Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999
Fréttir________________________________
ísfélag Vestmannaeyja, Vinnslustööin, Krossanes á Akureyri og Ósland á Höfn:
Viljayfirlýsing
um sameiningu
- veröur eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á landinu
„Þetta styrkir bæöi fyrirtækin og
þar með atvinnulíf hér í Eyjum. Ég
hefði ekki getað hugsað mér að
Vinnslustöðin færi úr byggðarlag-
inu. Það er mikilvægt að atvinnulíf-
Waves fast
í tolli
- sætuefni rannsökuö
Lyíjaeftirlit ríkisins er nú með til
ákvörðunar hvort leyfa eigi inn-
flutning á sendingu af Wavesúða
sem komin er til landsins. Eftirlit-
inu hafa borist ný gögn frá vísinda-
nefnd Evrópusambandsins um
sætuefnið stevia. Úðinn inniheldur
það efni. Er lyfjaeftirlitið að athuga
samsetningu sendingarinnar sem
bíður nú í tollinum.
„Sendingin kom til landsins í síð-
ustu viku. Ég ætlaði að leysa hana
úr tolli fyrir helgina," sagði Einar
Vilhjálmsson, talsmaður ísalda, við
DV. „Ég var búinn að kynna lyfja-
eftirlitinu þá samsetningu á inni-
haldi Wavesvara sem ég ætlaði að
flytja til landsins. Ég hef skriflegt
leyfi þess fyrir þeim innflutningi.
Nú vilja þeir tefla innflutninginn út
af stevia-sætuefninu. Mér finnst
þetta i hæsta máta óeðlilegt."
Um fimm þúsund einingar af úð-
anum bíða nú niðurstöðu lyfjaeftir-
litsins. Fanney Ásgeirsdóttir hjá
Lyfjaeftirliti ríkisins sagði að eftir-
litið tæki sér tíma til að athuga álit
visindanefndar ESB varðandi um-
rætt sætuefni. í ESB-löndum væri
stevia ekki leyft í matvæli. Holl-
ustuvernd ríkisins leyfði það ekki
heldur í matvæli. -JSS
ið sé sterkt hér,“ segir Sigurður
Einarsson, forstjóri ísfélags Vest-
mannaeyja, í samtali við DV.
ísfélag Vestmannaeyja hf.,
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyj-
um, Krossanes hf. á Akureyri og Ós-
land ehf. á Höfn í Homafirði hafa
undirritað viljayfirlýsingu um að
sameina félögin í eitt. Hið nýja félag
mun heita ísfélag Vestmannaeyja.
Sameining á sér stuttan aðdraganda
en stjórnendur Vinnslustöðvarinn-
ar voru þegar i sameiningarviðræð-
um við annað sjávarútvegsfyrirtæki
þegar viðræður við ísfélagið hófust.
Þær hófust um verslunarmanna-
helgina með því að fulltrúar ísfé-
lagsins höfðu samband við forsvars-
menn Vinnslustöðvarinnar með það
fyrir augum að
sameina fyrirtæk-
in.
Sigurður Einars-
son stýrði samein-
ingarviðræðunum
fyrir hönd ísfélags-
ins en fyrir Ker hf.
Jóhann Magnússon
forstjóri og Sigur-
geir Brynjar Krist-
geirsson fyrir Vinnslustöðina.
Hið nýja fyrirtæki mun ráða yfir
aflaheimildum upp á tæplega 30
þúsund þorskígildistonn. Höfuð-
stöðvar fyrirtækisins verða í Vest-
mannaeyjum og verður því skipt í
tvö svið, uppsjávarsvið og bolfisks-
svið. Fyrirtækið mun ráða yfir fjór-
um fiskimjölsverksmiðjum á þrem-
ur stöðum á landinu. Hið nýja fyrir-
tæki verður stærst á landinu í
vinnslu á uppsjávarfiski.
