Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						Taktu ólífuolíuna

með á ströndina:

Góð á

sólbrennda


Ólífuolla er ekki bara hentug

við matseldina heldur er hún

einnig orðin ómissandi i sólbaðið

ef marka má japanska vísinda-

menn. Ólífuolían á nefnilega að

hafa fyrirbyggjandi áhrif á húð-

krabbamein og

er mselt með

því að menn

smyrji henni á

sig að sólbaði

loknu. Tilraun-

ir voru gerðar á

hárlausum

músum sem

sendar voru í

sólbað þrisvar í

viku og sýndu

þær mýs sem

voru smurðar

með ólifuoliu

miklu minni út-

brot og tilhneig-

ingu til húð-

krabbameins

heldur en þær

sem ekki fengu

ólífuolíumeð- 3ti^r--. -

ferð.  Það skal

þó tekið fram að ólífuolían er eng-

in sólarvörn og það þýðir lítið að

maka henni á sig áður en lagst er

út í sólina. Það sakar hins vegar

örugglega ekki að sletta aðeins á

sig að sólbaðinu loknu svona rétt

á meðan maður stendur hvort sem

er yfir eldavélinni með ílöskuna í

hendinni við kvöldmatarbraskið.

ÆWiú


6R0G4

Stjáni stuö vinnur í Kassagerðinni og auk þess er hann útvarpsmaour af lífi og sál og ef eltthvaö vit væri í öllum þessum útvarpsstöövum sem senda út á FM

myndi síminn í Kassagerölnnl glóa núna.

Kristján Þórðarson var snemma á seinasta áratug vel þekktur hjá útvarpshlustendum

sem Stjáni stuð er hann kynnti lög af stakri snilld, m.a. á útvarpsstöðinni Sólinni.

Seinustu ár hefur lítið sem ekkert í honum heyrst en hann tjáði Heiðari

Sumarliðasyni að hann væri samt sem áður alltaf að reyna að komast í útvarpið.

Fékkflís í rassinn

Þegar maður mætir Stjána á

vinnustaðnum hans í Kassagerð

Reykjavíkur er ekki um að villast

hver maðurinn er. Hann er vel

merktur með limmiðum á eyrna-

hlífunum sínum sem á stendur

Stjáni stuð.

„Ég fékk fyrst áhuga á útvarpi

þegar ég var HtiU en á þeim tíma

var pabbi minn útvarpsmaður á

Rás 1. Ég byrjaði svo með útvarps-

þátt á Rótinni árið 1989, þá var ég

19 ára gamall."

Eftir það var Srjáni um nokkurra

ára skeið með þátt á Sólinni en eft-

ir að hún hætti fékk hann hvergi

starf i útvarpi. Stjáni lét það ekki

halda sér frá útvarpsbransanum

heldur safnaði sér peningum og

var með eigin útvarpsstöð í viku.

„Það var rosalega dýrt þannig að

ég held að ég geri þetta ekki aftur."

Stjáni átti stóran hlustendahóp

sem lét í ljós óánægju sína með það

að hann fengi ekki inni á neinni af

útvarpsstöðvunum. Stjáni segir að

m.a. hafi eitt fyrirtæki hér í bæ

hringt í eina ónefnda útvarpsstöð

og sagst ætla að hætta að auglýsa

þar ef Stjáni fengi ekki inni hjá

þeim. Stjáni var yfirleitt einn í út-

varpinu en fékk þó öðru hvoru vin

sinn, Sigga Rokk, til að vera með

sér.

„Við erum miklir grínarar eins

og Jón og Gulli," segir Stjáni sem

vill helst spila vinsældapopp og

segist í dag vera hrifnastur af Brit-

ney Spears og Christinu

Aguilera. „Það er minn helsti

draumur að fá að vera með þátt um

helgar í útvarpi."

Gifting á kortinu

„Ég er ekki líkamlega fatlaður en

ég er samt fatlaður," segir Stjáni en

hann er 75% öryrki. „Ég hef æft

borðtennis með íþróttafélaginu Ösp

sl. 4 ár. Ég er alveg ágætur spilari

en enginn stórmeistari. Á seinasta

móti náði ég bronsinu en stefnan

er tekin á gullið eða siifrið á vor-

mótinu. Ég sætti mig ekki við

bronsið aftur," segir Stjáni mjög

ákveðinn á svip.

Bráðlega mun Stjáni fara til

Hollands þar sem hann tekur þátt í

Evrópumóti fatlaðra í borðtennis.

„Það eru nokkrar sterkar þjóðir á

mótinu en ég verð bara að bíta á

jaxlinn og segja sjálfum mér að ég

geti þetta."

Stjáni býr í Árbænum ásamt

kærustunni sinni, Soffíu, hana

hitti hann þegar þau voru saman í

Öskjuhliðarskóla. „Einu sinni

leyfði ég henni að koma með mér i

útvarpið þegar ég tók viðtal við

Ladda en hún hló svo mikið í

beinni að hún fékk aldrei að koma

með mér aftur. Við erum trúlofuð

og erum að spá í að gifta okkur í

haust. Við erum búin að ákveða að

fara á Hótel Örk í brúðkaupsferð-

inni okkar." Stjáni segist þó ætla

að halda sig frá vatnsrennibraut-

inni, minnugur þess þegar hann

fór þangað síðast. „Ég ákvað að

renna mér niður á spýtu og endaði

með stóra flís í rassinum." Stjáni

segir einnig að það sé mjög erfitt að

eiga kærustu. „Sérstaklega af því

hún gleymir alltaf að búa um á

morgnana."

Viil minnka magann.

Um starfið hjá Kassagerðinni

hefur Stjáni aðeins góða hluti að

segja. „Þetta er besta vinna sem ég

hef verið í og ég á marga góða vini

í Kassagerðinni. Ég er aðallega á

tætaranum í öskjudeildinni en ég

flakka líka mikið á milli þeirra

deilda þar sem mín er þörf." Þegar

Stjáni er að lokum spurður um

framtíðarvonir sínar liggur hann

ekki á svörunum. „Ég stefni

ótrauður í útvarpsmennskuna og

ætla aldrei að hætta að reyna að

komast að. Fyrir mig persónulega

er helsta takmarkið að minnka

bumbuna." Og miðað við hversu

ákveðinn hann er á svipinn mun

honum örugglega takast

það.

PÓUFARINN VAR. M6«> "10-11" AUGUT81NGU Á

IÍUPUNNI„,jÁ>Af> 6R A€> OPNAST PARNA MJÖG

STÓR MARKA6UR, AUT  NOÍOUftHStMaKAUTlO

EKKI  S6TJA  »«EiR.  UPP »10-11" SÚDIR   ÞAR \

06 1R >k 6KKI   K^UÖI©   LAN6T   A$   PAftA?

IN   WVA©.,,   IPAÖ  BR A>WWT   I    V,*sfct.,

pA&   1R    OPID   TtL   61UIFU...

f Ó k U S     19. maí 2000

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20