Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 16
Húsfélag í fjölbýlishúsi við Álftamýri vill taka viðhaldsmálin föstum tökum: Rétt forgangsröð sparar peninga Fresturinn til að láta gera eignaskiptayfirlýsingar framlengdur: „Við höfum áhuga á því að fá óháðan aðila til að meta viðhalds- þörf hússins og setja hlutina í ákveðna forgangsröð, hafa eftirlit með húsinu. Við teljum að með því megi spara tíma og orku íbúanna, ná fram verulegum spamaði og viðhalda verðmæti eignarinnar. Þetta snýst einfaldlega um að auka lífsgæði íbúanna," segja þær Guð- rún Gunnarsdóttir, Sif Cortes og Hanna Rúna Harðardóttir sem skipa stjóm húsfélagsins að Áifta- mýri 32-36 í Reykjavík. Fjögur húsfélög era í blokkinni, eitt fyrir hvem stigagang og síðan eitt sameiginlegt fyrir allt húsið. Eins og í öðmm húsfélögmn hafa húsfundir síðla vetrar og snemma á vorin farið í að ræða hvað eigi að gera í viðhalds- og viðgerðarmál- um og hvað ekki. Sýnist þá sitt hverjum og getur verið erfitt að komast að niðurstöðu sem allir sætta sig við. Fyrir fjórum árum fóm fram umfangsmiklar viðgerð- ir á húsinu og einnig nokkmm áram áður. Þá hafði safnast upp vandi sem varð að taka á með áhlaupi. Kostnaðurinn, sem varð verulegur á hverja íbúð, er eitt- hvað sem íbúamir hugsa ekki til með brosi á vör. Áhugi hefur því kviknað á því að taka öðravisi á málum. „Okkur var bent á fyrirtæki, Verkvang, sem býður svokallaðan viðhaldsvörð, kerfi þar sem fylgst er náið með viðhaldsþörf hússins og allar framkvæmdir skráðar nákvæmlega niður. Þetta kefi var kynnt á húsfundi hjá okkur í vik- unni og verður tekið til atkvæða- greiðslu á næsta fundi. í fljótu bragði sýnist okkur að þama sé um að ræða einfalda og hag- kvæma leið til að halda utan um viðhald. Þá skiptir ekki síst máli að óháður aðili metur hvað þarf að gera og hvenær, leitar tilboða og kemur þannig í veg fyrir löng og ströng fundahöld sem geta orðið út af einföldustu framkvæmdum. Þess vegna var þessi kynning á viðhaldskerfinu eiginlega eins og himnasending fyrir okk- ur í stjóm þessa stóra húsfélags." Þegar ný nálgun á við- haldi hússin var kynnt brá mögum að heyra að eðlilegur viðhalds- kostnað- ur næmi 1-2% af v e r ð - mæti eign- a r - inn- a r. En þetta hlutfall ræðst einnig af þátt- um eins og hvemig viðhaldi er yf- irleitt háttað og almennri um- gengni. Reyndar vilja þessir þættir hald- ast í hendur á þann hátt að lélegt við- hald kallar á slæma umgengni og gott viðhald á góða. Sparnaður „Við erum sammála um að stöðugt og kerfisbundið eftirlit með viðhalds- þörfmni getur sparað íbúunum stórfé. Þannig geta tiltölulega einfaldar að- gerðir eins og málum komið í veg fyrir eða hægt mjög á skemmd- um af völdum sprungu- myndimar. Þetta geta sérfróðir aðilar met- ið hverju sinni. Með stofnun f r a m - kvæmdasjóðs mun húsfélagið síðan hafa handbært fé þegar kemur að framkvæmdum og þannig sparast lán- töku- og vaxtakostnaður. Ef fresta má einhveijum framkvæmdum liggur féð óhreyft á meðan og safnar vöxtum. Fólk er orðið mun meðvitaðra um ávöxtun peninga í dag og það getur hver séð að þetta er góð ávöxtunar- leið.