Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 32
' NISSAN PRIMERA i f ; 'íhSEpwmi m. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ MANUDAGUR 16. OKTOBER 2000 Leitað aö 13 ára dreng Lögreglan í Hafnaríírði leitar 13 ára gamals drengs sem fór að heim- an frá sér um hádegisbilið á laugar- dag. Til hans sást snemma sama : kvöld en ekkert hafði frekar til hans spurst er DV fór í prentun í nótt. Drengurinn heitir Þórarinn Al- freð Guðlaugsson, er um 165 cm á hæð og samsvarar sér vel. Hann er ljósskolhærður, með burstaklipp- ingu, með brún augu og gleraugu. Hann var klæddur í bláa Adidas- peysu með hvítum röndum á erm- um og gráar Adidasbuxur með hvít- um röndum á skálmum og i brún- um skóm. Drengsins var leitað með aðstoð sporhunda í gær og í nótt og aug- lýst eftir honum í fjölmiðlum. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði átti að kalla út björgunarsveitir í nótt i til þess að leita að drengnum ef myndbirting af honum í kvöldfrétt- um sjónvarpstöðvanna bæri ekki árangur en ákvörðun um frekari leit verður tekin á morgun. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Þórarins Alfreðs eru beðnir að hafa samband við lögregl- una í Hafnarfirði í síma 525 3300. -SMK DV-MYND G.BENDER Rögnvaldur Guömundsson með rjúpurnar tvær. Rólegt í rjúpunni „Veiðiskapurinn gekk rólega, við fengum aðeins tvær rjúpur," sagði Rögnvaldur Guðmundsson, formað- ur handknattleiksdeildar HK, en hann var einn þeirra fjölmörgu sem fóru til rjúpna á fyrsta degi í gær. Veiðiskapurinn gekk misjafnlega en aldrei hafa fleiri reynt að ná sér i rjúpu í matinn og flykktust menn á fjöll með misjöfnum árangri. Nánar á bls. 47. G.Bender ME TARZAN, YOU JANE! ísafjörður: Lóðs setti gat á frystitogara Svo óheppilega vildi til þegar hafnarstarfsmenn voru að sækja slasaðan sjómann í Frera RE-73 á ísafirði á laugardag að hafnsögubát- urinn fór utan í Frera með þeim af- leiðingum að gat kom á frystitogar- ann. „Hann var að bakka frá bátnum og þegar verið er að taka menn frá skipum sem ekki eru á hreyfingu er oft erflðara að komast frá þeim,“ út- skýrði Hermann Skúlason, hafnar- stjóri ísafjaröarhafnar. Litlar sem engar skemmdir urðu á hafnsögu- bátnum við áreksturinn. Freri var settur í viðgerð sem tók skamman tíma og er skipið komið út á sjó aftur. Sjómaðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. -SMK Reykjavík: Stúlka festist Stúlkur með bolta Þessar föngulegu stúlkur vöktu veröskuldaða athygli þar sem þær spiluöu strandblak á Agora, alþjóölegri fagsýningu þekkingariönaöarins sem haldin var i Laugardalshöll í síöustu viku. Ljósmyndari DV smellti þessari mynd af þeim þar sem þær slökuðu á milli lotna. í tré Slökkviliðið var sent að tré í Fó- getagarðinum i miðbæ Reykjavíkur um fimmleytið á laugardag þar sem unglingsstúlka var fost í trénu. Hún hafði verið að príla í trénu með fé- lögum sínum en varð svo gripin lofthræðslu og þorði ekki niður. Dælubíll með stiga kom á staðinn og var stúlkunni hjálpað niður. Ekkert amaði að henni annað en lofthræðslan. -SMK Tímamótaréttarhöld í Héraðsdómi Vestfjarða: HlV-smitaður maður sagður hjartveikur - rekinn úr skipsrúmi og krefst skaðabóta - einstakur málarekstur í dag verður tekið fyrir í Héraðs- dómi Vestfjarða mál Guðjóns Krist- inssonar vélstjóra gegn þrotabúi Vesturskipa hf. Guðjón höfðaði mál- ið gegn útgerð Geysis BA þegar hann var rekinn úr skipsrúmi eftir að hafa tilkynnt yfirmönnum skips- ins að hann væri HlV-smitaður. