62 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 Ættfræði I>V Urnsjón: Kjarian Gunnar Kjartansson Stórafmæli 85 ára Gísli Guðmundsson, Vesturgötu 30, Reykjavík. Sigríður Árnadóttir, Melteigi 8, Akranesi. Hún veröur aö heiman. Sigurþór Jónasson, Efri-Kvíhólma, Hvolsvelli. 80 ára__________ Alda Markúsdóttir, Tjarnarmýri 37, Seltjarnarnesi. Arnheiður Lilja Guðmundsdóttir, Víðimel 32, Reykjavík. Gunnar Sigurðsson, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði. 75 ára__________________ Böðvar Jónsson, Gautlöndum 1, Reykjahlið. * Júlíus Þorkelsson, Hvanneyrarbraut 36, Siglufirði. 70 ára__________________ Anna H. Káradóttir, Hamrahlíð 6, Egilsstöðum. Guðrún Stefánsdóttir, Tómasarhaga 22, Reykjavík. Gunnar Guðmundsson, Heiðarholti 19, Keflavík. Kristín Friðbjamardóttir, Vallargerði 2c, Akureyri. Nína Björg Kristinsdóttir, Melgerði 39, Kópavogi. Sigrún Jóhannsdóttir, Stóragerði 23, Hvolsvelli. Sigurður Magnússon, Bláskógum, Breiðdalsvík. Þorbjörg Ólafsdóttir, -. Efstasundi 88, Reykjavík. 60 ára__________________ Birgir Brynjólfsson, Ástúni 14, Kópavogi. Guðmunda Inga Guðmundsdóttir, Engihjalla 1, Kópavogi. Guðmundur Stefánsson, Nesgötu 32, Neskaupstað. Þörey Kolbrún Hallaorsdóttir, Selási 29, Egilsstöðum. 50 ára__________________ Edda Hilmarsdóttir, Sóltúni 28, Reykjavík. Fjóla Bjömsdóttir, ^, Bollagörðum 53, Seltjarnamesi. Gerður Ebbadóttir, Blönduhlíð 20, Reykjavík. Gunnlaugur Árnason, Lágholti 18, Stykkishólmi. Hann og fjölskylda hans veröa úti í Bíldsey á Breiöafirði á afmælisdaginn og taka þar á móti gestum. Gyða Vigfúsdóttir, Víðiteigi 32, Mosfeltsbæ. Jiri Jón Berger, Ránargötu 16, Akureyri. Jón Már Björgvinsson, Skjólvangi 5, Hafnarfirði. Lovísa Kristjánsdóttir, Granaskjóli 54, Reykjavík. Sigrún Jakobsdóttir, Víðilundi 10, Garðabæ. Slgurjón Þór Tryggvason, Ránargötu 10, Reykjavík. - Theódóra Gísladóttir, Bollagörðum 3, Seltjarnarnesi. 40 ára__________________ Anna Dóra Sigurðardóttir, Sjafnargötu 6, Reykjavík. Blma Harðardóttir, Smárahlíð le, Akureyri. Eyrún Anna Sigurðardóttir, Flugumýri, Varmahlíö. Guðrún Hulda Heimisdóttir, Einholti lOc, Akureyri. Guðrún Jðnsdóttir, Villingadal, Akureyri. Gunnar Guðjónsson, Grundarási 7, Reykjavík. Heimir Már Maríuson, Hverafold 52, Reykjavík. Ingibjörg Aradóttir, Vestursíðu 34, Akureyri. *" Kristján Bergmann Olgeirsson, Vallholtsvegi 9, Húsavík. Theódóra Ólafsdóttir, Berjarima 65, Reykjavík. Sólveig Olafsdóttir frá Þinghóli, Vestmannaeyjum, síöast til heimilis á Dvalarheimilinu Hraunbúðum, lést að kvöldi þriðjud. 27.6. Matthías Inglbergsson apótekari,Hraun- tungu 5, Kópavogi, andaöist á Land- spítalanum 28.6. Halldór Kristmundur Hjartarson, Holts- götu 1, Ytri-Njarðvík, lést 21.6. Útförin j fór fram 1 kyrrþey aö ósk hins látna. Halldór Guðjón Magnússon málarameistari, Melbæ 43, lést að morgni fimmtudagsins 29.6. Niels K. Svane, Akralandi 3, lést á heimili sínu 28.6. Karl Reynir Ólafsson, Múlakoti, Rjótshlíð, lést á Sjúkrahúsi Selfoss að morgni fimmtud. 