Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						30

LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

Helgarblað

I>V

Sérstæð sakamái

Eiginmaðurinn stakk upp á siglingu um Karíbahafið:

Morðingi

á skemmti-

siglingu

Julie Scully hafði næstum allt til

að bera sem kona getur óskað sér.

Hún var falleg, hún var fagurlega

vaxin og hún átti eiginmann sem

tilbað jörðina sem hún gekk á.

Henni gekk einnig vel, aö minnsta

kosti að eigin mati, i starfl sinu sem

fyrirsæta og sjónvarpskona. En

ekki var þó allt með felldu og lík-

lega mátti rekja vandann til

bernskuáranna. Það hafði verið

mikið áfall fyrir Julie þegar faðir

hennar yfirgaf móður hennar og

hana er hún var 10 ára gömul. Julie

var ekki nema 17 ára þegar hún gift-

ist nær tvöfalt eldri kaupsýslu-

manni, Roy Sondy. Talið er að það

hafi verið föðurmissirinn sem fékk

hana til að stíga það skref. Julie

hafði heillast af glæsilegu útliti

Roys og þægulegu tilverunni og

fallega heimilinu sem hann bauð.

Hún þurfti ekki að hafa neinar

áhyggjur af framtíðinni.

Drykkfelldur lygari

Það leið þó ekki á löngu þar til í

ljós kom að Roy var drykkfelldur

lygari sem þar að auki beitti eigin-

konu sína ofbeldi þegar hann var

drukkinn. Julie var illa brugðið.

Hún krafðist skilnaðar og fékk

hann.

Julie var orðin 23 ára þegar hún

hitti Tim Nosh, 35 ára gamlan vin-

sælan landslagsarkitekt í Trenton í

Jew Jersey. Hann var algjör and-

stæða fyrri eiginmanns Julie. Þegar

Julie hafði eignast dótturina Katie

1995 var hún orðin vinsæl fyrirsæta

og sjónvarpskona.

Innst inni saknaði hún þó ein-

hvers sem hún öðlaðist ekki í

rólegum faðmi fjölskyldunnar. Árið

1997 varð hún alvarlega þunglynd.

Hún trúði bæði vinkonum sínum og

áhyggjufullum eiginmanni sínum

fyrir líðan sinni. Hann stakk upp á

að þau færu i skemmtisiglingu um

Karíbahafið í nóvember. Eiginmað-

urinn vonaðist til að Julie hresstist

andlega    við    siglinguna.    Hún

Julie, Katie og Tim

Julie saknaöi einhvers sem hún fann ekki í faömi fjölskyldunnar.

hresstist svo um munaði.

Lagt var í ferðina frá Flórída og

stefnan tekin til Dómíníska lýðveld-

isins. Þar átti fjölskyldan góðar

stundir á sólheitri ströndinni og í

hlýjum sjónum. Tim tók svo sem

eftir því að Julie þótti gaman að

ræða við ungan, sólbrenndan mann.

Hún sagði hann heita George

Skidopoulos og vera 24 ára gamlan

Grikkja. Hann var vélstjóri á

skemmtiferðaskipinu sem litla fjöl-

skyldan sigldi með.

Tim Nosh greindi síðar frá því að

hann hefði ekki verið afbrýðisamur,

að minnsta kosti ekki í byrjun. „Það

er ekki hentugt þegar maður á

glæsilega konu sem gengur vel í

starfi. Maður ætti heldur að vera

stoltur af henni," sagði hann.

Tók ekki eftir

viðvörunarbjöllunum

Hann tók ekki eftir viðvörunar-

bjöllunum þó að það heyrðist hátt í

þeim. Þegar þau voru komin heim

til Trenton trúði Julie vinkonu

sinni fyrir því að kynni hennar við

George hefðu leitt til þess að henni

leið eins og fiðrildi sem sloppið

hefði úr púpu sinni. „Ég öðlaðist

sjálfsvirðingu og mér fannst ég vera

elskuð og þráð," sagði hún.

Siminn hringdi án afláts dag og

nótt þegar þau voru komin heim.

Það var George sem hringdi. Julie

gerði ekkert til að vísa honum frá.

Hún naut tilbeiðslu hans.

