Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Blaðsíða 4
18 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 Linda Stefánsdóttir, KR. Blóðtaka hjá KR KR-ingar urðu fyrir áfalli í gær þegar körfubolta- konan sterka Linda Stefáns- dóttir meiddist illa á hné í upp- hafi leiks gegn Keflavík. Það var mat sjúkraþjálf- ara KR að Linda hefði slitið lið- band í hné og ef það reynist rétt þá er ljóst að hún mun ekki leika meira með KR á tímabilinu. Helga Þorvaldsdóttir varð fyrir sams konar meiðslum í vígsluleik húss- ins í september, á nákvæmlega sama stað í hús- inu. „Þetta var alveg hrikalegt. Ég sagði við stelp- urnar að þær þyrftu ekki að gefa 110% eftir að Linda fór heldur að þær þyrftu að bæta 110% við,“ sagði Óskar Kristjánsson, þjálfari KR. -ih Sepp Blatíer, forseti Alþjóða knatt- spyrnusambandsins, sagði í gær að stutt væri i að knattspyrnudómarar gerðust atvinnumenn. Líklega yröi þetta orðið að veruleika siðar á þessu ári. John Gregory, framkvæmdastjóri Aston Villa, mun mjög líklega ganga frá samningi við belgíska landsliðs- manninn Luc Nilis á næstu dögum. Nilis, sem leikur með PSV Eindhoven i Hollandi, er 32 ára sóknarmaður. Gregory var í Amsterdam á dögunum og ræddi þar við Nilis og umboðs- mann hans en Nilis er laus undan samningi við PSV þegar leiktíðinni lýkur í Hollandi í vor. Alþjóda borótennissambandid hef- ur tekið mjög athyglisyerða ákvörð- un varðandi íþróttina. Ákveðið hefur verið að stækka boltann eða kúluna sem leikið er með. Þvermál boltans verður 4,0 sentímetrar framvegis í stað 3,8 sentiímetra og nemur stækk- unin því tveimur millímetrum. Breytingin tekur gildi 1. október i ár og því verður leikið með „litla" boltanum á næstu Ólympíuleikum. Tilgangurinn með stækkun boltans er að gera hann sjáanlegri fyrir áhorfendur, hægja aðeins á leiknum og gera byrjendum auðveldara fyrir er þeir hefja iðkun íþróttarinnar. Á fundi Alþjóða borðtennissambands- ins nýverið var einnig ákveðið að flytja höfuðstöðvar sambandsins frá Englandi til Sviss. Tilkynnt verdur á blaðamannafundi í dag að vamarjaxlinn Colin Hendry hafi skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Coventry City. Hendry hefur undanfarið leikið með liði Glas- gow Rangers og verið fyrirliði skoska landsliðsins. Kaupverð er talið nema einni milljón punda. Tilkynna átti um kaupin á blaðamannafundi í gær en vegna frestunar á tlugi var því frestað þangað til í dag. Á fundinum í dag verðm einnig til- kynnt um kaup Coventry á Ysrael Zungia sem er frá Perú og mikil markamaskína. Hann skoraði 36 mörk á síðasta tímabili i Perú og er mjög öflugur sóknarleikmaður. Ungverski varnarmaðurinn Janos Hrutka er á leiðinni til Middles- borough. Hann hefur verið leikmaður hjá þýska liðinu Kaiserslautern, var fastamaður í liðinu í fyrra en hefúr ekki náð að tryggja sér fast sæti í lið- inu á yfirstandandi leiktíð. Viv And- erson, aðstoðarmaður Bryans Rob- sons, var í Búdapest á dögunum er Ungverjar léku vináttuleik gegn Áströlum þar sem hann fylgdist .með Hrutka. Þjóóverjar eru ekki mjög hrifnir af landsliði sínu í knattspyrnu þessa dagana og tapið i vináttuleiknum gegn Hollandi í fyrrakvöld var ekki til að bæta ástandið. Erich Ribbeck landsliðsþjálfari hefur verið gagn- rýndur harðlega og ljóst að útlitið er allt annað en glæsilegt hjá Evrópu- meisturunum. Knattspyrnuritið Kicker gaf leik- mönnum Þýskalands einkunnir fyrir frammistöðuna gegn Hollendingum. Mest var hægt að fá 1 en 5 var lægsta einkunn. Zoltan Sebescen, bakvörð- ur frá Wolfsburg, fékk hins vegar 5,5 fyrir frammistöðuna sem segir allt sem segja þarf um hrifningu þýsku pressunnar. Jafnvel er talið liklegt að Erich Ribbeck missi starfið fljótlega og hef- ur Lothar Matthaus verið nefndur sem eftirmaður hans. Leikur þýska liðsins gegn Hollendingum var i rúst, vömin var hriplek, miöjan máttlaus og sóknarmenn fengu lítil sem engin tækifæri til að ógna marki Hollend- inga. Rúmenska hlaupadrottningin Gabriela Szabo mun gera harða hrið að heimsmetinu i 1500 og 3000 metra hlaupi kvenna innanhúss á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem hefst í dag. Hún hefur lengi ver- ið i fremstu röð í heiminum og grét um liðna helgi er henni mistókst að bæta heimsmetið. Búist er við góöum árangri á mótinu sem fram fer i Belgíu. -SK Islenska landsliðið sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í snóker í Árósum. Norðurlandamótið í liðakeppni i snóker: