Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2000, Blaðsíða 2
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 25 Sport Sport Eabrian KFÍ (40) 65 - Grindavík (42) 76 Maður leiksins: Dagur Þórisson, Grindavík. Einar Karl Hjartarson stökk frábærlega í hástökkinu á ÍR- mótinu, fór yfir 2,21 m og átti mjög góðar tilraunir við 2,25 m. Einar berst nú við lágmarkið á Ólympíuleikana í Sydney sem er 2,25 metrar. UTli 0-3, 0-3, 8-13, 10-15, 16-22, 19-28, 21-31, 28-33, 34-40, (4042), 4242, 4548, 49-58, 56-64, 58-70, 62-72, 65-76. Willier Moore 25 Hrafn Kristjánsson 13 Halldór Kristmannsson 11 Baldur Ingi Jónasson 10 Guðmundur Guðmannsson 5 Tom Hull 1 Fráköst: KFÍ 34 (12-22), Grindavík 36 (8-28). 3ja stíga: KFl 23/6, Grindavík 30/5. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Helgi Bragason (7). Gœói leiks (1-10): 6. Vltí: KFÍ 27/18, Grindavík 24/18. Áhorfendur: 200. Brenton Birmingham 16 Dagur Þórisson 14 Bjami Magnússon 11 Bergur Hinriksson 10 Guðlaugur Eyjólfsson 9 Alexander Ermolinskij 9 Guðmundur Ásgeirsson 4 Sævar Garöarsson 3 n besti dagur Jóns Arnars: á tveimur tímum í Höllinni Þórður hættir með kvennalandsliðið Þórður Lárusson er hættur störfum sem landsliðsþjálfari kvenna í knattspymu. Eins og fram hefur komið neituðu 10 landsliðskonur aö leika meir með liðinu á meðan Þóröur stýrði því og eftir fund Þórðar og Eggerts Magnússonar, formanns Knattspymusambands íslands, var ákveðið að Þórður hætti en mun vinna áfram fyrir sambandið við hæfileikamótun. Þórður tók við landsliðinu í janúar 1999 af Vöndu Sigurgeirsdóttur og lék liðiö þrjá leiki undir hans stjóm, alla í undankeppni Evrópumótsins. Liðið gerði 0-0 jafntefli gegn ítölum á heimaveli, gerði 2-2 jafhtefli gegn Úkraínu ytra og tapaði 5-0 á útivelli fyrir Þýskalandi. -ÓÓJ framtak Iþróttaljós Stefán Kristjánsson Enn einu sinni buðu ÍR-ingar upp á stórkostlegt mót í frjálsum íþróttum í Laugardalshöllinni. Stórmót ÍR tókst í alla staði vel ef frá er talið leiðinlegt at- vik í stangarstökki kvenna þar sem dómaramistök litu dags- ins Ijós. Evrópumeistarinn frá Tékklandi var að einhverju leyti sleginn út af laginu en hér var þó um smámuni að ræða og varla vert að gera úr því stórmál. Dómara- mistök eiga sér alltaf stað í íþróttum og frjálsar íþróttir em ekki undntekning þar á. Enn einu sinni tókst ÍR-ingum aö ----j---------------- smala til landsins frábærum íþrótta- mönnum og mörgum í fremstu röð í heiminum. Það afrek eitt og sér seg- ir meira um ÍR-inga en mörg orð. Síðan þegar okkar fólk nær sér jafn stórkostlega á strik og raun bar vitni verður úr þessu sannkölluð veisla sem lengi verður í minnum höfð. Óeigingjarnt starf Stórmót ÍR tekur ekki langan tíma sem slíkt en undirbún- ingurinn er gríðarlega tímafrekur og kallar á óeigingjamt starf fjölda manns. tR-ingar eru heppnir aö því leyti að í fé- laginu virðist mikið úrval af kraftmiklu fólki. Fólki sem læt- ur einskis ófreistað til að gera veg frjálsra íþrótta sem mest- an og bestan. Það þarf mikinn kjark og eljusemi til að ná að koma á fót slíku móti sem Stórmót ÍR er. ÍR-ingum hefur gengið vonum framar að fá hingað snjalla íþróttamenn sem glatt hafa augu íþróttaunnenda. t framtíðinni verður vonandi auðveldara fyrir ÍR-inga að fá enn fleiri keppendur og kannski enn fræg- ari. Vonandi spyrst góður orðstir mótsins út á meðal er- lendra keppenda. Og