í febrúar á næsta ári tilkynnti

Julie eiginmanni sinum að hún

vildi fara í aðra skemmtisiglingu

um Karíbahafið. Þessi ferð átti að

George Skidopoulos

Gríski vélstjórinn heillaöi ungu módurina sem fariö hafði í skemmtisiglingu

meö eiginmanni sínum og lítilli dóttur.

vera nákvæmlega eins og sú fyrri,

hún vildi fara á sama

ákvörðunarstað og með sama skipi.

Hún hafði engan áhuga á öðrum

möguleikum sem i boði voru.

Tim var undrandi og skildi ekki

kröfur Julie. Það var einn vina hans

sem útskýrði fyrir honum hver

væri raunveruleg ástæða fyrir

áhuga Julie á einmitt þessari ferð.

Ástæðan var George Skidopoulos.

Það var ekki fyrr en hjónin komu

heim       aftur       eftir       seinni

„Síminn hringdi án af-

láts dag og nótt þegar

þau voru komin heim.

Það var George sem

hringdi. Julie gerði

ekkert til aö vísa hon-

um frá. Hún naut til-

beiöslu hans. í febrúar

á næsta ári tilkynnti

Julie eiginmanni sínum

aö hún vildi fara í aðra

skemmtisiglingu..."

skemmtisiglinguna sem Tom

viðurkenndi að hjónaband hans

væri að fara út um þúfur. Hann

fékk reikning upp á þúsundir

dollara fyrir símtöl Julies við

George         um         borð         í

skemmtiferðaskipinu. Sama haust

yfirgaf Julie eiginmann sinn og

dóttur. Hún tók upp fyrra eftirnafn

sitt og fiutti í litla íbúð í Trenton.

Þangað flutti George eftir að hann

hafði afskráð sig af skipinu.

Það leið ekki á lóngu þar til

George þóttist eiga Julie með húð

og hári. Hann bannaði henni að

umgangast aðra, meira að segja

gömlu vinkonurnar hennar. í

desember fór hann til Aþenu og

Julie fylgdi fljótt á eftir. Hún hafði

orðið við kröfu hans um að skilja

Katie litlu eftir i Trenton. Hann

hafði sagt henni að fjölskylda hans

myndi ekki sætta sig við að hún

ætti barn með óðrum manni.

Julie kom til Aþenu 6. desember.

Þann 10. janúar fékk vinkona

hennar fréttir sem ollu áhyggjum.

George   Skidopoulos   hringdi   og

sagði að Julie væri horfin.

Sendi einkaspæjara til

Grikklands

Fregnin barst strax til Tim Nosh.

Hann réði til sín einkaspæjara og

sendi hann til Grikklands. Með

aðstoð grísku lögreglunnar hleraði

einkaspæjarinn síma Georges.

Skömmu siðar heyrðu þeir George

segja félaga sínum að hann hefði

myrt Julie þegar hún ætlaði að snúa

heim til Ameríku. Hún átti ekki að

fá að flugsast um með öðrum.

George var strax handtekinn og

kærður fyrir morðið á Julie Scully.

George sagði hrokafullur og

kuldalega frá því hver örlög ungu

fallegu konunnar hefðu orðið. Hann

hafði farið með hana á eyðiströnd

þar sem hann hafði kyrkt hana. Því

næst hafði hann höggvið höfuðið af

búknum og fleygt því í hafið.

Búknum hafði hann troðið í

pappakassa og sökkt honum í fen

eftir árangurslausar tilraunir til að

kveikja í honum. Höfuðið fannst

aldrei en búkurinn fannst á þeim

stað sem George Skidopoulos benti

á. Fjölskylda Georges fékk áfall og

vildi ekkert hafa með hann að gera.

George var dæmdur í

lífstiðarfangelsi án nokkurra

mögulega á náðun.

„Ég mun aldrei skilja hvað hin

fallega dóttir mín sá við svona

ruddalegan, eigingjarnan og

hrokafullan mann eins og þessi

Grikki var," segir móðir Julie. „Það

er aðeins hægt að útskýra með því

að andstæður dragist hvor að

annarri, að það sé hægt að upplifa

ævintýrið um Fríðu og dýrið i

raunveruleikanum."

George og Julie

Julie hitti gríska vélstjórann um borö í skemmtiferöaskipinu.

Julie

Hún var falleg og henni gekk vel í

starfi.

Bréf frá morðingja

Stefanie Dertz var aðeins 14 ára þegar hún var

myrt á grimmilegan hátt.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72