Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2000, Blaðsíða 2
20 + 21 Sport Japanski knattspyrnumaðurinn Hidetoshi Nakata hefur samþykkt að ganga í raðir Roma frá Perugia. Roma greiðir fyrir leikmanninn rúman millj- arð króna. Nakata, sem kjörinn var knattspyrnumaður ársins í Asíu, kom til Perugia fyrir 18 mánuðum á 300 milljónir þannig hann hefur hækkað gríðarlega í verði. Ben Thatcher, varnarmaður hjá enska A-deildarliðinu Wimbledon, hef- ur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir að gefa Nicky Summerbee, leikmanni Sunderland, olnbogaskot í andlitið í leik liðanna á dögunum. Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en aganefnd enska knattspyrnusam- bandsins studdist við myndbandsupp- töku af leiknum. Sigurður Jónsson skoraði eitt af mörkum Dundee United þegar liðið sigraði áhugamannalið Orlando, 8-1, í æfingaleik í Flórída í gær en lið Dundee Utd hefur verið á æfingaferða- lagi í Bandaríkjunum. Anton Pálsson og Hlynur Leifsson eru komnir með alþjóðlegt dómarapróf í handknattleik en þeir stóðust próf evrópska handknattleikssambandsins í Slóveníu í síðustu viku. Gunnar Viðarsson og Stefán Arn- aldsson dæma í kvöld leik Hollend- inga og Tyrkja í undankeppni HM i handknattleik og þeir Guðjón L. Sig- urðsson og Ólafur Örn Haraldsson dæma leik Svisslendinga og Hvit- Rússa í sömu keppni. Dómaranefnd FIFA hefur gefið út nýjan lista yfir alþjóðlega dómara. Ari Þóróarson og Kári Gunnlaugsson hafa ákveðið að láta af störfum og í þeirra stað koma Gunnar Gylfason og Sigurður Þór Þórsson sem alþjóðleg- ir aðstoðardómarar. Dómarar á islenska F/FA-listanum eru: Bragi Bergmann, Egill Már Mark- ússon, Gylfi Orrason og Kristinn Jak- obsson og aðstoðardómarar eru: Einar Guðmundsson, Eyjólfur Finnsson, Gunnar Gylfason, Haukur Ingi Jóns- son, Ólafur Ragnarsson, Pjetur Sig- urðsson og Sigurður Þór Þórsson. Þýskur lœknir, ættaður frá Austur Þýskalandi, var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir að gefa ungu sundfólki stera. Læknirinn, Lothar Kipke, sem er 72 ára gamall, starfaði á árum áður fyrir sundsamband Austur- Þýskalands og stundaði það þá að gefa ungu og efnilegu sundfólki hættuleg steralyf án vitundar íþróttafólksins. Þaö eina sem Kipke hafði sér til máls- bóta í réttaarhöldunum var að engin vitneskja um skaðsemi steralyfja hefði verið til staðar í gamla daga. Enn er tekist á um það í Bretlandi hvort Mike Tyson fái landvistarleyfi í Bretlandi og geti barist við breska meistarann í þungavigt hnefaleika, Julius Francis. Líklegt er talið, svo fáránlegt sem það er, að það komi ekki í ljós fyrr en Tyson lendir á breskum flugvelli næsta sunnudag hvort hann fær að dvelja í Bretlandi eða ekki. Roma hefur í hyggju að stækka leik- mannahópinn enn frekar og á i samn- ingaviðræðum við Bayer Leverkusen um að fá Brasilíumanninn Emerson fyrir næsta tfmabil. -GH/JKS/-SK NBA-DEILDIN Úrslit í nótt: Boston-LA Clippers .....95-88 Pierce 22, Walker 19 - Odom 26, Taylor 22. Indiana-Washington .... 117-102 Rose 25, Smits 19 - Howard 23, Richmond 17. Toronto-Orlando........108-102 Carter 30, Bogues 22 - Abdul-Wahad 23, Doleac 20. Detroit-New York.......114-108 Hill 29, Hunter 29 - Sprewell 23, Houston 22. Milwaukee-LA Lakers . . . 