Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2000, Blaðsíða 4
22 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2000 Sport i>v Alexander Ermolinskij atti frabæra innkomu af bekknum fyrir Grind- vikinga i bikarurslitaleiknum gegn KR um helgina. Ermolinskij fagnaöi bikarmeistaratitlinum i sínu þriöja landi en hann haföi aöur unniö í Sovetríkjunum og i Ungverjalandi. DV-myndír Hilmar Por 13 sóknarfráköst KR-inga í fyrri hálfleik'. þeir náðu fjórum í einni sókn og þremur í annarri og náði KR-liðið þannig að vera 5 stigum yflr í hálfleik þrátt fyrir að nýta aðeins 29% skota sinna í hálfleiknum (9 af 31). Fráköstin tóku þeir Vasseil, 7, Ólafur Ormsson, 3, Guðmund- ur, 1, Jakob 1 og Sörensen 1. 100% vítanýting KR-ingsins Keith Vassell í leiknum, en hann fór 12 sinnum á vítalínuna í leiknum og setti öll 12 niður. 10 sigurleikir Brenton Birmingham í röð í íslensku bikarkeppninni í körfubolta á síðustu tveimur keppnistíma- bilum. Brenton vann alla fimm leikina og titilinn með Njarðvík í fyrra og endurtók leikinn meö Grindavík i ár. 22 af 25 stig Brentons Birmingham og Péturs Guómundssonar i fyrri hálfleik. Aðeins Alexander Ermonlinskij komst á blað í hálfleiknum en í seinni hálfleik dreifðust stigin á sex leikmenn og þeir félagar gerðu 13 af 34 stigum í seinni hálfleik. tráköst KR-inga í leiknum gegn 30 frá Grindvíkingum, sem gerir 60,5% frákasta í boði í leiknum, en 34,5% skotnýting liðsins varð tií þess að KR- ingar nýttu ekki yfirburði í fráköstum og töpuðu leiknum. KR-ingar tóku alls 20 sóknarfráköst í leiknum. Grindavik hefur unniö alla þrjá bikarúrslitaleiki sína frá upphafi (1995, 1998 og 2000) og um helgina braut liðið múr með því að vinna KR í fyrsta sinn i bikarnum í 4. bikarleik liðanna. Þrir leikmenn liðsins hafa verið með í öll þrjú skiptin: Pétur Guömundsson, Bergur Hinriksson og Unndór Sigurósson. Einari Einarssyni, þjálfara Grindavíkur var mikið i mun að hans menn héldu hundrað prósent einbeitingu í leUtnum og leyfði því ekki lukkudýri þeirra Grindvíkinga að sitja á varamannabekknum. Ólafur Jón Ormsson var eini leikmaður KR sem hafði leikið áöur bikarúrslitaleik en hann tapaði einnig með KFí fyrir Grindavik 1998. -ÓÓJ Erfitt hlutverk Bjarna: Ermolinskij skipti sköpum Bjarni Magnússon hjá Grindavík meiddist þegar 13 mínútur voru eftir af leiknum og hann þurfti að horfa á lokamínúturnar án þess að geta nokkuð aðhafst. „Það kom ekki á sem skemmtileg- ustum tíma að þurfa að fara út af meiddur en sem betur fer náði lið- ið að vinna því manni hefði liðið enn verr ef við hefðum tapað. Það skipti sköpum fyrir okkur þegar Ermolinskij kom inn á síðustu 10 mínúturnar, hann varði ófá skot- in og setti niöur körfur og batt þetta vel saman. Ég hélt samt ekki að við myndum ná að vinna bikarúrslitaleikinn á 59 stigum," sagði Bjami eftir leik, en hann sneri upp á hnéð. -ÓOJ Hinn fertugi Alexander Ermolinskij - lokaði Grindavíkurteignum og skoraði 4 síðustu stigin Tolurnar tala KR-ingar áttu kannski svar við hinum snjalla Brenton Birmingham í bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík á laugardaginn en ekki við hinum fertuga Alexander Ermonlinskij sem lokaði teignum fyrir KR-inga síð- ustu 9 mínútur leiksins og tryggði Grindvíkingum bikarinn í þriðja sinn í sögu félagsins. Grindavík vann 59-55 en aðeins 114 stig vom skoruð í leiknum sem einkenndist af frábæmm varnarleik og magnaðri baráttu manna um hvem einasta lausan bolta og sýndi að körfuboltinn á sér fleiri skemmtilegar hliðar en bara í bull- andi skyttiríi og sóknarbolta. KR-ingar höfðu lengi vel betur í baráttunni um lausu boltana. KR tók alls 28 fráköst gegn 16 hjá Grindvíkingum í fyrri hálfleik, þar af þrettán í sókninni, og það átti mikinn þátt í að KR leiddi í hálf- leik, 30-25, en þó byrjuðu Grindvík- ingar leikinn mun betur. Grindvíkingar hafa aldrei tapað bikarúrslitaleik og eftir að þeir höfðu skorað 8 af 10 fyrstu stigum leiksins á fyrstu 5 mínútunum var ljóst aö vesturbæingar þyrftu að