Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						24

LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

Helgarblað

I>V

Bræðraveldið í

Brautarholti stækkar

stórbændur í svínarækt, kjúklingum og svínum kaupa Síld og fisk

Það hefur alltaf verið búið

stórt í Brautarholti á Kjalar-

nesi. Árið 1923 var Ólafur

Bjarnason, bóndi á Akri í

Húnavatnssýslu, ekki ánægður

með sinn hlut. Hann var sigld-

ur bóndi, hafði verið í Dan-

mörku og vissi að þar í landi

fannst bœndum mikilvœgt að

vera sem næst markaðnum og

geta selt afurðir sínar daglega.

Hann réóst því í það stórvirki

að kaupa Brautarholt á Kjalar-

nesi því hann sá stóran og vax-

andi markað hinum megin við

flóann. Til þess að byggja upp

stórbýliö seldi hann athafna-

manninum Thor Jensen ná-

grannajóróina Arnarholt þar

sem Thor reisti miklar bygging-

ar og hafði kýrnarfrá risabú-

inu á Korpúlfssstöóum þar i

sumarfjósi. Þá var enginn veg-

urfrá Kjalarnesi til Reykjavík-

ur og mjólkin frá Brautarholti

flutt á bát yfir flóann á hverj-

um degi.

Ólqfi og Ástu Ólafsdóttur

konu hans búnaðist vel í Braut-

arholti og þegar búskapur

þeirra var umsvifamestur voru

ríflega 50 kýr þar ífjósi. Ólafur

var frumkvóðull á morgum

sviðum í landbúnaði, vildi

slétta tún og stofna félög ásamt

því aó efla landbúnaðinn.

Hvaða bræður eru þetta?

I dag hanga myndir af þeim hjónum

á sérstökum heiðursstað þegar gengið

er inn í þjónustubygginguna við svína-

búið í Brautarholti. Þau eru sérstakir

verndarar búskaparins sem þar er

stundaður. Þar er ekki stundaður

neinn smábúskapur því þar búa

stærstu svínabændur landsins með 650

gyltur. Þar standa fyrir búi fjórir

bræður með föður sínum Jóni Ólafs-

syni, Bjarnasonar í Brautarholti. Þetta

eru þeir Björn, Ólafur, Kristinn og Jón

Bjarni Jónssynir.

í Brautarholti var horfið frá hefð-

bundnum búskap árið 1967 þegar kúa-

búskapur lagðist af og síðan hefur ver-

ið stundaður frjáls búskapur 1 Brautar-

holti í þeim skilningi að hann hefur

verið utan við framleiðslustýringu

sem tíðkast í öðrum greinum.

Svín, egg og kjúklingar

Auk Brautarholtsbúsins eiga þeir

feðgar Jón, Kristinn og Björn

kjúklingabúið á Móum á Kjalarnesi

siðan 1985 að hálfu, á móti hjónunum

Ólafi J. Guðjónssyni og Eyrúnu Ástu

Bergsdóttur. Móabúið er með um 30%

af kjúklingamarkaðnum og hyggur á

enn frekari umsvif en verið er að

byggja eldisstöð á vegum þess að Hurð-

arbaki í Svínadal. Nesbú á Vatnsleysu-

strönd komst einnig í eigu feðganna á

síðasta ári en þar eru framleidd egg.

Þar verpa um þessar mundir 45 þús-

und hænur en stefnt er að þvi að fjölga

þeim í 62 þúsund innan skamms og þá

verður Nesbú stærsti eggjaframleið-

andi landsins. Þar er stunduð nokkur

sérhæfð eggjavinnsla þar sem eru seld

soðin og skurnlaus egg til matvælaiðn-

aðarins og verið að hefja framleiðslu á

fleiri vörutegundum úr eggjum sem

henta matvælaframleiðendum, s.s. ger-

ilsneyddum eggjarauðum og eggjahvít-

um og fleiri sérhæfðum afurðum sem

fram til þessa hafa að mestu verið

fiuttar inn til landsins.

„Þetta er nýtt á íslenskum markaði

og við væntum mikils af þessari fram-

leiðslu," segir Björn Jónsson, fram-

kvæmdasrjóri Nesbúsins.

Bræðraveldið í Brautarholti ásamt föðurnum fyrir framan nýja svínabúið.

F.v.: Jón Bjarni Jónsson, Björn Jónsson, Kristinn Gylfí Jónsson, Ólafur Jónsson ogJón Ólafsson.

DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR

Hættir í grasinu

Frá árinu 1963 hefur verið rekin

grasmjöls- og graskögglaverksmiðja 1

Brautarholti sem nú er að hætta störf-

um þar sem m.a nútíma heyverkunar-

aðferðir með rúllu-

böggum hafa rutt

graskögglum að

mestu út af mark-

aðnum. Enn fremur

má telja að feðgamir

eigi helminginn í

kjötvinnslunni Esju

ehf. í Kópavogi sem

vinnur svínakjöt t.d.

undir merkjum

Gæðagríss og selur

mikið á mötuneyta-

og veitingamarkað-

inn og einnig í versl-

anir.

„Við viljum hafa góða

ímynd og er ákaflega

annt um hana.

Þetta sem þú minnist

á voru tímábundin

vandrœði sem munu

ékki endurtaka sig.

Svínaskítur er verð-

mœtur áburður og

„Við kaupum svínabúið á Minni-

Vatnsleysu, kjötvinnslu Ali á Dals-

hrauni í Hafnarfirði, allar fasteignir og

2/3 hluta í Síld og fiski ehf. sem er fé-

lag um reksturinn. Seljendur eru tveir

afkomendur Þorvald-

ar heitins Guðmunds-

sonar i Síld og fiski,

Skúli og Katrín Þor-

valdsbörn," segir

Kristinn Gylfi Jónsson

sem verður fyrir svör-

um fyrir hönd bræðr-

anna.