Meistarar - glæsilegur árangur íslendinga í Árósum íslendingar urðu í gær Norðurlandameistarar í liðakeppni í snóker í Ár- ósum í Danmörku en þetta er í fyrsta skiptið sem mótið er haldið. Liðið var skipað þeim Brynjari Valdimarssyni, Jóhannesi B. Jóhannessyni og Gunn- ari Hreiðarssyni. Liðið byrjaði á því að sigra Dani, 5-4, því næst Norðmenn og loks Svía, 7-2, i síðasta leiknum. Danir lentu í öðru sæti og Norðmenn í því þriðja. Þetta er stórglæsilegur árangur hjá liðinu og verður spennandi að fylgjast með framgangi íslendinganna í einstaklingskeppninni sem hefst i dag en mótinu lýkur á sunnudag. NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt: Washington-Phoenix........83-92 Richmond 19, Whitney 13, Howard 12 - Gugliotta 20, Rogers 16, Hardaway 13. Indiana-Chicago ..........100-83 Rose 22, Croshere 17, McKey 14 - Brand 38, Starks 11, Carr 8. Charlotte-SA Spurs.........70-72 Coleman 19, Jones 17, Wesley 9 - Robinson 16, Duncan 15, Porter 9. Minnesota-LA Clippers . . .116-91 Smith 18, Szczerbiak 16, Garnett 16 - Taylor 22, Nesby 19, Anderson 13. Utah Jazz-Dallas...........92-85 Russell 25, Malone 18, Hornacek 14 - Ceballos 26, Strickland 16, Finley 14. Houston-Denver ...........97-106 Mobley 24, Anderson 14, Wiiliams 10 - Van Exel 23, McCloud 17, Wahad 14. Portland-Orlando .........111-92 Stoudemire 30, Wells 15, Sabonis 12 - Armstrong 16, Atkins 16, Doleac 14. Vancouver-Boston..........77-101 Rahim 20, Dickerson 18, Harrington 13 - Pierce 25, Walker 24, Anderson 22. Marín Rós Karlsdóttir úr Keflavík reynir hér að bruna í hraðaupphlaup með Emilie Ramberg á hælunum. DV-mynd Hilmar Þór KR hefndi hressilega fyrir tapið í undanúrslitum bikarkeppninnar þegar liðið tók á móti Keflavík á heimavefli sínum í Frostaskjóli. Leikurinn tafðist um 15 mínútur vegna þess að leikklukkan í hinu nýja og glæsilega húsi KR-inga neitaði að taka þátt í leiknum. Það varð því að grípa til þess ráðs að hefja leikinn án þess að vall- ar- eða skotklukkan væru með og setti það óneitan- lega svip sinn á leikinn. KR byrjaði leikinn betur, komst í 8-2 en varð þá fyrir þvi áfalli að Linda Stefánsdóttir meiddist illa á hné og varð að fara á sjúkrahús. Keflvíkingar náðu ekki að nýta sér þá veikleika sem urðu í liði KR við brotthvarf Lindu enda við ramman reip að draga. KR-ingar léku stórvel, sigldu jafnt og þétt lengra og lengra fram úr Keflvíkingum sem áttu vægast sagt slakan dag. Stórleikur Hönnu „Við erum defldarmeistarar, þó við eigum þrjá leiki eftir þá eigum við að klára þá. Það var búinn að vera mikifl spenningur í kringum þennan leik, Hanna B. Kjartansdóttir átti stórleik þegar KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn með 24 stiga sigri á Keflavík og fagnar hér ásamt Kristínu B. Jónsdóttur sem einnig lék mjög vel fyrir KR í leiknum. DV-mynd Hilmar Þór bæði vegna leiksins sjálfs og svo vegna kærunnar sem við vorum með á okkur eft- ir leikinn gegn Grindavík, þar sem Keflvík- ingar kærðu. En við ákváðum að einbeita okkur bara að einu og klára leikinn," sagði Óskar Kristjánsson, þjálfari KR, eftir leik. Hanna Kjartansdóttir átti stórleik í liði KR. Hún dreif liðið áfram í sókninni, skor- aði 15 stig og var mjög öflug i varnarleikn- um. En lið KR á sterka liðsheild og það var hún fyrst og fremst ásamt krafti, vilja og einbeitingu sem tryggði liðinu þennan stóra og sanngjama sigur. Keflvíkingar áttu aldrei möguleika í þessum leik. Lykilleikmenn eins og Anna María Sveins- dóttir og Kristín Blöndal áttu skelfilegan leik og vilja sjáifsagt gleyma honum sem fyrst. En þeim verður ekki kennt einum um ófarimar, liðið var einfaldlega ekki tilbúið í leikinn og því fór sem fór. Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 16 (10 fráköst, 3 stolnir, 3 stoðsendingar), Hanna B. Kjartansdóttir 15 (8 fráköst, 6 af 10 í skotum), Kristín B. Jónsdóttir 13, Sigrún Skarphéðinsdóttir 6, Emilie Ramberg 6 (5 stoðsendingar), Gréta Grétarsdóttir 4, Hildur Sigurðardóttir 3, Linda Stefánsdóttir 3, Guðrún Ama Sigurðardóttir 2. Stig Keflavíkur: Bima Valgarðsdóttir 16, Erla Þorsteinsdóttir 13, Alda Leif Jónsdóttir 7 (8 fráköst, 6 stolnir), Anna María Sveinsdóttir 5 (4 stoðsendingar, 1 af 7 i skotum, 7 tapaöir), Kristín Blöndal 2 (4, stoðsendingar, 6 tapaöir), Marín Rós Karlsdóttir 1. -ih Vilji, styik og einbeiti - og deildarmeistaratitillinn er í augsýn hjá KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.