Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2000, Blaðsíða 12
 30 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 2000 > > egasta handknattleiksfólkið. Frá vinstri: Alla Gogorian, Guöjón Lokahóf körfuknattleiksmanna: Met hja - Teitur og Erla valin best í körfunni í ár Teitur Örlygsson úr Njarðvík setti tvö met á lokahófi körfuknattleiksfólks sem haldið var á fóstudagskvöld. Teitur var valinn bestur í fjórða sinn en hann og Valur Ingimundarson höfðu oftast verið valdir hestir fyrir veturinn, eða þrisvar hvor, en Teitur var valinn bestur 1989, 1992 og 1996 auk valsins í ár. Þá var Teitur einnig i liði ársins í 11. sinn en hann hefur alltaf verið í liði ársins frá 1989, fyrir utan eitt ár er hann lék erlendis. Anna María Sveinsdóttir, Keflavik, fékk sérstaka viðurkenningu fyrir 50 landsleiki, en hún var í fyrsta sinn frá 1994 ekki í liði ársins, og Bjarni G. Þórmundsson, Helgi Bragason og Svali Björgvinsson fengu allir silfurmerki sambandsins. Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík, var valin best í kvennaflokki en bestu nýliðar þóttu Ægir Hrafn Jónsson hjá ÍA og Bima Eiríksdóttir hjá Tindastóli. Ægir varð sá fyrsti til að hljóta Örlygsbikarinn en hann veittur besta nýliða deildarinnar í minningu um Örlyg Sturluson. Leifur Garðarsson var valinn besti dómarinn annað árið í röð og Rúnar B. Gíslason er sá efnilegasti. Þjálfarar ársins voru þeir Valur Ingimundarson, Tindastóli, i úrvalsdeild og Ósvaldur Knudsen, ÍS i 1. deild kvenna Lið ársins í úrvalsdeild (hve oft í liði ársins innan sviga): Fannar Ólafsson, Keflavík (1), Friðrik Stefánsson, Njarðvík (2), Ólafur Ormsson KR (1), Svavar Birgisson, Tindastóli (1), Teitur Örlygsson, Njarðvík (11). Lið ársins í 1. deild kvenna (hve oft í liði ársins innan sviga); Alda Leif Jónsdóttir, Keflavík, (4), Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik, (2), Guðbjörg Noröfjörð, KR, (7), Hanna Kjartansdóttir, KR, (3), Sólveig Gunnlaugsdótfir, Grindavík, (1). -ÓÓJ S8 Teitur Örlygsson leikmaður Njarðvíkur var valinn besti körfuknattleiksmaöur ársins í fjórða sinn á ferlinum sem er met. Teitur var jafnframt í liði ársins í 11. sinn í röö frá 1989 fyrir utan eitt tímabil jar sem hann lék erlendis. - . mm BS Wm r Besta og efm- Valur Sigurösson, Berglind Iris Hansdottir og Markus Michaelsson. DV-mynd Hilmar Þór Lokahóf handknattleiksmanna og -kvenna um helgina: Erla Þorsteinsdóttir úr Keflavík, hér að ofan, var valin besta körfuknattleikskona ársins. Erla varð níundi Kefivíkingurinn til aö hljóta þessa viðurkenningu í kvennaflokki á 12 árum. Soort dvsport@ff.is Hér fyrir neðan eru samankomnir allir verðlaunahafar á lokahófi HSÍ sem haldið var á Hótel íslandi á laugardagskvöld. Valsfólkið Markús Máni og Berglind íris efnilegust Þau Guðjón Valur Sigurðsson í KA og Alla Gorgorian í Gróttu/KR voru kosin bestu leikmenn á loka- hófi HSÍ sem fram fór á laugardagskvöld. Valsfólkið Markús Michaelsson og Berg- lind íris Hansdóttir voru kosin þau efnileg- ustu og þjálfarar ársins voru þeir Anatoli Fedukine hjá Fram í 1. deild karla og Sigur- bjöm Óskarsson hjá ÍBV í 1. deild kvenna. Bestu sóknarleik- menn vom kosin Alla Gorgorian hjá konun- um og Gintaras Savu- kynas úr Aftureldingu hjá körlunum. Bestu varnarmenn voru þau Petr Baumruk í Haukum og higibjörg Jónsdóttir úr ÍBV og bestu markverð- ir Sebastian Alexand- ersson í Fram og Helga Torfadóttir í Víkingi. Gunnar Beinteinsson I FH og Helga vom prúð- ustu leikmenn og KA í 1. deild karla og Aftur- elding í 1. deild kvenna prúðustu liðin. Petr Baumruk hlaut Valdimarsbikarinn sem besti leikmaður að mati þjálfara. Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson voru bestu dómarar annað árið í röð en Stefán hlaut þessa út- nefningu í þrettánda sinn á síðustu 14 árum sem er glæsilegur ár- angur hjá þessum frá- bæra dómara. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.