FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 1. JULI 2000 Hellisheiði: Harður árekstur Árekstur varð á Hellisheiði, skammt frá Skíðaskálanum í Hvera- dal, í gær laust eftir klukkan 17. Slys- ið varð með þeim hætti að jeppi með rfullorðnum hjónum á leið austur og fólksbfll á leið í gagnstæða átt skullu saman. Stúlkan 1 fólksbíkium var flutt mikð slösuð með sjúkrabíl til Reykjavíkur en meiðsl hennar voru ekki talin lífshætturleg. Mikil umferð var um heiðina og var veginum lokað og umferð beint um Þrengslin. Vegur- inn var enn lokaður þegar blaðið fór í prentun. -KGP Sleipnisdeilan: Þokast í áttina Óskar Stefánsson formaður Sleipn- is sagði í gærkvöldi samingaviðræð- ur vera á málefnalegum nótum og myndaðir hefðu verið vinnuhópar sem færu yfir stöðuna. Taldi hann út- litið bjartara en áður. Kristnir áhugamenn: Missa ekki af úrslitaleiknum Kristnir knattspyrnumenn þurfa ekki að óttast að missa af úrslitaleik Evrópukeppnínnar í knattspyrnu ef þeir fara á Kristnitökuhátíðina. Hótel Valhöll mun nefnilega sefja upp sex sjónvarpsskjái fyrir utan hjá sér í stóru veitingatjaldi og sýna leikinn i beinni útsendingu á sunnudag. Gestir geta set- ið við borð og notið veitinga og er að- staðan opin öllum aldurshópum. Umferð frá Þingvöllum verður opnuð klukkan 17 á sunnudag, en leikurinn hefst klukkan 17.45. Þar sem lögreglan býst við mikilli umferð mátti gera ráð fyrir þvi að margir Kristnitökuhátíðar- gestir myndu missa af leiknum. Hótel Valhöll, í samvinnu við Elko, mun hafa sjónvarpið í gangi á laugardag og sunnudag og auk leiksins sýna For- múlu 1 kappaksturinn líka. Hótel Val- höll er opið fyrir almenning á meðan Kristnitökuhátíðin fer fram. -SMK Gæði og glæsileiki smoft (sólbaðstofa) Grensásvegi 7, sími 533 3350. VAR HANN ÞA BARINN í BUFF? y .*; Haröur árekstur. Mjög harður árekstur varö á Hellisheiöi, skammt frá Skíðaskálanum í Hveradal, ígær laust eftir klukkan 17. Stúlkan í fólksbílnum var flutt mikð slösuð með sjúkrabíl til Reykjavíkur Vegagerðin á Vestfjörðum: Soguminjar eyðilagðar við vegarlagfæringar - best geymdar neðanjarðar, segir talsmaður Vegagerðarinnar Vegagerðin á Patreksfirði er að breyta veginum sem liggur fram hjá Seljagili og upp Kleifaheiði og við það fyllt upp i námu í Stálfjallinu og eyði- lagt náttúrulegan farveg foss sem er innst í Seljagili. Náman var grafin á fyrri striðsárunum. Þeir hafa trúlega verið að leita að surtarbrandsæð og ætlað sér að grafa göngin þannig að hægt væri að nota hafnaraðstöðuna við Patreksfjörð. Það er nuna verið að færa vegarstæðið til og það mun trú- lega hyh'a þetta litla námuop," sagði Jóhann Ásmundsson, safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti, Patreksfirði. Ætlunin var að grafa göng í fjallið þannig að hægt væri að nota höfnina á Patreksfirði til þess að flytja surtarbrandirm, en þau plön fóru út um þúfur og eftir liggja söguminjar. Námuna vantar tæp 20 ár upp á að flokkast sem fornminjar, þannig að lög ná ekki að vernda hana. Að sögn Krisrjáns Kristjánssonar, tæknifræðings og talsmanns umdæm- isverkfræðings Vegagerðarinnar á ísafirði, hefur verið óskað eftir því við Vegagerðina að hún skemmi svæðið ekki við tilfæringarnar en Vegagerðin ætlaði sér hins vegar