94-103 Allen 25, Cassel 24 - O'Neal 27, Bryant 22. Denver-Seattle...........93-103 McDyess 26, Mercer 25 - Payton 35, Barry 21. Portland-Cleveland .......95-75 Wallace 25, Smith 18 - Kemp 18, Murray 17. Vancouver-Phoenix ........92-95 Harrington 19, Abdur-Rahim 17 - Kidd 20, Longley 15. Leik Charlotte og Chicago var frestað, en Bobby Phillis leikmaður Charlotte lést í bílslysi í gær. FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 Yfirbyggt knattspyrnuhús í Reykjavík: Undirbúningur í fullum gangi Þeir aðilar sem áhuga höfðu að taka þátt í lokuðu útboði varðandi byggingu yfirbyggðs knattspyrnu- húss í Grafarvogi hafa skilað inn gögnum og á stjómarfundi í Inn- kaupastofnum á mánudag kemur í ljós hvaða stefnu málið tekur. Að sögn Ómars Einarssonar hjá ÍTR verður ljóst þá hverjir koma til með að fá málið. Ómar sagðist ekki þora á þessu stigi málsins að segja til um hvenær framkvæmdir við hús- ið gætu hafist. Eftir fundinn á mánu- dag skýrast málin verulega. Ekki vitað hvenær fram- kvæmdir geta hafist Ekki er vitað á þessari stundu hvenær framkvæmdir geta hafist en það fer að sjálfsögðu eftir hvað kem- ur út úr samkeppninni. Ómar var inntur eftir hvað svona hús yrði lengi í byggingu en knatt- spyrnumenn í Reykjavík hafa í mörg ár átt þann draum heitastan að hús af þessu tagi rísi. „Það getur verið mjög mismun- andi en bygging húss í Reykjanesbæ hefur gengið vel. Ferlið er þannig að eftir að þessir aðilar verða valdir, sem taka þátt í lokaútboðinu, fá þeir afhent gögn sem við erum að klára að útbúa. Inn í þeim gögnum kemur fram hverjar eru lágmarkskröfur að hálfu okkar til hússins í Reykjavík. Það verður alla vega gert ráð fyrir löglegum knattspyrnuvelli sem yrði þá aðeins stærri en í Reykjanesbæ," sagði Ómar Einarsson. Ómar var spurður hvað liði bygg- ingu yfirbyggðar 50 metra sundlaug- ar í Laugardal. Langþráður draumur sundmanna einnig að rætast „Það hefur verið unnið að því í vetur að hanna það mannvirki frek- ar. Ein tillagan, sem var dæmd best að undangenginni samkeppni, hefur verið í hönnun með arkitektinum. Það liggja núna fyrir tillögur um sundlaugina og það er núna að fara í kynningarferli á nefndum borgarinn- ar á næstu dögum eða vikum. Það er alveg óráðið hvenær framkvæmdir geta hafist því eftir er að ræða fjár- mögnunarhliðina á því dæmi,“ sagði Ómar. Fyrsta yfirbyggða knattspyrnu- húsið á landinu er risið í Reykjanes- bæ og verður húsið tekið formlega í notkun til æfinga og keppni á næstu dögum -JKS Heiðar fær skírnina gegn Liverpool Víkingur R. 13 7 5 1 275-235 19 FH 13 7 3 3 314-255 17 Haukar 13 7 3 3 301-248 17 Grótta/KR 13 8 1 4 291-240 17 Valur 13 7 2 4 297-229 16 ÍBV 11 6 3 2 265-228 15 Stjarnan 13 7 0 6 309-277 14 Fram 12 5 0 7 275-285 10 fR 13 5 0 8 221-271 10 KA 13 1 1 11 230-311 3 Afturelding 11 0 0 11 179-378 0 Víkingar aftur á topp 1. deildar kvenna i handbolta i gærkvöl: „Raðfullnæging“ - sagði Þórdís Brynj ólfsdóttir eftir að FH vann Val og fór í annað sætið Heiðar Helguson var kynntur fyrir blaðamönnum á Englandi í gær en sem kunnugt er gekk hann frá samningi við enska A-deildar- liðið Watford í fyrradag og er þar meö orðinn dýrasti knattspyrnumaður félagsins. „Heiðar er mjög fljótur leikmaður sem er sterkur í loftinu og vill láta að