Með þessum kaup-

um verða Brautar-

holtsfeðgar enn stærri

á svínakjötsmarkaði

með um 30% markaðs-

hlutdeild. Svínabúið á

SJálfsagt að nýta hann  Minni-Vatnsleysu   er

til uppgrœðslu

Stærstir verða

stærri

Það vakti því

verðskuldaða athygli

á dögunum þegar þeir Brautarholts-

feðgar keyptu Síld og fisk, eitt elsta og

virtasta fyrirtæki landsins í svínarækt

og kjötvinnslu að stærstum hluta. En

hvað var það nákvæmlega sem þeir

keyptu?

með  um  500  gyltur

þannig að framleiðsl-

an nær tvöfaldast við

kaupin.

„Við höfðum lengi

haft áhuga á Sild og fiski og Ali-vöru-

merkinu enda um að ræða landsþekkt

fyrirtæki með glæstan feril og forystu

í úrvinnslu svínaafurða," segir Krist-

inn Gylfi.

„Þetta voru ákafiega ánægjuleg við-

Kristinn Gylfi (t.v.) lærði viðskiptafræði og sér um markaðsmál búsins.

Hann hefur orð fyrir þeim bræörum en Björn bróöir hans, sem er fram-

kvæmdastjóri Nesbús og sér um grísaeldiö, hlustar á.

Jón Bjarni, yngsti bróðirinn í Braut-

arholti, er fóðurmelstari á svínabú-

inu. Hann heldur hér á frísklegri

framtíðarsteik.

skipti og Skúli mun fylgja okkur vel úr

hlaöi með því að starfa við hlið okkar

fyrst um sinn. Við höfum löng og góð

kynni af þessu trausta fyrirtæki og

Þorvaldi Guðmundssyni heitnum sem

rak það um árabil."

Velta 2,3 milljörðum

Þegar allt er talið saman eru í eigu

feðganna eftir kaupin á Síld og fiski,

fyrirtæki sem samtals eru með 130

starfsmenn í vinnu og áætluð velta

þeirra samanlagt á þessu ári er í kring-

um 2,3 milljarðar. Fyrir voru feðgarn-

ir stærstu matvælaframleiðendur

landsins og jafnframt stærstu bændur

og við þessi kaup styrkist sú staða

þeirra.

Að nútíma hætti var Síld og fiskur

ekki auglýst til sölu í dagblöðum. Það

var Íslandsbanki-FBA sem annaðist

söluna fyrir hönd seljenda en Búnaðar-

bankinn fyrir hönd kaupenda. Kaup-

verðið er trúnaðarmál að sögn Braut-

arholtsbrasðra en óhætt mun að giska

á að það liggi á bilinu 8-900 miiljónir

króna. Fleiri kaupendur, þar á meðal

einhverjir keppinautar Brautarholts-

manna í svínarækt, sýndu málinu tals-

verðan áhuga.

„Búin verða áfram rekin sitt í hvoru

lagi og við erum einmitt þessa dagana

að leita okkur að góðum framkvæmda-

stjóra fyrir Síld og fisk. Engu að síður

sjáum við mörg tækifæri til hagræð-

ingar og hagkvæmni i rekstri þeirra."

Verkaskiptingin

Það er einkum í ýmsum srjórnun-

arþáttum sem gefst færi á að hagræða

en einnig i fóðurframleiðslu og inn-

kaupum af ýmsu tagi. Brautarholts-

feðgar skipta þannig með sér verkum

að Ólafur er bústjóri á gyltubúinu,

Björn er framkvæmdastjóri Nesbús

og er yfir grísaeldinu ásamt Jóni

Bjarna sem einnig er fóðurmeistari á

svínabúinu. Kristinn Gylfi er fram-

kvæmdasrjóri og sér um sölu- og fjár-

mál. Jón faðir þeirra starfar mikið að

uppbyggingu og ýmsum framkvæmd-

um.

„Við erum samrýndir og samhentir

og það er forsendan fyrir því að svona

fjölskyldufyrirtæki geti gengið. Okkar

helstu ákvarðanir hafa yfirleitt verið

teknar við eldhúsborðið heima í

Brautarholti," segir Kristinn. Bræð-

urnir Ólafur, Björn og Jón Bjarni eru

bændur í Brautarholti með búsetu

þar en Kristinn býr i Reykjavík.

Svínaræktin í Brautarholti hefur

þróast í nokkrum áföngum frá því um

1980. 1984 voru gylturnar orðnar 70

talsins, 1986 fjölgaði þeim í 220 og í 270

árið 1991. Stóra skrefið var síðan stig-

ið 1998 þegar núverandi húsakynni

voru reist yfir grísaeldið. Við það

skapaðist aukið rúm og gyltum var

fjölgað í 650.

Grisalíf

Grísir lifa ekki lengi en margt er

gert á skammri ævi þeirra til að auka

vellíðan þeirra og tryggja heilbrigðið. í

Brautarholti eru gylturnar í sérstök-

um húsum og hjá þeim dveljast grís-

irnir fyrstu fjórar vikur ævinnar. Á

hverjum fimmtudegi kemur síðan nýr

skammtur unggrísa til dvalar í grísa-

eldinu og dvelst þar í tæpa fimm mán-

uði í tveimur deildum. í hverjumver

grisahóp  eru  um  260  stykki  sem

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72