Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 23
JjV ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 (jfyikmyndir Laugarásbíó - Pecker: Skyndifrægð irfri John Waters hefur í gegn- um tíðina hneykslað hinn al- menna bíógest með kvikmyndum á borð við Pink Flamingos og Polyest- er. í síðustu kvikmyndum sínum, Cry-Baby og Serial Mom hefur húmor hans verið að færast nær hefðinni þótt vissulega hafi hann enn sinn sérstæða stíl. Pecker, nýjasta kvik- mynd Waters, hefur því sín höfundareinkenni og eins og allar myndir Waters gerist hún í Baitimore og segir frá persón- um sem eru á skjön við hinn hefð- bundna borgara. Aðalpersónan er unglingurinn Pecker (Edward Furlong), sem á gamla og lúna ljósmyndavél sem móðir hans, sem rekur fomgripa- verslun, hafði fengið inn á borð til sín. Pecker er í byrjun myndarinnar að ljósmynda í gríð og erg, fjölskyldu sína, sem inniheldur hvem furðufugl- inn af öðrum, vini og nágranna, yflr- leitt við iðju sem ekki þolir dagsins ljós. Ekki hefur Pecker efni á að kaupa filmur, heldur stelur hann þeim með aðstoð vinar síns. Út frá þessari ljósmyndadellu verður til sýning sem hengd er upp á vinnustað hans, skyndibitabúllu sem ekki myndi þola að heilbrigðiseftirlitið kæmi í heimsókn. Inn á þessa sýningu rekst listaverkasalinn Rorey (Lili Taylor) og hrífst svo af frumleik Peckers að hún ákveður að setja sýninguna upp í New York. Það er eins og við mann- inn mælt, sýningin slær í gegn og Pecker verður frægur á einni nóttu. Hann, ásamt fjölskyldu sinni og vin- um, kemst þó fljótt að því að New York er ekki það sama og Baltimore og þegar peningarnir koma inn í spil- ið verða til ófyrirsjáanlegir erfiðleik- ar, hver hendin upp á móti annarri og það fækkar ört í gömlum vinahópi Peckers, og þar sem hann kann ekki að meta þotuliðið í New York, sem hefur hann upp til skýjanna, myndast tómarúm í lífi hans. Allt er þetta kryddað með gráum húmor þar sem Waters ræðst af mikl- um krafti gegn tilgerðarlegum lista- spirum stórborgarinnar þar sem yfir- borðið skiptir öllu máli um leið og hann dásamar hinn óheflaða borgara sem býr í Baltimore. Persónumar í myndinni eru skrautlegar og eftir- minnilegar. Samt er það svo að stund- um fellur Waters sjálfur í það far sem hann er að vara við og er tilgerðarleg- ur í þeirri viðleitni sinni að vera öðru- vísi. Pecker er því mynd sem inniheld- ur nokkur góð og skemmtileg atriði en er, þegar á heildina er litið, fráhindr- Kvikmynda GAGNRÝNI andi. Leikarar eru yfirleitt góðir. Ed- ward Furlong er all- an tímann á tjaldinu og er glaðvær og prakkaralegur, einmitt það sem til þarf í hlutverkið. Af öðrum leikurum er Martha Plimpton sú sem stelur hvað eft- ir annað senunni í hlutverki eldri syst- ur Peckers og fer oft á kostum sem kynn- ir og barþjónn í hommaklúbbi. Leikstjóri og handrits- höfundur: John Wa- ters. Kvikmyndataka: Robert Stevens. Tón- list Stewart Copeland. A- Aðalhlutverk: Edward Furlong, Christina Ricci, Martha Plimpton, Lili Taylor, Mary Kay Place og Mark Joy. Hilmar Karisson. Listaspíran Rorey (Lili Taylor) með eina af myndum Peckers. I 400 /ttiasCopco Austin Powers fór fam fyrir Stjörnustríðið Nýja Austin Powers myndin sló heldur betur í gegn og setti Stjörnustríöið í annaö sætiö. Helgarútkoman upp á rúmar 57 milljónir er með því allra mesta sem gerist og víst er aö myndin á eftir aö veröa ein vinsælasta gamanmynd sem gerö hefur veriö. Þá er myndin ein stór rós í hnappagat gamanleikarans Mikes Myers, sem fyrst sló í gegn í Wayne's World. -HK Tekjur Helldartekjur 1. (-) Austin Powers 2 54.917 57.442 2.