Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 Wðtal Engan hvítan vegg, bara myndina, var skipun listamannsins til Ijósmyndarans, og þarna stendur Patrick Huse, mitt í sínu eigin hrauni. DV-mynd ÞÖK Sögulaus auðnin heillar „Þaö eina sem viö vitum fyrir víst er aö viö fœöumst og deyjum, “ segir norski listmálarinn Patrick Huse. „Viö fœöumst inn í ókunnan staö og við deyjum inn í ókunnan staö. Þess vegna er einkennilegt hvaö fólk er hrœtt við ókunna staöi og kýs heldur málverk af kunnuglegum slóöum, myndir af grónu landi og helst meö húsi. Hiö ókunna ætti aö heilla okk- ur meira. “ Patrick Huse er ósmeykur viö ókunn- uglegt landslag, hrjóstrugt, hrátt, kalt og sögulaust, eins og málverkin hans á sýn- ingunni Rifu á Kjarvalsstööum sýna vel. Þetta eru myndir úr ókunnum stað og sá sem horfir veröur aö hugsa um þær, velta þeim fyrir sér vitsmunalega vegna þess aö þær segja okkur ekki sögur eins og íslensk landslagsmálverk eru vön. Patrick Huse fæddist í Ósló 1948 og hafði ekki hugmynd um að hann væri listamaður fyrr en hann spurði sjálfan sig, sextán ára: Hvað ætlar þú eiginlega að verða? Þá fann hann að það eina sem hann langaði til að gera var að mála og teikna. Hann sýnir líka litblý- antsteikningar á Kjarvalsstöðum (þær þekkj- ast á því að þær eru undir gleri vegna þess hvað þær eru viðkvæmar) sem eru ólík mál- verkunum hans, mýkri, litríkari, „fallegri". Hann fór ekki í listaskóla en hóf feril sinn með því að teikna umbúðir á auglýsingastofu - „áður en tölvurnar komu,“ segir hann, „þeg- ar allt var gert i höndunum." Sem listmálari varð hann fljótt leiður á peningaharkinu og auglýsingamennskunni í kringum listalífið í Ósló og flutti upp í fjöll um tíma; nú býr hann á litlu bændabýli með fjölskyldu sinni. En hann trúði umsjónarmanni menningarsíðu fyrir því að þau hjónin væru alvarlega að velta fyrir sér að búa hluta úr árinu á íslandi. Dóttirin, tíu ára, er í Laugamesskólanum og kann afar vel við sig. Fór atdrei til Færeyja Patrick Huse kom fyrst til íslands 1993 - af til- viljun. Fyrsti íslendingurinn sem hann kynntist var Guðjón Bjarnason sem hann sýndi með í Stavanger það ár. Patrick kunni svo vel við hann og fjölskyldu hans að hann kom við á ís- landi á leið til Færeyja skömmu seinna til að heimsækja Guðjón. En það varð aldrei neitt úr Færeyjaferðinni; hann sat fastur á Islandi. „Síð- an hef ég komið hingað tvisvar, þrisvar á ári,“ segir hann, „og málað.“ - Segir íslensk náttúra þér eitthvað annað en norsk? „Já, það gerir hún. Öll náttúra geymir metafórískar upplýsing- ar sem manngert lands- lag gerir ekki, og mér finnst íslensk náttúra skyld minni eigin. Ef ég hefði ekki komið til ís- lands hefði ég valið ann- að land þar sem náttúr- an er svipuð, ísland var bara næst mér í tíma og rúmi. Eitthvað í ís- lenskri náttúm fær end- urhljóm innra með mér, það eru tilfinningaleg tengsl milli hennar og mín. Ég get ekki útskýrt hvernig eða hvers vegna - ekki fremur en maður getur útskýrt hvers vegna manni líður eins og heima hjá sér á ein- um stað en ekki öðrum og tekur eftir sumu fólki í fjölmenni en ekki öðru. Ég held að þetta hafi eitthvað með það að gera að þekkja sjálfan sig.“ - En hún er svo hráslagaleg í myndunum þínum, hrá. . . „Það er ég líka...