Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 4
20 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 ____J Diddú vill sjá listaverk í Gerðubergi hafa menn leyft alls konar fólki utan úr bæ að velja myndlistarverk á sýningar undir samheitinu Þetta vil ég sjá. Kári Stefánsson, Vigdís Finnbogadóttir og Friðrik Þór Friðriksson hafa þeg- ar valið sér myndverk og voru þær sýningar allar vel heppnaðar, fróð- legar og fallegar. Næst til að velja er hin ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og verður val hennar afhjúpað 28. október. Af öðrum viðburðum í Gerðu- bergi á þessu hausti má nefna ritþing Einars Más Guðmundssonar sem verður 4. nóvember. Einar Már er sögumaður af guðs náð og verður gaman að heyra hann spinna um for- tíð sína og nútíð. Móðurímyndin í íslensk- um Ijósmyndum í nóvember verður opnuð sýning- in Móðurímyndin í íslenskum ljós- myndum í Ljósmyndasafni Reykja- víkur. Þar fáum við að sjá sögulegt yfirlit yfir ímynd móðurinnar í ís- lenskri Ijósmyndasögu. Ljósmynd- irnar eru ýmist í upprunalegri eða samtímaprentun. ísinn brotnaði Ekki gekk allt slysalaust fyrir sig þegar Baldur var settur upp í útlönd- um, enda leikmyndin gríðarlega viðamikil. Það alvarlegasta gerðist þegar stóru ísjakarnir voru teknir úr mótunum i Helsinki og menn ætluðu að koma þeim fyrir á sviðinu: þeir brotnuðu! Nú voru góð ráð dýr, eng- in sviðsmynd án ísjaka. En sem bet- ur fór höfðu Norðmenn af eðlislægri sparsemi varðveitt sína ísjaka frá sviðsetningunni í Bergen nokkrum dögum fyrr og þeir lögðu strax af stað til Helsinki í frystigámum. Hingað heim til Menningarborgar- innar hringdu íslenskir eftirlitsmenn sýningarinnar með stuttu millibili: Ekki komnir enn! Ekki komnir. Ekki komnir. Uns boðin bárust að lokum: Þeir eru komnir! Á elleftu stundu en í tæka tíð. Bannað að reykja Gaman var að fylgjast með nóbelsverðlauna- hafanum alþýð- lega Gúnter Grass meðan hann dvaldi hér á landi. Ekki rigndi upp í nasimar á honum, eins og Einar Már orðaði það. Þeir hittust í fýrsta sinn á hátíðinni, en Einar Már hefur kvittað fyrir skuld sína við Grass í ræðu og riti og fagnaði honum vel. „Þegar ég hitti unga þýska höfunda þá spyr ég alltaf: How is Gúnter?“ sagði Einar Már. „Nei, nei, nei, það áttu ekki að segja,“ sagði Grass. „Þeir hata mig allir!“ Eins og sjónvarpsáhorfendur sáu þegar Kristján Kristjánsson ræddi við hann þykir Gúnter Grass vænt um pípuna sína, og hann gat þess nokkrum sinnum meðan hann dvaldi hér að hann ætlaði aldrei að fara til Bandaríkjanna aftur. Af hverju? Jú, hann getur ekki hugsað sér að vera í landi þar sem hægt er að kaupa byssu eins og hvem annan vaming og þar sem dauðarefsingar eru leyfðar en bannað að reykja! Þrívíddarverk og Þórarinn B. Þegar spjallað var stuttlega við Ólaf Kvaran, forstöðumann Lista- safns íslands, sagði hann að óneitan- lega litaði list frá Kína hjá þeim haustið í sýningahaldi. Nú stendur yfir sýning á kínverskri list á 20. öld sem haldin er í skiptum fyrir íslenska listsýningu á vegum Listasafns fs- lands, en hún var haldin í Hong Kong og Peking fyrir tveimur árum. Sýn- ingin í Listasafninu er á vegum stofn- unar Kínverska alþýðulýðveldisins sem sér um kínverskar listsýningar er- lendis. Sigurður Guðmundsson, einn okkar virtasti myndlistarmaður, hefur búið í Kína hin síðari ár og unnið þar að sinni myndlist. 