Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						LAUGARDAGUR 1. JULI 2000

59

I>V"

Helgarblað

Bestir

af rest

- hörð barátta milli Williams,

Benettons og Jordans

Það fer enginn 1 grafgötur meö

það að tvö langbestu liðin í For-

múlu 1 í dag eru Ferrari og Mc-

Laren. Þannig hefur það verið und-

anfarin tvö ár og er þetta þriðja árið

sem þessi lið eru ein um baráttuna

um efstu sætin. Það gæti þó breyst

á næstu árum. Þó er staðan óvenju-

leg að því leyti í ár að nú er það

McLaren sem á á brattann að sækja

en ekki Ferrari. I liðakeppninni er

Ferrari með 18 stiga forskot á enska

liðið með Mercedes-vélarnar og

Schumacher hefur 22 stigum meira

í sarpinum en næsti maður, David

Coulthard.

„Neöri deildin"

Það er þó önnur barátta sem minna

fer fyrir sem er ekki síður þýðingar-

mikil og gleymist stundum í um-

ræðunni. Hörð barátta er um þriðja

sætið á eftir þeim tvehn stóru og

sem stendur er það Benetton sem

hefur vinninginn. Eftir tvær heim-

sóknir Italans knáa, Giancarlo

Fisichella, á verðlaunapall bæði í

Monaco og Kanada, bættist staða

þeirra nægilega þannig að Williams

er nú komið niður í það fjórða og

Benetton er nú efsta liðið í „neöri"

deildinni. Ralf ,sem fyrrihluta árs-

ins hélt efsta sætinu á eftir McL-

aren og Ferrari-ökumönnunum, hef-

ur látið það í hendur ítalans hjá

Benetton. Jordan hefur einhvern

veginn ekki náð sér á strik það sem

af er árinu og eru talsvert á eftir

hinum tvehn en geta liðsins er mun

meiri en árangurinn eins og berlega

sást í Monaco þar sem Jarno Trulli

missti af hugsanlegum fyrsta sigri

sínum. Frentzen hefur ekki náð að

sýna getu sína til fulls því bilanir

hafa hrjáð hann og hefur hann að-

eins klárað í tvígang. Bæði skiptin í

stigum.

Williams kom á óvart

í upphafi ársins fór Williams vel

af stað og kom það flestum á óvart

að Ralf Schumacher skyldi hafa

komið BMW-vélunum á verðlauna-

pall í sinni fyrstu keppni í Formúlu

1 í 18 ár og var áframhald á góðum

árangri þeirra. Jenson Button var

meira segja svo góður að krækja í

þrjú stig sem segir kannski meira

um getu bílsins en ökumannsins.

Undanfarnar þrjár keppnir hafa

verið óhagstæðar Williams-liðinu

því ekkert stig hefur komið inn.

Ralf hefur verið óheppinn og verið

þvingaður út af í öllum keppnunum.

Af Irvine á Nurburgring, Hakkinen

fór í veg fyrir hann í Monaco og Vil-

leneuve ók á hann í Kanada. Willi-

ams-menn eru þó vongóðir fyrir

keppnina á morgun og segja bílinn

henta brautinni vel. Annað er upp á

teningnum hjá Benetton og segir

Fisichella að bíl þeirra skorti gripið

sem er nauðsynlegt á Magny-Cours.

Jordan, sem vann franska kappakst-

urinn á slðasta ári, vonast að sjálf-

sögðu til að endurtaka leikinn en

heppnin þyrfti þá að vera með þeim

annað árið í röð.

Væntanleg í úrvalsdeildina

Framtíðin er björt fyrir þessi þrjú

lið. Benetton hefur nýlega verið

keypt af Renault og fiæða nú inn pen-

ingar til mannakaupa og búast má

við nýjum öku-

manni við hlið

Fisichella i stað

Wurz. Villen-

euve hefur verið

nefndur til sög-

unnar og ekki

óliklegt að hann

sé tilbúinn að

endurnýja kynni

sín af Renault-

vélunum sem

færðu honum

heimsmeistara-

titilinn árið 1997.

Jordan hefur nú

gert samning við

japanska bíla-

framleiðandann

Honda um að

útvega vélar fyr-

ir næstu ár sem

þýðir að nú

verða þeir með

sömu vélar og BAR-liðið. Þessi samn-

ingur gefur Jordan nýtt líf og eygir

nú mjög bjarta framtíð með Honda

sem kemur til með að eyða milljörð-

um í þróun á nýrri keppnisvél. Fram-

tíð Williams er í höndum BMW sem

á undraverðum tíma hefur náð geysi-

lega góðum árangri í smiði véla

sinna og ljóst að þeir taka mun

skemmri tíma í byrjendamistök en

Mercedes gerði á sínum tíma. Wihi-

ams, Jordan og Benetton munu skipa

úrvalsdeildina í Formúlu 1 ásamt

McLaren og Ferrari. Það eru þvi

spennandi tímar fram undan þar

sem baráttan verður ekki lengur á

milli tveggja bestu liðanna, heldur

þeirra fimm bestu.                   -ÓSG

Það sem liðið er af þessu tímabili

hafa þrír ökumenn verið dæmdir

ógildir vegna tæknilegra galla á

bflum þeirra. Einnig hafa nokkrar

kærur verið sendar. En hverjir

eru þessir löggæslumenn,

hvernig vinna þeir og hvaða vald

hafa þeir...?

