Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 22
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
"«6
Fréttir
LflJjJ}J iJ/1
r. Love ráðleggur um kynli
í SI§xi?/ 'p iP
JÉ
Akureyri:
Slysahætta í
íþróttahúsum
vegna leka
DV, Akureyri:
Þakleki hefur verið í tveimur
íþróttahúsum á Akureyri undanfar-
in ár, íþróttahöll bæjarins og
íþróttaskemmunni, sem til skamms
tíma var helsta íþróttahús bæjarins.
Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs
fyrir skömmu óskaði Nói Bjöms-
son, fulltrúi L-listans, bókað að þak
íþróttaskemmunar væri ónýtt og
hefði verið í mörg ár. „Á stundum
er vatnselgurinn þvílíkur á gólfi
hússins að íþróttaiðkendur eru í
stórhættu. Fulltrúi L-listans hefur
ítrekað bent á þennan vanda á fund-
um ráðsins, án þess að bóka það
fyrr en nú. Krafan er einfaldlega sú
að íþróttaskemmunni verði lokað,
og það til frambúðar sem íþrótta-
mannvirki, ef meirihluti bæjar-
stjómar Akureyrar sér sér ekki
fært að grípa til neinna aðgerða í
málinu. L-listinn beinir þeim til-
mælum til meirihlutans að farið
verði sem fyrst i undirbúning að
nýju íþróttahúsi, t.d. í Siðu- eða
Giljahverfi, til þess að varanleg
lausn finnist á þessum vanda,“
sagði í bókun Nóa Bjömssonar.
Á sama fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs var upplýst að þak
íþróttahallarinnar við Skólastíg
hafi ekki haldið vatni undanfama
vetur og hafi horft til vandræða
með íþróttakennslu, íþróttaæfingar
og hvers konar uppákomiu-. Ráðið
beindi þeirri ósk til framkvæmda-
nefndar bæjarins að kannað verði i
hversu miklar framkvæmdir þurfi
aö fara vegna viðhalds á þaki
iþróttahallarinnar og hversu mikill
kostnaður verði við þá framkvæmd.
-gk
Karlakórinn í Höfðaborg. DV-myndir Örn
Hofsós:
Heimisstemn-
ing í Höföaborg
DV, Skagafir&
Húsfyllir var á söng- og skemmti-
kvöldi sem karlakórinn Heimir hélt
í Höfðaborg á Hofsósi fyrir
skömmu. Þama er um árlegan
konsert að ræða sem alla jafnan er
haldinn um sumarmálin, en kunn-
ugir telja að aðsókn hafi aldrei ver-
ið meiri en nú. Auk söngs kórsins
var á dagskránni hagyrðingaþáttur,
Pálmi Rögnvaldsson bankastarfs-
maður flutti gamanmál og nokkrir
kórfélagar léku á hljóðfæri. Þá
stóöu konur kórfélaga fyrir glæsi-
legum veitingum.
Ljóst var á undirtektum sam-
komugesta að þeir kunnu vel að
meta söng kórsins. Hann á ótvíræð-
um vinsældum að fagna í heimahér-
aði. Það sýnir aðsókn að konsertum
undanfarið þar sem fólk hefur jafh-
vel orðið frá að hverfa. Eöiisskrá
Heimis var að vanda fjölbreytt og
talsvert af nýjum lögum. Það var
hins vegar undir lokin þegar kórinn
tók gömlu lögin sín sem allir
þekkja, HaUarfrúna, Dísir vorsins,
Dúdda á Skörðugili og Undir blá-
himni svo nokkur séu nefnd sem
stemningin náði hámarki. Þá varð
ekta Heimisstemning í Höfðaborg
vau'ð einum samkomugesta að orði.
-ÖÞ
Hagyrðingar skemmtu viðstöddum. Frá vinstri: Grétar Geirsson, Axel Þor-
steinsson, Sverrir Magnússon, Hreinn Guðvarðsson og Gísli Konráðsson.