Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 6. MAI1999 rnA 333 JJ ’ 2&> Æ#/r bkkar og laðar. Þá er ekki eingöngu átt við sjómenn. Marg- /r Ví7;a /íe/sí e&fc/ eyða frítímanum nema á hrað- bátnum eða skútunni. Þá er aárenatínið oft og tíðum í hámarki. Hraði og spenna daginn vinnur Haraldur ; Þórðarson við að ryðverja m m bíla, þrífa þá og bóna. Þegar vel viðrar ver hann stórum hluta írítímans í hraðbátnum sem hann á með fóður sínum. Hann er hrifinn af öllu hrað- skreiðu; bátum, bílum, vélsleðum og mótorhjólum. Fyrir utan hraðbátinn segist hann eiga einn hraðskreiðasta BMW-bílinn á landinu. Hann á líka torfærumótorhjól. „Ég fæ adrena- línkikk út úr þessu. Það má segja að ég sé spennuflkill. Mitt aðaláhugamál er hraði og spenna." Bátur hefur verið í eigu fjölskyldu Haralds frá því hann var 5 ára. „Við eignuðumst fyrsta almennilega spítt- bátinn í kringum 1990. Við pabbi keyptum svo þennan bát í Flórída í fyrra.“ Blár og hvítur bátur feðganna er 22,6 fet sem eru rúmir sex metrar. Báturinn gengur allt að 70 mílur eða milli 120 og 130 kílómetra á klukku- stund. „Við fórum mest á Þingvallavatn og erum líka mikið á Viðeyjarsundi." Á sumrin fer Haraldur stundum út á bátnum um miðnætti á laugardags- kvöldum og nýtur sólarlagsins. „Það er ekki óvinsælt hjá dömum að koma með. Svo hef ég lagt bátnum í Reykja- „Ég fæ adrena- línkikk út úr þessu. Það má segja að ég sé spennufíkill. Mitt aðal- áhugamál er hraði og spenna." DV-mynd E.ÓI. víkurhöfn og farið að djamma. Svo hefur maður kannski haldið áfram og siglt í Hafnarfjarðarhöfn. Ég hvorki reyki né drekk,“ bætir hann við. Hann býst við að fara til Spánar í sumarfríinu. „Þar mun ég líklega leigja bát.“ Stefnan er tekin á Vest- mannaeyjar um verslunarmanna- helgina. Þangað ætlar hann að sigla á hraðbátnum. Áhugamál Haralds eru dýr og þess vegna vinnur hann mikið. „Svo er um að gera að lifa lífmu og skemmta sér.“ Hann á íbúð en leigir hana og býr hjá foreldrum sínum. „Ég er bara rétt um tvítugt." -SJ Draumurinn Jakob Fenger og fjölskylda hans leggja brátt upp í ársferð á skútunni Black Bear. „Þetta er stór breyting frá þessu daglega streði. Ég hef alltaf verið hundleiður á lífsgæðakapphlaupinu." DV-mynd E.ói. : akob Fenger trésmiður leggur í júní upp I ársferð á skútunni Black Bear ásamt eiginkonu og syni. Áfangastaður er Miðjarð- arhafið. Eiginkona Jakobs er Gunnhildur Emilsdóttir, sem hef- ur rekið matstofuna Á næstu grös- um. Sonur þeirra heitir Emil og er 13 ára. „Við ætlum að kenna hon- um sjálf næsta vetur,“ segir Jak- ob. „Með nútímatækni, tölvupósti og öðru, verður það gerlegt." Skútan er 39 fet, eða um tólf metrar, og hún er tæpir fjórir metrar á breidd. „íbúðin í skút- unni er nokkuð rúmgóð, enda minnsta kosti var fólk voðalega hissa. Þetta er sama fólk og ég hef sagt frá draumi mínum í tutt- ugu ár.“ Þegar árið 2000 gengur í garð býst Jakob við að fjöl- skyldan verði á Möltu, Sikiley eða í Túnis. rætist valdi ég hana með tilliti til þess að við ætluðum að búa um borð.