Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						22

LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

Helgarblað

r>v

Hann man fyrst eftir sér í

Stykkishólmi, fluttist þaöan

sjö ára gamall til Bandaríkj-

anna og hefur alist upp í

Noröur-Kaliforníu. Á undan-

fórnum árum hefur hann get-

ió sér gott orö sem plótusnúó-

ur. Illugi Magnússon kom aft-

ur til íslands nú í byrjun

sumars og hyggst dvelja hér

fram á haust. Hann hefur

meðal annars verið að spila í

einkasamkvœmum og á

Sirkus. Hann gengur undir

nafninu DJ Platurn.

DJ Platurn, hvaðan kom nafnið?

„Nafnið er eins konar tilbrigði við

íslenska orðið plötusnúður, sem mér

fmnst alveg frábært orð. Ég var búin

að ganga undir ýmsum öðrum lista-

mannsnöfnum en fyrir svona þremur

árum datt mér þetta í hug og fannst

sniðugt að vlsa til þjóðernis míns á

þennan hátt, þó dulinn sé."

Seinþroska plötusnúöur

-  Er langt síðan þú byrjaðir að

spila?

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga

á tónlist, hef hlustað á hipp hopp

siðan 1985 eða 186 og var mikið í fé-

lagsskap fólks sem var að mixa og

leika sér en byrjaði ekki sjálfur

fyrr en tiltölulega seint. Ég fór að

safna plötum árið 1994 en i byrjun

var ég bara með einn plötuspilara

og einn mixer, fáránlegar græjur,

en ég notaði það til að læra. Það

var ekki fyrr en tveimur árum

seinna að ég fór af alvöru að gera

eitthvað úr þessu og byrjaði að

spila eitthvað að ráði sjálfur svona

opinberlega."

Hvar hefurðu verið að spila?

„Ég á heima í svokölluðu Bay

Area við San Francisco og hef vit-

anlega spilað í flestöllum klúbbun-

um og skemmtistóðunum þar en

síðan hef ég einnig spilað víða ann-

ars staðar, mikið í Suður-Kaliforn-

íu til dæmis, 1 Santa Monica, á

Melrose, Valley og í L.A., eitthvað

í Hollywood líka og á fleiri stöðum.

í byrjun var ég einnig mikið á há-

skólaútvarpsstöðvunum."

Hörð samkeppni

- Er erfitt að koma sér áfram sem

plötusnúður í Bandaríkjunum?

„Ætli það sé ekki eins og hér, það

er alltaf ákveðin „pólitík" í gangi og

það borgar sig alltaf að þekkja sem

fiesta sem hafa sambönd og geta

komið manni að hér og þar. En í

Bay Area er ofsalega hörð sam-

keppni, það er svo rosalega mikið af

góðum plötusnúðum þarna að mað-

ur verður hreinlega að skapa sér

sérstöðu. Það gerist stundum að ein-

DJ Platurn heltir réttu nafni lllugi Magnússon.

Hann man fyrst eftir sér í Stykkishólmi en býr nú í Bay Area í Ameríku.

Alvöru plötusnúður - beint frá Bandaríkjunum:

toga væri að finna hérna. Þeir eru

ótrúlegir."

Hvað er góður plötusnúður?

En hvernig finnst þér þeir ís-

lensku plötusnúðar sem þú hefur

heyrt í?

„Ég hef nú satt að segja ekki

heyrt mikið af þeim, mér virðist að

þeir séu mest í því að spila tónlist

en geri ekki mikið af því að rispa

eða mixa. Það byggist því allt á að

spila en lítið á að leggja eitthvað

beint af mörkum sjálfur. Sumir sem

ég hef heyrt hafa þó verið að spila

mjög góða tónlist, eins og til dæmis

Kári.

Áherslan hér virðist sem sagt

vera mest á músíkina eins og hún

er en ekki á að vera skapandi sem

plötusnúður. Úti í Bandarikjunum

er mjög lítill markaður fyrir plötu-

snúða sem einungis leika plötur, að

ekki sé talað um diska. Þeir sem

það gera verða að hafa þeim mun

óvenjulegri smekk og sérhæfa sig í

mjög sérstakri tónlist ef þeir ætla

eitthvað að komast áfram. Góður

plötusnúður verður að mínu mati

að vera mjög fjölhæfur, hann verð-

ur bæði að vera með góðan og sér-

stakan smekk, hann verður að

skynja hvernig tónlist á að spila við

hvaða tækifæri til að koma fólki i

stuð og vera bæði fær um að blanda

saman góðri tónlist og „skratsa"

þegar það á við."

- Þú ert að læra eitthvað sem

tengist þessu að einhverju leyti,

ekki satt?

„Jú, það sem ég er að læra heitir

„audio production" á ensku, það má

kannski kalla það hljóðvinnslu eða

eitthvað slíkt á íslensku. Þetta er

kennt við fjölmiðladeild San Frans-

isco háskólans og ég mun ljúka

námi næsta vor með BA gráðu.