19. október verður opnuð sýning á „hlutkenndum þrí- víddarverkum" hans í Listasafninu. Loksins Þórarinn B. Ólafur sagði að erfitt væri að gera upp á milli sýninganna I safninu því allar væru þær merkilegar, en tví- mælalaust væri stærsti viðburður haustsins yfirlitssýning á verkum málarans Þórarins B. Þorlákssonar. „Við bindum miklar vonir við þessa sýningu, enda heil þrjátíu ár siðan haldin hefur verið yfirlitssýning á verkum Þórarins og hundrað ár síðan hann hélt sýninguna sína - fyrstu einkasýninguna sem haldin var hér á landi af íslenskum listamanni. Ég er ákaflega stoltur af sýningunni." Flestir kannast sennilega við Þórar- in B. og rómantíska túlkun hans á ís- Ienskri náttúru. Með henni lagði hann grunn að íslenskri landslagshefð í málaralist í byrjun 20. aldar. Meistaraverk í desember- mánuði í desembermánuði eru að venju sýnd verk úr safneigninni og eru þar á meðal málverk eftir stærstu meistarana: Kjar- val, Scheving, Ásgrím og Jón Stefáns- son. Einnig verða sýnd þrívíddarverk sem safnið hefúr eignast á síðustu tutt- ugu árum, en meðal höfúnda þeirra eru Hannes Lárusson, Ragnhildur Stefáns- dóttir og Rósa Gisladóttir. Margt er fram undan í Listasafhinu, þó ekki megi gleyma þeim sýningum sem nú standa yfir, en auk áður nefndr- ar Kínasýningar er það sýning á verk- um byltingarmannsins Magnúsar Páls- sonar og á ljósmyndaverkum sænsku listakonunnar Miriam Backström. -þhs Falsa Reyk nir aví Starfsemi Listasafns Reykjavíkur skiptist núorðið niður á tvö glæsileg hús. Annars vegar eru það gömlu góðu Kjar- valsstaðir og hins vegar nýja Hafnarhús- ið. í vetur verður heilmikið um að vera í báðum húsum og alls ekkert mjög langt að fara á milli. Um þessar mundir stendur yfir á Kjar- valsstöðum sýningin Tími - fresta flugi þínu sem opnuð var um miðjan ágúst og mun verða aðgengileg út næsta mánuð. Þar er fjallað á nýstárlegan máta um það hvernig listamenn vinna með tímann í verkum sínum. í Hafnarhúsinu er sýn- ingin CAFÉ9.NET sem er samstarfs- verkefni átta menningarborga og vett- vangur íyrir myndlistarmenn til þess að skiptast á skoðunum á Intemetinu. ísland litið öðrum augum Á döfinni hjá Listasafninu má nefha hönnunarsýningu Form ísland sem verð- ur hleypt af stokkum 14. október. Sýn- ingin ber heitið Mót og er m.a. ætlað að varpa ljósi á hinn sögulega arf íslenskrar hönnunar og gefa yfirlit yfir þróun henn- ar á þessari öld með skírskotun til inn- lendra og erlendra áhrifavalda. Einnig er markmið sýningarinnar að gera nútíma- hönnun góð skil svo og stöðu hennar í upphafi nýrrar aldar. Áhugaverð sýning verður opnuð í Hafnarhúsinu í nóvember en sú sýning ber yfirskriftina Island öðrum augum Iit- ið. Markmið sýningarinnar er að leitast við að skilgreina hvað það er sem ein- kennir islenskan menningarheim sérstak- lega. Þátttakendur eru meðal annarra bandaríska listakonan Roni Hom, sem að sögn lítur á ísland sem vinnustofu sína, og Birgir Andrésson en hann er einmitt þekktur fyrir að fást við séríslenska list- sköpun. Fölsunarumræðan hefur bersýnilega sett mark sitt á dagskrá Listasafns Reykjavíkur og í byijun vetrar verður haldin sýning í Hafnarhúsinu sem hefur vinnuheitið Lítil umfjöllun um eðli fals- ana í myndlist. Þar geta sýningagestir séð með eigin augum hvað það er sem ein- kennir listaverkafalsanir og má segja að sýningin sé nokkurs konar tilraun