Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 DV Helgarblað 21 svo er ekki minnst einu orði á hans álit í dómnum. Reyndar er það viss sigur fyrir mig að fá eina og hálfa milljón því ég hef aldrei séð svo háa upphæð í sambæri- legum málum. Ég er við gjaldþrot og ég er að leita réttar mins eingöngu vegna þess að ég varð sjúklingur út frá þessari aðgerð. Það hefur verið reynt að flækja málið og það vantar í skýrslumar. Hvert sem ég fer fæ ég þau svör að ég eigi að leita réttar míns og ráða mér lögmann. Það gerði ég en þegar orð mín eru ekki marktæk og aðrir segja ekki satt og rétt frá vandast málið.“ Samstaða læknamafíunnar „í raun sýnir dómurinn ekkert ann- að en gífurlega samstöðu lækna. Mér fmnst ég hafa unnið fyrri hálfleik með því að hafa fengið miskabætur en seinni hálfleikur er eftir og það á eftir að taka á þeirri örorku sem ég hlaut. Ég veit að ég er taka stórt upp í mig að tala um mafíu i sambandi við læknastéttina hér á íslandi en þetta heyri ég alls stað- ar. í dag er ég metin 75% öryrki hjá Tryggingastofhun ríkisins og ég leigi íbúð hjá bænum. Ég er þakklát fyrir íbúðina en ég stefndi aldrei á þessa stöðu, ég er ekki alin þannig upp. Ég þrái það að þessu máli ljúki og að ég þurfi ekki að hugsa um það dag eftir dag og ár eftir ár. Líf mitt hefur ekki snúist um neitt annað en þetta mál og það er mjög auðvelt að verða veikur í svona stöðu. Maður þarf að hafa sig all- an við að halda sér gangandi." Samtök gegn læknamistökum Jórunn Anna er tveggja bama ein- stæð móðir. Hún hefur lítið sem ekkert unnið eftir að hún fór í hina örlagaríku brjóstaminnkunaraðgerð 1991. „Siðast þegar að ég vann þá var ég verslunarstjóri hjá Stefanel í Kringl- unni. Svo varð ég ólétt og varð að hætta vegna þess að það byrjaði að blæða á meðgöngunni. Ég er tveggja bama móð- ir, á Stefaníu sem er 23 ára og Tómas Inga sem verður 10 ára þann 1. ágúst. Á snærum sem taka málin að sér. Á ári em 90-150 mál sem koma inn á borð hjá samtökunum og það er merkilegt að sjá að það em alltaf sömu læknarnir sem vandræði verða með.“ Gjaldþrot fram undan „í þessu máli öllu saman var marg- brotið á mér sem borgara. Ég er ein- stæð móðir með tvö böm, ég var nýbú- in að kaupa mér lítið raðhús þegar þetta var og var ágætlega fjárhagslega stæð. Ég hef alltaf talið mig frekar sterka og var mikil íþróttakona á mín- um yngri árum. Þetta rústaði alfarið mínu lífi. Fyrstu þrjú árin þegar ég stóð í þess- ari baráttu minni var ég mjög veik. Alls staðar gekk ég á veggi og ég fékk 18.000 krónur í dagpeninga á þessum tíma. Þá var dóttir mín 14 ára gömul en hún varð að hætta tímabundið í skóla af því að ég gat ekki hugsað um eins árs gaml- an bróður hennar. Það trúir því enginn nema að hafa lent í svona löguðu hvað afleiðingarnar era svakalegar. Það er kannski það sárasta við þetta allt sam- an. En það sem ber að þakka í þessu máli er að ég er með mjög góða lög- menn, Róbert Áma Hreiðarsson, Þröst Þórisson og aðstoðarfólk þeirra. Málið hefur þvi eins og gefur að skilja haft áhrif á fleiri en Jórunni en barátta hennar undanfarin 9 ár hefúr vitaskuld ekki farið fram hjá bömum hennar tveimur. „Þetta hefur haft mjög mikil áhrif á böm mín og foreldra mína. Þau horfðu upp að það ég missti heilsuna og varð mjög veik. Ég hef