Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 15
15 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000_______________________ I>V _________________________________________________________________Hagsýni Margt smátt gerir eitt stórt - þegar upp er staðiö kosta litlu hlutirnir stórar upphæðir Ýmis ráð eru til þegar halda á matarreikningnum í skefjum. Hag- sýnt fólk fer t.d. ekki svangt út í búð því þá eru mun meiri líkur á að keyptur sé alls kyns óþarfi, eins og snakk og sælgæti. Eins er mikil- vægt að vera skipulagður, fara með lista yíir það sem vantar og kaupa aðeins það sem er á honum. Margir skipuleggja líka matseðilinn fyrir vikuna eða til lengri tíma og fara sjaldan í búðina og þá með inn- kaupalista með því sem þarf. Það er reynsla blaðamanns að hver ferð út í búð kosti alltaf meira en ráð var fyrir gert, því alltaf bætist eitthvað við það sem ætlunin var að kaupa. Þessar stuttu skotferðir eiga sér lika oftast stað rétt fyrir kvöldmat því eitthvað vantar í hann og þá eru flestir svangir og freistast því til að kaupa eitthvað sem ekki er þörf á. Margir hafa þennan háttinn á, að hlaupa út í búð rétt fyrir köldmat- inn, það sést á því hversu mikið er að gera í verslunum sem opnar eru á þessum tíma. Það finnst kannski mörgum það í lagi að grípa með sér eitthvert smá- ræði sem hugurinn girnist þá stundina. Þetta kostar nú ekki nema tvöhundruðkall, segja þeir. En það eru ekki margir sem hafa lagt það niður fyrir sér hversu stór póstur svona hlutir eru þegar árið er gert upp. Þegar skattskýrslan er gerð undrast margir þær stóru upp- hæðir sem þar eru og velta því fyr- ir sér í hvað allir peningamir fóru. Til að gefa lesendum einhverja hug- mynd um hvernig margt smátt ger- ir eitt stórt skulum við skoða fjöl- skyldu sem eflaust er á svipuðu róli og margar íslenskar fjölskyldur. Gos og sælgæti Við skulum byrja á þvl að skoða gos- drykkina því neysla þeirra er gífurleg hér á landi. Fjöl- skyldunni frnnst gott að fá sér gosdrykk með matnum og gerir það reglulega, auk þess sem meðlimir hennar fá sér stundum eitt glas yfir sjónvarpinu. Þannig drekkur þessi fimm manna fjöl- skylda um tvo lítra á dag. Verð gos- drykkja er afskaplega misjafnt en gera má ráð fyrir að tveggja lítra flaska af vinsælum gosdrykk kosti um 200 kr, sem er á milli þess sem hann kostar í stórmörkuðum og sjoppum. Sé keypt ein flaska á dag kostar það 73.000 kr á ári. Laugardagskvöldum eyðir þessi I hvað fóru allir þessir peningar? Spurning sem kemur upp hjá mörgum þegar skattframtaliö er fyllt út. fjölskylda fyrir framan • sjónvarpið og hefur fyrir sið að maula snakk og gotterí sem auðvitað er ein- göngu leyfilegt á nammidögum. Þau fá sér kartöflu- flögur sem kosta 350 kr., súkkulaðistykki á 200 kr. og ýmis- legt annað smálegt fyrir 200 kr. Þetta kostar 750 kr. á viku eða 39.000 á ári. Sjónvarp og myndbönd Þessi fjöl- skylda er mikið I heima og horfir mikið á sjón- varp. Því borga | þau skyldu- áskrift að RÚV og eru áskrifendur að Stöð 2. Elsta barnið í fjölskyld- unni og mamman eru miklir fót- boltaaðdáendur og því hefur fjöl- skyldan ákveðið að kaupa sér að- gang að sjónvarpsstöðinni Sýn sem sýnir leiki í enska boltanum. Núna borga þau 3895 kr. á mánuði fyrir áskriftina að Stöð 2 sem gerir 46.740 kr. á ári. Þegar þau bæta Sýn við þá .kostar áskriftin að f báöum stöðvunum '5650 kr. á mánuði eða "67.800 á ári. Við þetta bætist að sjálfsögðu áskriftin að Rúv sem kostar 25.200 á ári. Bíóferðir eru ekki oft á dagskrá en þess í stað sér fjölskyldan nýj- ustu myndimar þegar þær koma á út á myndböndum. Þau leigja sér spólu tvisvar í viku á 400 kr. stykk- ið eða 41.600 kr á ári. Skyndibiti Hjónin vinna bæði úti og kaupa sér yfirleitt eitthvert snarl í há- deginu þar sem ekki er mötuneyti vinnustað Hvort um sig eyðir þannig 3-500 krónum á dag, eða að meðaltali 800 kr. samtals. Svona gengur þetta fyr- ir sig i 220 daga á ári og því eyða þau 176.000 í sjoppur og verslanir í nágrenni vinnunnar árlega. Á föstudögum koma allir þreyttir Vioim eftir vinnuvik- og enginn nennir að elda. Þá er pöntuð pitsa sem kostar 1500 kr. því þau yna að versla við pitsufyrirtæki sem er í ódýrari kantinum. Eigandi pitsustaðarins er ánægður með viðskiptin því frá þessari einu fjölskyldu fær