29.6. Fimmtugur Níels Árni Lund deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu Níels Árni Lund, deildarstjóri, i landbúnaðarráðuneytinu, Miðvangi 93, Hafnarfirði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Níels Árni er frá Miðtúni á Mel- rakkasléttu. Hann lauk íþrótta- kennaraprófi 1972 og kennaraprófi frá Kl 1973. Níels Árni var kennari og skóla- stjóri um tiu ára skeið víðs vegar á landinu, síðast félagsmálakennari við Samvinnuskólann á Bifröst. Hann var Æskulýðsfulltrúi ríkisins 1981-85, ritstjóri Tímans 1986-87, að- stoðarmaður landbúnaðarráðherra 1987-88 og er deildarstjóri umhverf- is- og gróðurverndarsviðs landbún- aðarráðuneytisins frá 1988. Níels hefur m.a. verið forstöðu- maður Kvikmyndaeftirlits ríkisins, formaður Markaðsnefndar landbún- aðarins, stjórnarformaður St. Jós- epsspítala í Hafnarfirði, ritari Fagráðs i landgræðslu, ritari Bláa- lónsnefndar, hefur átt sæti í nefnd- um á vegum Nordisk minester- eraad, er stjórnarformaður Héraðs- skóga, stjórnarmaður í Bláfjalla- nefnd og formaður nefndar um end- urheimt votlendis. Hann starfaði lengi innan Ung- mennafélagshreyfingarinnar, var einn af stofnendum Kiwanisklúbbs- ins Faxa á Kópaskeri og fyrsti for- seti hans og síðar stofnandi Lions- klúbbsins Víðarrs í Reykjavík þar sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum, er stjórnarmaður Attræður í Æðarræktarfélagi Islands, í stjórn Skógræktarfélags Hafnfirðinga og í sóknarnefnd Víðistaðakirkju. Níels Árni var varaformaður SUF í eitt kjörtímabil, í miðstjórn Fram- sóknarflokksins í fjórtán ár, í fram- kvæmdastjórn fiokksins í tíu ár, var varaþingmaður Framsóknarflokks- ins 1979-89, fyrst í Norðurlandskjör- dæmi eystra en síðar í Reykjanes- kjördæmi og sat oft á Alþingi. Fjölskylda Kona Nielsar Árna er Kristjana Benediktsdóttir úr Keflavík, f. 8.7.1952, skjalavörður hjá nefnda- sviði Alþingis. Foreldrar hennar: Benedikt B. Guðmundsson, sjómað- ur úr Keflavík, og Steinunn Hall- dórsdóttir frá Vörum í Garði. Börn Nielsar og Kristjönu eru Steinunn, f. 14.9.1973, sambýlismað- ur hennar er Valdimar Sveinsson og er sonur þeirra Sveinn Andri, f. 8.1. 1988; Elvar Árni, f. 29.8. 1975: Helgi Þór, f. 27.2. 1985. Bræður Níelsar eru Árni, f. 28.10 1938, sjómaður á Raufarhöfn kvæntur Svanhildi Ágústu Sigurð ardóttur húsmóður; Maríus Jóhann f. 11.6. 1946, trésmíðameistari Reykjavík, kvæntur Ásdísi Karls dóttur, gjaldkera hjá RÚV; Kristinn f. 11.4. 1948, viðskiptafræðingur, fjármálastjóri og starfsmannastjóri SÍF-íslandi, kvæntur Guðnýju Gutt ormsdóttur sjúkraliða; Benedikt 4.3. 1952, lögregluvarðstjóri, kvænt ur Önnu Ólafsdóttur kennara Konráð Ó. Kristinsson - fyrrv. starfsmaður Mjólkursamsölunnar Konráð Ó. Kristinsson, fyrrv. starfsmaður Mjólk- ursamsölunnar í Reykja- vík, er áttræður í dag. Starfsferill Konráð fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði ýmis störf á ung- lingsárunum og sem ung- ur maður en hélt síðan á vit ævin- týranna, gerðist farmaður og sigldi þá um öll heimsins höf um nokk- urra ára skeið. Konráð kom aftur heim til ís- lands 1949 og stundaði þá sjó- mennsku fyrst um sinn. Hann starf- aði síðan hjá Sænska frystihúsinu í nokkur ár en 1958 hóf hann störf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og starfaði þar í þrjátíu og tvö ár eða þar til hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Konráð hefur lengi verið áhuga- maður um íþróttir. Hann hefur starfað mikið og ötullega með ung- mennafélaginu Breiðabliki í Kópa- vogi um árabil. Hann var útnefndur Heiðursbliki árið 1995. Fjölskylda Eiginkona Konráðs er María Sig- urðardóttir, f. 24.11. 