aldrei getað haidið á stráknum mínum, mig skortir þrek í það. Ég get ekki haldið á innkaupapoka, hengt upp þvott eða unnið einfóldustu verk. Ég á tveggja ára gamalt bama- bam sem ég hef aldrei getað haft hjá mér. Ég er mjög slæm í öxlunum og handleggjunum og byrja að titra við minnsta álag. Þetta em afleiðingar að- gerðarinnar. Foreldrar mínir og dóttir hafa stutt mig með dáð en strákurinn gerir sér ekki almennilega grein fyrir þessu. Drep komst í brjóst Jórunnar Jórunn segist strax hafa fundið fyrir þrýstingi í brjóstinu eftir brjóstaminnkunaraðgeröina. Drep komst í brjóstið og úttkoman varð stór sáryfir allt brjóstið. þeim tima sem ég fór í aðgerðina átti ég litla raðhúsið mitt og minn bíl. Við höfðum það ágætt þessi litla fjölskylda. Eftir aðgerðina urðu samskipti mín við lýtalækninn fljótlega mjög stíf, sér- staklega þegar vitað var að ég ætlaði að leita réttar míns. Hann fór í fullkomna vöm og ég vil taka það fram að auðvit- að veit ég að það geta ailir læknar gert mistök, rétt eins og við hin. Þeir virðast hins vegar eiga mun erfiðar með að við- urkenna mistök sín. Ég tek ofan hattinn fyrir þeim læknum sem viðurkenna mistök sín og við eigum fullt af færum læknum. Þó þekki ég hina hliðina líka, í gegnum samtökin Lífsvog gegn lækna- mistökum. Skýringin á því hlýtur að vera sú að það em til góðir læknar og ekki jafhgóðir læknar." Jórunn stofnaði samtökin, Lifsvog gegn læknamistökum, sem hún segir að Ístrax hafi komið í ljós að þörf var fyrir. „Síðastliðin fimm ár hef ég aðstoðað fólk með það hvaða rétt það á í svona málum og hvemig það ber sig að við að kæra læknamistök. Við vísum fólki leiðina og höfum lögfræðinga á okkar Mamma hans er bara eins og hún er og hann þekkir ekkert annað. Foreldrar mínir vom meira eða minna með böm- in mín fyrstu þrjú árin eftir aðgerðina." Enn er eitt dómstig eftir, Hæstirétt- ur, og þar af leiðandi möguleiki á því að áfrýja dómnum. Hvað hyggst þú fyrir? „Málinu verður áfrýjað til Hæstarétt- ar og ég tók ákvörðun um það í samráði við lögmenn mína sama dag og héraðs- dómur féll. Mér em dæmdar miskabæt- ur upp á 1,5 miHjón út á það að það þurfti að lækka vinstra brjóstið mitt niður um 7 cm. Dómurinn talar bara um eina aðgerð á vinstra brjóstinu, en þær vom fimm. Nú er verið að vinna í því að fá gjafsókn eins og við fengum í héraðsdómi. Um leið og það er komið í höfn getum við byijað. Fyrir mér var þetta borðliggjandi mál en það var ekki tekið mark á öllum þeim vottorðum, skýrslum ekki einu sinni áliti Land- læknisembættisins sem ég hafði. En ég er nú bara þannig gerð að ég trúi því að þetta hafist að lokum. Satt er satt og lygi er lygi.“ -þor A TILBOÐI LEO 650 er kraftmikil og fjölhæf heimilistölva sem skilar þér inn á Netið án nokkurra vandkvæða og veitir öllum fjölskyldumeðlimum aðgang að nýjum leiðum í samskiptum og upplýsingaöflun á öruggan og þægilegan hátt. LEO 650 Intel Pentium III 650 EB MHz 256k flýtiminni, 133 bus 128 Mb SDRAM 133 MHz 20 GB harður diskur Skjár 17" 16 Mb 3D skjákort 56k Voice/fax mótald 8 leshraða DVD geisladrif Sound blaster 128 hljóðkort Arowana hátaiarar Windows 98 SE Lyklaborð og mús Norton Antivirus Skipholti 77 Sími 530 1800 Fax 530 1801 www.aco.is pentium ///
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.