Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 28
44 __________________________________MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 Tilvera I>V .> i •% Samtökin Collegium Musicum hafa um 15 ára skeið uimið að rannsóknum á menningararfln- um sem fólginn er í sönglögum fyrri alda. Hér er um að ræða fyrstu heildarrannsókn á nótum sem fundist hafa í íslenskum handritum. Niðurstöður rann- sóknanna verða lagðar fram en þær verða enn fremur gefhar út á árinu. Sex ung tónskáld hafa verið ráðin til að gera nýjar út- setningar á nokkrum þessara fomu tónverka og fá gestir ráð- stefnunnar að heyra afrakstur- inn. Verkefnið er irnnið í sam- starfi við Kristnihátíð og Lands- bókasafn. Opnanir ■ UÓSMYNDIR Á MOKKA Gunn- laugur Arnason opnar Ijósmyndasýn- inguna Leikur að IJósi sem veröur opnuö í dag á Mokka-kaffi. Þar verða til sýnis abstrakt Ijósmyndir, prentaðar á striga. Gunnlaugur lauk BA-prófi í blaöaljósmyndun frá Fylk- isháskóla Kalífornlu I San Francisco og fjölmiölun frá Fylkisháskóla Kalíforníu í Sonoma. Hann hefur ver- iö búsettur í San Francisco síðustu fimm ár og unnið þar á dagblööum og tímaritum sem Ijósmyndari og blaðamaður, jafnt því aö skrifa reglulega fyrir Morgunblaöiö. Fram undan er MA-nám við,Westminster- háskólann í London. í verkum sínum styöst Gunnlaugur viö hitanæmar lit- skyggnur (infrared) sem eru fram- kallaöar sem negatíva. Þema sýn- ingarinnar er leikur aö Ijósi, þar sem Gunnlaugur notar Ijós til þess að mynda óhlutbundin form. Sýningin er opin á sama tíma og kaffihúsið. Síðustu forvöð ■ LIOSMYNDIR A MOKKA Kristín Pálmadóttir hættir meö sýninguna Landiö við fætur þér í dag. Kristín útskrifaöist frá grpfíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Islands 1994 en engu aö síður er þetta fjórða einka- sýningin hennar. Bíó ■ FILMUNDUR Næsta mynd Kvik- myndaklúbbsins Filmundar heitir Last Night (1998) og fjallar um heimsendi. Þetta er mynd um við- brögö fólks við þeirri vissu að heim- ur þeirra sé aö farast. Leikstjóri myndarinnar er Don McKellar sem er jafnframt höfundur handrits auk þess sem hann fer meö aöalhlut- verkiö. Myndin er sýnd í Háskólabíói í kvöld klukkan 22.30. ■ RAFEIND Á EGIISSTÖDUM Stór myndin Three to Tango veröur sýnd í Rafeindinni á Egilsstööum í kvóld kl. 20. Einstök mynd meö toppleik- urum. SJá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is Kirkjutónlistar- stefna í Skálholti Goðir vimr a hestaballi Arndís, Helena og Ólafur voru í roknastuöi undir taktfastri sveiflu Geirmundar. ■*> a Setið á rökstólum Vinirnir Guðmundur, Kristín, Magnús, Sæmundur og Dabbi höfðu um nóg að tala eftir viðburðaríka dvöl á Landsmótinu. Landsmótið íVíðidal: Fjörugt á hesta- mannaballi A hestbaki Þóra Ólafs kom ríðandi á Stjörnu á dansleikinn. DV-MYNDIR INGÖ Skagfirsk sveifla var ríkjandi á eldfjörugu hestamannaballi sem haldið var á föstudagskvöldið í tengslum við Landsmót hesta- manna í Víðidal. Það var enginn annar en Geirmundur Valtýsson og hljómsveit sem léku fyrir dansi langt fram eftir kvöldi hestamönnum og öðrum til mik- iliar ánægju. Kát og reif Raggi Jonna, ráðsmaöurinn úr Viðey, lét sig ekki vanta á dansleik hesta- manna. Með Ragga á myndinni eru Ásta Kristín, Maríanna og Emma sem allar virtust skemmta sér hiö besta á ballinu. Biogagnryni Brosa sínu blíðasta Mikill fjötdi manna kom á dansleikinn á föstudagskvöid og steig dans undir fjörugri tónlist Geirmundar. Þær Dianna og Isabelle voru meðal gesta. Stjörnubíó - Eye of a Beholder: ★★ Verndarengill morðingja Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir Lögreglumaðurinn og dóttir hans Ewan McGregor leikur lögreglumann sem gerist verndarengill morðingja. Ef hægt er að kalla eina einstaka kvikmynd púsluspil þá er Eye of the Beholder gott dæmi um slíka mynd. Hún er auglýst sem saka- málamynd en er um leið súrrealískt verk þar sem raunveruleikinn er oft aukaatriði og mannshugurinn víðlenda þar sem afstæðar hugsan- ir persónanna fá á sig mynd sem oft er erfítt er að fá einhvem skilning á. Myndin er stanslaust að fara út fyrir hinn hefðbundna stíl sem hún byrjar á og oftast mistekst að skapa stemningu og áreiðanleika sem myndin vissulega þarf á að halda. Leikstjórinn Stephan Elliott (Priscilla Queen of the Desert) ætl- ar sér of mikið, hann vill greinilega að áhorfandinn fái sterka innsýn í aðalpersónumar tvær. Þetta tekst ekki, til þess eru persónumar of veikburða, tætingslegar í allri sinni veruleikafirrtu veröld. Sagan í myndinni er nánast eins og draumsýn og fjallar um breskan rannsóknarlögreglumann, sann- kallaðan tækninörd, sem fenginn er til að fylgjast með syni yfírboðara síns í Bandaríkjunum. Hann verður vitni að því að hann er drepinn með köldu blóði af konu einni, raðmorðingja, sem einhverra hluta vegna telur það jafnsjálfsagt að drepa elskhuga sína og að fara með þeim i bólið. í stað þess að koma morðingjanum í hendur lögregl- unni eltir hann stúlkuna hvert sem hún fer og heldur vemdarhendi yflr henni. Við fylgjumst með öllum atburð- um myndarinnar í gegnum lög- reglumanninn sem gengur undir dulnefninu Augað og aðeins í gegn- um hans hugsanir kynnumst við morðingjanum, ungri stúlku sem Augað kemst að því að heitir Joanna Eris og hafði verið alin upp á munaðarleysingjahæli. Við fáum í raun aldrei að vita hvað morðing- inn hugsar, hvað það er sem gerði hana að þvi sem hún er. Það er þessi skortur á bili á milli hins góða og illa sem gerir myndina ekki bara erfiða heldur einnig tilgerðar- lega. Ewan McGregor og Ashley Judd eru fínir leikarar en eiga í erf- iðleikum hér, sem von er, sérstak- lega McGregor, en það er fyrst og fremst hann sem á að mynda sterkt tilfmningasamband. Þegar upp er staðið er Eye of the Beholder uppfull af hugmyndum, misgóðum en áhugaverðum, og er einstaka sinnum það sem hún hefði átt að vera, spennumynd í anda meistara Hitchcocks en gefur alltof lítið frá sér. Lelkstjóri og handritshöfundur: Stephan Elliott. Kvlkmyndataka: Guy Dufaux. Tón- list: Marius De Vries. Aöallelkarar: Ewan McGregor, Ashley Judd, Jason Priestley, Patrick Bergen og Genevieve Bujold. *.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.