pirrurnar á gamla og stóra Símanum því aö eftir að fréttir af tilboðinu höföu birst víða í fiölmiðlum tfl- kynnti risinn, með Þórarin V. Þórarinsson stjórn- arformann í broddi fylkingar, að nú skyldi hundraðþúsundasti við- skiptavinur farsímakerfa Símans fá verðlaun. SérkennOegur afmælis- söngur hjá Þórarni.... Rolling Stones truflar Eimskip - en þaö er í góöu lagi Gámasvæði Eimskips í Sundahöfn verður rýmt á mettíma ef af tónleikum Rolling Stones verður „Auðvitað truflar þetta starfsemi okkar en ég á von á aö viðskiptavin- ir okkar sjái í gegnum fingur með þetta við okkur því flestir era þeir af þeirri kynslóð sem hlustar á RoU- ing Stones," sagði Hjörleifur Jak- obsson hjá Eimskip um væntanlega tónleika RoUing Stones í Sunda- höfn. „Við lítum þetta jákvæðum augum og reynum að skipuleggja vinnuna á gámasvæðinu með þeim hætti að hlutirnir gangi upp. Við stefnum að því að rýma gámasvæð- ið á 12-24 tímum og koma því í samt lag á svipuðum tíma.“ Jake Berry, framkvæmdastjóri hjá RoUing Stones, dvelur enn hér á landi tU skrafs og ráðagerða um tón- leikana. Hann snæddi á veitinga- staðnum Viö Tjömina um helgina og var síðan gestur í einkasam- kvæmi hjá Ragnheiði Hanson tón- leikahaldara. Hann lætur sér ekki nægja að skoða aðstæður við Sunda- höfn heldur fer viða og skoðar ýmis svæði sem hentaö gætu til tónleika- halds fyrir aðrar hljómsveitir í ná- inni framtíð. „Jake Berry skynjar þann áhuga sem er á íslandi úti í heimi og sér hér ýmsa möguleika. Hann sér jafn- vel ísland fyrir sér sem hljómsveit- arpaU fyrir aUan heiminn og það má geta þess að meðal næstu verk- efna hans er heimsreisa U2 á næsta ári,“ sagði Guðrún Kristjánsdóttir sem er meðal fylgdarmanna hans hér á landi en Jake Berry býr í einkaíbúð í miöbæ Reykjavíkur og er á sextugsaldri eins og fram hefúr komið í fréttum. Stefnt er að því að gefa út yfirlýs- ingu í þessari viku um tónleika RoUing Stones i Sundahöfn sem þá verða haldnir í næsta mánuði - ef af verður. -EIR i. Norðlensk vísindi Nú er að síga á seinni hlutann í kosningabaráttunni og frambjóð- endur farnir að einbeita sér að að- alatriðum kosninganna. Litlu mál- in verða að víkja fyrir þeim stóra, enda veltur aUt á grundvaUarmál- unum hvað kjósendur kjósa í kjör- klefanum. Fyrir norðan er hart barist um þingsætin og eins og gefur að skilja er tekist á um það sem helst má verða til þess að fólk haldi áfram að búa fyrir norðan. Eitt af stóru málunum sem þeir Halldór Blöndal og Steingrimur J. Sigfús- son kýta um, er KísUiðjan við Mý- vatn, vísindastarfsemi á svæðinu. í því sambandi hafa þeir félagam- ir rætt og ritað um nauðsyn þess að efla norðlensk vísindi enda heldur HaUdór Blöndal því fram að þaö ráði mestu um vísindalegar niðurstöður, hvar vísindamenn hafa bækistöðvar sínar. Hann viU þess vegna aö þeir vísindamenn sem sinna rannsóknum við Mývatn hafi aðsetur fyrir norðan en ekki fyrir sunnan. Steingrímur hefur bent HaUdóri á að Rann- sóknarstofnunin við Mývatn sé staðsett við Mý- vatn, en heldur því fram að það geri ekki tfl þótt starfsmenn dvelji hér og hvar á landinu og flest- ir í Reykjavík. Steingrímur er