að leggja veginn eftir planinu sem sveit- arstjórnin samþykkti að undan- gengnu áliti Náttúruverndar ríkisins. Erum við að skemma söguminj- ar?" spurði Kristján. Eru söguminj- ar ekki best geymdar neðanjarðar? Þær veðrast þá ekki." Vegagerðin er að fylla upp í hluta af Seljagilinu og auk þess að hylja námuna munu tilfæringarnar eyði- leggja síðasta gljúfrið þar sem fossinn innst í gilinu fellur niður. Jóhann sagði að mörgum Patreksfirðingum þætti vænt um fossinn. Kristján sagði hins vegar að vegurinn mundi fara nálægt fossinum en ekki skemma hann. Að sögn Jóhanns er nú þegar búið að hrófia svo mikið við svæðinu að hann efaði að hægt væri að færa svæð- ið í samt horf, jafnvel þótt Vegagerðin hætti framkvæmdum þar. -SMK Reykvískur karlmaður dæmur í Héraðsdómi: 8 mánaða fangelsi fýrir kynferðisafbrot Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur dæmt mann um fimmtugt í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðis- brot gegn tveim unglingsstúlkum árið 1998. Einnig var honum gert að greiða stúlkunum samtals 500.000 í miskabætur, sem og 90.000 í málskostnað þeirra. Stúlk- urnar voru 14 og 15 ára er atburð- irnir áttu sér stað og maðurinn því nærri 35 árum eldri en þær. Stúlkurnar kynntust mannin- um vorið 1998, en sögðu frá at- burðunum í lok ársins. í dómsúr- skurðinum segir að langlíklegast (er) að ákærði hafi haldið sam- bandi við stúlkurnar í kynferðis- legum tilgangi" og að maðurinn hafi vitað aldur stúlknanna. Þar kemur einnig fram að aðstandend- ur stúlknanna kváðust hafa tekið eftir miklum breytingum í fari þeirra árið 1998 og hefur önnur þeirra ítrekað reynt að fyrirfara sér eftir atburðina. Maðurinn var ákærður og fund- inn sekur um að hafa tælt stúlk- urnar til kynferðismaka annarra en samræðis, hafa tælt aðra stúlk- una til þess að hafa við sig sam- ræði og fyrir að hafa fengið aðra stúlkuna til þess að klæðast gegn- særri samfellu og myndað hana þannig klædda. Einnig var maður- inn sakfeMur fyrir að hafa rætt um kynlíf við stúlkurnar á klám- fenginn og ósiðlegan hátt og fyrir að hafa keypt áfengi fyrir stúlk- urnar og afhent þeim það. Maðurinn neitaði fiestum sakar- giftum öðrum en að hafa rætt á klám- fenginn hátt við stúlkurnar í síma, en við rannsókn málsins fann lögreglan á heimili hans upptökur á símtölum hans við stúlkurnar. -SMK Tetra-samskiptakerfiö Var óformlega tekið í notkun 19. júní síðastliðinn. í dag mun fyrst reyna verulega á hvernig kerfiö reynist. Sparkað í kótelettuþjóf Starfsmaður Bónuss við Laugaveg gekk í skrokk á búðaþjófi síðdegis í gær þegar hann reyndi að hlaupa á brott með vörur úr versluninni. Mað- urinn hafði innanklæða kjötbúðing og tvær pakkingar af kótelettum og gerði tilraun tO að hlaupa af sér afgreiðslu- manninn en varð ekki kápan úr þvi klæðinu. Lét þjófurinn ófriðlega og brást afgreiðslumaður þá ókvæða við. Henti hann ógæfumanninum upp að stórri rúðu og hrinti honum inn um dyr verslunarmiðstöðvarinnar. Þá sparkaði afgreiðslumaðurinn í þjófinn. Fjöldi fólks varð vitni að at- burðinum og gekk viðskiptavinur á milli ógæfumannsins og afgreiðslu- mannsins sem augh'óslega var talsvert æstur. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur Bónus kært viðkomandi búðar-