Þetta hefur í raun ekkert með plötu-

snúning að gera heldur snýst bara

um að taka upp tónlist, til dæmis

fyrir hljðmsveitir og þannig. í raun

hef ég engan brennandi áhuga á

akkúrat þessu, að taka upp tónlist,

ég hef miklu meiri áhuga á hljóð-

blöndun og þess háttar en ég læri

ofsalega mikið á þessu og þetta get-

ur nýst mér á marga vegu i framtíð-

inni. Ég hef mikinn áhuga á að búa

til mína eigin tónlist, eins og ég hef

verið að spreyta mig á að gera, og

að ferðast sem mest um og spila."

Með lag á saf ndlskl

niugi hefur sent frá sér nokkrar

spólur sem gefnar hafa verið út í

litlu upplagi og fást eingöngu í sér-

hæfðum hipp-hopp búðum á Bay

Area. En er mógulegt að nálgast

eitthvað af því sem hann hefur ver-

ið að gera á íslandi?

„Allir geta náttúrlega farið inn á

asisphonics.com og fundið mig þar

Hip-hoppari úr Hólminum

leitar upprunans á íslandi

hver DJ, sem kannski ekki er svo

mikið vit í, kemst áfram og er vin-

sæll um tíma en það varir stutt þvi

til að endast verðurðu að hafa þína

sérstóðu."

Gaman að „skratsa"

Hvernig tónlist spilarðu?

„Ég spila alls konar tónlist en er

fyrst og fremst hipp-hopp plötusnúður

því ég geri mikið að því að til dæmis

rispa eða „skratsa" og að leika mér

með tvö eintök af einni plötu og

þannig. Ég er mikið í því að blanda til

dæmis hipp-hoppi saman við fönk og

djass og ég spila líka dálítið af

drumíníbass tónlist. Svo finnst mér

mjög gaman að grafa upp alls konar

skrýtna tónlist og ég nota til dæmis

barnaplötur oft saman við annað."

Ólstu upp við tónlist af þessu

tagi?

„Nei, ég ólst upp viö rokk, fyrst

og fremst, og þá helst dansvænt

Ég er mikið íþví að blanda til dœmis hipp-hoppi saman viðfbrik og

djass og ég spila lika dálítið afdrum'ri bass tórilist. Svofinnst mér

mjög gaman að grafa upp alls konar skrýtna tónlist og ég nota til

dœmis barnaplbtur oft saman við annað.'

tt

rokk. Pabbi minn, Magnús Þórðar-

son, var plötusnúður í Tónabæ á

sínum tíma og var á tímabili einnig

með útvarpsþátt. Hann spilaði alltaf

mikið af rokki en þó einnig eitthvað

af klassík og ég hef eflaust eitthvað

smitast af tónlistaráhuga hans þó

smekkurinn sé gerólíkur."

íslenskt kemur á óvart

Hvernig líst þér á tónlistarlífið á

íslandi?

„Það er mjög ólikt því sem ég

þekki frá Bay Area. Þar býr fólk af

alls kyns uppruna og frá gerólíkum

menningarsamfélögum og allir eru

mjög opnir og til í nýjungar. Þar ber

líka meira á hipp-hoppi og tölvu-

væddri tónlist. Fyrst í staö leist mér

alls engan veginn á tónlistina á ís-

landi, en núna er ég búin að komast

að því að hér er sitt hvaö til og sumt

hefur komiö mér mjög á óvart. Sig-

ur Rós kom mér til dæmis þægilega

á óvart og ég á pottþétt eftir aö taka

nýjasta diskinn þeirra með mér

heim þegar ég fer, einnig líst mér

vel á það sem strákarnir í Break-

beat eru að bralla og svo hef ég að-

eins veriö að leika mér að spila með

nokkrum fönktónlistarmönnum

sem sumir eru meðlimir sveitarinn-

ar Jagúar og þeir komu mér ger-

samlega i opna skjöldu. Afsakið fá-

vísi mína en ég bjóst bara alls ekki

viö því aö tónlistarmenn af þessum

undir „motivators". Ég er einnig á

ifilm.com, þar verður að fara á leit

og slá inn Evan Wilsöh. Annars er

ég með efni á safndiski og -plötu

sem er að koma út núna á næst-

unni, hann heitir „Cue¥s hip hop

shop, vol. 2, er gefinn út af Dogday

Records og verður dreift út um alla

Ameríku og Evrópu en ég veit ekki

hvort hún kemur til íslands. Það

verður alla vega hægt að panta

hana."

Það er mjög sérstakt að vera kom-

inn til íslands aftur, það eru átta ár

síöan ég kom hingað síðast í sumar-

frí. Mér fannst vera kominn tími til

að koma aftur og „leita upprunans",

segir niugi og glottir út í annaö. „Eg

ætla að nota sumarið vel og ferðast

eins mikið um landið og ég get og

svo langar mig að spila eins mikið

og ég fæ tækifæri til.

Hip hop rules!                     -hds

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72