1926, húsmóðir. Hún er dóttir Sigurðar Þorsteins- sonar og Lilju Marteinsdóttur. Synir Konráðs og Mar- íu eru Sigurður Konráðs- son, f. 14.11. 1951, tækni- fræðingur í Kópavogi, kvæntur Kristínu J. Harðardóttur ferðaráð- gjafa, eiga þau tvo syni, Hörð, sem er í sambúð með Lísu Ragnoli, þau eiga soninn Róbert Andra, og Atla Þór; Hall- dór Konráðsson, f. 24.6. 1954, bílstjóri, kvæntur Þóru Þór- hallsdóttur kjötiðnaðarmanni og eiga þau þrjú börn, Huldu Mariu, Aðalheiði og Ágúst Inga; Konráð Konráðsson, f. 15.7. 1961, tölvufræð- ingur, kvæntur Bryndísi Hinriks- dóttur röntgentækni og eiga þau þrjú börn, Unni Ýr, Maríu og Sigurð Örn. Systkini Konráðs eru Víglundur Kristinsson, f. 1923, kvæntur Mörtu Guðrúnu Jóhannsdóttur; Sigríður Kristinsdóttir, f. 1925, d. 1985, var gift Henry A. Higgins sem einnig er látinn; Sigurbjarni Kristinsson, f. 1928, kvæntur Áslaugu B. Matthías- dóttur. Foreldrar Konráðs voru Kristinn Halldórsson, f. 25.7. 1894, d. 22.8. 1982, og Margrét Víglundsdóttir, f. 28.2. 1897, d. 4.7. 1982. Konráð og María verða að heim- an á afmælisdaginn. Andlát 11 Fimmtug Þórunn Gróa Gunnþórsdóttir - húsmóðir í Reykjavík Þórunn Gróa Gunn- þórsdóttir, Frostafold 20, Reykjavík, er fimmtug í dag. Starfsferill Þórunn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Kópavogi. Fjölskylda Eiginmaður Þórunnar er Sigur- jón Þorbergsson, fjölritari í Letri. Synir Þórunnar og Sigurjóns eru Þorberg Pétur, f. 30.4. 1975; Jóhannes Elías, f. 20.10. 1980. Systkini Þórunnar eru Ingibjörg, f. 24.6. 1946; Kjartan, f. 1.8. 1947; Már, f. 2.1. 1953. Foreldrar Þórunnar voru Gunnþór Bjarnason, f. 25.8. 1925, d. 16.2. 1974, verkamaður, og Valgerð- ur Ólafía Þórarinsdóttir, f. 7.5.1928, d. 24.1. 1997, húsmóðir. Sveinbjörn, f. 30.12.1955, vélvirki og vélstjóri á Húsavík, kvæntur Jó- hönnu Hallsdóttur húsmóður; Grím- ur Þór, f. 25.2. 1961, rafmagnsverk- fræðingur, búsettur í Álaborg, kvæntur Evu Norregaard Larsen hagfræðingi. Foreldrar Níelsar Árna eru Árni Pétur Lund frá Raufarhöfn, f. 9.9. 1919, og k.h., Helga Kristinsdóttir frá Nýhöfn, f. 27.2. 1921, ábúendur í Miðtúni. Ætt Árni Pétur var sonur Maríusar Jóhanns Lund, b. á Raufarhöfn, Kristjánssonar, Gottfreðs Lund, af dönskum ættum í föðurætt. Móðir Mariusar var Þorbjörg Árnadóttir frá Ásmundarstöðum á Melrakka- sléttu. Móöir Árna Péturs var Rannveig Lund Laxdal, dóttir Gríms Laxdal, kaupmanns á Akureyri, Jónssonar, hafnsögumanns þar, Guðmundsson- ar. Móðir Grims var Guðrún Gríms- dóttir Laxdal, bókbindara á Akur- eyri, og Hlaðgerðar Þórðardóttur. Móðir Hlaðgerðar var Guðrún Grímsdóttir, b. í Götuhúsum, Er- Attræður lendssonar, bróður Oddnýjar, langömmu Bjarna, langafa Svan- hildar, móður Ólafs Ragnars Grims- sonar forseta. Móðir Rannveigar var Elín Matthíasdóttir, skálds og pr., Jochumssonar. Móðir Jochums var Sigriður Aradóttir, systir Guð- rúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrimssonar forsætisráð- herra. Móðir Matthíasar var Þóra Einarsdóttir, systir Guðmundar prófasts á Kvennabrekku, fóður Theadóru Thoroddsen skáldkonu. Móðir Elínar var Guðrún Runólfs- dóttir, systir Þórðar, föður Björns forsætisráðherra. Helga er dóttir Kristins, vélsmiðs í Nýhöfn, Kristjánssonar, b. í Hraunkoti, bróður Halldórs, langafa Tryggva Þórhallssonar forsætisráð- herra. Kristján var sonur Þorgríms, b. í Hraunkoti, Marteinssonar, og Vigdísar Hallgrímsdóttur, ættföður