sér kveða í vita- teig andstæðing- anna,“ sagði knatt- spyrnustjórinn Gra- ham Taylor á blaða- mannafundi í gær þar sem Heiðar klæddist Watford- búningnum í fyrsta skiptið. „Við höfum séð Dani, Svía og Norðmenn vera að gera það gott í ensku knattspyrn- unni á síðustu árum og ég hef oft sagt að það kæmi næst að íslend- ingi,“ sagði Taylor ennfremur. Heiðar fær eldskírnina með Watford-liðinu á laugardaginn en þá tekur það á móti Liverpool á heimavelli sínum, Vicarage Road. Þar á Liverpool harma að hefna en Watford vann mjög óvænt í fyrri umferðinni á Anfield Road, 0-1. Heiðar verður í fremstu víglínu ásamt Xavier Gra- velaine og verður fróðlegt að sjá hvernig honum gengur gegn vörn Liverpool sem er ein sú besta á Englandi i dag. Watford hefur ekki gengið vel að skora og vonar Heiðar að hann sé svarið við því vandamáli „Mér finnst ég ekki vera undir neinni pressu enda hef ég verið í þessari stöðu áður þegar þegar ég fór til Lilleström fyrir tveimur árum. Ég finn auð- vitað fyrir taugaspennu en það er ekkert vandamál," sagði Heiðar á blaðamannafundinum í gær. -GH „Þetta var upp á líf eða dauða hjá okk- ur að taka þennan leik. En við gerðum það sem fyrir okkur var lagt og höfðum sigur. Vömin var léleg í fyrri hálfleik en hún small saman undir lokin,“ sagði Þórdís Brynjólfsdóttir, leikmaður FH, eftir 27-23 sigur á Val að Hlíðarenda í gær og hún og bætti við: „Brynja mín, ef eitthvað er fullnæging þá var þetta rað- fullnæging." Með sigrinum skaust FH í 2. sæti deildarinnar. Valur var sterkari aðUinn lengst af í leiknum, hafði tveggja til þriggja marka forystu í fyrri hálfleik, og í leikhléi var staðan 15-12. En FH lét ekki bugast, jafnaði 18—18 og komst yfir 22-21 en þeg- ar rúmar 8 mínútur voru eftir af leikn- um var staðan jöfn, 23-23, og þá skellti FH-vömin og Jolanta i markinu í lás og Valur skoraði ekki mark það sem eftir lifði leiks á meðan HrafnhUdur Skúla- dóttir setti þrjú mörk fyrir FH. „Við kunnum greinUega ekki að vera undir og náum ekki almennUegri for- ystu, Qómm, fimm mörkum. Við vorum eins og hálfvitar í vörninni. Þetta setur okkur vissulega i slæma stöðu í deUd- inni en deUdin skiptir engu máli, við vinnum titUinn og það er það sem skiptir máli,“ sagði Brynja Steinsen sem var langbest i liði Vals og skoraði 12 mörk. Mörk Vals: Brynja Steinsen 12/7, Helga S. Ormsdóttir 3, Sigurlaug R. Rúnarsdóttir 3, Anna Steinsen 2, Eivor Pála Blöndal 1, Gerö- ur Beta Jóhannsdóttir 1, Arna Grímsdóttir 1. Varin skot: Berglind Hansdóttir 4/1, Alda Jóhannsdóttir 4/1. Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 10/6, Hrafnhildur Skúladóttir 7, Dagný Skúladóttir 5, Björk Ægisdóttir 3, Guðrún Hólmgeirsdótt- ir 2. Varin skot: Jolanta Slapikiene 14, Gyða Úlfarsdóttir 2. Víkingsliðið á toppinn Víkingskonur unnu nokkuð sann- færandi sigur á þungu Framliði í Víkinni í gær, 27-22. Víkingar enduðu fyrri hálfleikinn mjög vel og breyttu stöðunni úr 5-5 í 14-8, sem var hálf- leiksstaðan. Framkonur komu sterkar inn eftir hléið og skoruðu 7 mörk gegn tveimur á fyrstu 9 mínútunum en nær komust þær ekki og Víkingar tryggðu sér sigur og toppsæti deildarinnar. Sigur Víkinga gat orðið stærri því þær misnotuðu fimm víti í leiknum. Helga Birna Brynjólfsdóttir átti mjög góðan