Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

Fréttir

I>V

Rannsókn á sumarexemi hrossa:

Tilraunabólusetn-

ingar eftir þrjú ár

— meðal stærstu verkefna Tilraunastöðvarinnar að Keldum

Sumarexem í hrossum er umtals-

vert vandamál fyrir þá er standa að

útflutningi íslenskra hesta. Á Til-

raunastöð Háskóla íslands á Keldum

er nú unnið að því að rannsaka sum-

arexem í samvinnu við rannsóknar-

hóp í Bern í Sviss, en vonir standa

til þess að hægt verði að hefja til-

raunabólusetningar á hrossum er

verkeminu lýkur, eftir þrjú ár.

Sumarexem er ofnæmisviðbrögð

við ákveðnum prótínum sem berast

í hross við bit mýflugna af ættkvísl-

inni Culicoides. Þar eð þessi tegund

mýflugna lifir ekki á íslandi er sum-

arexem óþekkt vandamál hér á

landi en við útflutning hefur komið

í ljós að íslenskir hestar eru í mun

meiri hættu á að fá sumarexem en

hestar af öðrum kynjum. Rann-

sóknarátakið er meðal stærstu verk-

efna Tilraunastöðvarinnar um þess-

ar mundir og ef vel tekst til má

reikna með að útflutningur á ís-

lenskum hestum geti stóraukist.

Metnaöarfullt verkefnl

Stefnt er að því að skilgreina

helstu ofnæmisvaka mýflugunnar

sem exeminu valda og einangra og

raðgreina gen þeirra, skera úr um

hvers konar ofnæmissvar er að

ræða og þróa aðferðir til að meta

ónæmissvör i hestum og mótefha-

myndun gegn ónæmisvökunum.

Einnig stendur til að búa til DNA-

bóluefni með genum helstu ofnæm-

Vilhjálmur Svansson dýralæknlr

„Þetta er mjög metnaöarfullt og framsækiö verkefni og kannski meöal þess

alfremsta sem er aö gerast á þessu sviöi í heiminum í dag."

isvakanna og að meta frumubundin

ónæmis- og mótefhasvör gegn þeim

og að lokum er vonast til þess að

hægt verði að búa til prótínbóluefhi

úr helstu ofnæmisvökunum og

prófa þau með völdum ónæmisglæð-

um og meta þau svör er við þeim

fást. „Þetta er mjög metnaðarfullt og

framsækið verkefni" sagöi Vil-

hjálmur Svansson, dýralæknir og

veirufræðingur, sem vinnur að

átakinu, „og kannski meðal þess al-

fremsta sem er að gerast á þessu

sviði í heiminum í dag".

Bylting fyrir útflutning

Eins og áður er komið fram dreg-

ur sumarexemið úr móguleikum á

útflutningi íslenskra hesta en ís-

lenskir hestar sem fæddir eru á ís-

landi eru þeir sem viðkvæmastir

eru fyrir ofhæminu en allt að 30%

þeirra sýna ofnæmisviðbrögð. Hest-

ar af annarri eða þriðju kynslóð

virðast hafa heldur meiri mótstóðu

en eru þó til muna viðkvæmari en

erlendir hestar. DV hafði samband

við Gunnar Arnarson hestaútflytj-

anda og spurði hann hvaða þýðingu

hugsanlegt bóluefni myndi hafa fyr-

ir útflutning á islenskum hestum.

„Það myndi hafa nánast byltingu í

för með sér," sagði Gunnar. „Það er

alltaf smábeygur í erlendum kaup-

endum vegna hættunnar á að hross

frá íslandi geti fengið sumarexem,

auk þess sem sumarexem hefur

jafhvel verið notað í áróðursskyni

gegn íslenskum hrossum". Að sögn

Gunnars myndi það auðvelda allan

útflutning á hestum frá íslandi til

muna ef hægt yrði að komast fyrir

sumarexemið og hægt væri að gera

ráð fyrir allt að 30-40% aukningu

útflutnings.                           -hds

Landsmót hestamanna:

2000 hesta

hópreið

- sú stærsta hér á landi

Það verður mikið um dýrðir í

Víðidal á þriðjudaginn þegar Lands-

mót hestamanna verður sett. Meðal

annars mun fara fram mesta

hópreið sem haldin hefur verið hér

á landi en alls taka 2000 hestar þátt

í henni. Riðið verður sem leið ligg-

ur frá Rauðavatni inn á skeiðvöll-

inn í Víðidal. í broddi fylkingar

verður Edda Rún Ragnarsdóttir á

gæðingnum Fjölva og mun hún sitja

í söðli að fornum sið.

Erlendar sjónvarpsstöðvar sýna áhuga:

Þrir þættir um

ísland á CNN

Líkt og landinn varð vitni að

komu menn frá bandarísku sjón-

varpsstöðinni CNN til landsins og

dvóldust hér nokkra daga í júni. Af-

raksturinn er þrir ólíkir þættir og

verður sá fyrsti frumfluttur í dag en

endurfluttur á morgun og mánudag.

Nefnist hann Artclub og skoðar fjöl-

marga listviöburði í höfuðborginni.

