Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2000, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2000, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 19 Allt um stelpurnar á jólamóti Katnn Gunarsdottir. Gyöa Ulfarsdottir, Harpa Vifilsdotir og Hafdís Hinriksdottir fagna vel FH-marki í sígurieik gegn Val í 1. deild kvenna i gær en Magnús Teitsson þjálfari er þegar farinn aö hugsa um aö stelpurnar nái aftur upp einbeitingunni í vörninni. DV-mynd Hilmar Pór Stiórnarformaöur Wimbledon: Oskar Kristjans son er hættur aö þjalfa kvenna landsliöiö körfubolta Sam Hammam, stj ómarformaður enska knattspymu- liðsins Wimbledon, sá í gær ástæðu til að lýsa yfir sér- stakri ánægju með þá leikmenn sem norski þjáifarinn Egil Olsen hefur keypt til liðsins frá * * m þessa SK ÓÓJ Haukur hjá Válerenga Knattspyrnumaðurinn Hauk- ur Ingi Guðnason hefur þessa viku dvalið við æfingar hjá norska A-deild- arliðinu Váler- enga en for- ráðamenn fé- lagsins buðu honum að koma til félags- ins og kynna- sér aðstæður hjá því. Haukur er samningsbund- inn enska A- deildarliðinu Liverpool og á eitt og hálft ár eft- ir af samningi sínum við félagið. Umboðsmaður Hauks hefur und- anfarin misseri verið að svipast um eftir öðru félagi fyrir Hauk enda virðist hann ekki vera inni í framtíðarplönum Gerards Houlliers, knattspyrnustjóra hjá Liverpool. Að sögn Guðna Kjartanssonar, fóður Hauks, hefur ekki verið rætt um kaup Válerenga á Hauki Inga enn sem komið er en hann verður hjá liðinu til morguns. Guðni segir að Haukur ætli ekki að ana að neinu enda hafi hann það gott í Liverpool þó svo hann hafi ekki fengið að spreyta sig sem skyldi. -GH Finnski körfuboltinn: Anægður með Hermann því hann tók við þjálfarastöðunni hjá Wimbledon. Hermann Hreiðarsson var á sínum tíma keyptur til Wimbledon í stað Chris Perry. Og Hammam lofar Her- mann í hástert: „Hermann er miklu betri leikmaður en Perry og þar munar ekki litlu. Hermann er mun fljótari en Perry, mun sterkari í loftinu í skallaboltum og hann er einnig yfirvegaðri með knöttinn," sagði Hammam meðal annars í gær og ljóst að hann er yfir sig ánægður með kaupin á Hermanni og frammi- stöðu hans hjá félaginu til Kvennalandsliðið í körfuknattleik: Óskar hættur Óskar Kristjánsson, þjálfari íslands- og bikarmeistara KR i kvennakörfu, hefur ákveðið að láta af störfum sem landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta. Óskar hefur verið landsliðsþjálfari í tæpt ár og stjórnaði landsliðinu til sigurs í 2 af 3 leikjum á æfingamóti í Lúxemborg síðastliðið vor en honum og öðrum körfuknattleikskonum til mikilla vonbrigða var hætt við tvær landsliðsferðir í haust. Þetta er mikill missir fyrir kvennalandsliðið því Óskar hefur sannað sig sem besti þjálfari landsins og hefur KR sem dæmi unnið 41 af síðustu 42 leikjum sínum í öllum keppnum undir hans stjóm. Óskar lætur af störfum þar sem hans bíður vinna erlendis frá og með vorinu en tvö verkefni eru á dagskrá hjá landsliðinu í vor, æfingaferð til Lúxemborgar og undankeppni Evrópumóts í Austurríki. KKÍ leitar nú eftirmanns Óskars. Falur Harðar- son var seldur til Honko, efsta liðsins í Finnlandi. Falur seldur til toppliðsins Falur Harðarson hefur skipt um lið í fmnska körfuboltanum, þvi topplið fmnsku deildarinnar, Tapiolan Honko, hefur keypt upp samning hans við ToPo. Það var bara ekki Falur sem fór i þessari sölu til Honka, því þjálfari ToPo, finnski landsliðsþjálfarinn Aaron McCarthy og fyrirliði ToPo, Sakari Pehkonen, fóru einnig yfir til Honko. Falur hefur leikið vel með ToPo, hefur hitt úr 47% af 3ja stiga skotum sínum sem er það fjórða besta i deildinni og var kominn á gott skrið eftir rólega byrjun. Það er þó óvíst með stöðu Fals hjá Honka sem hefur unnið 15 af 18 leikjum sínum í vetur, því liðið er með stóran og breiðan hóp. Ástæða þessarar sölu er slæm fjárhagsstaöa ToPo í kjölfar vandræða með erlendan leikmenn og meiðslavandræða í liðinu í vetur. -ÓÓJ Eiöur í aðgerð sem fyrst Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaðurnn skæði sem leikur með Bolton á Englandi, gæti þurft að fara í aðgerð síðar á þessu tímabili en meiðsli í nára hafa gert vart við sig hjá Eiði. Læknar Bolton-liðsins segja að aðgerðin þurfi ekki að eiga sér stað á allra næstu dögum eða vikum en fyrr eða síðar þurfi að framkvæma hana. Það mundi þá þýða að Eiður yrði frá í einhverjar vikur og það yrði mikið áfall fyrir Bolton enda hefur Eiður leikið sérlega vel með liðinu á leiktíðinni og er markahæsti leikmaður liðsins. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.