68 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 Tilvera I>V 8 ALVORUBIO! Po'l?y í fcE©MRO©INN Vinsæl leikjanámskeið íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur býður upp á fjölmörg nám- skeið á sumrin og á meðal þeirra eru leikjanámskeið fyrir börn fædd 1990-1993 sem haldin eru víðs vegar um borgina og hefur fjöldi barna sótt þessi námskeið. Um er að ræða, í flestum tilvik- um, vikunámskeið," segir Helga Kristín Friðjónsdóttir, verkefna- stjóri Þróttheima, en sá staður er með námskeiðin og er með útibú í Laugarnesskóla. Á þessum stöðum er einnig boðið upp á blöndu af sund- og leikjanámskeiðum fyrir sama aldurshóp. í Langholtsskóla er boðið upp á námskeið fyrir ein- hverfa og saman höfum við leikið okkur, sungið og notið lífsins í sum- Hressar stelpur á leikjanámskeiöí Unnur, Lovísa, Hólmfríður, Alexandra, Ásrún, íris og Sigga Gróa eru á bilinu 7-10 ára og eru á leikjanámkeiði hjá ÍTR. Þeim finnst mjög gaman og sérstaklega finnst þeim gaman að fara í ferðlag, fjöruferðir og sund. Helga Kristín Friojónsdóttir, verkefnastjórl Þrótthelma Krakkarnir kunna vel að meta það sem boðið er upp á. ar." Að mati Helgu eru námskeiðin fjölbreytt og skemmtileg þar sem fag- mennska og öryggi er í fyrirrúmi. Starfsfólk námskeið- anna er fólk með fjöl- breytta menntun og áhugamál í farteskinu og það gerir starfíð og sam- veruna með börnunum sérstaklega skemmtilega. Unnið er út frá þemum og fram undan eru meðal annars ævintýraþema, íþrótttaþema, Afr- íkuþema auk fleiri spennandi uppá- koma. í júní hafa fjölmörg böm nýtt sér þennan skemmtilega valkost og má segja að fullt hafi verið á öll nám- skeiðin til þessa. Námskeiðin munu standa yfir út ágústmánuð og eru þau óðum að fyllast, þó eru enn pláss laus. Skráning fer fram í Þróttheimum og í útibúinu í Laug- arnesskóla. Hafdís Bjarnadóttir gítarleikari leikur djass í Deiglunni. Listasumar á Akureyri: Djass og fagurtónlist Það er mikið um að vera á Listasumri á Akureyri næstu viku eins og verið hef- ur undanfarið. Fjölmargar áhugaverðar sýningar eru í gangi auk þess sem tón- leikar eru nánast daglega. Á morgun verða í Deiglunni kl. 21 djasstónleikar. Tvær hljómsveitir koma fram. Hljómsveit frá Tönlistarskóla FÍH en hana skipa Róbert Reynisson, gitar, Þorgrímur Jónsson, bassi, Helgi Svavar Helgason, trommur, Ragnar Emilsson, gítar og Birkir Freyr Matthíasson, trompet, og hljómsveitin Jazzandi: Sigur- jón Axelsson, gitar, Sigurdór Guðmunds- son, bassi, Stefán Pétur Viðarsson, trommur, ásamt Hafdisi Bjarnadóttur, gítar, spila standarda og frumsamið efni. Á þriðjudag, kl. 20, verða fagurtónleik- ar í Deiglunni. Jóna Fanney Svavarsdótt- ir syngur við undirleik Láru Rafhsdóttur. Jóna Fanney hefur komið fram við ýmis tækifæri og starfað með kór Islensku óp- erunnar og tekið þátt í uppfærslum með honum. Dagskrá Jónu Fanneyjar og Láru verður blönduð og má þar nefna þýsk ljóð, íslenskar og skandinavískar períur, aríur og söngleikjalög. Meðal sýninga sem eru í gangi á Ak- ureyri má nefna að á Café Karolínu sýnir Guðrún Þórsdóttir verk sin og á Karólínu Restaurant sýnir Sigurður Árni Sigurðarson. í Safnasafoinu á Svalbarðsströnd, skammt utan Akur- eyrar, mun Valgerður Guðlaugsdóttir opna sýningu í dag kl. 14.