(1) Star Wars: Episode 1 25.632 296.964 3. (2) Notting Hlll 11.259 67.516 4. (3) Instlnct 6.186 21.252 5. (4) The Mummy 5.483 136.213 6. (5) Entrapment 2.738 79.439 7.(6) The Matrix 1.869 161.367 8. (7) The Thirteenth Roor 1.232 9.653 9. (14) Tea with Mussolini 789 7.682 10. (8) Never Been Kissed 700 51.944 11. (9) A Midsummers Night’s Dream 689 14.283 12. (10) Electlon 602 13.248 13. (11) Ufe 569 61.554 14. (13) The love letter 551 7.184 15. (12) Black Mask 438 11.441 16. (16) Analyze Thls Trppln' 416 104.826 17. (15) 350 8.244 18. (18) The Winslow boy 343 1.847 19. (36) Besieged 318 886 20. (17) 10 Thlngs 1 Hate About You 302 36.195 Háskólabíó - Plunkett & MacLeane: í fótspor feðranna irbyggingu persóna vantar og þvi er hol- ur hljómur í annars ágætum samleik þessara frnu leikara. Eitthvað segir mér samt að Jake eigi eftir að spjara sig ágætlega í framtíðinni og halda þannig uppi merki Scott-fjölskyldunnar. Leikstjóri: Jake Scott. Handrit: Peter Barnes, Charles McKeown. Aðalhlutverk: Robert Carlyle. Johnny Lee Miller, Liv Tyler, Ken Stott. Ásgrímur Sverrisson ifif Merkilegt hvemig sagan endurtekur sig. Árið 1977 birt- ist frumraun ungs auglýsingaleik- stjóra á hvita tjaldinu. Sagan gerist undir lok átjándu aldar og er um tvo hermenn sem lenda í illdeilum og veija mörgum árum í að reyna að kála hvor öðrum. Aðalhlutverkin vom í höndum tveggja „heitra" leikara á þeim tima, Harvey Keitel og Keith Carradine. Helsti styrkm- myndarinn- ar var þó afar blæbrigðarík og mynd- ræn framsetning. Myndin hét The Duellists og leikstjórinn var Ridley Scott. Árið 1999 birtist frumraun ungs aug- lýsingaleikstjóra í kvikmyndahúsum. Sagan gerist undir lok átjándu aldar og fjallar um her- mann og ræningja sem í upphafi reyna að kála hvor öðrum en snúa svo bök- um saman til að ræna þá ríku. Aðal- hlutverkin em í höndum tveggja af vinsælustu leikurum Breta nú um stundir; Roberts Carlyle og Johnnys Lee Millers. Styrkur myndarinnar liggur tvímælalaust i kröft- ugum myndum og andrúmslofti. Myndin heitir Plunkett & MacLeane og leikstjórinn er Jake Scott, sonur Ridleys og frændi Tonys. Ef Jake ætlar að reynast föðurbetr- ungur þarf hann að hysja upp um sig buxumar í hvelli því það er ekki nóg að geta búið tO flottar myndir, handrit- ið þarf ldía að vera tO staðar. Nokkuð skortir upp á það hér og mér er tO efs að P&M eigi eftir að hljóta sama „cult- status" og The DueOists vegna þess að hana vantar þetta aukalega sem skdur á mdli. Hins vegar fer ekki á milli mála að myndrænu genin hafa flust frá foður tO sonar. Þetta er dýrlega fal- leg mynd á að líta og ekki er heldur hægt að efast um hæfileika Jakes td sviðsetningar átakaatriða og alls kyns bedibragða. I O P P 2 0 í Bandaríkjunum aðsókn dagana 11. til 13. Júní. Tekjur í mllljónum dollara og helldartekjur Kvikmynda GAGNRÝNI Mike Myers leikur hinn óborganlega Austin Powers Þetta er tdraun td aö búa td „buddy“- mynd í anda Butch Cassidys and the Sundance Kid, en fyrir fólk sem höfúnd- ar myndarinnar álíta greindega bjána, þ.e. MTV-kynslóðina sem vdl flottar um- búðir fyrst og fremst en er nokk sama um innihaldið. Ég held reyndar að það sé misskOningur. Þó að unga kynslóðin sé vön hröðum klippum vdl hún engu að síður upplifa góða sögu. Höfúndun- um mistekst hins vegar algerlega að gæða þessa bófa einhveiju lífi, alla und- r r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.