Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						26

Helgarblað

Svíösljos

Svæsnar

lýsingar í

nýrri bók

um Shar-

on Stone

í nýrri bók er Sharon Stone

lýst sera hassista með átsýki sem

hefur notfært sér kynlíf til hins

ýtrasta til að komast á toppinn í

Hollywood. Bókin er skrifuð af

Joe

Eszterhas,

mannin-

um sem

samdi

handritið

af mynd-

inni Basic

Instinct

sem gerði

Stone að

stjörnu.

Bók

þessi, sem

er vænt-

anleg

fljótlega á markaðinn, ber nafnið

„American Rhapsody" og hefur

blaðið New York Post komist á

snoður um innihaldið. í bókinni

segir m.a. að í þá daga þegar Sto-

ne vann fyrir sér sem módel i

Milanó og Buenos Aires þá hafi

hún ekki aðeins drukkið kampa-

vín og reykt marijúana heldur

líka notað kynlíf til þess að koma

sér áfram í bransanum.

í bókinni er einnig sagt frá því

að þegar Sharon var að leika eitt

af kynlífsatriðunum í Basic In-

stinct þá hafi hún ekki viljað fara

eftir handritinu. Þegar leikstjór-

inn sagði að hún yrði aö fara eft-

ir handritinu harðneitaði Stone

og sagði að konur gerðu þetta

ekki svona. Til þess að ná fram

sínu i málinu bauð hún bæði leik-

stjóranum og handritshöfindum

upp á hótelherbergi með sér og

gaf þeim nærbuxnalaust nudd. Af

þessum lýsingum að dæma eru

liklega margir sem bíða spenntir

eftir þvi að þessi bók komi út.

Sharon Stone kallar

ekki allt ömmu sína.

Ertu

fullur?

fimm stig ölvunar

Það eru til mörg orð á íslensku

sem lýsa ölvun og ölvunarástandi. í

fljótu bragði mætti nefna orð eins

og hýr, mjúkur, kenndur, þéttur,

slompaður, puntaður, hífaður, full-

ur eða einhver fjölmargra afbrigða

þeirra. DV rakst nýlega á annars

konar skilgreiningu á ölvun sem

skipta má í fimm stig. Þessi fróð-

leikur gengur manna á milli á tölvu-

póstinum þessa dagana. Þótt hér sé

talað í hálfkæringi kannast áreiðan-

lega þeir lesendur blaðsins sem

bragðað hafa vín við ýmsa þætti lýs-

inganna.

Stig 1 - vitur

Á þessu stigi ert þú

sérfræðingur í hverju

sem er til umræðu. Þú

veist að þú veist allt

og finnst sjálfsagt að

deila þekkingu þinni

með öllum sem vilja hlusta og

reyndar lika þeim sem vilja það

ekki. Á þessu stigi hefur þú alltaf

rétt fyrir þér og viðmælandi þinn að

sjálfsögðu alltaf rangt fyrir sér. Úr

þessu verður oft áhugavert rifrildi

þegar báðir aðilar eru vitrir.

Stig 2 - flottur

Á þessu stigi rennur

það upp fyrir þér að

þú ert flottastur á

svæðinu og allir dýrka

þig og dá. Það þýðir að

þú getur gengið að blá-

ókunnugu fólki sem

vill umsvifalaust tala

við þig því þú ert svo

flottur. Þú ert einnig

ennþá vitur svo þú get-

ur talað við þetta fólk

um hvað sem er.

Stig 3 - ríkur

Á þessu stigi verður þú skyndi-

lega ríkastur allra. Þú getur splæst

drykkjum á alla á barnum því vas-

ar þínir munu aldrei tæmast. Þú

getur líka veðjað við hvern sem er

um hvað sem er því þú ert auðvit-

að ennþá vitur og vinnur þar af

leiðandi öll veðmál. Það skiptir

ekki máli hver upphæðin er því þú

ert svo rikur. Þú kaupir drykki

handa fólki sem þér líst á því þú

ert flottastur.

Stíg 4 - skotheldur

Á þessu stigi þora menn að

stofna til áfloga við hvern sem er,

sérstaklega þá sem þú hefur verið

að rökræða eða veðja við. Það er

vegna þess að ekkert getur skaðað

þig. Á þessu stigi getur þú gengið

að félögum þínum og skorað þá á

hólm vegna hvers

sem er. Þú hefur eng-

ar áhyggjur af að

tapa því þú ert vitur,

þú ert ríkur og þú ert

miklu flottari en

þeir.

Þessi maöur sýnist vera nokkuð slompaöur.

Hann gæti veriö á þriðja stigi ölvunar.

Stig 5 - ósýnilegur

Þetta er lokastig ölvunarinnar.

Á þessum tímapunkti getur þú

gert hvað sem þér sýnist því það

sér þig enginn. Þú getur dansað

upp á borðum til að sýna hvað þú

ert flottur og ef einhver ætlar að

berja þig þá hitta þeir ekki því þú

ert ósýnilegur. Ef þú brýtur borð-

ið þá er það

allt í lagi því

þú ert svo rík-

ur. Þú getur

gengið gegnum

miðbæinn og

sungið því eng-

inn getur séð þig eða heyrt í þér.

Og af því þú ert enn vitur þá

kanntu auðvitað textann.

Hvað er veruleikinn?