list- heimsins til þess að sýna fram á að full- yrðingar um falsanir séu studdar vísinda- legum rökum. Trúarleg list Ásmundar I nóvember verður sýnd samtímalist frá Suður-Afríku, sem hlýtur að vera listáhugafólki mikið tilhlökkunarefni, svo sjaldan sem myndlist frá þeirri álfú í Listasafni kur rekur á fjörur okkar. Á svipuðum tíma, í byijun nóvember, fáum við að sjá af- rakstur sam- starfs Listasafns Reykjavíkur og Listasafns Sig- urjóns Ólafs- sonar í Ásmund- arsafni. Sýning- in ber yfirskrift- ina Hærra til þín og er þar fjallað um trúarleg minni i verkum nokkurra nor- rænna lista- manna. Meðal þeirra sem eiga verk á sýning- unni eru Ás- mundur Sveins- son og Siguijón Ólafsson, lista- menn sem fáum dettur í hug að nefna þegar talað er um trúarlega list, enda er það markmiðið með sýningunni að sýna verk þeirra sem ekki hafa fengist við Ronl Horn Hún hefur margoft heimsótt Island og sagt að hún líti eiginlega á það sem sína vinnustofu. hefðbundna kirkjulist - þó að engu að síður sé trúarleg minni að finna í verkum þeirra. Stendur sýningin fram í miðjan janúar. -þhs Brennandi hí us og innviðir Edda Jónsdóttir, eigandi Gallerís i8, stendur í ströngu þessa dagana. Hún hef- ur fest kaup á húsnæðinu á Klapparstíg 33 og nú standa yfir endurbætur á því, en ráðgert er að sýningahald við Klappar- stíginn hefjist í febrúar á næsta ári. I byijun nóvember mun hún síðan halda til Kölnar á Art Cologne, hina þekktu al- þjóðlegu listamessu, en Gallerí i8 hefur verið valið til þátttöku í henni. Mikill fengur er fyrir i8 að komast á messuna, en þar munu verða kynntir listamenn sem eru á snærum gallerísins, s.s. Ragna Róbertsdóttir, Finnbogi Pétursson og Birgir Andrésson. Að sögn írisar Stef- ánsdóttur, starfsmanns i8, eru á Kölnar- messunni allir sem einhvers mega sín í alþjóðlegum listaheimi; gallerí, safnarar, sýn- inga- og safhstjórar og listamenn. Áður hefur i8 tekið þátt í slíkum uppákomum og ekki orðið fyrir vonbrigðum með árangurinn sem ekki hefúr látið á sér standa í formi sýningar- boða til handa íslensk- um listamönnum og eins hefúr i8 komist í kynni við erlenda lista- menn sem síðar hafa sýnt hér á landi. Douwe Jan Bakker, Nafnlaust 1996 Undirbúningsvinna Bakkers fyr- ir teikningu sem listamaöurinn hugöist gera og sýna í i8. Lést við und- irbúning sýn- ingarinnar Tvær sýningar verða í Ingólfsstræti 8 í haust. 21. þessa mánaðar verð- ur opnuð sýning á verk- um hollenska lista- mannsins Douwe Jan Bakker sem heimsótti ís- land reglulega og leitaði sér innblásturs í íslenskri náttúru. Bakker var að undirbúa sýningu sem hann hugðist halda í i8 þegar hann lést árið 1997. Sýningin sem nú verður haldin byggir á undirbúningsvinnu hans fyrir þá sýningu, auk eldri verka. Gefin verður út vegleg sýningarskrá jafn- hliða sýningunni þar sem nokkrir kunnir íslenskir listamenn skrifa um kynni sín af Bakker. Þann 26. október verður opnuð síðasta sýning Gallerís i8 fyrir flutningana. Sú sýning er haldin í samvinnu við Norræna húsið og er á verkum finnska listamanns- ins Jyrki Parantainen sem þekktur er fyrir ljósmyndir sínar af brennandi húsum og innviðum þeirra. Á sýningunni verða ljós- myndir af þessu ferli - ftá því að eldur kviknar að afleiðingum hans og eyðilegg- ingu. Jafnhliða verða ljósmyndir sýndar I Norræna húsinu. -þhs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.