leik fyrir Víking en ann- ars voru margar að skila góðum leik. Guðmunda Kristjánsdóttir skoraði góð mörk, Kristín Guðmundsdóttir var alltof rög við að skjóta en átti níu stoðsendingar og Svava Sigurðardóttir kom sterk inn síðustu 20 mínútumar. Hjá Fram var Hafdís Guðjónsdóttir allt í öllu, gerði 4 mörk og átti undir- búing að öðrum 9. Mörk Víkings: Helga Birna Brynjólfs- dóttir 7/1, Guömunda Kristjánsdóttir 5, Heiðrún Guðmundsdóttir 4/1, Svava Sigurð- ardóttir 4, Kristín Guðmundsdóttir 3, Mar- grét Egilsdóttir 2, Anna Kristin Ámadóttir 1, Eva Halldórsdóttir 1. Helga Torfadóttir varði 17/1 skot, þar af 11 síðustu 20 mínút- urnar. Mörk Fram: Marina Zueva 7/6, Hafdís Guðjónsdóttir 4, Katrín Tómasdóttir 4, Bjarney Bjarnadóttir 2, Olga Prokhorova 2, Dianna Guðjónsdóttir 2, Svanhildur Þeng- ilsdóttir 1. Hugrún Þorsteinsdóttri varði 12/1 skot. Öruggt hjá Eyjastúlkum Eyjastelpur unnu óvæntan sigur á toppliðinu Haukum, 22-20, í Eyjum. ÍBV var mun sterkara í upphafi leiks, komst í 5-2 og staðan í hálfleik var 13-9, ÍBV í vil. Haukarnir voru ákveðnir i að gefast ekki upp og þegar 8 mínútur lifðu eftir af leiknum kom góður kafli hjá þeim. Þær náðu að minnka muninn í eitt mark, en það var eins og Eyjastúlk- ur gætu alltaf aukið muninn þegar á þurfti að halda, enda skoruðu þær 4 mörk i röð, staðan orðin 20-16 og aðeins um 3 mínútur til leiksloka. ÍBV spilaði skynsamlega það sem eftir var. Mörk ÍBV: Amela Hegic 10/4, Anita Andr- eassen 6, Mette Einarssen 4, Ingibjörg Jóns- dóttir 2/1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 3, Lukrecya Bokan 13/1. Mörk Hauka: Harpa Melsted 9/1, Hanna G. Stefánsdóttir 3/1, Inga Fríða Tryggvadótt- ir 2/1, Tinna B. Halldórsdóttir 2, Sandra Aulyte 1. Varin skot: Hjördís Guðmundsdótt- ir 4, Berglind Hafliðadóttir 5. Annar sigur ÍR í röð ÍR vann sinn annan leik í röð, nú á íslandsmeisturum Stjömunnar, þrátt fyrir að vera án síns besta leikmanns, Katrínar Guðmundsdóttur. ÍR vann 16-13 en Stjarnan var yfir 7-8 í hálf- leik en ÍR var betra í lokin. Jenný Ásmundsdóttir varði 25 skot í marki ÍR, mörg frá Ragnheiði Steph- ensen sem gerði aðeins eitt mark í leiknum. Mörk ÍR: Ingibjörg Jóhannsdóttir 8, Anna Sigurðardóttir 2, Inga Jóna Ingimund- ardóttir 2, Áslaug Þórisdóttir 2, Hrund Scheving 1, Heiða Guðmundsdóttir 1. Mörk Stjömimnar: Nina K. Bjömsdótt- ir 7, Sigrún Másdóttir 3, Ragnheiður Steph- ensen 1, Hrund Grétarsdóttir 1, Anna Blön- dal 1. Að lokum vann Grótta/KR KA á Ak- ureyri, 10-21. -ih/JS/ÓÓJ Weah byrjar vel hjá Chelsea Líberíumaðurinn George Weah var maður kvöldsins í enska boltanum í gærkvöld. Weah skoraði þá sigurmark Chelsea gegn Tottenham í fyrsta leik sínum með Chelsea en hann er í láni frá AC Mílan. Weah mun leika með Chelsea út leiktíðina og jafnvel lengur. Hann var mjög ósáttur við að fara frá AC Mílan til Chelsea og vildi fyrir alla muni leika áfram með liði á Italiu. En jafnframt fór Weah fógrum orðum um Chelsea og í gærkvöld, þremur mínútum fyrir leikslok, gerði þessi frábæri knattspyrnumaður sér lítið fyrir og skoraði eina mark leiksins með skalla. Með sigrinum komst Chelsea í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar, er niu stigum á eftir toppliði Leeds United og „á lífi“ í toppbaráttunni. Eiður Smári