vitaskuld eiga okkar fremstu afreks- menn í frjálsum íþróttum möguleika á því að hjálpa til við að fá hingað frægt íþróttafólk og þaö hafa þeir eflaust gert. Afrek ÍR-inga er mikiö og að mörgu leyti hafa ÍR-ingar unnið afar faglega að uppgangi og undirbúningi mótsins. Að einu leyti eru þeir alveg í sérflokki en hér á ég við samskipti ÍR-inga við fjölmiðla. Ég hef ekki tölu á öllum þeim frétta- tilkynningum sem ÍR-ingar hafa sent frá sér frá því að undirbúningur mótsins hófst. Nánast á öllum tímum sólarhrings hefur upplýsingum rignt inn á fjöl- miðla frá því að undirbúningur hófst og samstarf ÍR-inga við íjölmiðla hefur verið hnökralaust. Ótrúlega góður árangur Eftir Stórmót ÍR standa þau Vala Flosadóttir, Jón _______ Amar Magnússon og Guðrún Arnardóttir framar flestum ef ekki öllum öðrum íslenskum íþrótta- mönnum. Öll eru þau mjög framarlegaj í sinum grein- um i heiminum og hafa alla burði til að ná í allra fremstu röö. Árangur þeirra á stórmótinu var í einu orði sagt stórkostlegur. íslandsmet á íslandsmet ofan og Vala hársbreidd frá íslands- og Norðurlandameti í stangarstökk- inu. Þegar frjálsíþróttafólk okkar nær slíkum árangri í byrjun mars er ástæða til að líta björtum augum til sumarsins og keppnistímabilsins sem fram undan er. Áðurnefnt afreksfólk hefur sett stefnuna á Ólympiuleikana í Sydnéy í september, ásamt hástökkvaranum Einari Karli Hjartarsvni. Þar er gríð- arlegt efni á ferð, eitt af mörgum i islenskum rjálsum íþrótt- um í dag. Unnendur frjálsra íþrótta á íslandi bera þá von í bijósti að á góunni aö ári muni ÍR-ingar enn á ný bjóða upp á veislu í Laugardalshöllinni. -SK Emmanuel Petit, hinn franski miðju- maöur Arsenal, hefur veriö kæröur af enska knattspynusambandinu fyr- ir ósæmilega hegðun en kappinn gaf stuöningsmönnum Aston Villa merki er honum var skipt út af í leikjum liö- anna um helgina. Karl Malone hjá Utah Jazz, hefur veriö valinn leikmaöur vikunnar í NBA-deildinni í körfu en Malone skoraði 28,8 stig aö meðaltali, tók 10,8 fráköst og gaf 5,5 stoðseningar í fjór- um sigurleikjum Utah í vikunni. Detroit Pistons hafa ákveðið aö reka þjálfara sinn, Alvin Gentry, en Detroit, sem hefur unniö 28 leiki en tapað 30, er í mikilli hættu að missa af sæti í úrslitakeppni NBA í vor. Að- stoðarnaður Gentry, George Irvine, tekur tímabundið við Pistons-liöinu. Fyrrum markvöröur þýska lands- liðsins og núverandi leikmaður Real Madrid, Bodo Illgner, verður að telj- ast meö óheppnari mönnum eftir að hann fór úr axlarlið í annað sinn á aðeins þremur vikum. í gcer var dregiö í riðlakeppnina í handknattleik karla og kvenna fyrir Ólympíuleikana í Sydney í Ástr- allu sem fram fara í september á þessu ári. Tólf lið eru í karla- flokki og tiu lið eru i kvenna- tlokki. Riðlarnir eru annars eftirfar- andi hjá körlunum. A-riöill: Þýskaland, Rússland, Egypta- land, Júgóslavía, Suöur-Kórea og Kúba. B-riðiU: Svíþjóð, Spánn, Frakkland, Slóvenía, Ástralía og Túnis. Hjá konunum eru Frakkland, Rúmenía, Ungverjaland, Suður- Kórea og Angóla saman í A-riðli en í B-riðli eru Noregur, Austur- ríki, Danmörk. Brasilía og Ástr- alía. -ÓÓJ Snæfell 21 5 16 1543-1797 10 ÍA 21 1 20 1289-1920 2 Síöasta umferöin í úrvalsdeUdinni fer fram á fimmtudag og þá mætast Keflavík-Njarðvík, Þór Ak.