Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 9 DV Utlönd Pýska lögreglan skaut i gær til bana júgóslavneskan byssumann sem haldið hafði tveimur körlum og einni konu í gíslingu í banka í Aachen frá því á mánudaginn. Nokkrum mínútum áður hafði byssumaðurinn, sem krafðist peninga, Heimta að Kohl leysi frá skjóðunni Stjórn Kristilega demókrataflokks- ins, flokks Helmuts Kohls, fyrrver- andi Þýskalandskanslara, krafðist þess í gær að hann greindi opin- berlega frá því hvaðan fjárframlög í leynisjóði flokksins komu. Aðal- ritari flokksins, Angela Merkel, sakaði meira að segja kanslarann fyrrverandi um lögbrot. Mikill þrýstingur er á kristilega demókrata að reyna að draga úr áhrifum hneykslisins og þeir gagn- rýna nú Helmut Kohl harkalega. Er hann varaður við þvi að reyna að leyna upplýsingum um fjár- framlögin, sem svara um 90 millj- ónum íslenskra króna, sem kristi- legir demókratar fengu á árunum 1993 til 1998. í grein í Frankfurter Allgemeine Zeitung leggur Merkel til að flokk- urinn segi skilið við Kohl. Angela Merkel, ritari Kristilega demókrataflokksins, leggur til að flokkurinn segi skilið við Kohl. Símamynd Reuter „Viðurkenning Kohls hefur skað- að flokkinn. Nú getum við tekið örlögin í eigin hendur," skrifar Merkel. Hún hvetur jafnframt Kohl til að segja af sér þingmennsku og af- sala sér titlinum sem heiðursfé- lagi flokksins. Það er mat Merkel að „ólöglegt athæfi“ Kohls geti haft þær afleiðingar að bæði hann og flokkurinn missi allt traust kjósenda. Margir voru þungbúnir á svip er þeir komu til stjómarfundarins í Bonn í gær. Wolfgang Schauble, sem í fyrra tók við formennsku flokksins eftir Kohl, sagði að menn hefðu verið sammála um að allir sem tengdust málinu, meira að segja Kohl, yrðu að segja allt sem þeir vissu þegar rannsókn endurskoðenda, sem sleppt tveimur gísla sinna. Hann hafði þó á þriðjudagskvöld skotiö annan karlinn og sært. Konan særðist er byssumaöurinn sprengdi handsprengju inni í bankanum. Á myndinni má sjá sérsveit lögreglunnar utan við bankann. Símamynd Reuter Kjell Magne Bondevik brattur: Stjórnin heldur lík- legast velli til 2001 Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráöherra Noregs, segir nú meiri lík- ur en áður á að minnihlutastjórn hans haldi velli þar til eftir kosning- arnar á árinu 2001. Og það þótt sam- eining norska símafyrirtækisins og wWMjgBf, þess sænska hafi farið út um þúfur. „Ég hef sagt það áður að likurnar V i jjjf á að ég sitji i embætti fram að Fl næstu kosningum væru 50 prósent. [S Svarið nú er meira en 50 prósent," sagði Bondevik á fundi með blaða- rm mönnum í tilefni jóla og áramóta. W ^ Æ „Undanfarið ár hefur verið gott ^ f ÆföA fyrir ríkisstjórnina, enda þótt svipt- j J ingar hafi veriö nú í árslok," sagði g forsætisráðherrann. Samruni símafélaganna rann út í rep|l|lak sandinn eftir margra mánaða samn- ^ ingaviðræður. Þjóðrembu stjórn- Kjell Magne Bondevik, forsætisráð- enda fyrirtækjanna tveggja er kennt herra Noregs, er bara ánægður meö um hvemig fór. sig og sína við aldarlok. Tafir á flugi eftir aö þota hrapaði Miklar tafir uröu á farþegaflugi um Stanstead-flugvöll við London í gær eftir að flutningaflugvél af gerðinni Boeing 747 frá kóreska flugfélaginu hrapaði skömmu eft- ir flugtak. Allir fjórir í áhöfn vél- arinnar týndu lífi. Flugvellinum var þegar í stað lokað og öllu flugi aflýst. Þá var nærliggjandi vegum lokað fyrir allri umferð. Kóreska flutningaþotan varð eitt eldhaf þegar hún hrapaði til jarðar á ræktarlandi skömmu eft- ir flugtak. Þotan var á leið til Mílanó á Italíu. Að sögn fjölmiðla voru sprengiefni um borð. „Þetta var alveg hryllileg upp- lifun,“ sagði sjónarvotturinn Jeff Whalley í viðtali við Sky sjón- varpsstöðina. Hann sagði að þot- an hefði hrapað nærri hraðbraut og að litlu hefði munað að illa færi fyrir ökumönnum. Embættismenn sögðu að annar svarti kassinn úr þotunni væri fundinn. flokkurinn hefur leitað til vegna málsins, hefst. Schauble vildi hins vegar ekki tjá sig um grein Merkel. Upp komst um leynisjóði Kristi- lega demókrataflokksins þegar þýska þingið hóf rannsókn á ásök- unum um að starfsmenn flokksins hefðu þegið greiðslu gegn því að liðka fyrir sölu á stríðsbílum til Sádi-Arabíu árið 1991. Það var stjórn Kohls sem samþykkti við- skiptin. Sjálfur hefur Kohl þvertekið fyr- ir að gjafimar til flokksins hafi haft áhrif á ákvarðanir stjórnar hans. Saksóknaraembættið íhugar nú hvort ákæra eigi kanslarann fyrrverandi. Bandaríkjamenn á varðbergi vegna ofbeldis Bill Clinton Bandarikjaforseti sagði í gær að gífurlegar varúðar- ráðstafanir yrðu gerðar til að koma i veg fyrir árásir skæruliða um áramótin. Clinton sagði fréttamönnum, þegar hann heim- sótti fátækra- hjálp í Was- hington, að viö- búnaðurinn væri meiri í kjölfar handtöku karl- manns frá Alsír í síðustu viku. Al- sírbúinn hefur nú verið ákærður fyrir að smygla sprengjuhlutum inn til Bandaríkjanna. í viðtali sem forsetinn veitti sjónvarpsmanninum Larry King og sýnt verður í dag segist hann ráðleggja bandarískum borgurum að gera það sem þeir ætluðu sér yfir hátiðarnar. Hann hvetur þó almenning til að vera á varðbergi og tilkynna allt grunsamlegt til viðeigandi yfirvalda. ri^iTÍld^Q Sérverslun með gamla muni og húsgögn Langholtsvegi 130, s(mi: 533 33 90 Ný sending! Úrval af smáhlutum til gjafa Opið: Mán. - laug. 12:00 - 19:00 / Sunnud. 12:00 -18:00 IKola / brenniofnar frá ca. 1940/frá kr. 85.000,- RAÐGREIÐSLUR Furubekkir frá ca. 1900 / frá kr. 42. Furuskápar frá ca. 1900 / frá kr. 47.000, Félag járniðnaðarmanna Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár. Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar, á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 30, Reykjavík, ásamt meðmælum a.m.k. 99 fullgildra félagsmanna. Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess tillögur um 1 til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra. Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 17.00 fimmtudaginn 20. janúar 2000. Stjórn Félags járniðnaðarmanna Tilvalin 10-30% afsláttur af jólabókum í Húsasmiðjunni Skútuvogi HUSASMIÐIAN Sími 525 3000 • www.husa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.