Þessi sameining bindur enda á
miklar vangaveltur um stöðu
Vinnslustöðvarinnar því lengi leit
út fyrir að fyrirtækið færi frá
Eyjum. Gert er ráð fyrir að stjórnir
fyrirtækjana fjalli um málið á
næstu dögum og þá skýrist endan-
lega hvort af sameiningu verður.
Miðað er við að fyrirtækin samein- •
ist 31. ágúst 1999 en formleg samein-
ing á að vera frágengin fyrir miðjan
október.
Sameiningin verður kynnt fyrir
starfsfólki í dag.
-HDM
.A)®.
Lokaspretturinn er fram undan á Skeiðarvogsbrúnni. Byrjað er að setja upp handrið, umferðarljós eru skammt und-
an og einnig er unnið að frágangí í kringum slaufur og aðalleiðir. Gert er ráð fyrir að umferð verði hleypt á brúna
þann 10. september. DV-mynd S
Krafa um endurskoðun eignarnáms Saurbæjar vegna HvalQaröarganganna:
Hlægilegt fyrir eyðilagða jörð
- segir lögmaöur húsfreyjunnar í Saurbæ
„Ég fer fram á að eignarnámsmatið
veröi endurupptekið vegna þess að
1200 þúsund krónur eru hlægilegt
verð fyrir að eyðileggja jörð,“ sagði
Páll Amór Pálsson, lögmaður Önnu
Sigurðardóttur, húsfreyju í Saurbæ á
Kjalarnesi, sem telur sig hafa orðið
fyrir miklum ijárhagsskaða vegna
framkvæmdanna við Hvalfiarðar-
göngin og sitji á óseljanlegri jörð eft-
ir að tún hennar voru skorin í tvennt
með hraðbraut við gangaop Hval-
fiarðarganganna.
Anna Sigurðardóttir, húsfreyja í
Saurbæ, krafðist þess upphaflega við
eignamám að jörðin yrði keypt í
heilu lagi vegna þess að hún myndi
ekki gagnast henni neitt eftir fram-
kvæmdimar. Því var ekki sinnt og
Önnu dæmdar 1200 þúsund krónur í
bætur: „Þeir sögðu mér reyndar að ég
ætti ekki að þurfa neinar bætur því
jörðin yrði verðmeiri eftir breyting-
arnar; ég gæti opnað sjoppu við veg-
inn,“ sagði Anna sem reynt hefur að
sefia jörðina á sölu en ekki fengið eitt
einasta tilboð. „Það vill enginn búa
við hraðbraut sem hverfur ofan í
jörðina í miðju túninu heima,“ sagði
Anna.
Krafa lögmanns Önnu á hendur
Speli, rekstraraðila Hvalfiaðargang-
anna, er að malarfiall í hestagirðing-
unni í Saurbæ verði fiarlægt svo og
byggingar sem skildar voru eftir á
jörðinni þegar framkvæmdum lauk.
„Spölur átti að skila landinu í
sama ástandi og það
var innan þriggja
ára frá þvi að fram-
kvæmdir hófust og
sá tími er liðinn.
Krafa okkar er að
þetta verði gert hið
fyrsta og leiga
greidd fyrir þann
tíma sem fram yftr
er,“ sagði Páll Arn-
ór Pálsson lögmaður
sem í framhaldinu mun skoða kröfu
vegna skemmda sem talið er að fram
hafi komið á Saurbæjarkirkju á með-
an á sprengingum stóð í Hvalfiarðar-
göngunum. Verktakar þvertaka fyrir
að tengsl séu þar á milli en Anna Sig-
urðardóttir, kirkjuhaldari í Saurbæ,
er viss í sinni sök og er studd af Ósk-
ari Alfreðssyni, sóknarnefndarfor-
manni í Útkoti, og séra Gunnari
Kristjánssyni, sóknarpresti á Reyni-
völlum, þegar hún segir: „Þeir
sprengdu kirkjuna líka.“ -EIR
Saurbær á Kjalarnesi þar sem hraðbrautin hverfur ofan í mitt túnið.
Páll Arnór
Pálsson.