herða sig ef þessi einstaki árangur Grindvíkinga ætti ekki að haldast. KR-ingar taka frumkvæöið KR-ingar hafa átt það til að smella vörn sinni í lás í vetur og það tókst þeim í heilar 5 mínútur í fyrri hálfleik á meðan þeir sneru leiknum 15-11 sér í hag. Það var ekki fyrr en umræddur Alexander Ermolinskij setti niður tandur- hreina 3ja stiga körfu að grindvíska sóknin sá til sólar á ný. Með þessum kafla hlotnaðist KR- ingum frumkvæðið og eftir frábæra byrjun á seinni hálfleik, þar sem forskot vesturbæinga komst mest í 10 stig, 35-25, virtist vera sem svo að KR-ingar væru komnir langleiðina í átt að bikamum. Meiðsli Bjarna Magnússónar 13 og háifri mínútu fyrir leikslok hjálpaði heldur ekki Grindavíkurliðinu til að vinna upp muninn en ýmislegt átti þó eftir að breytast í leiknum. Breyttu í svæöisvörn Munurinn var í 9 stigum, 51-42, þegar Einar Einarsson, þjáifari Grindavíkur, tók leikhlé 9 mínútum og 19 sekúndum fyrir leikslok. Þetta átti eftir að verða leikhléið sem mát- aði KR-sókina: Fyrst breytti Einar vörninni í 2:3 svæði en svo gekk hann enn lengra og fór í 3:2 svæði. Einar átti nefnilega ás uþpi í ermi sinni, fertugan Rússa, Alexander Ermolinskij, sem varði fjögur skot KR-inga á síðustu 9 mínútunum, tók að auki fimm vamarfráköst á þess- Brenton Birmingham þakkar hér einum af ungu strákunum í liði KR, Guðmundi Magnússyni, fyrir leikinn en þeim síðarnefnda þykja úrslitin sár. Brenton var ekki eins áberandi og oft áöur en varð þó stigahæstur Grindvíkinga með 23 stig. um lokakafla og stal að auki einum bolta. KR-ingar nýttu aðeins 2 af 16 síðustu skotum sínum í leiknum og Ermonlinskij sinnti auk þessa sínum skyldum í sókninni og skoraði 4 síð- ustu stigin í leiknum, þau hin sömu og skildu á milli liðanna í lokin. Brenton Birmingham hefur átt betri daga en á laugardag og nýtti hann sem dæmi skotin sín aðeins 30,4% (7 af 23) en Grindavíkurliðið naut þó góðs af sjö mikilvægum körf- um og tveimur mikilvægum stoln- um boltum í seinni hálfleik sem skiluðu strax tveimur hraðaupp- hlaupskörfum á KR-inga. Guðlaugur snögghitnaöi Ekki má gleyma Guðlaugi Eyj- ólfssyni, þeim hinum sama og kom Grindvíkingum í úrlsitaleikinn með sigurkörfu á siðustu stundu í undanúrslitaleiknum því Guðlaug- ur snögghitnaði síðustu sex mínút- ur leiksins er hann geröi öll sín 10 stig, þar af tvær „rosa“ 3ja stiga körfur af rúmu færi. KR-ingar gáfu allt sitt i þennan leik og lengi vel virtist sem barátta og dugnaður þessa unga liðs ætlaöi að skila bikamum í vesturbæinn í fyrsta sinn í níu ár. Keith Vassell var frábær fyrstu 30 mínútumar, er hann gerði 26 stig og tók 18 fráköst, en þá var sem þreytan gerði vart við sig og síðustu 10 mínútumar skoraði hann aðeins 4 stig auk 4 frá- kasta. Fráköstin 22, sem hann tók í þessum úrslitaleik, em met en 10 af þeim voru sóknarfráköst. Daninn Jesper Sörensen lék einnig mjög vel ásamt Ólafi Ormssyni en ungu strákana vantaði augsýnUega reynslu tU að taka af skarið þegar Ula gekk gegn báðum svæðisvörn- um Grindvíkinga. -ÓÓJ KR (30) 55 - Grindavík (25) 59 Maöur leiksins: Alexander Ermolinskij, Grindavík. Bikarpunktar 2000 2-6, 2-8, 4-11, 16-11, 16-14, 19-14, 19-18, 21-21, 23-23, 26-23, 26-25, (30-25), 35-25, 37-26, 37-30, 44-32, 46-35, 46-40, 51-42, 51-50, 53-50, 53-55, 55-55, 55-59. Fráköst: KR 48 (20-28), Keith Vassell 28 (22 fráköst, 10 I sókn, 12 af 12 í vítum, 7 af 13 í skotum) Ólafur Jón Ormsson 10 Steinar Kaldal 8 Jesper Sörensen 5 (7 fráköst, 6 stoðsendingar) Atli F. Einarsson 2 Guðmundur Magnússon 2 Gnndavík 30 (7-23). 3ja stiga: KR 23/5, Grindavik 23/6. Dómarar (1-10): Jón Bender og Sigmundur Már Herbertsson (8). Gceöi leiks (1-10): 7. Víti: KR 13/12 (92%), Grindavík 14/11 (79%). Áhorfendur: 1500. Brenton Birmingham 23 (10 fráköst, 4 stoðsendingar) Pétur Guðmundsson 13 (6 af 10 1 skotum) Guðlaugur Eyjólfsson 10 Aleander Ermolinskij 8 (9 fráköst, 5 varin skot á 22 mínútum) Bergur Hinriksson 3 Dagur Þórisson 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.