“ Þær stöllur segja að eftir 4-5 ár verði hægt að gefa út „heilbrigðisvott- orð“ fyrir húsið en á því verði ná- kvæmlega tiltekið hvað hafi verið gert og hvenær og hvað þurfi að gera. „Þegar íbúðir verða seldar þarf ekki að tína til eitthvað sem fólk heldur að sé búið a'ð gera og það heldur að eigi eftir að gera. Það verður allt nákvæm- lega skjalfest. Að auki fylgir möguleg inneign íbúðarinnar í framkvæmda- sjóði. Þetta hlýtur að verða til hægð- arauka við kaup og sölu íbúða í húsinú," segja þær Guðrún, Sif og Hanna Þóra. hlh Lagaskyldan í fullu gildi - segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins „Þó fresturinn til að láta gera eignaskiptayfirlýsingar hafi verið framlengdur er lagaskyldan til að gera slíkar yfirlýsingar enn í fullu gildi og menn eiga að nota tímann vel,“ segir Sigurður Helgi Guðjóns- son, hæstaréttarlögmaður og for- maður Húseigendafélagsins, við DV. Frestur til að láta gera eigna- skiptayfirlýsingar fyrir fjöleigna- hús var framlengdur um tvö ár, frá 1. janúar í ár til 1. janúar árið 2001. Aö þeim tíma liðnum verður eigna- skiptayfirlýsing skilyrði fyrir þing- lýsingum á eignayfirfærslum, þing- lýsingu kaupsamninga og afsala. Liggi slík yfirlýsing ekki fyrir 1. janúar 2001 getur það valdið töfúm í fasteignaviðskiptum. Vilji húseig- endur forðast tafir vegna fasteigna- viðskipta og örtröð hjá löggiltum aðilum sem gera eignaskiptayfirlýs- ingar, er ráðlegt aö nota tímann vel og láta gera slíka yfirlýsingu hið fyrsta. Forðast þrætumál Með eignaskiptayfirlýsingu er verið að skrá skiptingu fjöleignar- húsa og réttindi og skyldur eigenda. Skráð er niður hver séreignin er og hvaða sameign fylgir hverjum sér- eignarhluta. Með þessu er fundið út það hlutfall sem hver eigandi á að greiöa í sameiginlegum kostnaði við sameign. Þá er skráð í eigna- skiptayfirlýsingum hvort bílastæði era skipt eða óskipt og ýmsar kvað- ir ef einhveijar era. að gera eignaskiptayfirlýsingar. Þegar slík yfirlýsing hefur verið gerð þarf að leggja hana inn hjá byggingarfiúltrúa til samþykktar. Síðan er henni þinglýst. Þetta ferli getur tekið tíma, jafnvel nokkra mánuði. Lislar yfir nöfn þeirra fyr- irtækja sem vinna eignaskiptayfir- lýsingar liggja frammi í afgreiðslu Húsnæðisstofnunar og á mörgum fasteignasölum. Þó raðhús falli almennt undir lög um fjöleignarhús er matsatriði í hveiju tilviki fyrir sig hvort þarf eignaskiptayfirlýsingu um raðhús. Ef lóð og hús era séreign hvers eig- anda er ósennilegt að eignaskipta- leyfi þurfi. Upplýsingar um slíkt fást annars hjá byggingarfúlltrúa. Eignaskiptayfirlýsingar: Leita skal tilboða Töluverður kostn- aður getur fylgt því að láta gera eignaskiptayfirlýsingu um húsnæði. DV hafði á dögunum sam- band við nokkra þeirra aðila sem sjá um gerð slíkra yfirlýsinga og spurði um verð á mati tiltekinna stærðareininga af húsnæði. Svörin gefa nokkra hugmynd um hvað hús- eigandi getur þurft að greiða ef eignaskiptayfirlýsingin er á allra einfaldasta veg. Inn í dæmiö geta svo komið ýmsir þættir sem geta hækkað verðið, svo sem mat á bíl- skúr, hvort um margskipta sameign er að ræða og hvort útlit hússins er flókið og fleira. Eftir því sem fleiri íbúðir eru metnar í einu lækkar verð á hveija þeirra hlutfallslega. Grandvallaratriði er hins vegar að leita tilboða áður en farið er af stað í þessa framkvæmd. -hlh Kunnugir segja reynsluna sýna að eignaskiptayfirlýsing sé nauð- synleg svo ekki séu þrætumál í gangi um hver eigi hvað og hver eigi að borga hve mikið. Löggiltir aðilar Yfir 170 aðilar hafa löggilt leyfi til Grunnkostnaður eignaskiptayfirlýsingar Ólafur Halldórsson eignaskiptalýsandi Stefán Sigurösson ehf. verkfræöiþjónusta GÁI lögfræöistofa ehf. Rekstrarverkfræöist. Önn hf. Teiknistofan Smiöjuvegi llc Tvíbýlishús 40.000 kr. 45.000 kr. 40.000 kr. 35.000 kr. 34.000 kr. 8 íbúöa stigagangur FJölbýlishús 65.000 kr. 65.000 kr. 70.000 kr. 80.000 kr. 70.000 kr. 60.000 kr. 80.000 kr. 50.000 kr. 62.000 kr. 50.000 kr. 5 húsa raöhús 70.000 kr. 77.000 kr. 75.000 kr. 60.000 kr. 75.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.