með þá kenningu að vísindin og niðurstöður þeirra fari ekki eftir því hvar menn búi, heldur hvaða afrakstur fæst af rannsóknunum, hvar sem þær era fram- kvæmdar. Á þetta getur Halldór ekki faUist og um þetta hafa þeir þrætt af kappi, frambjóðendurnir skörulegu í Norðurlandskjördæmi eystra, og aU- ar líkur benda tU að þetta mál ráði úrslitum í kosningunum nyrðra. Af því Dagfari heldur með HaU- dóri álítur Dagfari að HaUdór hafi rétt fyrir sér þegar hann segir að niðurstöður rannsókna vísinda- manna hljóti að vera háðar því hvar vísindamennimir búi. Það gefur augaleiö að vísindarannsókn- ir við Mývatn geta gjörbreyst við það eitt að vísindamaðurinn sem framkvæmir rannsóknimar hefur lögheimili fyrir sunnan. Ekki vegna þess að hann sinni öUum störfum sínum fyrir sunnan, enda verður vísindamaður sem rannsak- ar Mývatn að koma að Mývatni tU að geta rannsakað Mývatn. Heldur vegna þess að vísindi geta verið aUt öðravísi, eftir því hvar vísinda- maðurinn á lögheimili. Á því byggjast niðurstöður vísindanna. Furðulegt má telja að Steingrím- ur skUji ekki þetta sjónarmið HaU- dórs, sem lýsir vitaskuld best hvaða hug Steingrimur ber tU kjördæmisins. HaUdór hugsar hlýtt tU Mývatns og vísindanna og kjósenda sinna og vill að þeir sem starfa í kjör- dæminu búi í kjördæminu, meðan Steingrímur er svo raglaður að halda að vísindin geti orðið eins, hvort sem vísindamaðurinn hefur lögheim- Ui fyrir norðan eða sunnan. Svo halda menn að kosningar skipti ekki máli? Dagfari Ráðherraefnin Nokkuð hefur verið rætt um möguleg ráðherraefni stjómar- flokkanna í næstu ríkissfiórn sem yfirleitt er talið að verði hin sama og nú. Úr röðum sjálfstæðismanna hefur Ámi Mathiesen, oddviti á Reykjanesi, verið nefndur sérstak- lega til sögunnar, auk Arnbjargar Sveinsdóttur, oddvita á Aust- fiörðum. Sameinast þama ráðherra úr Reykjanesi, sem mundi væntanlega hafa forgang, og kvemáðherra. En þama finnst ófá- um gengið fram hjá Sólveigu Pét- ursdóttur sem, þrátt fyrir tap í varaformannskjöri flokksins, býr yfir mikilli reynslu, er jú kona og þykir t.d. mundu sóma sér vel í dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Úr röðum framsóknarmanna hefur Siv Friðleifsdóttir aðaUega verið nefnd og einnig Guöni Ágústsson, sá er fannst hann líða eins og Gunnari á Hlíðarenda eftir hópeflisnámskeiðið góða.... Kosninganótt Einvigi sjónvarpsstöðvanna um hyUi áhorfenda á kosninganótt er enn á ný í uppsiglingu. Síðustu kosningar hefm Stöð 2 þótt hafa vinninginn, ekki síst þar sem þar á bæ hafa menn líka reynt að hafa gaman af þessu. Auk sjálfra kosninganna er alltaf boðið upp á eitthvert létt- meti. HeimUd- ir Sandkorns að nokkur mgur sé í Spaugstofu- grínuram, Erni Árnasyni og fé- lögum, vegna þessa. Ástæðan sé sú að fyrir síðustu kosninganótt geröu þeir 10 sketsa, eða atriði, en einungis fiórir voru sýndir. Ætli menn að dusta rykið af þeim sex sem eftir eru og senda í loftið á laugardag segir hundalógíkin mönnum að sketsarnir sex séu lé- legri en þeir fiórir sem sýndir voru síðast og menn eitthvað öðravísi í „fyndninu". Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.