eina glætan Bolton tapaði fyrri leik sínum í undanúrslitum enska deildabikarsins gegn Tranmere, 0-1, á heimavelli sínum. Hill kom Tranmere yfir á 22. mínútu og bæði lið gátu bætt við mörkum. Eiður Smári Guðjohnsen var yfirburðamaður í liði Bolton og mjög óheppinn að skora ekki er markvörður Tranmere varði skalla hans af stuttu færi. Guðni Bergsson lék í vöm Bolton og átti ágætan leik. Að öðm leyti var lið Bolton arfaslakt í leiknum og liðið á heima í 1. deild sem stendur. Arnar Gunnlaugsson var á bekknum og kom inn á á 54. mínútu hjá Leicester sem sigraði Fulham eftir vítaspyrnukeppni í átta liða úrslitum deildabikarsins á heimavelli sínum. Fulham er þar með úr leik í keppninni þar sem liðin leika ekki heima og heiman fyrr en í undanúrslitum keppninnar. Fulham komst í 0-2 en Leicester jafnaði og Fulham komst síðan yfir í upphafi framlengingarinnar en Ian Marshall skoraði jöfnunarmark Leicester á 111. mínútu. í vítakeppninni skoraði Leicester úr þremur vítaspyrnum en Fulham úr engri. -SK Leikmenn og þjálfarar Hafnarfjarðarúrvalsins í handknattleik hittust í hádeginu í gær og snæddu saman. Þeir mæta íslenska landsliðinu í Kaplakrika í kvöld og þeir lofa því að veita lærisveinum Þorbjörns Jenssonar verðuga keppni. DV-mynd Hilmar. Sport Leikmenn stjörnuleiks KKÍ sem er um næstu helgi valdir í gær: Friðrik sótti á heimaslóðir Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur, og Ingi Þór Steinþórsson hittust í gær á blaðamannafundi fyrir stjörnuleik KKÍ, sem fer fram í íþróttahúsinu í Strandgötu á laugardaginn. Þeir félagar stjórna liðum Esso (Ingi) og Sprite (Friðrik) þar sem lið þeirra, Njarðvík og KR, voru í tveimur fyrstu sætum deildarinnar þegar úrvalsdeildin var hálfnuð. Friðrik fékk að byrja valið og völdu þeir erlenda leikmenn sína fyrst. Það vakti athygli að báðir völdu leikmann úr sínu liði fyrsta íslendinga en Friðrik sótti alls fjóra menn í lið sitt úr Njarðvík en valdi engan KR-ing en Ingi náði aftur á móti í einn Njarðvíking í sitt lið. Friðrik valdi 9 af 12 leikmönnum sínum frá Suðurnesjunum en Ingi Þór sótti leikmenn sína i níu lið. Friðrik hugsaði sig vel um fyrir hvert val og svo fór að hann féll á tíma. Liðin koma til með að koma saman fyrir leik og heimsækja Barnaspítala Hringsins en einnig verður troðslukeppni og 3ja stiga skotkeppni í leikhléi stjömuleiksins sem hefst klukkan 16. Val Friðriks Inga: Brenton Birmingham, Grindavík, Keith Veney Friðrik Ingi. Arnar til Wednesday? - Andy Booth færi þá til Leicester og 115 milljón króna greiðsla að auki Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Leicester City væri á höttunum eftir Andy Booth hjá Sheffield Wednesday og tfibúið að greiða 115 milljónir og að auki fengi Wed- nesday Arnar Gunn- laugsson í skiptum. í síðustu viku hafnaði Wednesday 230 millj- óna króna tilboði i Booth frá Bradford. Martin O’Neill, knattspymustjóri Leicester City, hefur í allan vetur reynt að fá Andy Booth en ekki gengið tfi þessa. Ekki er talið ólíklegt að for- svarsmenn Sheffield Wednesday gangi að þessu tilboði. Arnar Gunnlaugs- son hefur ekki náð að tryggja sig í sessi hjá Leicester og einnig hafa meiðsli sett strik i reikninginn. Arnar gekk I raðir Leicester i fyrra og greiddi fé- lagið hátt í