Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						p54

LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000

+-

1

Tilvera

E>V

Feröamolar

Norska

hafmeyjan!

Það er óhætt að segja að Norð-

> menn séu farnir að fara ótroðnar

slóðir í ferðamennskunni. Túristi á

ferð um Lýsufjörð stökk úr bát sín-

um af forundran og akafa er hann

sá hafmeyju svamla um í firðinum.

Þetta reyndist vera Line Oexnevad,

tveggja barna móðir á fertugsaldri,

allsnakin að undanskilinni siðri

hárkollu og löngum fisksporði. í

nokkur ár hefur hún verið ráðin

sem hafmeyja til að hrista óvænt

upp í túristum sem fara í siglingar

um firði í Vestur-Noregi. Hún við-

urkennir að þetta geti orðið ansi

kalt spaug en er stolt af því að

vera eina hafmeyjan í heiminum

ásamt þeirri dönsku. Norðmenn!

Túlkar

í leigubíla

Ósjaldan geta samræður við

leigubílsstjóra á erlendri grund

reynst ansi erfiðar. Ferðamálayfir-

völd í Seúl telja sig komna með

lausnina. Komið hefur verið fyrir i

tilraunaskyni rafrænum tungu-

málatúlkum í 2500 leigubifreiðum.

Til að byrja með munu þeir geta

þýtt ensku, japönsku og kínversku

en þegar er unnið að því að bæta

við þýsku, frönsku og rússnesku.

Gefi þetta góða raun verður kerf-

inu komið fyrir í öllum 70.000

^leigubílum Seúl fyrir 2002 en þá

heldur Kórea einmitt heimsmeist-

arakeppnina í knattspyrnu. íslensk-

ir boltaáhugamenn sem eru slark-

færir í ensku ættu því að geta

komist auðveldlega á milli valla.

Að lokum má geta þess að á síð-

asta ári heimsóttu tæpar fimm

milljónir ferðamanna Suður-Kóreu

en fiestir beirra munu vera Japan-

ir og Kínverjar.

Misheppnaðar

útgöngur

Samkvæmt bandarískri rann-

sókn mistakast útgöngur úr flug-

vélum í neyðartilvikum alltof oft.

rKemur m.a. fram að i sjö tilvikum

af þeim nítján sem skoðuð voru

áttu farþegar og áhöfn í miklum

erfiðleikum með að nýta sér upp-

lásna útgöngurennibraut sem beitt

er þegar eldur eða reykur kemur

upp í vélum á jörðu niðri. í tveim-

ur tilvikanna mistókst það með

öllu. Við fiugvélaárekstur í Quincy

í Elinois tókst björgunarmönnum

ekki að opna dyr annarrar vélar-

innar með þeim afleiðingum að 14

manns létust af völdum bruna eða

reykeitrunar.

Býrðu í Kaupmannahöfn?

Ertu á leiðinni ???   |

www.islendingafelagid.dk

Aðalsteinn Ingólfsson skrifar:

Á sögufrægum

slóðum í Virginiu

Nú þegar orðið er fáránlega ódýrt

fyrir íslendinga að ferðast til Banda-

ríkjanna eru þeir æ fleiri sem ekki

láta sér nægja að þvælast þar um

kringlur heldur nota tækifærið og

aka lun sveitir landsins. í flestum

tilfellum er sveitin nær en flestir

halda. Séu menn að erindast í New

York tekur ekki nema klukkutíma

að aka neðan úr mannhafinu í Man-

hattan upp í skógi vaxin héruð þar

sem mannlífið hefur furðu lítið

breyst frá því um miðja öldina.

Og séu menn í skreppitúr í

Baltimore/Washington þá er einnig

hægðarleikur að komast til fegurstu

og sögufrægustu héraða austur-

strandarinnar þar sem menn bárust

á banaspjótum, bæði í Frelsisstríð-

inu og Þrælastriðinu.

Um daginn ákvað sá sem þetta

skrifar að láta rætast gamlan

draum, eða réttara sagt tvo gamla

drauma, að komast til Gettysburg,

þar sem háð var ein mannskæðasta

orrusta Þrælastríðsins og Abraham

Lincoln flutti snilldarlega ræðu, og

ganga daglangt eftir Appalaciu-slóð-

anum (Appalacian Trail), lengstu og

vinsælustu gönguleið í Bandaríkj-

unum.

Út af fyrir sig er auðvelt að koma

þessu til leiðar. Á Netinu mátti fá

upplýsingar um sögufræga bæi ná-

lægt Shenandoah-dalnum þar sem

auðvelt væri að fmna áðurnefndan

slóða. Með útilokunaraðferðinni

varð fyrir valinu Harper¥s Ferry,

lítill bær þar sem hugsjónamaður-

inn ofstopafulli, John Brown,

hleypti af stokkunum sínu prívat

þrælastriði og galt fyrir með lífi

sínu. Um þann atburð eru margar

frásagnir og söngvar.

Og í Harper¥s Ferry var auglýst-

ur Briscoe Bed & Breakfast (s. 001-

304-535 2416) þar sem staðarhaldarar

buðu upp á heila svítu og ríflegan

morgunverð fyrir 75 dollara á dag.

Gististaðurinn hafði einnig þann

kost að hann var ekki nema 100

metra frá AT slóðanum. í gegnum

Netið var gengið frá bókun á

nokkrum mínútum.

Stutt á orrustuvelllna

Reyndist þetta ákjósanleg tilhög-

un. Harper¥s Ferry er fallegt bæjar-

stæði á hæð á mörkum ánna Potom-

ac og Shenandoah, í 150 ára timbur-

húsi þeirra Hale-hjóna, Jean og Lin,

var tekið á móti íslendingunum sem

væru þeir endurheimtir ættingjar

og á innan við klukkutíma mátti

aka á staði sem margir þekkja af

kvikmyndum og bókum um Þræla-

stríðið, orrustuvellina við

Manassas, Antietam og Gettysburg.