Hraunkotsættar, Helgasonar. Móðir Helgu var Sesselja Bendiktsdóttir, póst og b. i Akurseli i Vopnafirði, Vigfússonar, og Stein- unnar Jónsdóttur, b. á Arnarbæli á Fellsströnd, Oddssonar, b. á Kjar- laksstöðum, Guðbrandssonar. Móð- ir Jóns var Þuríður Ormsdóttir, ætt- fóður Ormsættar, Sigurðssonar. Móðir Steinunnar var Ingibjórg Guðmundsdóttir, b. á Orrahóli, Guðmundssonar. Níels Árni og Kristjana taka á móti ættingjum, vinum og sam- ferðafólki í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, kl. 17.00-20.00 í dag. Rúnar Þór Ingvarsson - rafvirkjameistari í Garðabæ Rúnar Þór Ingvarsson, rafvirkjameistari, Skógar- lundi 9, Garðabæ, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Rúnar Þór fæddist á Skagaströnd og ólst þar upp. Hann lauk þar lands- prófi, stundaði nám við Iðnskólann á Sauðárkróki og lauk þar meistaranámi í rafvirkj- un. Rúnar Þór Qurti siðan á Blönduós og stundaði þar almenn rafvirkja- störf. Hann hóf störf hjá Rafmagns- veitum rikisins á Blönduósi 1974 og var þar verkstjóri lengst af. Rúnar Þór og fjölskylda hans fluttu í Garðabæinn 1996 og hafa verið þar búsett síðan. Hann starfar nú á aðalskrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins í Reykjavík. Rúnar Þór starfaði í JC-hreyfmg- unni, með hjálarpsveit skáta á Blönduósi, með Leikfélagi Blöndu- óss og var félagi í Lionsklúbbi Blönduóss en hann er nú félagi í Lionsklúbbi Garðabæjar. Þá sinnti hann bæjarstjórnarmál- um á Blönduósi og var tvö kjórtíma- bil formaður byggingar- og skipu- lagsnefndar Blönduósbæjar auk þess sem hann sat í ýmsum öðrum nefndum á vegum bæjarfélagsins. Hann er áhugamaður um flug og hefur einkaflugmannspróf. Fertugur Stefán Þór Pálsson - starfsmaður hjá Tjaldi Stefán Þór Pálsson, starfsmaður hjá Tjaldi. til heimilis að Tjaldanesi í Mosfellsbæ, verður fertug- ur á morgun. Starfsferill Stefán fæddist á Fæðing- arheimilinu í Reykjavík en ólst upp í Kópavoginum. Hann fiutti að Tjaldanesi árið 1970 og hefur verið þar búsett- ur síðan. Hann er starfsmaður viö Fjölskylda Rúnar Þór kvæntist 1.12. 1978 Rósu Margréti Sigursteinsdóttur, f. 20.6. 1955, afgreiðslustjóra Is- landsbanka-FBA. Hún er dóttir Sigursteins Guð- mundssonar, héraðslækn- is á Blönduósi, og Birgittu Dórotheu Vil- helmsdóttur húsmóður sem lést 1995 en þau voru búsett á Blönduósi. Dóttir Rúnars Þórs frá fyrra hjónabandi er Perla, f. 22.7.1972, en sambýlismaður hennar er Bjarni Björnsson og er sonur þeirra Björn Dagur. Fósturdóttir Rúnars Þórs er Sig- rún Eva, f. 29.9. 1973, gift Hirti Birg- issyni og eru börn þeirra Emma El- ísa og Aron Daniel. Dóttir Rúnars Þórs er Katrin Laufey, f. 30.6.1977, gift Bjarna Dan- íelssyni og er dóttir þeirra Rósa María. Sonur Rúnars Þórs er Sigursteinn Ingvar, f. 30.11. 1979. Systkini Rúnars Þórs eru Ragnar Smári, f. 3.9.1954; Gréta Kristjana, f. 7.4. 1959; Árni Geir, f. 23.1. 1962; Vala Rós, f. 16.7. 1967; Þórarinn Brynjar, f. 1.4. 1968. Foreldrar Rúnars Þórs: Ingvar Karl Sigtryggsson, f. 25.10. 1927, d. 10.7. 1988, verkamaður á Skaga- strönd, og Karitas Ólafsdóttir, f. 7.6. 1931, húsmóðir. vinnustofuna Tjald. Fjölskylda Systkini Stefáns Þórs eru Bergþóra Karen Pálsdóttir, f. 27.3. 1954; Páll Ævar Pálsson, f. 2.7. 1960. Foreldrar Stefáns Þórs: Páll Marteinsson, f. 11.12. 1921, og Gyðríð- ur Pálsdóttir, f. 7.12. 1918, d. 7.7. 1989.