Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

21

r>v

Helgarblað

'

bær er rekið af fjórum aðilum, Guð-

laugi og Guðrúnu Bergmann, Guð-

ríði Hannesdóttur og Bryndlsi Sig-

urðardóttur. Gistiheimilið var ný-

lega tekið í gagnið og getur tekið við

25 gestum í einu. Aðsókn ferðafólks

er góð og útlendingar afar fjölmenn-

ir.

- Sumir vilja meina að hér sé á

ferðinni enn einn sértrúarstöfnuð-

urinn, einhvers konar ofsatrú.

„Hér fer hver sína leið til þess

guðs sem hann trúir á og okkur

þykir leitt ef fólk hefur ranghug-

myndir um samfélagið okkar. Við

erum að þessu fyrst og fremst til að

þroska okkur sjálf. Ég trúi því að til

sé einn guð. Hann gaf okkur frjáls-

an vilja og skapaði okkur í eigin

mynd. Til að finna guð í sjálfum sér

þarf stundum að fara gegnum mörg

lög af reiði og vandamálum sem þú

hefur aflað þér á lifsleiðinni. Það er

í raun og veru það sem við erum að

vinna að hérna í orku jökulsins,"

segir Guðlaugur.

- Orka jökulsins, er það ekki al-

gjört bull. Er þetta eitthvað úr

heimsbókmenntunum?

„Ja, þú segir það. Bárður Snæ-

fellsás kom hingað og hann átti

móður sem var samísk og samíska

fólkið er og hefur alltaf verið búið

dulrænum hæfileikum og nægir þá

að benda á Lappa eða Sama. Hingað

þótti gott að fá samískar konur, þær

gátu sagt fyrir um aflabrögð, veður-

far, ferðir óvina og hvaðeina. Þegar

Bárður kom að landinu dróst hann

að þessum stað og sagan segir að

Bárður gangi í Jökulinn. Það hefur

dulúð fylgt þessum stað frá örófi

alda og svæðið er magnað. Við

erum hér á afar sterku eldfjalla-

svæði, hér á svæðinu eru á þriðja

tug eldstöðva fyrir utan sjálft Snjó-

fellið. Síðan er jökullinn, þessi

sterka jökulhetta, og þetta ægimikla

haf á hina höndina, þetta eru sterk

element sem skapa orkuna. Það er

ekkert furðulegt við þessa orku,

hún kemur frá jörðu og hafi. Orkan

Guölaugur segir að þegar hann kastaöi barnatrúnni hafi Sverrir Kristjánsson sangfræöingur kennari og lífskúnstrner

gert hann að kommúnista og þaö sé hann enn.

OV MYNDIR JBP

er hér og við erum tengd henni, hún

er mismunandi eftir því hvar þú

ert."

Sverrir geröi mig að

kommúnista!

- En sogaði jökullinn og Snæ-

fellsorkan iðnjöfur af höfuðborgar-

svæðinu til sín?

„Ég hefði aldrei komist gegnum

viðskiptalífið hefði ég ekki haft

trúna á þetta. Þú verður að gera

þér grein fyrir því að ég kastaði

barnatrúnni þegar Sverrir Krist-

jánsson, sagnfræðingur og

kennari, gerði mig að kommúnista

sem ég er enn þá. Við áttum það

sameiginlegt ég og séra Rögnvald-

ur Finnbogason að við vorum

kommúnistar, við vorum engir

sósíalistar eða sósíaldemókratar.

Þegar þeir drápu Trotskí drápu

þeir kommúnismann. Það er ekki

hægt að hengja fullkomna ídeólóg-

iu á ófullkomið fólk. Reynt hefur

verið að framkvæma kristindóm í

tvö þúsund ár og við höfum aldrei

verið fjær því að fara að boðorðum

Krists sem var fyrsti kommúnist-

inn.

- Og hér ert þú kominn, komm-

únistinn, og ert orðinn burðarás í

Snæfellsbæ.

„Ekki mundi ég nú segja það. En

ég er montinn fyrir hönd okkar

allra sem hér störfum af því að

koma á vistvænu og sjáifbferu

samfélagi á þessum bletti, 130

hekturum sem við eigum hér, og

ég er hreykinn af að við skyldum

fá það verkefni að koma því á í öll-

um Snæfellsbæ. Ég hefði aldrei

trúað því fyrir fjórum og hálfu ári

þegar fólk leit okkur eðlilega

nokkru hornauga. Engum datt í

hug að við mundum byggja eftir

því skipulagi sem við vorum með í

farteskinu. En húsin risu og fólkið

fékk trú á orðum okkar. Ég hef

aldrei orðið var við neitt nema gott

viðmót fólksins í Snæfellsbæ. Það

hefur verið vel tekið á móti okk-

ur," segir Guðlaugur Bergmann.

Jaðarbyggðin varð sigur-

vegarl

Guðlaugur var fljótlega með í

framfarafélagi í sveitarfélaginu,

sem nú hefur skipst í þrennt eftir

svæðum þannig að grasrótin verði

virkari á hverju svæði fyrir sig.

Gulli segist líka montinn af þvi

sem verkefnisstjóri fyrir Staðar-

dagskrá 21 að fyrir verkefni sem 31

sveitarfélag tók að sér á vegum

Sambands íslenskra sveitarfélaga

og umhverfisráðuneytisins skyldi

sveitarfélagið hans fá fyrstu verð-

laun þegar úttektinni var lokið -

að jaðarbyggðin skyldi ná fyrsta

sætinu í samkeppni við þau stóru,

til dæmis Hafnarfjörð, Mosfellsbæ

og fleiri sem líka fengu verðlaun.

„Við eru ákveðin í að halda fyrsta

sætinu, það er ákveðin samkeppni

í gangi og hér eru margar hug-

myndir í gangi. Konan mín er for-

maður í atvinnu- og ferðamála-

nefnd og þú sérð þá að við höfum

fengið að taka þátt í hlutunum

hér," sagði Guðlaugur Bergmann

að lokum.

Það má bæta því við sem eftir-

mála að verkefni Guðlaugs eru

fleiri - hann var til dæmis sjálf-

kjörinn í hlutverk frænkunnar í

Snæfellsmannabænum á þorra-

blóti í vetur - söngleik með lögum

og staðfærðri sögu Kardimommu-

bæjarins. Hann lék Gullu frænku -

og var rænt! Þar kom viðskiptajöf-

urinn fram með mikla hárkollu,

brjóstahaldara og klæddur síðpilsi

og fékk loksins sönghlutverk við

hæfi, maðurinn sem rutt hafði

bítlamenningunni braut á íslandi

fyrir þriðjungi aldar. Sagt er að

hann hafi sungið lögin hans Tor-

björns Egners snoturlega.

-JBP

i

SUMARJAKKAR

20% AFSLATTUR

OPIÐ

LAUGARDAG

RÁKL10-18

SUNNUDAG

KL.11-18

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72