-ÍA, Grindavík-TindastóU, KR-SnæfeU, SkaUagrímur-Hamar, Haukar-KFÍ. Tindastóll hafði unnið sex leiki í röð í úrvalsdeUdinni, átta af 10 heima- leikjum vetrarins og Stólamir höfðu unnið sex heimaleiki í röð gegn Þór og aðeins tapað einum af 11 úrvals- deUdarleikjum liöanna Þór, sem vann aðeins 1 af fyrstu sjö leikjum sínum í vetur, hefur unnið átta af síðustu 14 og fjóra leiki i röð sem er nýtt félagsmet hjá liðinu. Þórsarar geta gulltryggt sæti sitt í úr- slitakeppninni með sigri á lA á fimmtudaginn. Vegna mistaka voru ekki færöar inn í blaöið í gær réttar upplýsingar um gæði leiks Hamars og KR í Hvera- gerði á sunnudag né dómara og frammistöðu þeirra. Leikurinn fékk gæðstimpUinn 7 og dómaramir Sig- mundur Már Herbertsson og Jón Halldór Eóvaldsson stóðu sig með miklum sóma og fengu 8 í einkunn. -ÓÓJ unnu sinn fjórða leik í röð og stöðvuðu sex leikja sigurgöngu Stólanna Ágúst Guðmundsson, óðinn Ásgeirsson lék þjálfari Þórs, er á góðri mjög vel með Þór gegn leið með liðið. Tindastóli í gaer. Vala Flosadóttir (lengst til vinstri), Guðrún Arnardóttir (til vinstri) og Jón Arnar Magnússon (að neðan) stóðu sig frábærlega á Stórmóti ÍR sem fram fór í Höllinni á sunnudagskvöld. Jón Arnar setti þrjú islandsmet, Guðrún eitt og Vala var aðeins hársbreidd frá því að slá íslands- og Norðurlandamet. gestimir voru grimmari og ákveðnari í lokin og uppskáru sigur, 80-76. Hjá Tindastóli var Shawn Myers bestur, en þessi frábæri leikmaður var reyndar frekar rólegur í fyrri hálfleiknum. Svavar komst þokkalega frá leiknum og Flemming Stie átti góða spretti, en aðrir voru talsvert frá sínu besta. Hjá Þór voru Bandaríkjamaðurinn Maurice Spillers og Óðinn Ásgeirsson bestir. Hafsteinn Lúðvíksson og Einar Örn Aðalsteinsson áttu einnig mjög góðan leik, sem og leikstjómandinn Sigurður Sigurðsson. -ÞÁ Érfitt - hjá Grindavík Möguleikar ísfirðinga á því að komast í úrslitakeppnina urðu að engu í gær þegar Grindavík kom í heimsókn. Aðeins sigur gat haldið í vonina fyrir ísaijarðarliðið. Grindavík aftur á móti er í barráttunni um deildarmeistara- titilinni og tryggöi sér mikilvægan sigur, 65-76. Grindvíkingar vom alltaf skref- inu á undan og voru búnir að ná tíu stiga forrystu um miðjan fyrri hálfleik. Isfirðingar hleyptu þeim samt ekki lengra frá sér en það, og með góðum tveim síðustu mínútum náðu þeir að minnka muninn niður í tvö stig, staðan i hálfleik 40-42. ísfirðingar jöfnuðu í byrjun seinni hálfleiks en Grindvíkingar voru sterkari og með Dag Þórisson sjóðheitan á upphafsmínútunum og lögðu grunninn að þessum sigri, þeir náðu fljótt 10 stiga forrystu og héldu KFÍ vel frá sér og hleyptu á Isafiröi í gær leiknum aldrei upp aftur. Grindvíkingar unnu góðan sig- ur þó þeir spiluðu ekki vel - sem dæmi má nefna að þeir töpuðu 18 boltum, 3ja stiga nýting var 17%. Brenton Birmingham sem er með 50% hittni í 3ja stiga skotum, setti enga niður, reyndi íjórum sinnum, það má að miklu leyti þakka Guömundi Guðmannssyni sem stríddi honum oft á tíðum og setti hann úr jafnvægi með stifum vamarleik. Bestu menn KFÍ voru Willie Moore sem sýndi ágætis tilþrif, sem og Hrafn Kristjánsson og einnig Guðmundur sem var sterk- ur í vöminni. Hjá Grindavík var Dagur mjög góður, þó sérstaklega í upphafi síðari hálfleiks og sýndi oft fin til- þrif. Restin af liðinu var jöfn og gerði það sem þurfti. Sanngjam sigur, 65-76. -AGA Þórsarar gerðu góöa ferð á Krókinn í gær þegar þeir unnu sanngjaman sigur á Tindastóli, 