Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 Fréttir 23 vísir.is Byltingarkenndar framfarir í hjarta- lækningum - segir Ragnar Danielsen, framkvæmdastjóri norræna hjartalæknaþingsins ertu eins og alveg pabbi? Vísir.is, Matthildur og DV leita aö llkustu feðgum landsins. Sendu inn mynd af ykkur feögunum því skilafrestur rennur út föstudaginn 11. júnf. Kosiö verður um 10 líkustu feögana 15. til 17. Júní á vislr.is. Úrslltin veröa kynnt I helgarblaöi DV laugardaginn 19. júnf. V f n n i n g a r : Samvinnuferðfr / Landsýn bjóða feögunum til Lundúna. Spar-Sport, Nóatúni 17, gefur glæsilegan sportpakki troðfullan af sportvörum. Gforgio Armani gefur tösku með Utanáskriftin er: snyrtivörum fyrir herra. Tveir eins Matthildur FM 88.5 Hverfisgötu 46 101 Reykjavík Nýjar niðurstöður hjartararmsókna verða kynntar á norrænni ráðsteínu hjartalækna sem sett var í Reykjavík i gær. Meðal annars munu íslenskir sérfræðingar kynna niðurstöður rannsókna á hjartabilun. Er- lendir sérfræðing- ar fara í gegnum það sem áunnist Ragnar Daníels- hefur á síðustu son hjartalæknir. mánuðum og miss- erum. Afar ánægjulegar framfarir er að greina á flestum sviðum hjartalækninga. Von var á um 800 manns á þing hjartalækna og hjúkrunarfræðinga sem vinna á hjartadeildum. Um 80% þátttakenda koma frá Norðurlöndum. Meðal fyrirlesara eru margir þeir frægustu í heimi hjartalækna og heimsþekktir vísindamenn, eins og Eugene Braunwald frá Harvardhá- skóla og Eric Topol frá Cleveland Clin- ic. „Þetta hefur verið áratugur bylting- arkenndra framfara í hjartalækning- um,“ sagði Ragnar Danielsen á hjarta- deild Landspitalans. Hann er fram- kvæmdastjóri hinnar viðamiklu þriggja daga ráðstefhu. Ragnar segir aö margt hafi áunnist á stuttum tíma, meðal annars í mark- vissri lyfjameðferð í stórum sjúkdóma- flokkum, eftirmeðferð, hvaða lyf auka lifslíkur hjá fólki eftir kransæðasjúk- dóm og minnka líkur á enduráfóllum. Einnig nefndi Ragnar gríðarlegar framfarir í meðferð hjartabilunar og framfarir í kransæðavíkkunum. -JBP Þessir kátu krakkar voru að viðra fimm iitla hvolpa í Vík í Mýrdal á dögun- um. Þeir sögðust fara fjarska gætilega með þá en tíkin Táta fylgdist þó með öllu til öryggis. DV-mynd Njörður. Heimsfrægur sérfræöingur á læknaþingi hér: Ristruflanir karla á næsta árþúsundi Kista Gísla Einarssonar, fyrrverandi oddvita Biskupstungnahrepps, borin út úr Skálholtskirkju. Fjölmenni var við útförina. Oddvitinn kvaddur Útfór Gísla Einarssonar, fyrrver- andi oddvita Biskupstungnahrepps, var gerð frá Skálholtskirkju síðasta laugardag. Mikið fjölmenni var við útfórina og var kirkjan fullsetin klukkutíma fyrir athöfnina. Allir salir Skálholtsskóla voru einnig fullir en þangað var útvarpað frá kirkjunni á sérstakri FM-bylgju sem sett var upp vegna athafnarinn- ar. Fjölmargir sátu í bílum sínum og hlýddu á sendinguna. Gísli varð bráðkvaddur við gegningar á búi sinu að Kjarnholti , 67 ára gamall. Hann var öflugur félagsmálamaður, fylginn sér í öllum málum sem hann tók að sér og vann þau með einstakri eljusemi samfara léttri lund sem smitaði út frá sér hvar sem hann kom. -KE Mesti sérfræðingur heims í getu- ieysi karla, ristruflunum sem svo eru kallaðar, Tom F. Lue, mun halda erindi á norrænu stórþingi þvagfæraskurðlækna og hjúkrunar- fræðinga í Reykjavík. Þingfulltrúar komu saman til móttöku kl. 18.30 í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur. í morg- un var þingið sett í Borgarleikhús- inu af Davíð Oddssyni forsætisráð- herra. Um 700 manns komu hingað til lands og taka þátt í ráðstefnunni. Fjallað verður meðal annars um krabbamein, svo sem þvagblöðru-, blöðruhálskirtils- og nýrnakrabba- mein. Þá verður ijallað um þvagleka og aðra þvagfærasjúkdóma. Fyrirlestur bandaríska sérfræð- ingsins, sem fjallar um ristruflanir á næsta árþúsundi, mun án efa vekja mikla athygli enda er sjúk- dómur þessi algengur hjá körlum frá miðjum aldri og hjúkrunarstétt- irnar tala í því samhengi um „tjöru- typpin“ og sagöi Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurödeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, að á því væri engin launung að getuleysi karlmanna væri oftar en ekki rakið til reykinga. Á ráðstefnunni verður stinningarlyfið Viagra kynnt ís- lenskum læknum. -JBP ifini b#ráar einungis skyr og köttLTjáex Tílboð fyrir 17. júní Stuttar og stðar kápur, jakkar, heilsársúlpur, og regnkápur Mörkinni 6, sími 588 5518.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.