“ Hjónin eru búin að eiga skútuna í eitt ár og er hún sú fyrsta sem þau eignast. „Við höfðum leigt skútu í Miðjarðarhafinu til að æfa mig.“ Jakob segir að í tuttugu ár hafi hann dreymt um að eignast skútu. Um tíma komst hann næst draumnum með því að vinna sem háseti á fiskiskipum. Gunnhildur hefur einnig verið til sjós, en hún var kokkur um tíma. Sameiginleg- ur draumur hjónanna er að ræt- ast. Jakob viðurkennir að þetta sé stærsta ævintýri lífs síns. „Þetta er stór breyting frá þessu daglega streði. Ég hef alltaf verið hundleið- ur á lífsgæðakapphlaupinu." Jakob segir að með ferðinni sé það frjálsræðið sem heillar mest. „Maður ræður sínum eigin tima að mestu leyti. Það er líka gaman að kynnast framandi og öðruvísi menningu." Liklegt er að Jakob muni sækja um tímabundna vinnu í einhverj- um af þeim löndum sem liggja við Miðjarðarhafið, en verkfæri hans verða um borð. Hann segir að þegar fréttist af fyrirhugaðri ferð fjölskyldunnar hafi margir ekki trúað því. „Að Fljótandi sumarbústaður eir sem hafa hug á að setjast í skipstjórasætið á hraðbát- um og seglskútum þurfa að hafa nám að baki. Það er m.a. hægt að læra í Siglingaskólanum. Bóklega námið, sem er 125 kennslustundir, veitir skipstjórnarréttindi á 30 tonna báta og minni. Verklegi þátt- urinn sem bætist við námið er ein- göngu fyrir þá sem hyggjast sigla skútum. „Því miður eru engir verk- legir tímar fyrir þá sem ætla að sigla hraðbátum," segir Benedikt H. Al- fonsson, skólastjóri Siglingaskólans. „Þeir verða að fá kunnáttumann með sér í fyrstu ferðimar en tiltölu- lega einfaldara er að sigla hraðbát- um en skútum. Fyrst og fremst ber að hafa í huga að fara ekki of hratt þegar menn eru að átta sig á hvem- ig báturinn lætur að stjórn." Skútusiglinganámskeiðinu er skipt í tvö aðskilin námskeið. Á því fyrra er fengist við seglin og hvem- ig báturinn hagar sér. „Ýmis örygg- isatriði þurfa að vera á hreinu svo allt gangi vel. Menn verða að gæta þess að vindur sé ekki of mikill þeg- ar lagt er af stað, en eftir því sem menn era þjálfaðri geta þeir farið út í meiri vindi. Á seinna námskeiðinu læra menn m.a. um skipstjómina þannig að viðkomandi verði örugg- ur og geti fengist við vind og sjólag, án þess að lenda í neinum vandræð- um. Þetta er náttúrlega allt æfing og þjálfun." Hlutfall þeirra er svipað sem eiga hraðbáta og seglskútur hér á landi. „Margir eiga gamla kvótalausa fiski- báta og sumir þeirra eru hraðbátar. Hins vegar er ekki mikið um eigin- lega hraðbáta. Talsvert er þó um skútur, eða tæplega hundrað á öllu landinu." Skúturnar era oftast sjósettar í byrjun maí. „Það fer eftir því hvort farið er að hlýna en í skútum þarf að klæða sig eftir veðrinu." Benedikt segir að þetta áhugamál sé ekki dýrt í sjálfu sér. „Ef um er að ræða bát með góðri íbúð þá kostar hann álíka mikið og sumarbústaður. Best er þegar nokkrir eiga bát sam- an, en þá myndi hann nýtast betur.“ -SJ „Ýmis öryggisatriði þurfa að vera á hreinu svo allt gangi vel. Menn verða að gæta þess að vindur sé ekki of mikill þegar lagt er af stað.“ DV-mynd Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.