Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 i 27 Fréttir NETTÖ Mótmælaskiltið við Drottningarbraut, á fiötinni fyrir neðan Samkomuhúsið. Akureyri: Mótmæli við 1.830.000 kr. JLX SE 5d. Fœrðu einhvers staðar meira fyrir þetta verð? Traustur, alvöru, upphækkanlegur, 4x4 jeppi á ÓTRÚLEGU veröi Hátt og lágt drif - byggður á grind Kraftmikil og hljóðlát vél • Einstaklega góður í endursölu Sjálfskipting kostar 150.000 KR. Ágúst Einarsson er í baráttusæti Samfylkingarinnar á Reykjanesi. Breytum rétt Samkomuhusið DV, Akureyri: Sú ákvörðun skipulagsnefndar Akureyrarbæjar að benda á svæðið fyrir neðan Samkomuhúsið (leik- húsið) sem heppilega byggingarlóð fyrir stórmarkaö, mælist ekki alls staðar vel fyrir, eins og við mátti búast. Skipulagsnefnd var með ákvörð- un sinni að taka afstöðu til beiðni Kaupfélags Eyfirðinga og Rúm- fatalagersins að fá að byggja stór- markað á svæði aðalleikvangs Ak- ureyrarbæjar, en sú umsókn var vægast sagt umdeild. KEA hugðist flytja NETTÓ-verslun sína í það húsnæði. Skipulagsnefndin mælti ekki með þeirri beiðni en benti á ýmsa aðra kosti í bænum sem byggingarlóð fyrir stórmarkað, m.a. svæðið fyrir neðan Samkomu- húsið. Ekki ríkir einhugur meðal bæj- arbúa um að byggt verði á því svæði, og einhver framtakssamur íbúi hefur tekið sig til og hengt upp skilti á staxrr á svæðinu þar sem stendur: „NETTÓ nei“. -gk ALIIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ: • vökvastýri • 2 loftpúða • • aflmiklar vélar • samlæsingar • • rafmagn í rúðum og speglum • • styrktarbita f hurðum • • samlitaða stuðara • $SUZUKI SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is Landsmót ung- linga í Vestur- byggð árið 2000 DV, Vesturbyggð: Þing héraðssambandsins Hrafna- flóka (HHF) var haldið á Bíldudal 24. apríl sl. Sigurður Viggósson setti það og minntist Stefáns Jóhannesar Sigurðssonar, formanns sambands- ins, sem lést af slysforum 23. janúar sl. Stofnaður var minningarsjóður um hann sem notaður verður til að styrkja efnilega íþróttamenn innan HHF. Þá gáfu Kristín Ólafsdóttir og börn bikar sem veita á þeim íþrótta- manni í hástökki sem nær bestum árangri á mótum. Fyrsti handhafi hans er Ásgeir Sveinsson, UMFB. Fyrir utan hefðbundin aðalfund- arstörf bar hæst Landsmót unglinga árið 2000 sem verður á svæði HHF, á sunnanverðum Vestfjöröum. Mik- ið verk er að taka svo stóra sam- komu að sér og sjá um uppbyggingu á íþróttamannvirkjum. Sveitar- stjómir Vesturbyggðar og Tálkna- fjarðarhrepps eru jákvæðar og munu aðstoða við framkvæmdina enda er mót sem þetta mikil lyfti- stöng fyrir byggðirnar sem að þessu standa. Formaður undirbúningsnefndar, Skjöldur Pálmason, greindi frá því að búið væri að velja tímann og verður mótið haldið um verslunar- mannahelgina 2000 og það gert svo þetta verði meiri fjölskylduhátíð en ef önnur tímasetning hefði verið valin. Viðurkenningar fyrir árið 1998 vom veittar á þinginu og hlutu þær eftirfarandi. Haukur Sigurðsson sund, Guðbjartur Ásgeirsson karfa, Jónas Þrastarson og Ásgeir Sveins- Jónas Þrastarson, íþróttamaður ársins 1998. DV-mynd Kristjana son frjálsíþróttir, Magnús Áskels- son golf. Af þessum afreksmönnum var svo einn valinn íþróttamaður Hrafnaflóka 1998 - Jónas Þrastar- son, Herði. Gestir þingsins vom þau Kristín Gísladóttir frá UMFÍ og Haf- steinn Pálsson frá ÍSÍ. Nýr formaður var kosinn Sigurð- ur Viggósson og aðrir í stjóm eru Helga Jónasdóttir, Ásdís Guðjóns- dóttir, Telma Kristinsdóttir og Karl Þór Þórisson, KA. -Kristjana Ert þu nokkud ad missa af þættinum Bak vio tjöldin með Völu Matt Fimmtudaga kl. 22°° og Laugardaga kl. 16°°

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.