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slíkt skaðabótamál er rekið fyrir dómstólum hér á landi. Guðjón Kristinsson er vélstjóri á sextugsaldri og hafði aðeins starfað í sólarhring um borð í Geysi BA áður en hann var látinn fara. Stýri- maðurinn um borð í Geysi hafði ráðið Guðjón með samþykki skip- stjóra en þegar fréttist af HTV-smiti hans varð yfirvélstjórinn um borð æfur og setti útgerðinni þá úrslita- kosti að annaðhvort hætti hann sjálfur eða þá HlV-smitaði aðstoðar- vélstjórinn. Úr varð að skipstjórinn sagði Guðjóni upp að kröfu útgerð- arinnar í landi. Guðjón Kristinsson greindist með HlV-smit fyrir sex árum en er ekki með alnæmi sem er lokastig sjúk- dómsins. Guðjón fer fram á hálfa aðra milljón í skaðabætur vegna at- vinnumissis en það er Frið- rik Á. Hermannsson, lög- fræðingur Vélstjórafélags íslands, sem sækir málið fyrir Guðjón. Til vamar er Hörður Felix Harðarson, staðgengill Gests Jónssonar lögmanns, en í raun er það oliufélagið Skeljungur sem verst í málinu vegna þess að félagið eignaðist Geysi BA þegar útgerð skipsins varð gjald- þrota fyrir skemmstu. Samkvæmt heimildum DV byggist vömin á því að Guðjóni hafi verið vikið úr skips- Guöjón Kristinsson. rúmi vegna hjartveiki en ekki vegna HlV-smitsins. Það þykir Guðjóni og lög- manni hans með ólíkindum í ljósi alls sem á undan er gengið. Dóms er að vænta innan fjögurra vikna en þetta tíma- mótamál dæmir Erlingur Sigtryggsson, héraðsdómari á Vestfjörðum, sem kvað upp kvótadóminn fræga sem einnig var tímamótadómur líkt og HIV- dómurinn verður nú. -EIR Bankasameining: Miðaldra bankamenn órólegir - á fjórða hundrað óttast um lífsviðurværi sitt Gæði og glæsileiki „Það er mikill kurr og órói meðal félagsmanna okkar vegna yfirvof- andi bankasameiningar," sagði Friðbert Traustason, formaður Sam- bands íslenskra bankamanna sem hefur 3600 félagsmenn. „Það er nú svo komið að þegar vinnuveitendur sjá töluna fjóra eða jafnvel fimm í fæðingarári í nafhnúmeri nýs um- sækjanda þá verða þeir tregir." Talið er að á fjórða hundrað manns geti misst atvinnuna ef og þegar af sameiningu Landsbanka og Búnaðarbanka verður. Bankamir Afgreiðsla Búnaðarbankans. reka 15 bankaútibú á sömu stöðrnn og þá eru aöalbankarnir í Austur- stræti ekki taldir með. „Þetta er fólk sem hefur gert bankastörf að ævistarfi sínu og yfir- leitt þrautþjálfað fólk í meðferð pen- inga. Við erum hér að tala um mjög traustan vinnukraft því óvíða er meiri vinnuagi en í bönkum eðli málsins samkvæmt. En fólk skelfist óneitanlega þegar lífsviðurværið er í húfi,“ sagði Friðbert Traustason sem sjálfur er ekki í þessum hópi þar sem hann starfar á Reiknistofu bankanna. í Búnaðarbankanum stEufa um 700 manns og i Landsbankanum eru starfsmenn um eitt þúsund talsins. -EIR Grensásvegi 7, sími 533 3350. brothef P-touch 9400 Stóra merkivélln sem þollr álagiö 10 leturgerðir margar leturstærðir 16 leturstillingar -prentar [ 10 linur borði 6 til 36 mm Rafoort Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport_______ !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.