þrjú hundruð milljónir fyr- ir hann. Wednesday-liðinu hefur gengið afleit- lega i defidinni í vet- ur og er í neðsta sæti. -JKS Áfall fyrir kvennalið Stjörnunnar i handbolta: Þóra má ekki æfa - þarf að taka sér frí vegna álagsmeiðsla Þóra B. Helgadóttir, landsliðs- markvörður í knattspymu og handknattleikskona í Stjörnunni, verður að taka sér algjöra hvíld frá íþróttum í a.m.k. 6 vikur vegna álagsmeiðsla. „Það kom í ljós spranga í hægri leggnum vegna beinhimnubólgu sem myndast oft vegna mikils álags. Þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart miðað við það hvað ég æfi mikið og það hafa margir sagt að ég sé gangandi tímasprengja vegna þess, svo það var bara spuming um hvenær þetta gerðist. Það er komið að þeim tíma- punkti að ég þarf að velja á milli íþróttagreina og ætli ég geri það ekki upp við mig í vor þegar ég lýk stúdentsprófi," sagði Þóra í sam- tali við DV. Mikið álag hefur verið á Þóra undanfarin tvö ár þar sem hún hef- ur leikið með öllum landsliðunum í knattspyrnu auk yngri landsliða í handknattleik. „Ég held í vonina að ná því að leika úrslitaleikinn í bikarnum með Stjömunni eftir sex vikur og treysti því að stelpumar taki Val í undanúrslitunum," sagði Þóra. -ih Njarðvík, Maurice Spillers, Þór Ak., Örlygur Sturluson, Njarðvík, Fannar Ólafsson, Keflavík, Gunnar Einarsson, Keflavík, Páll Kristinsson, Njarðvik, Friðrik Ragnarsson, Njarðvík, Hjörtur Harðarson, Keflavík, Hlynur Bæringsson, Skallagrími, Guðmundur Bragason, Haukum, og Pétur Guðmundsson, Grindavík. Val Inga Þórs: Shawn Myers, Tindastól, Torrey John, Skallagrími, Kim Lewis, Snæfelli, Ólafur Jón Ormsson, KR, Teitur Örlygsson, Njarðvík, Óðinn Ásgeirsson, Þór Ak„ Bjarni Magnússon, Grindavík, Kristinn Friðriksson, Tindastóli, Steinar Kaldal, KR, Ægir Jónsson, ÍA, Hjalti Pálsson, Hamri, Svavar Birgisson, Tindastóli. Nokkrir leikmenn gáfu ekki kost á sér vegna meiðsla, meðal þeirra eru Njarðvíkingarnir Hermann Hauksson og Friðrik Stefánsson og KR-ingarnir Keith Vassell og Jónatan Bow. -ÓÓJ Bobby Phills, bakvörður Charlotte Hornets í NBA-deildinni í körfuknattleik, lést í gær í bílslysi. Phills var á leið heim tíl sín eftir morgunæfingu og lenti í þriggja bíla árekstri skammt frá íþróttahöllinni. Leik Charlotte og Chicago var í kjölfarið frestaö. Nú er ljóst að meiösli Nicolas Anelka hjá Real Madrid eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Anelka fór í aðgerö í gær vegna meiðsla í hné sem hann varð fyrir í leik Real Madrid gegn Raj Casablanca í heimsmeistarakeppni félagsliða í Brasilíu. í ljós kom aö liðbönd voru ekki slitin og getur Anelka því byrjað að æfa aftur eftir sex vikur. Roma tapaói, O-l, í ítölsku bikarkeppninni i gærkvöld gegn Cagliari. Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum keppninnar. / sömu keppni vann Inter Milan góðan sigur á AC Milan, 2-3, og síðari leikurinn er eftir. Úrslit i frönsku 1. deildinni í gærkvöld: Bastia-Marseille 0-0, Montpellier-Nantes 3-0, Rennes- Strasbourg 2-1, St. Etienne-Sedan 2-3, Le Havre-Auxerre 0-0, Troyes-Mónakó 1-4, Lens-Nancy 0-1. Maradona getur að mati lækna leikið knattspyrnu á ný eftir veikindin sem hann varð fyrir á dögunum í kjölfar eiturlyflaneyslu og drykkju. Ef Maradona langar á knattspyrnuvöllinn á