Hefðu menn meiri tíma og áhuga

fyrir ýmsum stórmennum banda-

rískrar sögu, til að mynda Thomas

Jefferson, var hægt að aka niður til

seturs hans, glæsivillunnar Mont-

icello, á 11/2 klukkustund.

Að vísu þykir mörgum óþægilegt

að aka langan veg í þeim hitum sem

þarna eru algengir en á móti kemur

að krökkt er af áningar-og veitinga-

stöðum í fallegum þorpum víða í

héraðinu þar sem allt frá hamborg-

arafæðu og upp í sjávarrétti fyrir

matgæðinga má fá við vægu verði.

Svo ekki sé minnst á þverhandar-

þykkar steikur sem jafnvel mat-

lystugir íslendingar eiga erfitt með

að torga. Á flestum stöðum mátti fá

ríflega útilátnar tví- eða þríréttaðar

máltíðir fyrir 30 dollara á mann.

Þess ber einnig að geta að sjálfir

eru Bandaríkjamenn sér mjög með-

vitandi um sögu sína og flykkjast á

sögustaði á borð við þá sem hér

hafa verið nefndir. Til dæmis eru

miklar biðraðir við Monticello um

helgar, auk þess sem kaupahéðnar

Hús betri borgara

Þetta reisulega timburhús, Briscoe House, er einkennandi fyrir hús í eigu betri borgara í Virginiu á 18. og 19.

Hér liföu höfundur og feröafélagar hans í vellystingum meðan á ferð beirra stóð.

öld.

eru alls staðar og hamast við að

selja gestum þjónustu og minja-

gripi.

Undirritaður ákvað að ganga

fyrst og geyma sér bílferðir. Ferða-

félagar hans og gestgjafar slepptu

honum lausum uppi í fjöllum þar

sem hann gat gengið AT-slóðann til

Harper¥s Ferry úr tveimur áttum.

Nokkur orð um AT: Slóðinn er rúm-

lega 2300 mílur og liggur frá Georg-

íu í suðri og upp til Maine i norðri

og mun samfelld ganga taka meðal-

menn um 6 mánuði. Um 300 manns

Appalacia-slóöin

Höfundur á Appalacia-slóð sem hér

er mjög svo ógreinilegur troðningur.

(Ljósm. VÓ)

eru sögð ljúka þessari maraþon-

göngu á ári hverju.

Breiður bautastelna

Þessi gönguhrólfur lét sér hins

vegar nægja að ganga 34 kílómetra

annan daginn en 12 hinn, mest-

megnis í sumarrigningu og logni.

Síðasta lest fré Gettysburg

Þó var öllu áhrifameira að standa á sama stað og

Lincoln stóð þegar hann flutti ræðu sína í Gettysburg, á

ás efst í kirkjugarði þar sem stór hluti þeirra 50.000

hermanna er grafinn sem féll í bardaganum

þar árið 1863.

Þetta er fráleitt erfiður gönguvegur

akkúrat á þessum stað en í öðrum

fylkjum liggur hann bæði um

myrkviði og eftir háfjöllum, stund-

um óþægilega nálægt grimmari dýr-

um merkurinnar. Það sem gerir

þennan hluta slóðans áhugaverðan

er nálægðin við atburði Þrælastríðs-

ins sem eru tíundaðir á skiltum á

leiðinni, smábardagar jafnt sem

hetjudáðir. Á leiðinni varð á vegi

undirritaðs eina minnismerkið sem

nokkru sinni hefur verið reist í

minningu blaðamanna og ljósmynd-

ara, þeirra sem hættu lifi sínu við

að koma fréttum af orrustum Þræla-

stríðsins til almennings. Við þenn-

an mjög svo óvænta fund sló hjarta

gangandi blaðamanns eilítið hrað-

ar.

Þó var öllu

áhrifámeira að

standa á sama

stað og Lincoln

stóð þegar hann

flutti ræðu sína

í Gettysburg, á

ás efst í kirkju-

garði þar sem

stór hluti þeirra

50.000 hermanna

eru grafnir sem

féllu í bardagan-

um þar árið

1863. Að auki er

mikill fjöldi her-

manna úr báð-

um heimsstyrj-

öldum grafinn í

garðinum.

Að horfa yfir

þessar breiður

bautasteina yfir

meira og minna

nafnlausa

sveitadrengi af

írskum, skosk-

um og þýskum

uppruna, fórn-

arlamba fyrsta

nútímastríðsins,

og hafa um leið

yfir stutta og

snilldarlega orð-

aða           ræöu

Lincolns, sem er

óður til þeirra háleitu hugsjóna sem

Bandaríkin voru reist á, vekur með

gestinum blendnar tilfinningar.

Vissulega setur að manni eftirsjá

eftir þeim samansöfnuðu mannkost-

um sem þarna töpuðust bandarískri

þjóð en einnig þá óþægilegu tilhugs-

un að margt af þvi sem þarna var

barist um hafi Bandaríkjamönnum

ekki enn tekist að útkljá.

Mikið er til af leiðarvísum um

þessar slóðir og bókum um Þrœla-

stríöið. Uhdirritaöur getur mœlt með

þremur „öðruvísi" bókum, einni

feróasógu og tveimur skáldsógum: A

Walk in the Woods eftir gárungann

Bill Bryson, The Killer Angels eftir

Michael Shaara og Cold Mountain

eftir Charles Frazier


I


J

I

4'

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72