Stuttar fréttir dv
Feluleikur
Feluleikur, spákaupmennska,
stundarhagsmunir og eftirlitsaðilar
hundsaðir, segir
Hreinn Loftsson,
formaður Einka-
væðingarnefnd-
ar, um kaup
Orca SA. á hluta-
bréfum Scandin-
avian Holding i
FBA, hlutafélagi
Kaupþings og sparisjóðanna. Hann
telur enn fremur að Orca hafi feng-
ið bréfin keypt út á krít hjá seljend-
um. Vísir.is segir frá.
26 vilja byggðakvóta
Bæjarstjóm Vesturbyggðar hef-
ur ekki komist að niðurstöðu um
hvemig skipta eigi tæplega 205
tonna byggðakvóta sem stjórn
Byggðastofnunar úthlutaði til bæj-
arins í sumar.
Gefur sig illa
Kolmunnaveiði Islendinga á
Hvalbaksgrunni gengur afar illa.
Þær væntingar sem útgerðarmenn
höfðu til góðrar veiði á þessu sumri
ganga alls ekki eftir þrátt fyrir að
sett hafi verið öflugri vél í allmörg
skip til þess að draga flotvörpuna
nógu hratt á eins miklu dýpi og
kolmunninn yfirleitt heldur sig.
Dagur greinir frá.
Börn úr hernaði
í lok haustfundar utanríkisráð-
herra Norðurlandanna, þar sem ut-
anríkisráðherrar Eystrasaltsland-
anna og Kanada vora viðstaddir,
undirrituðu ráðherrarnir yfirlýs-
ingu þar sem hvatt er til þess að
banna að böm undir 18 ára aldri
gerist hemienn.
Sprengir í tætlur
Álbræðsla í Reyðarfirði mun
menga meö einni mflljón tonna af
gróðurhúsaloft-
tegundum á ári
og sprengja með
því í tætlur þann
ramma sem ís-
landi er ætlaður
samkvæmt lofts-
lagssamningi
Sameinuðu þjóð-
anna og Kyoto-bókuninni, segir í
ályktun aðalfundar Náttúmvemdar-
samtaka Austurlands sem haldinn
var í gær. Morgunblaöið greinir frá.
Eldur í kjallara
Eldur kom upp í rafmagns-
inntaki í kjallara húss við Lang-
holtsveg í nótt. Ekki urðu slys á
fólki én nokkrar skemmdir á hús-
inu. RÚV sagði frá.
Meðferðarheimili
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að bráðlega verði tO-
kynnt um hvar nýtt meðferðar-
heimili fyrir unglinga í eiturlyfia-
vandamálum skuli risa. Hann segir
orð Davíðs Bergmanns Davíðsson-
ar unglingaráðgjafa vera út í blá-
inn. Davíð hefur skorað á Pál að að-
hafast i málefnum þessa fólks og
sakar hann um að láta stjómast af
fyrirgreiðslupólitík. Morgunblaðið
greinir frá.
Snýr út úr
Davíð Bergmann Davíðsson ung-
lingaráðgjafi segir að Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra snúi út úr
orðum sínum og reyni að draga at-
hyglina frá eiturlyfiavanda ung-
linga þegar Páll segist ekkert vOja
við hann tala um stofnun nýs með-
ferðarheimilis fyrir ungt fólk á
vOligötum og best væri fyrir Davíð
að tala við lögreglu hefði hann vit-
neskju um fíkniefnasala. Morgun-
blaðið greinir frá.
Of mikil fræði
Uppeldis- og kennslufræði hefur
of mikið vægi í kennaranámi á ís-
landi og hefur
jafnvægi mOli
hennar og val-
greina, eins og
íslensku og
stærðfræði, ekki
enn náðst að
mati Björns
Bjarnasonar
menntamálaráðherra. Hann telur
augljóst að kennaranámið taki
breytingum í kjölfar nýrrar aðal-
námskrár. Morgunblaðið greinir
frá. -SÁ