76-80. Akureyringamir komu fullir baráttu til leiks í gær og hittu á dagsformið. Tindastólsliðið var hins vegar óþekkjanlegt frá leikjum sínum að undanförnu og virtist detta niður á sama plan og í leikjunum á móti Hvergerðingum fyrr í vetur. En það er ljóst að það má ekki á móti spræku liði ungra manna eins og Þórsliðið er sem vann þama sinn fjórða leik í röð sem er félagsmet hjá liðinu í úrvalsdeildinni. Tindastóll hafði unnið sex leiki í röð í deildinni fyrir leikinn i gær. Barátta og útsjónarsemi Heimamenn byrjuðu þó betur í leiknum í gær, en fljótlega sýndu gestimir klæmar og það vom þeir sem sýndu baráttuna í vöminni og útsjónarsemina í sókninni. En sama var ekki að heilsa hjá Tindastóli, vamarleikurinn slakur og sóknarleikurinn andræðalegur. í ofan á lag var hittnin slök, bæði langskotin og vítanýtingin. Þórsarar voru með 10 stiga forskot í leikhléi og einhvem veginn hélt maður að heimamenn mundu taka leikinn í sínar hendur í seinni hálfleiknum. Gestimir höfðu undirtökin áfram en upp úr miðjum hálfleiknum kom kafli þar sem Tindastólsmenn virtust vera að snúa leiknum sér í vil og komust reyndar yfir þegar tæpar fimm mínútur vom eftir, þá í fyrsta sinn frá því upp úr miðjum fyrri háífleik. En Tindastoll (35) 76 - Þór Ak. (45) 80 2-3, 8-3, 14-9, 22-15, 24-24, 28-31, 32-38, (3545), 3549, 64-65, 70-69, 70-73, 76-75, 76-80. w Shawn Myers Svavar Birgisson Flemming Stie Kristinn Friðiksson Sune Henrikssen ísak Einarsson 23 14 12 11 8 Fráköst: Tindastóll 30, Þór 27. 3ja stiga: Tindastóll 8/2, Þór 7/4. Dómarar (1-10): Kristján MöUer og Jón Bender (8). Gceði leiks (1-10): 7. 45-53, 51-55, 55-61, 60-65, l|| Maurice SpiUers 21 Óðinn Ásgeirsson 21 Hafsteinn Lúðvíksson 14 Einar Öm Aðalsteinsson 14 Sigurður Sigurðsson 8 Hermann Hermannsson 2 Friðrik Hreinsson 2 Helgi Margeirsson 1 Vítí: Tindastóll 17/9, Þór 14/9. Áhorfendur: 220. Maður leiksins: Maurice Spillers, Þór Ak. i EPSok Þórsarar komu öllum á óvart og sóttu tvö stig á Sauðárkrók: DEILDIIM Njarðvík 21 17 4 1907-1583 34 Haukar 21 16 5 1807-1588 32 Grindavík 21 16 5 1848-1614 32 TindastóU 21 15 6 1771-1590 30 Keflavík 21 11 10 1981-1664 22 Þór A. 21 9 12 1687-1864 18 Skallagr. 21 8 13 1740-1826 16 Hamar 21 8 13 1652-1776 16 Nýtt felagsmet Úrvalsdeildin í körfubolta: Metsigur - hjá Keflavík gegn ÍA á sunnudagskvöld Karlalið Keflavíkur hefur mátt þola misjafnar stundir í vetur en á sunnu- dag setti liðið þó jákvætt met til tilbreytingar. Liöið jafnði félagsmet sín í tapleikjum í röð í byrjun árs en setti met í úrvalsdeildinni í fyrrkvöld með því að vinna 77 stiga útisigur á ÍA, 63-140, en mest áður var 71 stiga sigur Hauka á ÍS 20. október 1988 en Haukar unnu þá Stúdenta, 119-48, í Strand- götunni. Keflavík hafði mest áður unnið 70 stiga sigur á Tindastóli 6. mars 1997, 149-79, en það er jafnframt mesta stigaskor hjá einu liði í leik. Þetta er í átt- unda sinn sem lið nær að skora 140 stig í leik og það sjötta ef aðeins er tek- iö venjulegur leiktími án framlengingar. Keflavík hefur gert 94,3 stig að meðaltali í vetur sem er það mesta í deildinni þrátt fyrir að liðiö sé aðeins í 6. sæti í úrvalsdeildinni. Skagamenn hugsa aftur á móti ekki hlýtt til Keflvíkinga sem unnu þá tvisvar í vetur meö meira en 50 stiga mun og samtals með 129 stiga mun í leikjunum tveimur, 245-116. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.