Til að vera viss...


Þrír dómarar skipa

keppnisstjóm fyrír hverja  f

keppni og eru þeir breytilegir

á miiii keppnistaða. Tveirsem

koma frá óháðu landi eru

valdnir af FIA á meðan sá ,:

þriðji er valinn af

aksturssambandi þess lands

sem hýsir keppnina hverju,.

Tækniráðinautur FIA,

hefur yfirumsjón

með hópi manna

sem sér um

mælingar. Hann

sendir niðurstöður tií

dómara en hefur „

sjálfurekkiheimildt

að beita refsíngum.

Allir bflarnir 22 eru reglulega

mældir til að sjá hvort þeir

standist reglur. Alla

keppnishelgina eru bflar

teknir inn til mælinga af

handahófi.

Athugað er hvort

bílskel standist þær

reglur sem settar eru

varðandi hæð, breidd,

staðsetningar og þykktir.

i Hugbúnaður stjórn-

töivu og innsigli á

titteknum rafmagnsbúnaði.

Notkun á réttum dekkjum \troiB

Aðrir

möguleikar?

Hraða-

vakt

iupphafi tímabils skila öll liöin inn 10 litra

sýnishorni afeldsneyti sem þau hyggjast

nota yfir tímabilið.' Mælingar á eldsneyti

tekið á keppnum verður að vera sam-

bærilegt því sýnishorni sem lagt var inn.

Samanlögð þyngd

ökumanns og bíls skal

ávallt vera meiri en 600 kg.

ælingamenn ganga á þjónustuskúra og athuga

hvort bflar standast reglur. Keppnislið geta

einnig beðið um allsherjarmælingará bílum.

FÖSTUDAGUR/UUGARDAGUR

Á meðan á tímatökum stendur velur tðlva s

handahófi bíla sem verða kallaðirinn til

þyngdarmælinga. Bkrsetn hafa stöðvast útí á

keppnisbraut komast ekki undan þessum mælingum.

EFTIR KEPPNI  parc-ferme;

Bflar eru kallaðir inn í allsherjar-

mælingar hvenær sem er á meðan á

æfingum og tímatökum stendur.

ÍBSTA0A MÆLINGARMANNA^

Allar ákvarðanir domara

eru afhentar keppnis-

liðum og öðrum

lykilmönnum.

'Keppnisliö geta s

að nýtt sýnishorni

Allir bílar og ökumenn sem klára

keppni eru vigtaðir. Reglulega

eru allar mælingar endurteknar.

Komi eitthvað í Ijós sem ekki

stenst reglur getur viðkomandi

verið sviptur úrslitum.

t um eldsneyti á tímabilinu eftir

fur verið samþykkt af FIA.

——aortte

Of mikill hraði á

þjónustusvæði í

keppni þýðir 10

sekúndur í ref singu.

Fyrir hraðabrot á

öðrum tímum fá

ökumenn að finna

fyrir því þar sem beir

eru hvað veikastjr fyrir í

veskinu. Sektirnar eru

ákvarðaðar af hraða og

fyrri brotum.

Atvik og

aðgerðir

keportis-

...til dómara semgeta

ákvarðað refsingu i samræmi

við brotið. Þessar refsingar

geta verið allt frá áminninga

og sekta til brottvísunar úr

keppni. í einstökum tilfellum

er ökumönnum vísað til

Alþjóða akstursíþrótta-

dómstólsins.

%   ^   9

Dómstóllínn hefur vald til að

beita mjög hörðum

refsingum og allt að

æviiöngu keppnisbanni.

Algengustu refsingarnar eru

þó að afnema stig eða

timabundinn brottrekstur.

".fSr   „    IWdm

yfirburdir

Formúlufréttir

visir.is

Jordan fær Honda-vélar

Honda tilkynnti á fimmtudag að Jor-

dan-liðið myndi fá Honda-vélar í bila

sína strax á næsta ári. Honda mun samt

halda áfram að sjá BAR-liðinu fyrir vél-

um og þróa með þeim nýja grind í bíl

þeirra. Jordan mun fá sömu véiar og

BAR-liðið.

