Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 17 Hvað tekur við hjá skólafólkinu þegar sumarið kemur með glampandi geislum sólarinnar og hjörtum nóttum? Ný dekk á línuskautana Andrea Sól notar sumarfríið til þess að gera það sem henni þykir skemmtilegt, til dæmis að renna sér á línuskautum. Andrea Sól Kristjánsdóttir verður níu ára gömul þann 23. júní og hún lauk fjórða bekk í Setbergsskóla nú í vor. „Mér finnst sumrin skemmti- leg af því þá er frí og við förum í sumarbústað og til ömmu á Seyðis- firði. í sumar ætlum við að leigja tjaldvagn sem er með rúmi og sjón- varpi." Dagskrá Andreu breytist lítið yfir sumarið. „Ég æfi hand- bolta með Haukum og mér fmnst best að vera á miðjunni." Hún seg- ir að það sé kannski vegna þess að henni finnist skemmtilegt að stjórna. En geta Haukamir eitt- hvað? „Já, alla vega meira en FH,“ segir hnátan og tekur það skýrt fram að Haukar séu hennar lið. Hún á engin sérstök áhugamál fyr- ir utan handboltann en henni finnst Evróvisjón-lagið okkar magnað en gefur ekki mikið fyrir Kryddpíumar. „Ég var einu sinni hrifm af þeim en ég er það ekki lengur." Um framtíðarstarfíð er hún ekki alveg viss. „Kannski ætla s v o ég að verða meinatæknir alveg heyrist eins og mamma, þá tekur maður s v o blóð úr fólki og svoleiðis. Svo lang- mikið í ar mig í stórt og flott hús og fjöl- plast- skyldan mín á að vera alveg eins dekkj- og hún er nú.“ En hver er hennar u n - heitasti draumur? um.“ „Sko, mig langar að skipta um -þor dekk á línuskautunum mínum. Ég er með plastdekk og mig langar í gúmmídekk í sumar af því að mað- ur rennur miklu hraðar á þeim og Manchester er málið Sumarið er mín uppáhaldsárstíð því þá vinn ég og eignast peninga. Þetta er annað sumarið sem ég vinn á Shell-stöð og mín helstu verk eru að dæla á bíla, mæla olíu og skipta um perur. Viðskiptavin- irnir eru mismunandi, flestir eru mjög kurteisir en aðrir þola ekki bið og flauta finnist þeim hlut- irnir ekki ganga nógu fljótt,“ segir Jón Skafti Gestsson, átján ára nemi við Verslunarskólann. Jóni líkar skólinn vel, „ég valdi Versló af því að mig langaði í gott stúd- entspróf og mér fannst MR ekki alveg í takt við tímann." Hann stefnir á háskólanám strax að loknu stúdentsprófi en er ekki búinn að marka stefnu um hvað hann vill leggja fyrir sig. Áhuga- mál Jóns eru fótbolti og körfubolti og uppáhalds- liðin eru Manchester ■ Jón Skafti reynir vetrarnánuðina. að vinna sem mest yfir sumartímann til þess að eiga pening yfir United og Lakers. „Ég horfi jafnlengi á United og þeir eru í sjónvarp inu“ og hann seg- ist oft skipta u m h a m við skjá- inn þeg- ar vel gengur hjá hans mönnum. „Ég væri mjög til í að komast á leik með þeim og sjá kóngana en ég veit ekki hvort úr því verður en draumurinn er samt að komast í bak- pokaferðalag og ferð- ast um S-Evrópu því að sagan og sólin þar heilla." -þor Umvafinn kvenmönnum Hagfræðineminn Daníel Svav- arsson verður í hópi þeirra sem útskrifast þann 19. júni úr Háskóla íslands, á kvennadaginn. í sumar vinnur hann hjá Europay í viðskipta- mannabókhaldi og það segir hann afar spennandi. Hann segist eini karlmaðurinn á sinni deild í vinn- unni og vinnur því eingöngu með konum, en það hlýtur að teljast draumur sérhvers karlmanns. Dan- íel hefur unun af námi og ætlar strax í haust til Sviþjóðar í masters- nám. „Ég ætla í fjármálahagfræði sem ég held að sé mjög áhugarvert og akademískt nám.“ Hann sér fram á að sumarið fari í það að koma sér fyrir í nýrri íbúð en hann er í þann mund að missa þá sem hann hefur þar sem meðleigjandi hans flutti til S-Afríku fyrir skömmu. Hann segist að öðru leyti ekki breyta neinu í lífi sínu yfir sumartímann og vill þannig ekki fallast á það að skemmtanir og drykkja aukist yfir sumarmánuðina. „Nei, það held ég ekki. Það er dagsformið sem skiptir mestu máli. Aftur á móti finnst mér hin íslenska drykkjumenning sér- stök, án þess að hafa neitt út á hana að setja, og aðeins í Svíþjóð hef ég kynnst einhverju þvílíku. Daníel bjó um tíma í Svíþjóð en hefur auk þess dvalist Prag, i einni rómantísk- ustu borg Evrópu, um sex mánaða skeið. Framtíð hagfræðinemans er að öðru leyti óráðin en hann segist vel geta hugsað sér að setjast að er- lendis. -þor Daníel Svavarsson kann þvf vel að vinna eingöngu með kvenmönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.