Rætt   verður   við   aðstandendur

Almannavarnir:

Ekki fastir

starfsmenn

Vegna fréttar í blaðinu í gær

um Almannavarnir rikisins skal

itrekað að heimildarmenn blaðs-

ins eru ekki meðal fastra starfs-

manna stofnunarinnar.

menningarborgarprógrammsins og

listamenn á borð við Rögnu Ró-

bertsdóttur, Sæmund Valdimars-

son, Einar Örn og Braga Ólafsson.

Þátturinn Hotspots verður vænt-

anlega á dagskrá 5., 6. og 10. ágúst

og verður þar í fyrri hluta lögð meg-

ináhersla á næturlif Reykvíkinga en

einnig komið við í Bláa lóninu. í

seinni hluta þáttarins veröur farið í

jóklaferð frá Höfn í Hornafirði. Ekki

er enn búið að ákveða sýningartíma

á lokaþáttinn sem nefhist City

Guide og er líkt og nafhið gefur til

kynna úttekt á Reykjavík. Anna

Rakel leiðir áhorfendur í allan

sannleika um borgina, auk þess sem

rennt verður fyrir lax. Án efa verð-

ur brugðiö upp fallegri mynd af

landi og þjóð - og þar sem okkur ís-

lendingum þykir fátt skemmtilegra

er um að gera að kveikja á imban-

um kl. 20.30 í kvöld.

Stuttar fréttir

Ráðherra gefur grænt Ijós

Viðskiptaráðherra

hefur, með visan til

laga, veitt samþykki

sitt fyrir samruna

Samvinnusjóðs ís-

lands hf. og Fjár-

vangs hf. í Frjálsa

fjárfestingarbankann

hf. Viðskiptablaðið greindi frá.

Búnaðarbankinn 70 ára

Búnaðarbanki Islands er 70 ára á

dag, 1. júli. Af þvi tilefni var i gær,

30. júní, haldin vegleg afmælisveisla

i öllum 36 útibúum og afgreiðslum

bankans. Dagurinn i dag markar þó

aðeins upphafið að miklu afmælis-

haldi sem mun standa allt til loka

ársins. Vísir.is greindi frá,

500 þúsund fyrir orminn

Bæjarstjórn Austur-Héraðs á-

kveðið að greiða hverjum þeim sem

nær mynd af Lagarfljótsorminum

500.000 krónur en engin mynd er til

af orminum. Þá er um að gera að

muna eftir myndavélinni ef ferðin

liggur austur á land. Fréttavefur-

inn.is greindi frá.

Sjávarútvegssvið lagt niður

Sjávarútvegssvið VMA á Dalvík

verður lagt niður og kennurum sagt

upp. Ákvöröunin er tekin í ljósi

þess að einungis 17 umsóknir bár-

ust um nám við skólann á komandi

vetri. Vísir.is greindi frá.

DV-MYND EINAR J.

Æft fyrir landsmót

Knapinn Edda Rún Ragnarsdóttir og Fjölvi ásamt Haraldi Haraldssyni, fram-

kvæmdastjóra landsmótsins, á æfingu í Víöidal.

Rútuferðir á Kristnihátíð

Kristnihátíðarnefnd hefur fengið

25 til 30 rútur til þess að keyra á

milli Reykjavikur og Þingvalla á

meðan Kristnihátíð stendur yflr

þrátt fyrir verkfall Sleipnis. Vísir.is

greindi frá.

Góð kaup hjá Sturiu

Sturla Geirsson, framkvæmda-

stjóri Lyfjaverslunar, fékk aö kaupa

hlutabréf Lyfjaverslunar íslands á

nafhvirði þrjár milljónir króna á

genginu 3,0. Þessi viðskipti vöktu

nokkra athygli þar sem núverandi

gengi bréfanna á markaöi er 4,65 og

markaðsverð í dag því tæpar 14 millj-

ónir. Viðskiptablaðið greindi frá.

Lágmark atvinnuleysis

Meöalfjöldi atvinnulausra á Suð-

urnesjum er 59 manns, eða um 0,7%

af áætluðum mannafla á Suðurnesj-

um. í april var atvinnuleysið 0,9%.

Atvinnuleysi er hvergi minna á

landinu og er þetta sögulegt lámark

atvinnuleysis á Suðurnesjum. Vís-

ir.is greindi frá.

Nýr bókarisi

Vaka Helgafell og Mál og menn-

ing tilkynntu í gær sameiningu fyr-

irtækjanna tveggja undir nafninu

Edda - miðlun og útgáfa hf. Nýr

bókarisi hefur því risið hér á landi.

Vísir.is greindi frá.

Risaskjáir á Þingvollum

Fjórir stórir skjáir, 40 til 50

tomma stórir, verða á planinu fyrir

utan Valhöll á morgun. Þetta er gert

svo íþróttaþyrstir gestir Kristnihá-

tíðarinnar á Þingvöllum geti horft á

úrslitaleikinn í EM og Formúlu 1 í

beinni útsendingu. Þetta er sam-

starfsverkefhi Hótel Valhallar og

Elkó.Vísir.is greindi frá.

Verkfallsveröir á Þingvöll

Sleipnismenn telja

rútuferðir        miíli

Reykjavikur og Þing-

valla á Kristnihátíð

verkfallsbrot. Verk-

fallsverðir á vegum

Sleipnis munu reyna

að koma í veg fyrir

rútuferðirnar um

helgina. RÚV greindi frá.       -KEE

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72