ný er það þó undirstöðuatriði að hann láti kókaín og brennivín eiga sig í framtíðinni. Zdenek Zeman sagði sínu starfi lausu sem þjálfari tyrkneska knatt- spyrnuliðsins Fenerbache í gær eftir aðeins þriggja mánaða starf hjá félag- inu. Zeman sem þjálfaöi liö Roma á Ítalíu skrifaði undir eins árs samning við Fenerbache í október síðastliðið. Fenerbache er í 4. sæti tyrknesku deildarinnar, 13 stigum á eftir topp- liði Galatasaray. -SK Lokaundirbúningur íslenska landsliðsins fyrir Evrópumótið: Veitum þeim keppni „Við ætlum að reyna að veita landsliðinu verðuga keppni og von- andi tekst okkur að standa eitthvað í þeim. Möguleikar okkar á sigri eru ekki miklir. Lið okkar er ágæt blanda úr Hafnarfjarðarliðunum þremur en samæfingin er lítil sem engin. Þrátt fyrir það lofa ég góðum leikköflum hjá okkar liði,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka, en hann er einn þriggja þjálf- ara sem stýra Hafnarfjarðarúrvalinu í leik gegn íslenska landsliðinu í handknattleik sem fram fer í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn er liður í undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópumótið sem hefst í Króaatíu eftir 8 daga en fyrsti leikur íslenska landsliðsins er gegn Svíum. Sex úr Hafnarfjarðarúrvalinu hafa leikið með islenska landsliðinu en það eru: Magnús Ámason, FH, Guð- mundur Pedersen, FH, Gunnar Bein- teinsson, FH, Halldór Ingólfsson, Haukum, Hálfdán Þórðarson, FH, og Óskar Ármannsson úr Haukum. Þá lék Petr Bamrauk, Haukum, um ára- bil með tékkneska landsliðinu og Ali- asand Shamkuts, Haukum, á leiki með Hvít-Rússum. Hafnarfjörður hefur oft verið nefndur handboltabærinn enda hefur bærinn alið af sér marga snjalla handknattleiksmenn í gegnum tíð- ina. Siðustu árin hefur hins vegar enginn úr Hafnarfjarðarliðunum átt sæti í landsliðinu. „Þetta er þörf áminning til félag- anna um að eitthvað hafi bragðist og þau þurfa að lita í eigin barm. Að vísu er uppistaðan í landsliðinu í dag atvinnumenn en auðvitað eiga félög- in að keppa að því leynt og ljóst að koma mönnum í landsliðið," segir Guðmundur. „Ég held að landsliðið mæti í þennan leik á fullu gasi en þetta er mikilvægur undirbúningur liðsins fyrh- átökin i Krótatíu. Mér finnst svolítið erfitt að átta mig á stöðu landsliðsins fyrir Evrópumótið. Það er ljóst að skerpa þarf sóknarleikinn og þá hafa meiösli sett strik í reikn- inginn. Leikimir gegn Svíum og Rússum verða mjög erfiðir en við eigum að geta unnið Dani, Slóvena og Portúgala á góðum degi.“ Hefði viljað sjá Héðin í landsliðinu Ert þú sáttur vió valid á landsliö- inu? „Það er ekkert launungarmál að ég hefði viljað sjá Héðin Gilsson í þess- um hópi. Hann hefur verið að leika mjög vel í þýsku deildinni að undanfomu og þetta er leikmaður sem landsliðið hefði þurft á að halda i dag. Ég geri mér alveg grein fyrir því að Héðinn hefur átt í einhveijum úti- stöðum við HSÍ en ég hefði viljað sjá á það reyna að kalla hann aftur inn í liðið,“ sagði Guðmundur að lokum. Leikur Hafnarfjarðarúrvalsins við landsliðið er í samvinnu Iþrótta- bandalags Hafnarfjarðar og Aðal- skoðunar hf. og er hann ágóðaleikur fyrir HSÍ. Leikurinn hefst klukkan 20 og er frítt fyrir 15 ára og yngri. -GH +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.