Þau tíðindi urðu á dögunum að

talsmenn RÚV játuðu að fréttaflutn-

ingur af fyrri jarðskjálftanum hefði

ekki verið sem skyldi. Það var að

vísu með nokkrum semingi að þeir

Bjarni Guðmundsson og Bogi

Ágústsson féllust á að kannski hefði

mátt hafa fréttatíma þá klukkan sjö

og stafi á skjánum sem vísuðu fólki

á útvarpsfréttir - enn sniðugra

hefði kannski verið að hafa stafi á

skjánum sem vísuðu fólki einfald-

lega á Stöð tvö. Hins vegar hefur

enn ekki verið leitað álits sjálfs

Sjónvarpsstjórans í málinu, Ingólfs

Hannessonar.

Talsmenn RÚV virðast samt enn

ekki skilja fyllilega um hvað málið

snýst þegar þeir benda á að fyrir ör-

yggisþættinum hafi verið séð með

fréttum útvarpsins. Geti þeir bent á

að fólk geti snúið sér annað til að

leita upplýsinga um náttúruhamfar-

ir í eigin landi eru þeir náttúrlega

um leið að fallast á að þessi sjón-

varpsstöð sé strangt tekið óþörf. En

málið snýst ekki fyrst og fremst um

öryggisþáttinn heldur kannski

miklu heldur um sjálfsmynd og

imynd RÚV og þar með um sjálfa

réttlætingu alls kerfisins. Til

skamms tíma hefur sú hugmynd

verið rikjandi um RÚV að sú stofn-

un sé sameiningarafl þjóðarinnar,

nokkurs konar kirkja sem allir leiti

til á erfiðum tímum, hinn eðlilegi

vettvangur til að spegla þjóðlífið í

andstreymi og gleði; þjóðarútvarp.

Því hlutverki brást Sjónvarpið núna

og olli sjálfu sér skaða sem ekki

verður bættur.

Eflaust hafa rök verið fyrir því að

rjúfa ekki útsendingu á leik Eng-

lendinga og Þjóðverja. í fyrsta lagi

biðu margir spenntir eftir honum

og hætt við að hvinið hefði i ein-

hverjum ef hætt hefði verið við leik-

inn - jafnvel enn hærra en í

hneyksluðum almenningi. Og í öðru

lagi hafa eflaust vegið

þungt hagsmunir vegna

auglýsinga og dýrt spaug

að hætta við að sýna þær

í hléum. Og loks kunna

menn að hafa talið að

ekki væri hundrað í

hættunni þótt fréttirnar

yrðu svolítið seinna á

ferðinni, jafnvel hægt að

vinna þær betur fyrir

vikið. Það gekk reyndar

eftir: þegar fréttirnar

loksins komu voru þær

prýðilegar og meira að

segja Ólafur Sigurðsson

gat farið á vettvang án

þess að sjá nokkurn

hvalveiðiflöt á málinu.

En þótt menn geti þannig réttlætt

allt saman fyrir sér hjá RÚV stend-

ur hitt eftir: þeir rufu ekki útsend-

ingu vegna mesta jarðskjálfta sem

orðið hefur á landinu síðan 1912,

hamfara þar sem fjöldi manns varð

fyrir miklu tjóni og meirihluti

landsmanna fann óþyrmilega fyrir.

Á meðan þjóðin var slegin óhug og

beið frétta var fótbolti í „Sjónvarpi

allra landsmanna". Það er eitthvað

óheyrilegt við þetta mat. Þegar upp

er staðið var spurningin þessi: hvar

er veruleikinn? Fólki finnst nefni-

lega að veruleikinn séð það sem er í

sjónvarpinu, að viðburður hafi ekki

verið helgaður með einhverjum

hætti fyrr en hann er í sjónvarpinu,

þar sé mælikvarðinn á þaö hve mik-

ilvægur eða merkur viðburðurinn

er; þetta er kallað fréttamat. Sjón-

varpsmenn sendu skilaboðin: jörðin

kann að hafa skolfið en það er ekki

veruleikinn - veruleikinn er þessi

fótboltaleikur. Sem er einmitt leik-

ur, þykjustustríð, sérstök vidd. Á

þessari stundu sameinaði RÚV ekki

landsmenn heldur sundraði þeim.

Þannig heldur

fótboltinn áfram á

meðan nötra stoð-

ir. Jarðskjálfinn

fyrst og svo

kristnihátíðin þar

sem landsmenn

eru neyddir til að

líta í eigin barm

og spyrja sjálfa sig

þeirrar spurning-

ar hvort þeir telji

kristnitökuna fyr-

ir þúsund árum

hafa verið fagnaö-

arefni eða hvort

þeim finnist það ekki koma sér við

hvaða sið þeir aðhyllist: og þá nötra

andlegar og siðferðilegar stoðir

þjóðlífsins.

Sjónvarpsmenn sendu

skilaboðin: jörðin kann

að hafa skolfið en það er

ekki veruleikinn - veru-

leikinn er þessi fótbolta-

leikur. Sem er einmitt

leikur, þykjustustríð, sér-

stök vídd. Á þessari

stundu sameinaði RÚV

ekki landsmenn heldur

sundraði þeim.

Og sjálf krónan nötrar. Meðal

annarra orða: hvers vegna í dauðan-

um láta fjölmiðlar í landinu ógert

að upplýsa okkur

almenning um

þennan „sterka

orðróm í við-

skiptalífinu" um

það hverjir hafi

staðið að baki at-

lögunni að krón-

unni á dögunum

og þar með lífs-

kjörum okkar sem

búum í landinu.

Ekki eru fjölmiðl-

ar svona tillits-

samir og nærgætn-

ir þegar venjulegu

fólki verður eitt-

hvað á. Eða fmnst

blaða- og frétta-

mönnum nóg að deila vitneskju með

„viðskiptalifinu" því þjóðin sé hvort

sem er bara stödd í annarri vídd -

að horfa á fótbolta?

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72