“ - Og svört! Nú vottar íyrir gosvirkni á annars kald- hömruðu yfirborði listamannsins. „Ég skil ekki þessa höfnun á myrkrinu og svarta litn- um,“ segir hann. „Af hverju drögum við fyrir á kvöldin þegar dimmir? Menningin heldur því að okkur að svart sé drungalegt og dapur- legt en til dæmis blátt sé fallegt! Af hverju ætti blátt að vera fallegra en svart? Þetta er óskiljanlegt!" List á að vera hættuleg Patrick þekkir myndir Kjarvals en hefur lítið kynnt sér yngri íslenska landslagsmálara. Þó segist hann hafa á tilfmningunni að munurinn á hans landslagsmyndum frá íslandi og þeirra felist í því að þeir snúi sér frá íslandi í myndum sínum og út tU Evrópu en hann máli sig inn í ís- land. „Á okkar tímum eru ýmsar stefnur í listinni og ég tel að margar þeirra stýrist annars vegar af peningum og hins vegar af óttanum við að vera ekki tal- inn með,“ segir hann. „Þess vegna reyna listamenn að laga sig að hinu viðurkennda og missa þá einstaklingsein- kenni sín. Það vU ég ekki. Ég hef þá trú að öU mikU list tengist ákveðnum stað og tíma. Bandaríski galleríeig- andinn sem ég hef rmnið með segir að hann vUji list og listamenn sem breyti New York en ekki list sem verði eins og New York. Einmitt á þessum forsendum held ég að ísland geymi eitthvað sem er mikUs virði - auk þess sem ég held að það sem er mér mik- ils virði hljóti líka að segja öðrum eitthvað. íslenskt landslag er þjóðfé- lagsafl, jafnvel pólitískt afl, og það höfðar sterkt til mín,“ heldur hann áfram. „Það er í svo beinni andstöðu við menninguna. Væntanlegt Kötlugos minnir enn einu sinni á að náttúran brýtur niður af kæruleysislegu miskunnarleysi það sem við byggjum upp. Ef listin gerir ekki slíkt hið sama, myndar mótvægi við hið hefð- bundna í menningunni, þá er hún lítUs virði. Hún á að vera hættuleg og það hefur góð list alltaf verið.“ Patrick Huse fmnst frelsandi hvað íslensk náttúra er ný og síbreytileg. Þegar hann stend- ur mitt í henni losnar hann við söguna, menn- inguna. Sagan gefur alls konar upplýsingar sem náttúran gefur ekki ein og sér, og þær geta ver- ið þvingandi. „Ef ég vU komast inn í mína eigin náttúru verð ég að ryðja mér braut gegnum farg sögunnar og það get ég í íslensku landslagi. Það er svo vítt og opið, og ég tek á móti því með opn- um huga. Ef ég væri íslenskur málari að mála íslenskt landslag þá væri ég áreiðanlega bund- inn af íslenskri sögu og menningu, en ég er frjáls undan henni vegna þess að ég kem úr öðr- um stað.“ Listaverk þurfa tíma Patrick Huse er orðinn aUþekktur í Banda- ríkjunum. Hann hefur sýnt í New York og sýn- ingin á Kjarvalsstöðum fer héðan til Seattle þar sem hann sýnir þá í annað sinn. Hann segir að þeim sé sama hvort þeir fá myndir frá íslandi eða Noregi, „þeir vUja bara mínar myndir,“ seg- ir hann og brosir úlfabrosi. „Það sem mestu máli skiptir við að koma sér áfram er að vinna vel og vanda verk sín,“ segir hann. „Ég hef aldrei séð gott málverk sem mögulegt hefði verið að vinna hratt. Það verður að vera tími í hverri einustu mynd, en málið er að flestir lifa of hratt nú til dags til að sökkva sér lengi niður í ákveðið verk. Ég held að við geymum í okkur óhemju mikið af fróðleik og kunnáttu sem aldrei fær að njóta sín vegna þess að við lifum aUtof hratt.“ - En ef þú tekur tvö ár í hvert málverk hef- urðu þá nokkurn tíma tU að koma þér á fram- færi? „Ég læt aðra um það að mestu, umboðsmann minn heima í Noregi og gaUeríeiganda í Dan- mörku. Ég hafði annan í New York sem ég er ekki með lengur, sem betur fer! Annars vil ég helst hafa samband við söfn. Þau eru helsta varnarvirki listarinnar á okkar tímum vegna þess að þau láta ekki stjórnast af markaðskröf- um eins og gaUeríin. GaUeríeigendur vUja ekki að maður breytist heldur máli aUtaf eins! Við eigum góð söfn í Noregi en ég verð að segjá að mér finnst þið líka eiga ótrúlega stór og fín söfn hér á íslandi," sagði Patrick Huse að lokum og gaf fyllilega í skyn að hann hefði ekkert á móti því að Listasafn íslands eignaðist verk eftir hann. -SA Sýning Patricks Huse, Rifa, á Kjarvalsstöðum stendur til 24. október. Þar er opið alla daga vik- unnar, kl. 10-18. Leiðsögn er á sunnudögum, kl. 16. Patrick Huse.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.