hann 52.500 kr. í kassann árlega þótt þau kaupi aðeins 35 pitsur á ári. (Aðrir fóstudagar voru um jól, páska, í sumarfríi og öðrum þess háttar dög- um þegar flestir eru með eitthvað annað en pitsur í matinn). Tæp hálf milljón í óþarfa Þegar hjónin gerðu skattskýrsl- una sína i febrúar veltu þau fyrir sér hvert allir peningarnir fóru. Þar sem þau höfðu haldið nokkuð ítar- legt heimilisbókhald sáu þau að í þessa litlu, en ónauðsynlegu hluti, höfðu þau eytt 449.900 krónum sem hefðu dugað fyrir smnarfrii í út- löndum fyrir alla fjölskylduna. Auð- vitað kæmi kostnaður á móti ef þau hætta að kaupa mat í hádeginu og panta sér pitsur þvi fjölskyldan þarf jú að borða. En sá kostnaður er mun lægri ef pitsan er búin til heima og hjónin taka með sér heimasmurða samloku til að borða í hádeginu. Og hafa ber í huga að þetta eru peningar sem búið er að greiða skatta og skyldur af. Hjóna- komin þurfa því að vinna sér inn talsvert hærri upphæð til að eiga fyrir þessu öllu. Ef haldið er ítarlegt heimilisbókhald kemur mjög fljótt í ljós í hvað peningarnir fara og hvemig hægt er að minnka útgjöld- in með því að skera niður allt hið ónauðsynlega. -ÓSB Samband viö neytendasíðu Þeim sem vilja hafa samband við neytendasíðu DV er bent á eftirfarandi leiðir: Beinn sími 550 5821 Fax 550 5020 Tölvupóstfang osb@ff.is Tekið er á móti öllu því sem neytendur vilja koma á framfæri, hvort sem það eru kvartanir, hrós, nýjar vörur eða þjónusta - eða spumingar um eitt og annað sem kemur upp á í daglegu lffl. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir innsjónarmaður neytendasíðu Hversdagsmaturinn: Pasta Pasta og hrísgrjón eru matur fátæka mannsins og margir kann- ast við að hafa i enda mánaðarins töfrað fram alls kyns fina rétti úr þessu ódýra hráefni. Þegar það er gert er hægt að láta hugmynda- flugið ráða og nýta það sem til er á heimilinu. Hér er auðveld, fljót- leg, ódýr og góð hugmynd að mál- tíð sem bragðast mjög vel. Pasta 1 dós niðursoðnir tómatar 1 laukur Hvítlaukur ítalskt krydd eftir smekk Ólífuolía Parmesan-ostur Hæfilegt magn af pasta er soðið þar til það er mátulegt. Á meöan pastað sýður í pottinum hitið þá olíu á pönnu. Steikið saxaðan hvitlauk og lauk þar til hann fær á sig gullinn lit. Setj ið tómata út í og kryddið efti smekk með ítölsku kryddi Parmesan-ost inum er stráð yfir pastasós- una áður en hún er borin á borð. Bor- ið fram með grænmeti sem til er og ristuðu brauði sem ei smurt kryddað hvítlaukssalti. ÓSB Hreinsilögurinn drýgður Setjið hreinsilög fyrir eldhús eða bað í úðabrúsa og þynnið með vatni. Úðið síðan yfir flötinn sem þrífa á og strjúkið af með tusku. Hreinlætisvörumar virka betur og endast lengur en þegar þeim er hellt úr flösku á flötinn. Auk þess sparar þetta tíma, t.d. þegar stærri fletir, eins og sturtuklefinn, er þrif- inn. Þá er úðað á allan flötinn og meðan unnið er á einum hluta verkar efnið á hina hlutana. Heimatilbúið örbylgjupopp Það er einfalt, ódýrt og auðvelt að búa til sitt eigið örbylgjupopp. Til þess þarf einungis bréfpoka, eins og þessa brúnu sem algengir voru hér áður fyrr en sjást nú helst í verslunum ÁTVR. í hann er hellt u.þ.b. 1/4 bolli poppmaís og nokkrum dropum af olíu. Einnig má úða örlitlu af feiti, sem ætluð er til matargerðar og kemur á úða- brúsum, yfir maísinn. Lokið pokan- um með því að brjóta upp á endann og setjið í örbylgjuofninn. Þetta verkar vel, er ódýrt og mun hollara en það örbylgjupopp sem fæst í búð- um. Olía á úðabrúsum í stað þess að kaupa feiti á úðabrúsum til eldamennsku (Non stick cooking spray), má setja venjulega olíu til matargerðar á úðabrúsa og nota hana þannig. Það er mun hag- kvæmara auk þess sem auðvelt er að þekja t.d. pönnu með mun minna magni af olíu en þegar hella þarf beint úr flösk- unni. Vöfflur í frystinn Næst þegar bakaðar eru vöfflur á heimilinu, bakið þá aukaskammt og frystið. Þegar borða á vöfflurnar er þeim einfaldlega stungið i brauðristina smástund eins og þeim vöfflum sem fást í frystikist- um stórmarkaðanna. Það er því hægt að gæða sér á heitum, ilmandi vöfflum með litilli fyrirhöfn. Gcður bíLótjári l (í gcðum $ír i p, jr. Eins og þú vilt að hinir aki skalt þú og sjálfur aka UiyiFERÐAR ? RÁÐ á vw.umférd.i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.