Hákkinen þarf á sigri að halda

Nú þegar tímabilið í Formúlunni er

hálfnað og níundi kappaksturinn um

helgina i Frakklandi er núverandi

heimsmeistari, Mika Hákkinen, í þriðja

sæti í keppni ökumanna, 24 stigum á eft-

ir aðalkeppinaut sínum, Michael

Schumacher. Hákkinen viðurkenndi í

gær að staðan liti ekki alltof vel út en

bætti við: „Við eigum níu keppnir eftir

svo að ég er enn vongóður." Hann sagði

þó að með hverri keppni sem hann ynni

ekki minnkuðu möguleikar hans um-

talsvert. Fyrirliði McLaren, Ron Dennis,

lítur öðruvísi á þetta. „Það verður að

skoða þetta í samhengi og það er enn

langur vegur eftir. Við náðum aðeins

fjórum stigum í síðustu keppni en hefð-

um getað lent i 16-0 stöðu. Þess í stað

náðu þeir 12 stigum á okkur en það hefði

getað farið verr." Hakkinen þarf nú

helst að vinna nokkrar keppnir í röð. Ef

hann ynni næstu sex myndi hann ná

Schumacher að stigum nái Schumacher

öðru sæti í þeim öllum.

Mun Franchitti reyna fyrir sér hjá

Jaguar?

Jagúar ætlar sér að prófa nýjan öku-

mann fyrir næsta ár og eitt þeirra nafha

sem komið hafa upp í umræðunni er

Dario Franchitti. Hann varð annar í

CART-keppninni í fyrra með Team Kool

Green-liöinu, en samningur hans þar

rennur út um áramótin. „Við höfum tal-

að við fjolda manns og fengið spennandi

tilboð en ekkert er ákveðið enn þá." Það

hefur lengi verið vitað að Franchitti hef-

ur áhuga á að keppa i Fl, alveg síðan

hann hóf feril sinn með stuðningi

Jackies Stewarts í Formúlu 3. Talsmað-

ur Jagúar lét hafa þetta eftir sér:

„Próftmin gæti farið fram hvenær sem

er en við höfum ekkert ákveðið enn þá.

Við höfum ekki endurskoðað ökumanns-

val okkar enn og þurfum að skoða alla

þætti vel áður en við ákveðum eitt-

hvað." Ef Franchitti kemur í Formúluna

á næsta ári mun slagur hans viö Juan

Montoya, aðalkeppinaut sinn í CART-

kappakstrinum, halda áfram. Montoya

vann í fyrra þótt þeir hefðu verið jafnir

að stigum þar sem hann hafði sigrað oft-

ar.

Sauber hefur áhuga á Button

Sauber-Petronas hefur sýnt áhuga á

að ráða Jenson Button til starfa frá og

með næsta tímabili. Auk Sauber-liðsins

hafa Jagúar og Jordan skoðað það að

ráða þennan hæfileikaríka, tvítuga ný-

liða í Formúlunni. Williams-liðið mun

að öUum líkindum ekki endurnýja ráðn-

ingarsamning hans fyrir næsta ár og

taka inn í stað hans Juan Pablo

Montoya sem er talinn einn af bestu

ökumönnum í heiminum nú. Staða öku-

manna hjá Sauber er óviss í augnablik-

inu og talað er um að Mika Slao muni

ráða sig til Toyota strax á næsta ári, ári

áður en samningur hans rennur út.

Pedro Diniz hefur gengið Ula að undan-

fórnu og ekki talið líklegt að samningur

hans verði endurnýjaður í lok ársins.

Irvine hrif inn af Indianapolis

Formúluökumennirnir geta varla

vatni haldið af hrifhingu á nýju braut-

inni í Indianapolis og nýjasti ökumaður-

inn til að bætast i þann hóp er Eddie Ir-

vine. Hann hlakkar mikið til að reyna

brautina og segir að Formúluna hafl

vantað viðburð sem þann þegar keppt

verður í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í

áratug. „Ég get varla beðið eftir að

keppa i Indianapolis. Ameríka hefur

ekki verið á dagatalinu í næstum áratug

og að komast til Indianapolis, heimUis

Indy 500, er aldeUis frábært. Ein beygjan

notar hluta af sporöskjunni og ég hlakka

mest tU að reyna við hana, að keyra for-

múlubU á uppsveigðri beygju. Amerík-

anar vUja hafa hlutina stærri og það lít-

ur út fyrir að þeir vilji hafa þá hraðari

líka. Bandaríski kappaksturinn hefur

aUa burði til að verða skemmtUegasta

keppni ársins." Frentzen heimsótti líka

nýlega brautina og hann telur að nýtt

met í hraða í Formúlunni verði sett þar.

Hann segir einnig möguleika á að taka

þar fram úr. Kappaksturinn í Bandaríkj-

unum fer fram 14. september nk.

Wurz firæðir á nýju reglugerounum

Alexander Wurz, ökumaður

Benetton-liðsins, mun græða á nýju

reglugerðunum sem taka gUdi á næsta

ári. Breytingarnar koma hávöxnum öku-

mönnum tU góða en Wurz er einmitt há-

vaxinn á mælikvarða formúluöku-

manna, rúmir 180 sentímetrar á hæð.

„Breytingarnar eru ekki miklar en

hjálpa mér samt mUtið. Það er ekki bara

hæðin heldur lika þyngdin sem skiptir

máli. Þyngdarmunurinn á mér og Gi-

ancarlo skiptir máli þvi að hann nær

3/10 úr sekúndu betri tíma en ég." Hvort

það hjálpar Wurz aö halda sæti sínu

verður bara að koma í ljós.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72